Morgunblaðið - 18.12.1996, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
h
FRÉTTIR
Gerð Hvalfjarðarganga á undan áætlun
Stefnt að opnun
í október 1998
Kann að draga úr fjármagnskostnaði Spalar
Langsnið eftir Hvalfjarðargöngum (horft inn fjörðinn)
Norðan
fjarðar
Hvalfjörður
Sunnan
fjarðar
við Saurbæ
' —50 m
aurbæ,.-'" "
sjávarmál
- -50 m
1 Núerbúið
að sprengja
liðlega 925 m
að norðanverðu
og um 1.085 metra
að sunnanverðu
\
-100
-150
-200
0 1 2 3 4 5 6km
JARÐGÖNGIN verða tæpiega 5,8 km löng og liggja dýpst 165 m undir yfirborði sjávar.
Þrjár akreinar verða á veginum ígöngunum að norðanverðu, en tvær að sunnanverðu.
SAMKVÆMT nýrri bráðabirgða-
áætlun verktakafýrirtækisins Foss-
virkis sem grefur Hvalfjarðagöng
má búast við því að þau verði tilbú-
in fjórum mánuðum fyrr en ætlað
var. Samkvæmt þessu yrðu göngin
opnuð fyrir umferð í október 1998.
Um 35% gangagerðarinnar er
nú lokið. Gísli Gíslason, bæjarstjóri
á Akranesi og formaður Spalar
hf., segir að ef áfram gangi jafn-
vel muni draga nokkuð úr fjár-
magnskostnaði hlutafélagsins.
„Þetta mun ekki þýða neitt frávik
frá gjaldtöku, en ef áfram gengur
svona vel og aðrar forsendur
standast gæti það leitt til þess að
endurgreiðslutíminn verði styttri
og gjaldtaka af hálfu Spalar stytt-
ist sem því nemur. Það sem senni-
lega vegur þyngst er þó að góður
gangur í þessu hefur aukið bjart-
sýni á verkið í heild og mun gera
Speli auðveldara að markaðssetja
göngin til vegfarenda en ella.
Verktakinn hefur þannig hjálpað
okkur til að fá tiltrú almennings á
að þetta sé jafngott verkefni og
við höfum alltaf haldið fram. Auð-
vitað geta komið upp erfiðleikar á
þeim kafla sem eftir er, en hins
vegar má benda á að þau svæði
sem menn voru smeykastir við, við
göngin sunnanverð, eru að baki,“
segir Gísli.
Enginn vatnsleki
„Það er Ijóst að ef þetta gengur
svona hratt þarf Spölur að taka
fyrr afstöðu til ýmissa þátta, til
dæmis rafmagnssölu í göngin og
sölukerfis. Þetta herðir líka á
Vegagerðinni að ljúka sínum tengi-
vegum. Rætt hefur við þá og þeir
segjast munu leysa þau mál.“
Páll Siguijónsson, fram-
kvæmdastjóri ístaks, sem er í for-
svari fyrir verktakasamsteypuna
Fossvirki, segir að gott gengi skýr-
ist að hluta til af því að vatnsleki
í berginu hafi verið lítill og því
hafí minna þurft að þétta en ella.
„Verkið gengur vel, en við erum
ekki búnir með nema einn þriðja
af greftri ganganna. I svona verki
er ekki hægt að segja neitt ákveð-
ið fyrr en komið er í gegn.“
Verzlunarráð telur hættu á að byggt
verði upp nýtt bákn í atvinnumálum
Kostnaður 300-
400 milljónir
fyrstu tvö árin
VERZLUNARRÁÐ íslands telur að
verði frumvarp Páls Péturssonar
félagsmálaráðherra um vinnumark-
aðsaðgerðir að lögum, verði byggt
upp nýtt stjórnsýslubákn í atvinnu-
málum, sem muni kosta skattgreið-
endur 300-400 milljónir króna
fyrstu tvö árin, sem það verði í
rekstri. Aukinheldur muni hið flókna
kerfi ekki fela í sér neinar varanieg-
ar lausnir á atvinnuleysi og spytja
megi hvort rétt sé að byggja slíkt
kerfi upp á sama tíma og atvinnu-
leysi fari minnkandi.
Verzlunarráð hefur sent félags-
málanefnd Alþingis bréf með at-
hugasemdum við frumvarp félags-
málaráðherra. Þar kemur fram að
samkvæmt frumvarpinu sé meðal
annars gert ráð fyrir Vinnumála-
stofnun undir stjóm sérstaks for-
stjóra, sem taki við verkefnum vinnu-
málaskrifstofu félagsmálaráðuneyt-
isins; átta manna stjóm Vinnumála-
stofnunar; svæðisvinnumiðlunum,
átta eða fleiri, undir stjórn forstöðu-
manna; níu manna ráðgjafanefnd
fyrir hveija svæðisvinnumiðlun og
loks þriggja manna framkvæmdaráði
fyrir hvert svæðisráð.
Þar að auki sé í frumvarpi um
atvinnuleysistryggingar gert ráð
fyrir níu manna stjóm Atvinnuleys-
istryggingasjóðs; þriggja manna
framkvæmdaráði stjórnar Atvinnu-
leysistryggingasjóðs; átta eða fleiri
fimm manna úthlutunarnefndum
atvinnuleysisbóta og þriggja manna
úrskurðarnefnd atvinnuleysisbóta.
Efasemdir um
hugmyndafræðina
„Verzlunarráð hefur miklar efa-
semdir um þá hugmyndafræði, sem
virðist liggja til grundvallar frum-
varpinu um vinnumarkaðsaðgerðir.
Ekki verður annað séð en að þar sé
gert ráð fyrir að víðtæk afskipti
opinberra aðila séu árangursrík leið
í baráttunni við atvinnuleysið og til
að skipuleggja þær aðgerðir sé nauð-
synlegt að koma á fót viðamiklu
stjómsýslukerfi í þessum mála-
flokki,“ segir í bréfí Verzlunarráðs.
í bréfinu, sem Birgir Ármanns-
son, lögfræðingur Verzlunairáðs,
ritar undir, kemur fram að VI telji
að reynslan sýni að hugmyndir af
þessu tagi séu á misskilningi byggð-
ar. „Vænlegri leið til atvinnusköp-
unar sé að skapa fyrirtækjum í land-
inu svigrúm til að vaxa og dafna
og að hlutverk opinberra aðila sé
fyrst og fremst að búa atvinnulífinu
viðunandi rekstrarumhverfí, sem
byggist á stöðugleika, hófsamlegri
skattheimtu, frelsi og jafnræði,"
segir í bréfinu.
Kostnaður 160-175 milljónir
á ári til lengri tíma
Verzlunarráð bendir á að fjár-
lagaskrifstofa fjármálaráðuneytis-
ins telji að kostnaður ríkissjóðs af
lögfestingu frumvarpsins verði 190
til 215 milljónir króna fyrsta árið,
en 160-175 milljónir á ári eftir það.
„Hér er um afar háar upphæðir að
ræða, ekki sízt þegar litið er til
þess að skv. fjárlögum ársins 1996
var gert ráð fyrir að kostnaður
vegna vinnumálaskrifstofu félags-
málaráðuneytisins yrði um 72 millj-
ónir króna og skv. fjárlagafrum-
varpi fyrir næsta ár um 78 milljón-
ir króna,“ segir VÍ.
Verzlunarráðið segir að greini-
lega sé verið að byggja upp um-
fangsmeira og dýrara kerfí en nú
sé fyrir hendi. Það skjóti skökku
við, enda sé nú leitað leiða til að
spara hvarvetna í ríkiskerfinu. Ein-
falda eigi kerfið og sameina ein-
hveijar þeirra stjórna og nefnda,
sem frumvörpin tvö geri ráð fyrir
að verði stofnaðar.
.....■»-♦"♦--
V esturlands vegur
Frestun
framkvæmda
mótmælt
BORGARRÁÐ mótmælir harðlega
hugmyndum um frestun fram-
kvæmda á Vesturlandsvegi á næsta
ári. Bent er á að veririð er tilbúið
til útboðs og að vinna við það verði
að meirihluta á fyrri hluta ársins.
í samþykkt borgarráðs segir enn
fremur að ennþá séu engin merki
um þensluástand í Reykjavík og að
atvinnuástand á vetrar- og vormán-
uðum í Reykjavík muni að líkindum
verða erfítt í ár eins og undanfarin
ár. Þá segir, „Það var mjög átalið
að skilja við verkið hálfunnið haust-
ið 1996 vegna umferðaröryggis. Það
var þó samþykkt í þeirri vissu að
verkinu lyki á árinu 1997 eins og
samgönguráðherra hafði boðað.
Skorað er á Alþingi að finna leið
til að ljúka þessu verki á næsta ári.“
i
í
>
l
I
>
l
I
I
»
»
<
í
f
í
C
C
I
1