Morgunblaðið - 18.12.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.12.1996, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Reuter VÆNTANLEGUR tveggja punda peningur var í fyrsta skipti sýnd- ur opinberlega í Bretlandi í gær, en hann á að taka í notkun í nóvember á næsta ári. EMU mun kosta banka heims 7 milljarða dala á ári Zíirich. Reuter. Lopez ákærður, en VW ekki sak- að um samstarf Darmstadt. Reuter. Duisen- berg for- seti EMI Dyflinni. Reuter. HOLLENZKI seðlabankastjórinn Wim Duisenberg, arkitekt mikillar grósku í efnahagsmálum Hollands, hefur verið kjörinn næsti yfirmaður Peningastofnunar Evrópu (EMI) frá 1. júlí 1997. EMI er forveri Seðlabanka Evr- ópu, sem mun stjóma peningamála- stefnu 15 aðildarlanda Evrópusam- bandsins frá 1. janúar 1999 innan ramma fyrirhugaðs efnahags- og myntbandalags (EMU). ESB-leiðtogar samþykktu form- lega á fundi sínum í Dyflinni að Duisenberg tæki við af Belganum Alexandre Lamfalussy, sem verður leiðtogi EMI fram á næsta sumar. Enginn evrópskur seðlabanka- stjóri hefur gegnt starfi sínu eins lengi og Duisenberg, sem er sextug- ur. Undir hans stjórn hafa Hollend- ingar orðið öðrum þjóðum til fyrir- myndar vegna stöðugleika og festu í peningamálum. Gjaldmiðill þeirra er sterkur, verðbólga er lítil, fáir eru atvinnulausir og aðhalds er gætt í fjármálum. ---------------- Frakkar selja Thomson í tvennu lagi París. Reuter. FRANSKA stjómin hefur tilkynnt þá ætlun sína að einkavæða her- gagna- og rafeindafyrirtækið Thomson SAin í tvennu lagi og verður byrjað á hergagnaarminum Thomson-CSF snemma á næsta ári. Samkæmt tilkynningu frá franska fjármálaráðuneytinu verð- ur að endurfjármagna rafeindaarm- inn Thomson Multimedia áður en hann verður seldur. UNION-bankinn í Sviss (UBS) segir að bankakerfi heimsins muni glata um 7 milljarða dollara tekjum á ári þegar sameiginlegur gjaldmiðill Evrópu verði tekinn upp. UBS segir að sameiginlegur gjaldmiðill muni skerða tekjur af gjaldeyrisviðskiptum og einnig tekjur á peninga- og skuldabréfa- mörkuðum vegna minni og stöð- ugri vaxta. Áhrifanna muni gæta mest hjá umsvifamiklum bönkum. Bankinn segir að þegar evró- gjaldmiðillinn verði tekinn upp 1999 muni hann einnig valda auknum kostnaði, þar sem bankar verði að fást við tveggja gjald- miðla kerfi á umþóttunartíma þar til komið verði á fót Efnahags- og myntbandalagi Evrópu. (EMU). FJÓRIR fyrrverandi starfsmenn General Motors voru fyrir helgi ákærðir fyrir að hafa stolið leyni- skjölum þegar þeir hættu störfum hjá GM og voru ráðnir til starfa hjá Volkswagen 1993. Ákærendur í málinu segja hins vegar að í rannsókn þeirra, sem staðið hefur í þijú og hálft ár, hafí ekkert komið fram sem sýni að yfir- menn VW hafi átt þátt í því að leyndarmálunum var stolið - gagn- stætt því sem GM og Þýzkalands- deildin Adam Opel AG halda fram og þótt Jose Ignacio Lopez de Arri- ortua fyrrum framleiðslustjóri hafi notað upplýsingarnar þegar hann gerði stjórnendum VW grein fyrir áætlunum sínum. Auk Lopezar voru þrír aðrir fyrr- verandi starfsmenn GM ákærðir, þeir Jose Manuel Gutierrez, Rosario Piazza og Jorge Alavarez, sem fylgdu Lopez til VW í marz 1993. Lopez og hinir eiga yfir höfði sér fimm ára fangelsi eða sekt, en bent er á að venjulega séu ekki kveðnir upp fangelsisdómar fyrir fyrsta brot. Sækjendurnir vilja ekki segja hvenær réttarhöid heijist í málinu. Lopez, sem mun búa á Spáni, og hinir sakborningarnir ganga lausir þar til réttarhöld fara fram. VW vill viðræður Volkswagen sagði að ákærurnar gæfu ástæðu til nýrra viðræðna við GM um að hætt verði málaferlum gegn VW í Bandaríkjunum, því að GM kæmi ekki við sögu rannsóknar- innar í Þýzkalandi. Blaðið Die Welt hermir að æðstu menn VW og GM kunni að ræðast við í New York. Talsmaður GM vísaði ummælum VW á bug og sagði að engar leynivið- ræður færu fram eða væru fyrirhug- aðar og lögsóknin í Bandaríkjunum kæmi þýzku rannsókninni ekki við. Volkswagen hefur sagt að ásak- anir General Motors um glæpsam- legt samsæri séu tilhæfulausar og að árásir fyrirtækisins hafi “hrunið eins og spilaborg." Talsmaður VW, Klaus Kocks, sagði Reuter að framlagðar ákærur sönnuðu ótvírætt að ekkert samsæri um að nota leyndarmál GM hefði átt sér staðeins eins og haldið væri fram. „VW hefur hvorki beðið um né notað nokkur leyndarmál í eigu ut- anaðkomandi aðila,“ sagði Kocks. Lánardrottnar BCCI fá 2,65 milljarða dala . Reuter. viðbótar með tíð og tíma samkvæmt samkomulagi sem náðist fyrr á þessu ári. Bandarískt og arabískt fé Þetta framlag og tilraunir banda- rískra aðila, sem leiddu til þess að rúmlega 500 milljónir dollara feng- ust frá Bandaríkjastjórn, ruddu veginn fyrir fyrstu greiðsluna. Milljarðamæringur í Saudi Arab- íu, sjeik Khalid bin Mahfouz, greiddi 245 milljónir dollara, en skiptaráð- endur héldu því fram að hann hefði verið viðriðinn yfirhylmingu hneykslisins. Samkvæmt úrskurði dómstóls í Lúxemborg 1995 sam- þykkti Mahfouz að borga án þess að viðurkenna ábyrgð gegn þvi' að málið yrði fellt niður. Skiptastjórar eiga útistandandi kröfur gegn Englandsbanka, Instit- ut Monetaire Luxembourgeois (rekstri BCCI var stjórnað frá Lúx- emborg) og endurskoðendum bank- ans , endurskoðendafyrirtækjunum Price Waterhouse og Ernst & Whinney, sem nú er hluti Ernst & Young eftir samruna. EFTIR fimm ára baráttu munu lánardrottnar BCCI, hins kunna gjaldþrota alþjóðabanka, fá greiðslu að upphæð 2,65 milljarðar dollarar sem samsvarar 24,5% af kröfum þeirra að sögn skiptastjóra. Bank of Credit & Commerce Int- ernational, BCCI, var stofnaður 1972. Seðlabankar lokuðu honum og hann varð gjaldþrota vegna skuida upp á rúmlega 12 milljarða dollara þegar upp komst um víðtæk fjársvik og peningaþvætti er leiddi til flókinna málaferla sem ekkert lát virðist á. Eigið fé BCCI nam 24 milljörðum dollara og bankinn starfaði í 71 landi þegar hann varð gjaldþrota. Að sögn skiptaráðenda verður önnur greiðsla innt af hendi á næstu 12-16 mánuðum og mun hún nema 10% af um 10,5 milljarða dollara kröfum í þrotabúið sem teknar voru til greina. Skiptaráðendur náðu inn um 4,0 milljörðum dollurum, þar af 1,5 milljörðum frá stærsta hluthafa BCCI, ríkisstjórn Abu Dhabi, sem mun greiða 250 milljónir dollara til ^GjöJin hennar Kringlunm, 1. hæð sími 553 7355 ÍNTINö Glæsilegur undirfatnaður og náttfatnaður. ■ Innpökkun innifalin. Munið gjafa kortin vinsœlu. ESBgegnsölu BA/AA á lendingartíma Briissel. Reuter. FRAMKVÆMDASTJÓRN Efna- hagssambandsins er enn í „alvarleg- um vafa“ um hvort samþykkja skuli bandalag flugfélaganna American Airlines og British Airways og bend- ir á að hugmyndir um sölu á skömmt- uðum lendingartíma geri illt verra. Þessum hugmyndum segja heim- ildir í ESB „sé ekki hægt að ganga að“, auk þess sem þær séu „ekki löglegar." Bent er á yfirlýsingu brezku stjórnarinnar um að hún muni samþykkja bandalagið, ef fé- lögin gangi að vissum skilyrðum, og eitt þeirra sé að þau afsali sér skömmtuðum tíma til 168 lendinga á Heathrow flugvélli Lundúna. British Airways segir að félagið selji skammtaða lendingartíma „ein- göngu á grundvelli sanngjarns markaðsverðgildis.“ Búnadarbankinn myndavélavœðist WKKKB Securitas og Búnaðarbankinn gerðu nýlega samning um að myndavélavæða útibú bankans. Securitas býður mjög öruggar lausnir á viðráðanlegu verði. Öryggi í viðskiptum í Búnaðarbankanum hefur verið aukið til muna með myndavélaeftirliti Veldu öryggi í stað áhættn ■ veldu Securitas Síðumúla 23'108 Rcykjavík Sími: 533 5000 Unnar Jónsson frá Búnaðarbankanum og Sigurður Erlingsson frá Securitas handsala samninginn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.