Morgunblaðið - 12.12.1996, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
konur störf við bókaútlán á Landsp-
ítala. Síðan bættust við sölubúðir og
bókasöfn á öllum stóru sjúkrahúsun-
um. Bókasafnsþjónustan átti strax
miklum vinsældum að fagna og þótti
til mikils hagræðis og ánægju fyrir
sjúklinga og jafnvel starfsfólk.
Sjúkravinir deildarinnar gerðu þó
meira en að vinna við sölubúðirnar
og bókasöfn sjúkrahúsanna. í anná-
lum deildarinnar frá árinu 1970 má
lesa um það að sjúkravinir hafi m.a.
aðstoðað við útvarp sem starfrækt
var innan Borgarspítalans.
Árið 1969 átti Reykjavíkurdeildin,
ásamt kvennadeildinni frumkvæði
að þeirri hugmynd að koma upp tóm-
stundaheimili fyrir aldraða. Þessi
hugmynd var lögð fyrir Félagsmála-
ráð Reykjavíkurborgar og árangur-
inn varð sá að fyrsta félagsmiðstöð
aldraðra var opnuð í Tónabæ. Sjálf-
boðaliðar kvennadeildarinnar að-
stoðuðu þar og síðan við aðrar fé-
lagsmiðstöðvar sem opnaðar voru í
borginni. Heimsending á matar-
bökkum fyrir sjúka og aldraða í
heimahúsum hófst árið 1974 og
sama ár var skipulögð heimsóknar-
þjónusta á vegum deildarinnar.
Föndurstarf hófst síðan árið 1975.
Af þessari upptalningu, sem þó er
ekki tæmandi, má sjá að starf
kvennadeildarinnar hefur verið
blómlegt frá upphafi. Það hefur auk-
ist og dafnað og tekið breytingum
eftir því sem þörf hefur verið á
hveiju sinni.
Öflugt sjálfboðastarf
En hver eru helstu verkefni
kvennadeildarinnar í dag, 30 árum
eftir að hún var stofnuð? I dag eru
reknar sölubúðir á fjórum sjúkra-
stofnunum í Reykjavík, þijár á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur; Landakoti,
Grensásdeild og Borgarspítala og ein
á Landspítala. Sölubúðirnar eru
stærsta tekjulind deildarinnar og
fyrir ágóðann af þeim hafa verið
keypt dýr og vönduð lækninga- og
rannsóknartæki sem gefin hafa^ ver-
ið sjúkrahúsum borgarinnar. Á ári
hveiju gefur deildin tæki og gjafir
fyrir um 5 milljónir króna.
Kvennadeildin rekur bókasafns-
þjónustu á öllum stóru sjúkrahúsun-
um og á Sjúkrahóteli Rauða kross-
ins. Hljóðbókaþjónusta er starfrækt
á Landspítala og Borgarspítala. Útl-
án bóka svo og hljóðbóka hafa auk-
ist jafnt og þétt á síðustu árum.
Heimsóknarþjónusta til sjúkra og
aldraðra er rekin af deildinni og er
markmið hennar að ijúfa einangrun
og koma í veg fyrir einmanakennd.
Sjúkravinir heimsækja skjólstæð-
inga sína einu sinni í viku og dvelja
hjá þeim 2-3 tíma í senn. Þeir lesa
fyrir þá, fara með þeim í gönguferð-
ir, í smásendiferðir eða sitja og
spjalla, allt eftir þörfum og óskum
hveiju sinni.
Hópur kvennadeildarkvenna hitt-
ist vikulega og útbýr fallega muni
sem seidir eru á basar félagsins í
nóvember ár hvert. Ágóðanum af
basarnum er varið til kaupa á bókum
fyrir sjúklingabókasöfnin. Starfandi
sjálfboðaliðar kvennadeildarinnar
eru nú tæplega 300 talsins og vinna
þeir 2-3 tíma vikulega í þágu Rauða
krossins.
Góður félagsskapur
Innan kvennadeildarinanr er blóm-
legt félagsstarf og hittast félagskon-
ur þrisvar til íjórum sinnum á ári og
fá þá til sín fyrirlesara með fræðslu-
eða skemmtiefni. Á hveiju sumri er
farið í dagsferð út fyrir bæinn. Sjál-
boðaliðum deildarinnar er boðið upp
á námskeið um sögu, starf og grund-
valiarreglur Rauða krossins, auk þess
sem þeim gefst kostur á að sækja
námskeið í skyndihjálp.
Kvennadeildin er ein virkasta og
öflugasta deild Rauða kross hreyfing-
arinnar á íslandi og í þau þijátíu ár
sem hún hefur starfað hefur hún
skilað mikilvægu sjálfboðastarfi.
Fjöldi kvenna vinnur að sameiginlegu
áhugamáli undir merki Rauða kross-
ins og gefur vinnu sína í þágu góðs
málefnis. Það verður þörf fyrir starf-
semi kvennadeildarinnar um ókomin
ár og ég vona að hún megi eflast
og dafna og vinna áfram að því
markmiði sem hún setti sér í upp-
hafí, að bæta hag sjúkra og aldraðra.
Höfundur er formaður
kvennadeildar Reykjavíkur-
deildar Rauða kross íslands.
JOLAKJOLAR
i/ERÐ FRÁ 1 .990
VÆNTANLEGT
Á MORGUN:
5-POCKET STRETCHBUXUR,
HOLLY SKYRTUR,
ULLARKÁPUR,
KJÓLAR O.FL., O.FL.
100% SILKINÁTTFÖT
VERÐ FRÁ
MIKIÐ URVAL
JÓLAGJAFA
NÝTT KORTATÍMABIL
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996 5 7
iimiitijinimm
j / 1 •• •
tot a bornm
í jólapakkann
Úlpur, kápur, jakkar, vesti, skyrtur, kjólar,
skokkar, peysur, blússur, joggingföt og joggingpeysur.
Opið til kl. 22 laugardaginn 14. desember
og frá kl. 13 tii 18 sunnudag.
Nýtt kortatímabii 12. desember
BARNASTIGUR
BRUM’S 0-14 SÍÐAN 1955
SKÓLAVÖBÐUSTIG 8 SÍMI 552 1461
Ódýrar
hraðsendingar ti!
útlanda fyrir jólin
r Vinir og ættingjar erlendis þurfa
ekki að fara í jólaköttinn, þó
forgangspostur jólagjöfin til þeirra sé sein fyrir.
EMS Forgangspóstur er á hraðferð um allan heim,
nætur og daga, fyrir jólin.
Póstur og sími býður sérstakt EMS jólatilboð á
pakkasendingum, allt að 5 kg., til útlanda.
Tilboðið gildir frá 1.-16. desember, á öllum póst-
og símstöðvum og í Hraðflutningsdeildinni,
Suðurlandsbraut 26, 108 Reykjavík.
Allar sendingar komast
hratt og örugglega á
áfangastað sem EMS
Forgangspóstur. Alþjóðlegt
N
Express
Worldwide
dreifikerfi TNT í yfir 200 löndum eykur enn
á öryggi og hraða EMS Forgangspósts.
Viðtökustaðir EMS hraðsendinga eru á póst- og
símstöðvum um land allt og í Hraðflutnings-
deildinni, Suðurlandsbraut 26, 108 Reykjavík.
Þar eru veittar allar nánari upplýsingar
í síma 550 7300.
Gjaldskrá
Opið daglega
kl. 8:30-18:00,
Evrópa: kr. 3.900,-
N-Ameríka og Asía: kr. 4.900,-
Önnur lönd: kr. 5.900,-
laugardaginn 14/12,
kl. 9:00-16:00,
laugardaginn 21/12,
kl. 9:00-16:00.
Sérstakar umbúðir er
hægt að fá á öllum
póst- og símstöðvum
og eru þær innifaldar
í verði sendingar.
PÓSTUR OG SÍMI
HRAÐFLUTNINGSDEILD
sími 550 7300
Blað allra landsmanna!
-kjarnimálsim!