Morgunblaðið - 12.12.1996, Side 58
58 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Nýr lífeyrissjóður útvalinna
rí kisstar fsmanna
UNDANFARIN ár
hefur ríkisstjórnin með
viðskiptaráðherra í
broddi fylkingar gert
hveija atlöguna af ann-
arri gegn almenna líf-
eyrissjóðakerfinu.
Nefnd á vegum rík-
isstjórnarinnar hefur
lagt fram margskonar
hugmyndir sem allar
snúast um að að skerða
almenna lífeyriskerfíð
eða jafnvel leggja það
niður og enn eru að
berast fréttir af afkára-
legum hugmyndum
þessarar nefndar.
Verkalýðshreyfingin og
almenna lífeyriskerfíð hefur setið
undir margskonar árásum frá ráð-
herrum og þingmönnum. Stjórnir líf-
eyrissjóðanna hafa að undanfömu
skorið niður réttindi í sjóðunum,
margir sjóðir verið sameinaðir, þess-
ar aðgerðir hafa tekist og flestir
sjóðanna eiga vel fyrir skuldbinding-
um og sumir sjóðir hafa reyndar
rýmkað reglugerðir sínar og aukið
réttindi sjóðfélaga töluvert eins og
't.d. lífeyrissjóður rafiðnaðarmanna.
Hvers vegna eiga sumir
að hafa meiri lífeyrisréttindi
en aðrir?
Ríkisstjórnin hefur nú lagt fram
á Alþingi frumvarp um nýjan lífeyr-
issjóð. Frumvarpið ber þess greini-
lega merki að allir sem komu að
samningu þess eru að semja um eig-
in lífeyrisréttindi. í kaflanum um
A-deild sjóðsins eru mörg atriði sem
vekja spurningar og reyndar furðu
akki síst vegna yfírlýstrar stefnu
ríkisstjórnarinnar. Við
lagasmíðina hefur ekki
verið tekið á einu ein-
asta vandamáli eins og
gert var í almenna kerf-
inu, eldri ríkislífeyris-
sjóðurinn er skilinn eftir
með hundruða milljarða
skuldir sem sendar
verða skattgreiðendum.
Réttindi eru aukin langt
umfram það sem þekk-
ist í öðrum lífeyrissjóð-
um og umfram það sem
sjóðfélagar höfðu. Þar
má t.d. benda á atriði
er snerta örorku- og
makalífeyri. Fleiri þús-
undir launþega eru
teknir úr lífeyrissjóð þar sem greitt
er í 6% og þeir settir í nýja sjóðinn
og greitt 11,5% af þeim. Kostnaðar-
auki sem sendur er til skatt- og út-
svarsgreiðenda skiptir hundruðum
ef ekki þúsundum milljóna króna.
Að auki eru atriði sem vekja rétt-
láta reiði eins og t.d. hvers vegna
þarf stjórn sjóðsins ekki að bera
ábyrgð á því hvernig tekst til um
ávöxtun hans. Hún fær óútfyllt ávís-
anahefti frá ríkissjóði og getur skrif-
að út það sem henni sýnist og skatt-
borgarar verða að borga. Kostnaður
vegna örorkutryggingar í nýja lífeyr-
issjóðnum mun eftir 3 ár, þegar rétt-
indi hafa skapast, vaxa svo að ið-
gjald það sem skattgreiðendur verða
að greiða vex líklega úr 11,5% í ríf-
lega 20%.
Hver er raunmismunur
á launakjörunum?
Því er haldið fram að laun vænt-
anlegra sjóðsfélaga í nýja sjóðnum
séu lægri en annarra launþega og
það réttlæti mismun á lífeyriskjör-
um. Vel má vera að einhveijir
launataxtar segi svo, en landsmenn
muna vel hversu sjúkt það launa-
kerfi var sem kjaranefnd og kjara-
dómur flettu ofan af síðastliðinn
vetur. Það væri fróðlegt að fá að
sjá hver hafi verið kaupmáttarauki
væntanlegra sjóðsfélaga nýja
sjóðsins undanfarin ár, einhverra
hluta vegna hafa þær upplýsingar
aldrei fengist birtar, heldur er í
sífellu slegið fram órökstuddum
fullyrðingum. Ég álít að væntan-
legir sjóðsfélagar í nýja sjóðnum
hafi fengið mun meiri kaupmáttar-
aukningu en aðrir launþegar á
undanförnum árum. Ég tel að
heildarárslaun flestra opinberra
starfsmanna í dag séu ekkert lægri
en annarra landsmanna í sambæri-
legum störfum og þá er ég ekki
með mismun lífeyrisréttinda í
dæminu, einungis útborguð laun.
Ég er ekki að sjá ofsjónum yfir
launakjörum opinberra starfs-
manna, þau eru jafnóviðunandi og
launakjör á almennum markaði.
Hvers vegna þarf lífeyrir
að verða hærri en launin?
Þróunin skýrir reiði okkar og
kröfu um að ríkissjóður greiði 5,5%
í alla lífeyrissjóði til viðbótar við þau
10% sem nú eru greidd. Að ógleymdu
því misrétti sem er í örorku- og
makalífeyri. Eins og kemur fram er
lífeyrir úr hinum nýja sjóði rúmlega
20% hærri en heildarlaun verða þeg-
ar sjóðfélagar hætta störfum. Þetta
er nýjung, er hún nauðsynleg? Þessi
nýju lífeyrislög munu valda óróá á
vinnumarkaði, einhverra hluta
Guðmundur
Gunnarsson
Það virðast ær og kýr
þessarar ríkisstjórnar,
segir Guðmundur
Gunnarsson, að bera
eldivið á ófriðarbál
vinnumarkaðarins.
vegna virðast það vera ær og kýr
þessarar ríkisstjórnar að bera eldivið
á það ófriðarbál.
Hvers vegna fá ekki allir
að stofna séreignardeildir?
Fyrir þremur árum sótti lífeyris-
sjóður rafíðnaðarmanna um heimild
til að stofna séreignardeild við sjóð-
inn, því var umsvifalaust hafnað,
þrátt fyrir að tryggingarfélög og
verðbréfasjóðir hefðu fengið heimild
til þess að reka séreignarsjóði. Líf-
eyrissjóður Samiðnar sótti fyrr á
þessu ári um samskonar heimild og
hefur enn ekki fengið hana. í reglu-
gerð nýja sjóðsins hefur sjóðstjórn
heimild til þess að stofna séreignar-
deild. Siðblinda þeirra sem sömdu
reglugerðina er sú sama og ríkti
fyrir ári þegar þeir hinir sömu
skömmtuðu sér launahækkanir og
skattfríðindi langt umfram aðra
landsmenn.
í umræðum á hinu háa Alþingi
hefur komið fram að alþingismenn
ætla sér í kjölfar afgreiðslu laga um
hinn nýja lífeyrissjóð að setja ný iög
um sinn eigin lífeyrissjóð, þar verður
iðgjaldið sem skattgreiðendur verða
látnir greiða u.þ.b. 30% á móti 4%
framlagi alþingismanna og í kjölfar-
ið er svo væntanlega ætlunin að
koma fram með reglugerð um lífeyr-
issjóð ráðherra þar sem framlag
skattgreiðenda verður að öllum lík-
indum yfir 80% á móti 4% framlagi
ráðherranna sjálfra.
Hvers vegna er ekki tekið
á vanda almenna
tryggingakerfisins?
Ríkisstjórnin viðurkennir með
framlagningu þessara laga að það
sem hún hefur haldið fram um al-
menna lífeyriskerfið hafí verið rangt,
því fögnum við. Það hefðu verið
eðlilegri og heppilegri vinnubrögð
að hún hefði tekið höndum saman
við aðila vinnumarkaðsins og leyst
vanda almenna tryggingakerfísins
með því að samræma reglugerðir
lífeyrissjóðanna og tryggingakerfís-
ins. Ríkisstjórnin hefur lagt fram
hvert frumvarpið af öðru í fullri
andstöðu við launþega.
Allar umsamdar launahækkanir á
almennum vinnumarkaði á undan-
förnum árum hafa horfið í hækk-
andi skatta og álögur og gjöld til
sveitarfélaganna og stofnana þeirra.
Skuldir heimilanna hrannast upp og
neyðin sums staðar er orðin ólýsan-
leg. Á sama tíma er unnið að því
að tryggja rétt forréttindahópa. Fyr-
irtækjunum eru afhentar hundruða
milljóna króna gjafír úr ríkissjóði
með niðurfellingu skatta og rýmkum
á frádráttarliðum eins og t.d. með
framlengingu laga um nýtingu upp-
safnaðs taps.
Frumvarpið um nýjan lífeyrissjóð
ríkisstarfsmanna er brot á jafnræð-
isreglu, við því hljótum við að bregð-
ast með kröfu um leiðréttingu. Mið-
að við núgildandi skattalög jafngild-
ir aukið framlag í nýja lífeyrissjóðinn
9,48% launahækkun. Það verður for-
vitnilegt að sjá hvaða afstöðu við-
skiptaráðherra tekur, einnig bíðum
við spennt eftir afstöðu verslun-
arráðsgengisins í Sjálfstæðisflokkn-
um. Nú eru þingmenn að fjalla um
eigin kjör og þá gilda allt önnur rök
en um aðra launþega, það sáum við
hin svo vel í fyrra þegar siðblindan
réð ríkjum á hinu háa Alþingi.
Höfundur er formaður
Rafiðnaðarsambands Islands.
—r~
-
Vnr. 310235
Geimlögregla
Vnr. 328630
f Hauskúpuhellirínn
Fjársjóðseyja
Vnr. 328629 ■
Virki flotaforíngjans
Lögreglubíll
Vnr. 304848
Virki blástakkanna vnr. 305299
Bílaflutningabíll
Vnr. 361961
Skúta flotaforingjans
Skemmtileg jólagjöf á hreint
út sagt frábæru tilboðsverði!
HAGKAUP