Morgunblaðið - 18.12.1996, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 18.12.1996, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996 49 bjiiggu fyrst á Fríkirkjuvegi 11, því Iandsfræga húsi, en fluttu síðar í Seldal í Kópavogi. Þau eignuðust eina dóttur barna, Jórunni, sem var gift undirrituðum. Þuríður hóf störf hjá slysavarð- stofu Reykjavíkur, síðan slysadeild- Borgarspítalans, og starfaði þar óslitið um 25 ára skeið, eða þar tii hún lét af störfum fyrir aldurssakir, síðast sem deildarhjúkrunarfræðing- ur. Hún kunni mjög vel við sig í þessu starfi og var vinsæl og vel látin meðal samstarfsfólks og minnt- ist hún jafnan þessara ára á „slysó“ með gleði og þakklæti. Þegar þau hjónin fluttu í Kópa- voginn eignuðust þau sinn sælureit, þar sem Seldalur er, og undu þau hag sínum vel þar um 30 ára skeið, og höfðu mikla gleði af gróðrinum og dýrunum sem þau höfðu þar. Þau gerðust fljótt góðir og gegnir Kópa- vogsbúar og þegar aldurinn færðist yfir tóku þau þátt í starfi aldraðra, í „öldungafjörinu" eins og Þuríður orðaði það, af fullum krafti. Valde- mar lést á miðju sumri 1993. Ég var vart meira en unglingur þegar fundum okkar Þuríðar bar fyrst saman og strax tók hún mér opnum örmum og var eins og við hefðum alltaf þekkst. Tókst með okkur góð og innileg vinátta, sem staðið hefur óslitið síðan og fæ ég seint fullþakkað þá góðvild og um- hyggju sem hún ávallt sýndi mér. Eitt var það sem hún var ekki dús við í fari mínu, en það var fótbolta- iðkun mín á yngri árum og sagði hún þá gjarnan „þú ert alveg beset- inn af þessum boltaleik" en kannski hafði hún lúmskt gaman af öllu. Þuríður var hæglát og róleg í fram- komu, svoiítið dul stundum en létt í lund og kunni að meta gaman- semi. Hún lét sig hag ömmubarna sinna miklu varða og seinna þegar barnabarnabörnin komu til sögunnar áttu þau hug hennar allan. Þau sakna nú sárt ömmu og langömmu, sem alltaf var þeim svo góð og vildi allt fyrir þau gera. Á kveðjustund leita minningarnar á hugann og af mörgu er að taka, en mér er efst í huga þakklæti fyrir einlæga vináttu, umhyggju og tryggð Þuríðar allt frá okkar fyrstu kynnum. Þegar ég heimsótti hana á sjúkrahúsið þá var okkur báðum ljóst að samfundirnir yrðu ekki fleiri. Hún kvaddi mig hjartanlega á sinn ljúfa hátt og var sátt við að hverfa á braut úr þessum heimi. Blessuð sé minning hennar. Jón M. Björgvinsson. Okkur langar að minnast Þuríðar Sörensen, góðrar og náinnar vin- konu okkar. Hún var samtímis okkur í hjúkrunarnámi frá upphafi og einn- ig meira og minna í starfí. Þá reyndi oft á þann manndóm og það vinar- þel, sem Þuríði var gefið. Hún var vinur vina sinna, en þegar ákaft var rætt um málefni, sem vöktu áhuga hennar, gat hún verið hvöss í skoð- anaskiptum. Hinn sanni kærleikur var þá auðfundinn á bak við hinar ákveðnu áherslur Þuríðar, enda réðu þar hinar góðu gáfur hennar og áhugi fyrir öllu því, sem rétt var að hennar bestu vitund. Hin mikla umhyggja, sem fram kom hjá Þuríði og hennar nánustu við dýrin, bar ljósan vott um hinn sanna kærleik til alls þess, sem minna má sín og þarfnast elsku og nærfærni okkar manna. Á heimili þeirra hjóna má segja að flest hafi snúist um hina lifandi náttúru. Blómin og trén umvöfðu heimili þeirra og dýrin, bæði fuglar og ferfætlingar voru eins og persón- ur, sem heimilisfólkið umgekkst með nærfærni, elsku og umhyggju. Við erum þakklátar fyrir allar þær gleðistundir, sem við áttum með Þuríði og Valdemar. Hið létta geð og sátt við lífíð var einstæð í fari Þuríðar, þótt stundum virtist svo sem mörgum gæti ekki tekist það eins og á stóð. Sameigin- leg barátta okkar, sem vorum við hjúkrunarnám á sama tíma var oft hörð, en gleðin við samveru okkar á hvíldar- eða skemmtistundum lyfti okkur sameiginlega, enda var Þuríð- ur ávallt hin sama góða vinkona og hrókur alls fagnaðar þegar við átti. Við kveðjum Þuríði með söknuði og biðjum hennar nánustu velfarn- aðar og styrks tii góðra verka svo sem einkenndi hennar heimili. Guðrún Soffía og Jóhanna Björnsd. Mig langar að minnast nokkrum orðum kærrar vinkonu minnar, Þur- íðar Jónsdóttur Sörensen hjúkrunar- konu, sem hefur nú gengið á enda veg þessarar veraldar. Það mun hafa verið haustið 1960 sem ég hóf störf á Slysavarðstofunni við Bar- ónsstíg, eins og bráðamóttaka Reykjavíkur var þá kölluð. Aðstöð- unni sem læknaliðið hafði þarna til að sinna störfum sínum var að ýmsu leyti ábótavant, ekki síst vegna þrengsla, tækjaskorts og að sjálf- sögðu fjárskorts. Engu að síður voru þar innt af höndum fullkomin störf í þessari grein læknisfræðinnar, enda öll stjórn í höndum Hauks Kristjánssonar, bæklunarlæknis, sem hafði víðtæka reynslu í sínu fagi. Á Slysavarðstofunni kynntist maður áhugasömum, ungum lækn- um og hjúkrunarnemum, sem sum hver áttu eftir að fullnuma sig í hin- um ýmsu greinum slysa- og bæklun- arlækninga. Þar sem um kennslu- stofnun var að ræða stóð þetta unga fólk venjulega ekki lengi við í stofn- uninni, og þess vegna þýðingarmikið að eiga þar vísan, ábyrgan og traust- an kjarna. Auk fastráðinna lækna voru það þrjár mikilhæfar hjúkrun- arkonur, sem héldu á loft merki stöð- ugleikans á þessum stað og unnu þarna óslitið, þar til þær hófu störf við Borgarspítalann árið 1969, þegar stofnunin fiuttist þangað. Ein þess- ara styrku stoða var Þuríður Jóns- dóttir Sörensen. Þuríður var greind og vel menntuð hjúkrunarkona og hafði mikla reynslu í öllu er laut að meðferð hvers kyns áverka, hvort sem var andlegur eða líkamlegur. Hún hafði þægilegt viðmót, var nærgætin og orðvör og kunni að umgangast fólk með hæfilegri blöndu af hæversku og myndugleik. Hún var ólöt og alltaf reiðubúin að taka að sér nauðsynleg verk, þó að óskemmtileg væru. Hún hafði ein- staklega gott skap, sem kemur sér vel á bráðamóttökum, en ekki öllum gefíð að hafa á takteinum hvernig sem á stendur. Hún var traustvekj- andi, bjartsýn og hress í viðmóti við þá sem hún átti að annast. Þar fyr- ir utan var hún hrókur alls fagn- aðar, þegar það átti við, og átti auðvelt með að lyfta daufum félags- skap á hærra og áhugaverðara stig. Þuríður var glaðvær og gamansöm, skýr og minnug og sagði vel frá. Þá var hún einkar vel hagorð, og orti skemmtilegar ferskeytlur, sem oft hittu í mark. Það var bæði lærdómsríkt og skemmtilegt að vinna með Þuríði, og okkur á Slysadeild Borgarspítalans fannst vera skarð fýrir skildi, þegar hún hætti þar störfum fyrir nokkrum árum. Ég kveð Þuríði með söknuði og þakklæti fyrir ánægjulegt og ógleymanlegt samstarf. Ég sendi fjöl- skyldu hennar innilegar samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning hennar. Tryggvi Þorsteinsson. t Útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SVAVARS HELGASOIMAR frá Fagradal f Breiðdal, Snorrabraut 56, Reykjavík, sem lést þann 13. desember sl., fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 20. desember kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Vífilsstaðaspítala. Ellen Olga Svavarsdóttir, Jón Einarsson, Már Svavarsson, Halla Einarsdóttir, Marey Linda Svavarsdóttir, Sigurður Þorvaldsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Hugheilar þakkir færum við öllum þeim, sem heiðruðu minningu bróður okkar, JÓNS JÓHANNSSONAR, Brekkuhvammi 1, Hafnarfirði. Systkini og aðstandendur. t Innilegar þakkir til ykkar allra, sem sýndu okkur samúð og vinar- hug við andlát og útför elsku dætra okkar og systra, REBEKKU OG RAKELAR HARÐARDÆTRA. Hjartans þakkir viljum við færa öllu starfsfólki meðgöngudeildar Landspítalans fyrir góða umönnun og hlýju. Brynhildur Sveinsdóttir, Hörður Guðjónsson, Eva Björg Harðardóttir, Sigrún Harðardóttir. Megi góður Guð blessa ykkur öll og varðveita. t Hjartans þakkir til allra er sýndu okkur hlýhug og samúð við and- lát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, HELGU ÁGÚSTSDÓTTUR, Hamragerði 12, Akureyri. Ágúst Steinsson, Baldur Ágústsson, Anna Maria Hallsdóttir, Vilhelm Agústsson, Edda Vilhjálmsdóttir, Birgir Ágústsson, Inga Þóra Baldvins, Skúli Ágústsson, Fjóla Stefánsdóttir, Eyjólfur Ágústsson, Sigrfður Sigurþórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför NÍELSAR BJARNASONAR frá Gervidal. Fyrir hönd aðstandenda, Bjarni Jónsson. t Við þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall eiginkonu minnar, fósturmóður, tengdamóður og ömmu, INGU KARLSDÓTTUR, Framnesvegi 63. Bjarni Gunnarsson, Guðný Marta Óskarsdóttir, Hannes Jónsson, Oddný Aldís Óskarsdóttir, Finnbjörn A. Hermannsson og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð- arkveðjur við fráfall móður okkar og tengdamóður, KRISTÍNAR ÁRNADÓTTUR, Skúlagötu 40, Reykjavík. Þórir Ólafsson, Ingunn Valtýsdóttir, Ólafur Kristinn Ólafsson, Þórunn Guðmundsdóttir, Bruno Hjaltested og fjölskyldur. t Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur hlýhug og vinsemd við andlát og útför SIGURÐAR O. BJARNASONAR, Suðurgötu 13, Hafnarfirði. Jónas Sigurðsson, Elísabet Óladóttir, Stefania B. Sigurðardóttir, Snorri Rafn Snorrason, Kristrún Á. Sigurðardóttir, Bjarni Sigurðsson, Helga Sveinsdóttir, barnabörn og systkini hins látna. t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu, við andlát og útför okkar ást- kæra sonar, eiginmanns, föður, tengda- föður og afa, SIGURÐAR ÍSFELD FRÍMANNSSONAR, Hraunbæ 158. Sérstakar þakkir til starfsfólks gjör- gæsludeildar Landspítalans. Marta Sigurðardóttir, Erla Sigurðardóttir, Guðrún Marta Sigurðardóttir, Frímann Már Sigurðsson, Wimonrat Strichkham, Óskar Isfeld Sigurðsson, Sólveig Ágústsdóttir, Helga Sigurðardóttir, Ágúst Óskarsson, Erlendur Isfeld Sigurðsson, Fanney Kristjánsdóttir og barnabörn. t Innilegustu þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, ÞÓRUNNAR MARÍU FRIÐRIKSDÓTTUR frá Fljótavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks þjón- ustudeildar Hlífar og Fjórðungssjúkra- húss ísafjarðar. Helga Hansdóttir, Líndal Magnússon, Þórunn Vernharðsdóttir, Herborg Vernharðsdóttir, Ingólfur Eggertsson, Bára Vernharðsdóttir, Hjörvar Björgvinsson, Sigrún Vernharðsdóttlr, Guðni Ásmundsson, Jósep Vernharðsson, Hrafnhildur Samúelsdóttir, barnabörn og langömmubörn. S
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.