Morgunblaðið - 12.12.1996, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996 67
FRÉTTIR
Bifreiðar
leitað
AÐFARANÓTT þriðjudags-
ins 3. desember síðastliðinn
hvarf frá Reynimel 82 í
Reykjavík bifreið af gerðinni
Nissan Cherry, dökkgrá að lit.
Þrátt fyrir eftirgrennslan
hefur bifreiðin ekki fundist
enn eða þeir sem höfðu hana
á brott, en hún er af árgerð
1985 og ber skráningar-
númerið R - 63197. Þeir sem
kunna að hafa séð til bifreið-
arinnar eftir umræddan tíma,
eru beðnir um að gera lögregl-
unni í Reykjavík viðvart.
Opið til kl. 22
VERSLANIR IKEA, Bónus
og Rúmfatalagerinn í Holta-
görðum verða opnar til kl. 22
frá og með deginum í dag,
fimmtudag, öll kvöld til jóla
að nk. sunnudegi undanskild-
um en þá verður opið til kl.
18. Nýtt kortatímbil hefst í
dag.
Ymsar uppákomur verða í
húsinu í dag og nær daglega
allt til jóla.
1
Stekkjar-
staur á Þjóð-
minjasafni
VON er á gömlu íslensku jóla-
sveinunum í heimsókn í Þjóð-
minjasafn íslands eins og ver-
ið hefur undanfarin ár.
Stekkjarstaur kemur fyrstur
og verður hann í safninu í dag
kl. 14.
LEIÐRÉTT
Rangft föðurnafn
GÍSLI Thoroddsen mat-
reiðslumeistari var ranglega
nefndur Gísli Theódórsson í
frétt á bls. 12 í blaðinu í
gær. Gísli, sem er fram-
kvæmdastjóri matreiðslu-
sviðs Perlunnar, heilsaði upp
á Clinton Bandaríkjaforseta
fyrir nokkru, eins og fram
kom í fréttinni. Gísli er beð-
inn velvirðingar á þessum
mistökum.
Ekki opin sýning
HEKLA hf. verður með sýn-
ingu á nýjum bílum á morg-
un, eins og sagt var frá í blað-
inu í gær. Af fréttinni mátti
skilja að sýningin væri öllum
opin sem er þó ekki rétt. Að-
eins boðsgestum er boðið að
sækja sýninguna að þessu
sinni.
TEKIÐ á móti framlagi frá Uppeldissjóði Thorvaldsensfélagsins.
F.v. Sigríður Halblaub gjaldkeri, Þóra Karitas Árnadóttir formaður
og Kristín Jónasdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla.
Líflegt í miðborg
inni í jólaönnum
■ FJÁRSÖFNUN samtakanna
Barnaheilla til kaupa á íbúðum fyr-
ir foreldra og aðstandendur barna
utan af landi, sem vegna veikinda
eða slysa þurfa á sjúkrahúsvist eða
annarri þjónustu í Reykjavík að
halda, hefur gengið vel. Framlög í
söfnunina hafa borist frá einstakl-
Lúsíuhátíð í
Norræna
húsinu
LÚSÍUHÁTÍÐ verður haldin sam-
kvæmt venju í Norræna húsinu
föstudaginn 13. desember.
Dagskráin verður með hefðbundu
sniði; Lúsía og þernur hennar syngja
sænsk og íslensk jólalög undir stjórn
Mariu Cederborg. Þær munu koma
tvisvar fram um kvöldið, í byijun
dagskrár kl. 19 og aftur kl. 21.30.
Jólasveinar koma í heimsókn og
dansa með börnunum í kringum jóla-
tréð í fundarsal hússins og deila út
smápokum til yngri kynslóðarinnar.
I kaffistofu Norræna hússins
verður boðið upp á „lúsíketti" og
piparkökur auk safa fyrir börnin og
kaffi/glögg fyrir fullorðna.
Aðgöngumiðar verða seldir í Nor-
ræna húsinu dagana fyrir Lúsíu-
hátíðina og við innganginn. Miðinn
kostar 200 kr. fyrir börn og 500 kr.
fyrir fullorðna og eru veitingar inni-
faldar í verðinu.
ingum, félagasamtökum og fyrir-
tækjum, t.d. gaf Uppeldissjóður
Thorvaldsensfélagsins í Reykjavík
200.000 kr. til söfnunarinnar og
verslunin Hljómco nýtt sjónvarp.
Þá hafa einnig verið gefin húsgögn
og ýmis heimilisáhöld en allt slíkt
er þegið með þökkum.
Stofnfundur
samtaka um
náttúruvernd
STOFNFUNDUR samtaka al-
mennings um þróun í umhverf-
ismálum og náttúruvernd verð-
ur haldinn í húsnæði Ferðafé-
lags íslands, Mörkinni 6, í
kvöld, fimmtudagskvöld, kl.
20.30.
Á undirbúningsfundum, sem
haldnir voru í desember 1995
og í maí, sl. var íjallað um yfir-
vofandi mannvirkjagerð á há-
lendi íslands og áhuga þeirra
fjölmörgu, sem standa vilja
vörð um víðerni landsins, til að
mynda samstarfsvettvang.
„Það var álit margra að
bregðast þyrfti við með því að
tengja saman þá fjölmörgu ein-
staklinga sem láta sér annt um
umhverfi sitt, hafa áhuga á
náttúruvernd og þar með skyn-
samlegri nýtingu hálendisins og
annarra náttúruauðlinda," segir
í frétt frá fundarboðendum.
SAMTÖK verslana og þjónustufyr-
irtækja við Laugaveg, Skólavörðu-
stíg og í miðbænum hafa tekið
höndum saman um að glæða bæinn
lífi í jólaönnunum í desember.
Svæðið sem nú sameinast um að
auka jólastemmninguna er býsna
stórt, nær frá Hlemmi niður á Vest-
urgötu og efst upp á Skólavörðu-
stíg. Því þurfti að fá marga gleði-
gjafa til liðs við jólasveininn. Rúm-
lega 30 aðilar svöruðu auglýsingu
samtakanna um þátttöku og nú
hafa 14 hópar jólasveina ogtónlist-
armanna verið ráðnir til að
skemmta vegfarendum seinni hluta
desembermánaðar, segir í fréttatil-
kynningu.
Tónlistarhóparnir eru tíu, koma
misjafnlega oft fram og sífellt á
nýjum stöðum. Þeir eru: Kór Öldu-
túnsskóla, Háskólakórinn, Álafoss-
kórinn, Kór Grafarvogskirkju,
söngkvartettinn Fiskur um hrygg,
sem ferðast í hestvagni, tíu manna
sönghópurinn Smávinir, Lúðra-
sveitin Svanur, fimm blásarar og
slagverksleikarar og blásara- og
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá Verslunarráði Is-
lands:
„Verslunarráð íslands hefur
sent fjármálaráðherra meðfylgj-
andi bréf þar sem fagnað er af-
stöðu ráðherra til frelsis í smásölu-
verslun áfengis, er kom fram í
svari hans við fyrirspurn á Al-
þingi. Verslunarráð telur eðlilegt
að ráðherra komi þessari stefnu
í framkvæmd með því að flytja
frumvarp til breytinga á lögum
er innleiði frelsi í áfengisverslun
á árinu 1998.
„Verslunarráð íslands fagnar
þeirri afstöðu sem fram kemur í
svari þínu við fyrirspurn á Alþingi
varðandi frelsi í áfengisverslun.
Telja verður eðlilegt, eins og þar
kemur fram, að einstaklingum
gleðisveitin Stallah-hú. Þessir
hópar munu einkum leika og
syngja kl. 20-22 á kvöldin fyrir
utan verslanir og þjónustufyrirtæki
á svæðinu og fara á milli staða.
Þessi dagskrá hefst laugardaginn
14. desember, en þá eru verslanir
í fyrsta skipti opnar til kl. 22.
Kvölddagskráin heldur svo áfram
18., 19., 20., 21., 22. og 23. desem-
ber. Alls munu 10 flokkar skemmta
sjö kvöld, allt að átta sinnum hvert
kvöld. Auk þess hefur Kór Söng-
skólans áætlað að vera „syngjandi
sjálfsali", þ.e. að syngja í verslun-
um fyrir borgun.
Fjórtán jólasveinar í fjórum hóp-
um eru meira á ferðinni á daginn,
frá kl. 14-17 á laugardögum, (14.
og 21. des.,) og sunnudögum (15.
og 22. des.) og á Þorláksmessu
(23. des.). Einn hópur ekur um á
rauðum jólasveinapallafjallabíl af
Hummer-gerð, annar skröltir um
göturnar í forláta hestvagni og tveir
hópar jólasveina ferðast fótgang-
andi upp á gamla mátann, segir í
fréttatilkynningu.
verði heimilað að sjá um smásölu
áfengis, að_ uppfylltum tilteknum
skilyrðum. í nútímaþjóðfélagi eru
engin rök fyrir því að ríkið sjái um
þessa tegund verslunarrekstrar,
ekki frekar en ríkið reki vínveit-
ingahús, og verður að ætla að
einkaaðilar geti sinnt þessum
rekstri á hagkvæmari hátt. Ríkið
myndi eftir sem áður fá tekjur af
þessari sölustarfsemi í gegnum
áfengisskatt.
Verslunarráð Islands treystir
því að ráðherra fylgi stefnu sinni
í framkvæmd með því að leggja
fram frumvarp á þessu þingi um
frelsi í smásöluverslun áfengis,
sem tæki gildi í byrjun ársins
1998. Býður Verslunarráð fram
aðstoð sína við samningu og undir-
búning slíkrar lagabreytingar."
Fagnar afstöðu
Góð menntun er lykillinn
í UMFJÖLLUN um málþing um
raungreinakennslu i Morgunblaðinu
í gær var vitnað til ræðu Björns
Bjarnasonar menntamálaráðherra.
Vegna ónákvæmni í frásögninni af
ræðu hans eru þeir kaflar endurbirt-
ir í heild hér á eftir:
Sjónvarpsþættir
I upphafi ræðu sinnar sagði
menntamálaráðherra:
„Fyrir tæpu ári sat ég alþjóðlegan
fund menntamálaráðherra í Jerúsal-
em. Þar skiptust menn á skoðunum
um markmið þjóðanna í menntamál-
um. Minnist ég þess sérstaklega, hve
ráðherrar Singapore og ísraels lögðu
mikla áherslu á kennslu í vísindum
og tækni. í ríkjunum hefði verið
gert sérstakt átak til þess að efla
fræðslu á þessu sviði.
Nýlega var birt niðurstaða úr fjöl-
þjóðlegri rannsókn á námsárangri
nemenda í stærðfræði og náttúru-
fræðigreinum, TIMSS, sem er
skammstöfun fyrir Third Internati-
onal Mathematics and Science
Study. Er þetta viðamesta og senni-
lega vandaðasta samanburðarrann-
sókn á menntakerfum heimsins.
í þessari könnun voru nemendur
frá Singapore í fyrsta sæti og ísra-
elar urðu ofar en við íslendingar,
þótt ekki sé unnt að segja, að þeir
séu í fremstu röð. Þegar ég sá þenn-
an árangur þessara tveggja þjóða,
minntist ég þess, sem ráðherrar
þeirra höfðu sagt á Jerúsalem-fund-
inum: Þótt við leggjum þessa áherslu
Kaflar úr ræðu menntamálaráðherra
um „Menntun til framtíðar“
á tækni og vísindi í al-
mennu skólanámi,
dregur ekki úr áhuga
stúdenta á því að leggja
stund á gamalgrónar
greinar eins og lög-
fræði og læknisfræði,
ef eitthvað er, hefur
ásókn í þessar greinar
frekar aukist heldur en
hitt.
Töldu þeir, að sjón-
varpsþættir um lög-
fræðinginn Matloek eða
spennandi myndir um
áhrifamikla lækna,
frægð þeirra, frama og
góð kjör, hefðu meiri
áhrif á námsmenn að lokum en
áhersla á námskrá á grunnskóla-
árum. Til að auka áhuga á námi í
verkfræði, væri því kannski best að
gera góða sjónvarpsþætti um ævin-
týri við virkjana- eða gangagerð."
Lögverndun
Þá sagði Björn Bjarnason í ræðu
sinni:
„Þó að fleiri þættir en námskrá
og skipulag skólastarfs hafi áhrif á
menntun nemenda er það skylda
menntamálayfirvalda hveiju sinni
að taka mið af þeim könnunum sem
gerðar eru á árangri í skólastarfi. Á
þessu stigi er of fljótt að slá því
föstu til hvaða aðgerða
þarf að grípa til að
bæta stærðfræði- og
raungreinaþekkingu ís-
lenskra nemenda. Eftir-
talin atriði eru meðal
þeirra sem nefnd hafa
verið:
★ Formaður Félags
raungreinakennara er í
hópi þeirra, sem hafa
sagt að það þurfí að
endurskoða kennara-
menntun. Kennaranám
er styttra hér en annars
staðar. Fyrir 1998 þarf
lögum samkvæmt að
taka ákvörðun um,
hvort það skuli lengt. Er þá ástæða
til að leggja sérstaka áherslu á fag-
greinakennslu. Ætti til dæmis að
gefa mönnum tækifæri til að velja
frekara nám í uppeldis- og kennslu-
fræðum, eftir að einstakar faggrein-
ar hefðu fengið meira rými en nú á
fyrstu þremur skylduárunum?
Öllum er okkur ljóst, að góð
menntun, einnig sérmenntun, er lyk-
ill að mörgum störfum. Hitt er jafn-
ljóst, að sum störf verða ekki unnin
nema af þeim, sem hlotið hafa til
þess sérstaka menntun. Með þetta
í huga hefur verið talið, að kennarar
þyrftu að læra uppeldis- og kennslu-
fræði til að vera hæfir til sinna
Björn Bjarnason
starfa. Lögverndun kennarastarfsins
byggist á kröfu um, að slíku námi
hafi verið lokið og búið hefur verið
til kerfi til að knýja menn til að
fullnægja þeim lagaskilyrðum.
Unnt er að færa fyrir því rök, að
nauðsynlegt hafi verið að hafa ríka
kröfu um kunnáttu í uppeldis- og
kennslufræðum i lögum, á meðan
verið að festa þessi fræði í sessi og
innræta tilvonandi kennurum gildi
þeirra. Einnig hafi þröskuldurinn
þurft að vera hár í fyrstu til að árétta
hina sérstöku, lögvemduðu stöðu
kennara. Ég tel, að þessi tími sé lið-
inn. Það sé tímabært að auka kunn-
áttu kennara í þeim fögum, sem
þeir ætla að kenna, á kostnað upp-
eldisfræðinnar. Er til dæmis augljóst
að auka áhuga kennara á þeim fög-
um, sem gera mönnum kleift að
ganga í Félag raungreinakennara.
★ I ljósi þessa þarf einnig að huga
að því að gera lögverndun kennara-
starfsins sveigjanlegri en nú er.
Lækka má þröskuldinn fýrir þá, sem
hafa mikla sérþekkingu í ákveðnum
greinum.
★ Nefnt hefur verið að námsað-
greining þurfi að vera ríkari, t.d.
með auknu vali nemenda þar sem
tekið er tillit til getu.
★ Fyrirkomulag námsbókaútgáfu
verði endurmetið. Sérstaklega þarf
að kanna námsbækur og athuga
hvort þær geri nemendum kleift að
stunda sjálfstætt nám og hvort nem-
endum gefist kostur á að fara eins
langt og þeir hafa forsendur til.“