Morgunblaðið - 18.12.1996, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 18.12.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996 19 ERLENT Reuter Ljóðalestur í Seoul KIM Kum-hyok, þriggja ára gam- all drengur, einn í hópi 17 manns, sem flýðu nýlega frá Norður- Kóreu til Suður-Kóreu, er hér að fara með ljóð á blaðamannafundi, sem efnt var til í Seoul. Heldur móðir hans á hljóðnemanum en að hennar sögn er ljóðið eftir Kim Il-sung heitinn, fyrrum forseta N-Kóreu, en hann orti það fyrir son sinn, Kim Jong-il, og gaf hon- um í afmælisgjöf. Ekkert lát á straumi Hútúa til Rúanda Nairobi, Ngara. Reuter. MIKILL fjöldi rúandískra flótta- manna úr röðum Hútúa streymdi í gær frá Tanzaníu til Rúanda. Yfir- völd í Tanzaníu handtóku menn, sem þau grunar að hafi reynt að hræða flóttamenn til að koma í veg fyrir að þeir sneru aftur til síns heima í Rúanda, að því er haft var eftir embættismönnum Sameinuðu þjóð- anna. Sólarhringsfundi leiðtoga níu Afríkuríkja um ástandið í Zaire og nærliggjandi ríkjum lauk í Nairobi í Kenýa í gær. Var þar ákveðið að Nelson Mandela, forseti Suður-Afr- íku, mundi hafa forystu í friðarum- leitunum á þessu svæði í Mið-Afríku ásamt forsetum Kamerún, Kenýa og Zimbabwe. Stjórnvöld í Zaire sniðgengu leið- togafundinn í Nairobi og sögðu að hann væri settur á svið af bandalagi enskumælandi ríkja, sem vildu grafa undan þeim. Segja ástandið versna Þetta var fyrsta sinni, sem Mand- ela tók þátt í viðræðum um ástand- ið í Mið-Afríku í Nairobi. Fulltrúar á fundinum sögðu að leiðtogarnir hefðu ræðst við án þess að ráðherr- ar þeirra hefðu verið viðstaddir. Aðeins hefði verið rætt um upp- reisnina í austurhluta Zaire. I loka- yfirlýsingu, sem gefin var út í gær, sagði að mjög hefði dregið úr ör- yggi á svæðinu, sem nær til Zaire, Rúanda, Búrúndi og hluta af Tanz- aníu og Úganda, frá því að leiðtög- arnir hittust síðast á sama stað 5. nóvember. Hvatt var til þess að boðað yrði vopnahlé og skorað á alla, sem hlut ættu að máli, að leggja niður vopn og setjast að samningaborði. Mæður með börn í bandi Starfsmenn flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna sögðu að 107 þúsund manns hefðu farið yfir landa- mærin frá Tanzaníu til Rúanda á mánudag og bjuggust við því að jafnmargir sneru heim í gær. Um helgina fóru 30 þúsund flóttamenn yfir landamærin. Mikil örtröð er við landamærin. Rauði krossinn hefur dreift gulu snæri til mæðra svo þær geti haft börn sín í bandi. Mörg hundruð börn hafa týnst í atganginum við landa- mærin. Handtaka „æsingamenn" Búist var við að þeir, sem yfirvöld í Tanzaníu handtóku og kölluðu æsingamenn, sem hefðu reynt að koma í veg fyrir að flóttamenn sneru heim, yrðu afhentir yfirvöldum í Rúanda. Hinir handteknu eru úr röðum Interahamwe, vopnaðra öfga- samtaka Hútúa, sem stóðu fyrir fjöldamorðum á Tútsum árið 1994, og hútúskra hermanna. Hvorir tveggja neita að snúa aftur og halda fram að þeim verði stungið í fang- elsi eða ráðist verði á þá fyrir þátt þeirra í fjöldamorðunum. Sex alþjóðlegir hjálparstarfsmenn myrtir í Tsjetsjníju Mesta áfall Rauða krossins í áratugi Moskvu, Novy Atagfi. Ósló. Reuter. VOPNAÐIR og grímuklædd- ir menn myrtu sex starfs- menn Álþjóðaráðs Rauða krossins í Tsjetsjníju í fyrri- nótt, er fólkið var í fasta- svefni. Er þetta mesta áfall sem Alþjóða Rauði krossinn hefur orðið fyrir um áratuga skeið og skýlaust brot á al- þjóðlegum mannúðarlögum. Hefur Rauði krossinn hætt starfsemi í suðurhluta Tsjetsjníju um stundarsakir og allir starfsmenn hans ver- ið fluttir á brott frá svæðinu. Tveir íslenskir sendifulltrúar, Sigríður Söebech og Davíð Lynch, sem starfa á Norður- Kákasus svæðinu, eru óhult en þau starfa í nágrannalýðveldinu Kab- ardino-Balkaria og eru væntanleg heim á næstu dögum. Fimm hinna látnu voru konur. í hópnum voru tveir norskir hjúkrunarfræðingar, Gunnhild Myklebust, sem var 55 ára, og Ingebjorg Foss, 42 ára, spænsk hjúkrunarkona, kanadískur stjórn- andi, hollenskur tæknifræðingur og nýsjálensk hjúkrunarkona. Svissneskur sendifulltrúi er alvar- lega særður en fjórtán erlendir starfsmenn sjúkrahússins sluppu ómeiddir. Morðin voru framin í bænum Novíj Atagi, sem er skammt sunn- an við Grosníj, en norski Rauði krossinn reisti sjúkrahús þar í haust á hlutlausu svæði og er það eina sjúkrahúsið í Tsjetsjníju. Hjálparstarfsmennirnir sváfu í byggingu á lóð sjúkrahússins, sem var gætt af óvopnuðum vörðum. Ruddust vopnaðir menn inn í húsið Gunnhild Myklebust Ingebjerg Foss HJALPARSTARFSMENN MYRTIR Sex starfsmenn Alþjóðaráðs Rauða krossins, voru myrtir í Tsjetsjníju aðfararnótt þriðjudags. « 'SHTSJETSJNÍJÆ Novye Atagi Sex starfsmenn á sjúkrahúsi sem Rauði krossinn reisti í haust, myrtir og skutu fólkið þar sem það lá sofandi í rúmum sínum, kl. 4 að nóttu að staðartíma. Notuðu morðingjarnir hljóð- deyfa. Alþjóðaráð Rauða krossins hefur fordæmt morðin, sem eru alvarlegasta áfall sem hann hefur orðið fyrir í áratugi. Atlaga gegn friði íbúar þorpsins Novíj Atagi létu þung orð falla í garð morðingjanna í gær, sögðu útilokað að þeir hefðu verið þaðan, enda hefðu allir þekkt starfsmenn sjúkra- hússins og verið þakklátir fyrir það starf sem þar hefði verið unnið. Töldu þeir fullvíst að rúss- neska leyniþjónustan tengdist málinu. Fréttafulltrúi Borísar Jeltsín Rússlandsforseta sagðist í gær vona að morðin yrðu ekki til að gera friðarumleitanir í Tsjetsjníju að engu. Tsjetsjenski ráðherrann Ruslan Kutajev sagði morðin fram- in af þeim „greinilega ásetningi að trufla forseta- og þingkosningar sem fram eiga að fara 27. janúar á næsta ári“. Aslan Maskadov, leiðtogi tsjetsj- enskra aðskilnaðarsinna, fer nú með völd í landinu. Stjórn hans og rússnesk stjórnvöld hafa reynt eft- ir bestu getu að halda friðarsam- komulagið sem náðist fyrr á árinu en hópar skæruliða hafa gert fjöl- margar atlögur að því, rænt rúss- neskum hermönnum og erlendum hjálparstarfsmönnum og hafa tveir þeirra verið myrtir, Bandaríkja- maður og Finni. . % jHt Reuter Uppreisn- arafmæli UPPREISNARINNAR gegn Nicolae Ceausescu, einræðis- herra í Rúmeníu, árið 1989 var minnst í borginni Timisoara í fyrradag en segja má, að hún hafi hafist þar. Emil Constant- inescu, nýkjörinn forseti Rúmeníu, lofaði fundarmönn- um, sem voru um 15.000, að allt yrði gert til að upplýsa að ýmsu leyti óútskýrðan dauð- daga hundruða manna, sem létu lífið á þessari örlagaríku að- ventu fyrir sjö árum. Spænskt blað birtir skjöl um „óhreina stríðið“ gegn aðskilnaðarsinnum Baska Eiga að sýna aðild yfirvalda Madrid. Reuter^ SPÆNSKA blaðið E1 Mundo birti í fyrradag skjöl, sem eiga að sýna, að fyrrverandi ríkisstjórn sósíalista hafi komið á fót dauðasveitum til höfuðs aðskilnaðarsinnum Baska á síðasta áratug. Juan Ortiz Yrculo, ríkissaksóknari á Spáni, segir, að hugsanlega hafi gefist tilefni til að hefja aftur rannsókn á aðild fyrrver- andi stjórnar að þessu máli. Samtök innan hersins, GAL, myrtu 28 manns á árunum 1983 til ’87 og ásakanir um að ríkið hefði staðið að baki þeim áttu sinn þátt í ósigri Felipe Gonzalezar og ríkis- stjórnar hans í þingkosningunum í mars. í skjölunum, sem E1 Mundo birti, kemur fram, að leyniþjónusta hersins, CESID, hafi stofnað GAL og einnig valið fyrsta fórnarlambið, aðskiinaðarsinnann Ramon Oned- erra. Hann var skotinn á krá í Baskahéraðinu í Suðvestur-Frakk- landi í desember 1983. Spænska varnarmálaráðuneytið sagði í fyrradag, að það væri „alger þvættingur", að til væru skjöl, sem sýndu, að CESID hefði valið fórn- arlömbin fyrir GAL. Vilja fá ryósnaskýrslur Dómstólar á Spáni hafa farið fram á, að leynd verði aflétt af um 20 njósnaskýrslum, sem geta hugsan- lega varpað ljósi á starfsemi GAL, en þótt nokkrir embættismenn hafi verið dæmdir fyrir sinn þátt í þessu máli, þá hefur rannsókn á því lítið miðað vegna upplýsingaskorts. Núverandi ríkisstjórn hægriflokka neitar að láta umræddar skýrslur af hendi og segir þær ríkisleyndar- mál. Dagblaðið E1 Pais, sem styður sósíalista, hefur hugsanlega tekið ómakið af dómstólunum því í gær birti það umræddar 20 njósnaskýrsl- ur. Var þó tekið fram, að blaðið gæti ekki ábyrgst, að þær væru ekta þar sem um væri að ræða af- rit, sem fundist hefðu við leit í fanga- klefa Juan Alberto Perote, fyrrver- andi starfsmanns leyniþjónustunnar. Þáttur Condes? Um er að ræða sömu skjölin og E1 Mundo er að birta en sagt er, að fyrir meira en ári hafí Perote selt þau eða afrit af þeim Mario Conde, fyrrverandi stjómarformanni Ba- nesto-bankans. Conde er sakaður um Qárdrátt, skjalafals og fleira varðandi glæpsamlegt gjaldþrot Banesto- bankans og í gær sagði E1 Pais í leiðara, að E1 Mundo hefði fengið skjölin frá Conde fyrir ári og birting þeirra nú sýndi, að Conde væri að nota blaðið til að kúga ríkisstjómina. Uday sýndur í sjónvarpi Baghdad. Reuter. UDAY, elsti sonur Saddams Husseins Iraksforseta, kom fram í sjónvarpi í gær. Uday var sýnt banatilræði síðastliðinn fímmtudag er skothríð var gerð á bifreið hans í al-Mansour hverfinu í Baghdad. Sýndi sjónvarpið hann liggjandi í sjúkrarúmi og við hlið þess stóðu íraskur sjónvarpsmaður og sendifull- trúi frá Qatar. Virtist hann geta rætt við þá án erfiðis- muna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.