Morgunblaðið - 12.12.1996, Page 60
60 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Nýr bæklingur -
einfalda bridskerfið
Haukur Ingason
hefir gefíð út bækl-
ing sem hann kallar
Einfalda bridskerfið.
í bæklingnum er
farið í gegnum spila-
reglur, sagnir úrspil,
vamarreglur,
stigagjöf, keppnis-
foirn o.fl.
I fréttatilkynn-
ingu útgefanda segir
m.a. að bæklingur-
inn geri öllum kleift
•z.6 læra brids á ein-
um degi fyrir lítinn
*
EINFALDA
BRIDGE
KERFIÐ
Forsíða
bæklingsins
pening.
Dreifingaraðili er Lyfjadreifing
sf., Síðumúla 32. Bæklingurinn
mun verða til sölu í bókaverzlunum,
hjá Bridssambandinu og dreifíngar-
aðila en auk þess aðstoðar höfund-
urinn þá er vilja nálgast ritið.
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Mánudaginn 9. desember sl. var
spilaður einskvölds Mitchell tví-
menningur, forgefin spil. 34 pör
mættu, spiluð voru 30 spil, 2 milli
para. Meðalskor 420 stig.
Bestu skor í N/S
Halldór Svanbergss. - Óli M. Guðmundss. 533
Ámi Magnússon - Eyjólfur Magnússon 501
Leifur Kr. Jóhanness. - Alfreð Kristjánss. 489
GuðlaugurSveinsson-RúnarLárusson 479
Albert Þorsteinsson - Bjöm Ámason 478
Bestu skor í A/V
Margrét Margeirsdóttir—Dúa Ólafsdóttir 542
Geirlaug Magnúsdóttir - Torfi Axelsson 502
Sigrún Pétursdóttir - Guðrún Jörgensen 458
Erla Ellertsdóttir - Kristín Jónsdóttir 452
Mánudaginn 16. desember nk.
verður aftur spilaður einskvölds
tvímenningur Mitchell, forgefin
spil. Skráning á spilastað í Þöngla-
bakka 1 ef mætt er tímanlega fyrir
kl. 19.30.
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Spilaður var Mitehell-tvímenningur
þriðjud. 3.12. sl. 30 pör mættu. Úrslit:
NS
JónStefánsson-ÞorsteinnLaufdal 513
Sæmundur Bjömss. - Böðvar Guðmundss. 500
Sigurður Gunnlaugs. - Gunnar Sigurbjöms. 472
Kristjana Halldórsd. - Eggert Kristinss. 460
AV
EysteinnEinarsson-SævarMagnússon 544
Sigríður Pálsd. - Eyvindur V aldimarsson 487
Ámi Halldórsson - Helgi Vilhjálmsson 486
Jónína Halldórsd. - Hannes Ingibergsson 465
Meðalskor 420
FerðatæU m/geíslaspilara
AZ 8052
Uvarpsveklaraklukka
RM 5080
Háitlásari 1650 w
HP 4362
Supertech-vekiaraklukka
AC 2300
HQ 4850
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SfMI 569 1500
Umboðsmenn um land allt.
AÐSENDAR GREINAR
Eílífa lífið
OPIÐ bréf til séra
Vigfúsar Þórs Árna-
sonar vegna greina
hans um sama efni.
Kæri séra Vigfús.
Þökk sé þér fyrir
greinarnar þínar um
eilífa lífið sem birtar
voru hér í blaðinu í lok
október sl. Það var
sannarlega tími til
kominn að einhver
opnaði þá umræðu sem
þú gerir á þinn heiðar-
lega og einlæga hátt.
En það lítur ekki út
fyrir að mikill áhugi
sé fyrir að halda um-
ræðunni áfram. Hvernig má það
vera, því spurningarnar sem þú
vaktir fjalla um grundvallaratriði í
túlkun á kenningum kristindómsins
og eru jafnframt spurningar sem
hin kristna kirkja hefur ætíð notað,
og notar enn til að meta skilin
milli rétttrúnaðar og villutrúar.
Þannig varðar t.d. spurningin um
endurholdgun það sem verið er að
fjalla um í fjölmörgum af þeim
aragrúa af félögum, söfnuðum eða
hreyfingum sem sjá má að eru
starfandi með því einu að lesa
smáauglýsingar frá þessum aðilum
hér í blaðinu á sunnudögum. Getur
þá verið að enginn þessara fjöl-
mörgu aðila telji það við hæfi að
rökræða þetta efni við þjóðkirkju-
prest eins og þig, sr. Vigfús? Látum
gott heita að svo kunni að vera,
en hvað með alla kollega þína, hvað
með alla þá sem verða fyrir því
eins og þú að safnaðarfólkið þeirra
er í síauknum mæli farið að svala
trúarþörf sinni með þátttöku í alls
kyns starfsemi sem getur ekki tal-
ist annað en ókristileg út frá hinum
viðurkenndu kennisetningum kris-
tinnar kirkju? Af hveiju taka þeir
ekki undir með þér, sr. Vigfús?
Getur verið að staða okkar ríkisre-
knu þjóðkirkju sé í raun að verða
eins og staða Ríkissjónvarpsins sem
hefur skylduáskrift þar sem allir
greiða áskriftina eins og hvern
annan óvinsælan skatt, en velja sér
síðan eitthvað annað til að horfa
á. Getur verið að hræðslan sé orðin
svona yfirþyrmandi við það sem
kynni að gerast ef „skylduáskrift-
in“ verður felld niður? Gleymum
því ekki að kristin kirkja, kirkja
Jesú Krists frelsara vors er hvorki
hús né prestar né biskupar né neins
konar stofnun. Kristin kirkja er
fólkið í landinu, hinn lifandi kristni
söfnuður sem er eins og fljót sem
rennur eftir farvegi sem myndast
hefur í rás aldanna. En þessi far-
vegur er ekki til vegna sjálfs sín,
hann hefur þann eina tilgang að
flytja fljótið sem hefur myndað
hann. Meðan fljótið er ungt grefur
það sig niður undan fallþunga sín-
um og ákafa og myndar þannig
djúpan farveg sem fátt
getur raskað, en þegar
fljótið verður eldra og
lygnara og kemur nið-
ur á jafnsléttuna og
síðan niður á sandana
getur margt breyst. Þá
er farvegur þess ekki
lengur sá sem markað-
ur er í klettana í rás
tímans og fljótið er orð-
ið gamalt og bíður þess
eins að sameinast upp-
hafi sínu. Þá hefur
fljótið skynjað frelsi
sitt til að velja sér sjálft
farveg og um leið og
hinn gamli farvegur
hentar því af einhveijum orsökum
ekki lengur fyrir vegferðina, þá
leitar fljótið sér nýs farvegar því
fljótið er lifandi en farvegurinn
ekki. Þá stendur gamli farvegurinn
eftir, yfirgefinn og holur sem minn-
ing um það sem einu sinni var, og
sá sem ætlar sér að reyna að tala
fljótið yfir í gamla farveginn eftir
að það hefur fundið sér nýjan, eða
að reyna að sannfæra sig og aðra
Fólk, segir Oddur Ein-
arsson, lætur ekki leng-
ur hræða sig.
um að fljótið sé þarna enn, þótt
tómur farvegurinn blasi við, hann
getur aldrei orðið annað en sem í
sporum keisarans sem hélt hann
væri í nýjum fötum og hans getur
ekki beðið annað en að barnið komi
auga á nekt hans og veki athygli
á henni.
íslendingar eru gömul þjóð og í
líkingu fljótsins hefur íslenska þjóð-
in, hinn lifandi kristni söfnuður
íslendinga fyrir löngu uppgötvað
frelsi sitt til að velja sér sjálfur
farveg fyrir leit sína að upphafi
sínu. Hann lætur ekki lengur hræða
sig frá að spyija hvað um hann
verður að jarðlífinu loknu, og ef
kirkjan hefur ekki nægjanlega skýr
svör, þá leitar hann einfaldiega
áfram þangað til samviska hans
og skynsemi eru sátt við svörin sem
hann fær. Það er skylda þeirra sem
valist hafa til forystu í hinni kristnu
kirkju að horfast í augu við að sá
tími er liðinn að unnt sé að halda
fljótinu í gamla farveginum með
valdi, eina leiðin er að laga farveg-
inn til svo hann henti fljótinu, því
þá mun það renna um hann áfram
en annars ekki. Spurningarnar í
greinunum þínum, sr. Vigfús, eru
einmitt svo ágætlega fallnar til að
opna augu okkar.
Þú spurðir:
„Hvað veldur því að við íslend-
ingar látum ekki duga hina kristnu
von, bænina og þá vitneskju að
Oddur Einarsson
Kono, Hóiogarðl
Libio, Mjódd
Spes, Höaleifebtoul
Hygeo, Kriogiimra
Eviio, Krmgiunni
Bró,lougavegl
Sigriíor Guójóns,
Selliarnornesi
Sondra, Hofnorfiríi
Bylgjon Kópovogi
Snyrllöllin, GorBabae
Gollery ftkSun, Keflevík
Krismo, isolirbi
Toro, Akureyri