Morgunblaðið - 12.12.1996, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996 59
AÐSENDAR GREINAR
Staðreyndir um
rekstur leikskóla
Reykjavíkurborgar
I BLAÐAGREIN í
Morgunblaðinu 4. des-
ember sl. eftir Sigur-
jón Haraldsson, Akur-
eyri, er farið allfrjáls-
lega með rekstrartölur
leikskóla Reykjavíkur-
borgar, að því er virð-
ist í þeim tilgangi að
sýna fram á að rekstr-
arkostnaður leikskóla
Reykjavíkur hafi farið
úr böndunum og
hækkað langt umfram
framfærsluvísitölu.
Staðreyndir eru þær
að þessu er öfugt far- Bergur
'ð. Felixson
Heildarkostnaður
við leikskólarekstur borgarinnar
var 1.471.437 kr. árið 1994 og
1.547.318 kr. árið 1995 og hækk-
aði því um 5,2%.
Nokkur aukning var á þjónustu
milli þessara ára, en dvalarstundir
barna í leikskólum borgarinnar
voru um 28.147 í desember 1994
í dag rekur Dagvist
barna 62 leikskóla,
segir Bergur Felixson
og starfsmenn eru
á 14. hundrað.
en um 30.300 í desember 1995 eða
6,9% hækkun.
Kostnaður við heilsdagsrými
(8,5 st.) var 412.210 kr. og greið-
ir sambúðarfólk um helming þess
kostnaðar, en einstæðir foreldrar
og námsmenn nokkru minna.
Þessar upplýsingar er að finna
í ársskýrslu Dagvistar barna árið
1995.
Markvisst er unnið að því að
bæta rekstur leikskóla Reykja-
víkurborgar með útboðum og
samningum. Hefur starfsmönnum
orðið nokkuð ágengt og kostnaður
á einingu hefur hækkað.
Breyting á þjónustu við börnin
og foreldra þeirra undanfarin ár
er og veruleg. Mikil uppbygging
hefur átt sér stað bæði með nýjum
skólum og viðbyggingum við eldri
leikskóla. Nær allir leikskólarnir
bjóða nú fulla þjónustu, þ.e. heils-
dagspláss með fæði, og hafa for-
eldrar tekið þeim breytingum vel
enda hefur tekist að halda verði á
mat og hressingu, sem börnin fá,
í hófi.
Þegar borinn er saman barna-
fjöldi í leikskólum milli ára segir
það ekki alla söguna heldur verður
að reikna með tímalengd þjón-
ustunnar. Til skýringar er hér tafla
sem birt var í starfsáætlun fyrir
árið 1997. Þar kemur fram að
heilsdagsrýmum hefur fjölgað um
784 pláss en hálfsdagsrýmum
fækkað um 481 eða 240,5 samtím-
is.
Fjöldi barna í leikskólum
Reykjavíkurborgar var:
Heilsd. Hálfsd.
(8-9 st.) (4-6 st.) Alls
í des. '94 1.513 b. 3.397 b. 4.910 b.
í des. ’95 1.912 b. 3.123 b. 5.053 b.
í okt. ’96 2.297 b. 2.916 b. 5.213 b.
Pjölgun barna á tímabilinu er
6,2%, en fjölgun starfs'stunda
barna á leikskóla er 16%.
í samanburði milli einstakra leik-
skóla þarf og að gæta sanngirni
og bera saman sambærilega hluti.
Nokkrir leikskólar eru með sérþjón-
ustu fyrir mikið fötluð börn og einn-
ig eru skólar, sem nær eingöngu
eru með mjög ung börn og þurfa
fleiri starfsmenn þess vegna. Þá
er fært í rekstrarreikningum leik-
skóla meiri háttar viðhaldskostnað-
ur, sem getur verið mjög mismun-
andi milli ára og haft
áhrif á stöðu einstakra
leikskóla. Auðvitað er
alltaf einhver munur á
rekstri milli ieikskóla,
en ekkert í líkingu við
það sem fram er sett í
grein S.H., þegar sam-
bærilegir skólar eru
bornir saman. Þess má
geta í áætlun fyrir árið
1997 er unnið með lyk-
iltölur í rekstri Ieik-
skóla, svokallaða
rammaáætlun og hefur
ábyrgð leikskólastjóra
og starfsfólks verið
aukin með því.
Starfsfólk Dagvistar
barna er stolt yfir starfseminni og
þeirri vinnu, sem er stöðugt unnin
til að viðhalda gæðum starfsins í
leikskólunum og hagkvæmni í
rekstri. í dag rekur Dagvist barna
62 leikskóla og starfsmenn eru á
14. hundrað. Vegna stærðar höfum
við oft gerst brautryðjendur í að
betrumbæta leikskóla landsins og
þá þjónustu sem þar er boðin. Við
höfum ávallt verið með okkar spil
á borðinu og gefin hefur verið út
ársskýrsla um leikskóla Reykjavík-
ur allar götur frá árinu 1934.
Nú eru til umfjöllunar í stjórn
Dagvistar barna tillögur starfs-
manna um stefnumótun, sem unnið
hefur verið að í ár og lýkur á næsta
ári.
Það er okkur mikil ánægja að
kynna fyrir öðrum hvað hér fer
fram og sýna starfsemina, sem við
teljum að Reykjavíkurborg geti
verið hreykin af, og útskýra
rekstrarreikninga fyrir áhuga-
sama. En við biðjumst undan því
að vera afflutt á neikvæðan hátt
með talnaleik, sem ekki á skylt við
rekstrarfræði og fullyrðingar um
vanhæfni, sem eiga ekkert skylt
við sannleikann.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Dagvistar barna.
■
Paris
e
cence
Blab allra landsmanna!
- kjarni málsins!
•A