Morgunblaðið - 18.12.1996, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 18.12.1996, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996 55 FRÉTTIR Símasögii- safná Melunum MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá sam- gönguráðuneytinu: „A bls. 10 í 289. tbl. Morgun- blaðsins þriðjudaginn 17. desem- ber 1996 er birt fregn um að lagt hafi verið fyrir Alþingi stjórnar- frumvarp um Póstminjasafn Is- lands undir fyrirsögninni: Frum- varp um póstminjasafn. Frímerki varðveitt sem þjóðareign. í greininni kemur fram sá mis- skilningur að safninu sé ætlað húsnæði í gömlu loftskeytastöð- inni á Melunum sem Póst- og síma- málastofnun keypti fyrr á þessu ári. Hvergi er að finna í frumvarp- inu eða greinargerð þess neinar hugleiðingar um að gera loft- skeytastöðina á Melunum að póst- minjasafni. Þvert á móti er skýrt tekið fram í greinargerð með frumvarpinu að aðaláhersla verði lögð á sögu loftskeyta og ritsíma og rekstur þjálfunar- og rannsókn- arstöðvar í nútímafjarskiptatækni. Núverandi safn póst- og síma- minja í gömlu símstöðinni í Hafn- arfirði er of lítið fyrir bæði söfnin. Markmiðið er að gera safnið á Melunum að fullkomnasta síma- sögusafni landsins. Skipulagsskrá fyrir samstarfsverkefni Háskóla íslands og Póst- og símamála- stofnunar um safnið var undirrituð á 90 ára afmæli fjarskipta. Þess er vænst að framanritaðar missagnir í greininni verði leiðrétt- ar.“ ♦ ♦ » Ný stjórn í kjördæmis- ráði AB AÐALFUNDUR Kjördæmisráðs Al- þýðubandalagsfélaganna í Reykja- vík var haldinn 9. desember. Á fundinum var kjörin ný stjórn ráðsins næstu tvö árin og er hún svo skipuð: Formaður: Haukur Már Haralds- son, iðnskólakennari, varaformaður Gísli Gunnarsson, dósent, meðstjórn- endur: Kristján Valdimarsson, fram- kvæmdastjóri, Guðrún Ágústsdóttir, forseti borgarstjórnar Reykjavíkur, Sigurbjörg Gísladóttir, fulltrúi, Sig- rún Elsa Smáradóttir, nemi, Sigríður Kristinsdóttir, formaður SFR, Stef- án Pálsson, nemi og Þorvaldur Þor- valdsson, trésmiður. í varastjórn eru: Gestur Ásólfsson, rafvirki, Helgi Hjörvar, framkvæmdastjóri og Stef- án Eiríksson. STJÓRN starfsmenntunarsjóðs ungra kvenna ásamt styrkþegum. Talið f.v.: Þórey Guðmundsdóttir, for- maður BKR, Ágústa Sigurðardóttir, Bima Barkardóttir, Kristín Gerður Guðmundsdóttir, Anna Kristín Þorsteinsdóttir, Halldóra Ólafsdóttir, Svanlaug Árnadóttir, ritari, og Erla Þórðardóttir, gjaldkeri. Bandalag kvenna í Reykjavík veitir námsstyrki STARFSMENNTUNARSJÓÐ- UR ungra kvenna var stofnaður á þingi Bandalags kvenna í Reykjavík 1995 og hafa nú náms- styrkir verið veittir í fyrsta sinn úr sjóðnum. Þeir sem hlutu styrkinn voru: Anna Kristín Þorsteinsdóttir er í fornámi til iðnhönnunar- náms í Iðnskólanum í Reykjavík, Ágústa Sigurðardóttir er í Ferðamálaskóla íslands og út- skrifast í vor sem ferðaráðgjafi með alþjóðleg réttindi á ferða- skrifstofur, Birna Barkardóttir er í fornámi í Fjölbraut í Breið- holti og ætlar í nám sem aðstoð- armaður tannlæknir, Halldóra Ólafsdóttir er að ljúka sveins- prófi í símsmíði frá Póst- og símamálaskólanum og Kristín Gerður Guðmundsdóttir er á 1. misseri í sálarfræði í Háskóla Islands. KÍ um slaka frammi- stöðu í raungreinum Kennara- nám verði lengt KENNARASAMBAND íslands hvet- ur til þess að kennaranám grunn- skólakennara verði lengt í fjögur ár og varar við því að dregið verði úr kröfum um kennsluréttindi og lög- verndun starfsheitis kennara. í ályktun stjórnar KÍ segir að framkvæmd laga um íjórða ár við Kennaraháskólann hafi ítrekað verið frestað vegna niðurskurðar. „Þriggja ára nám gefur ekki svigrúm til nægi- legrar kennslu bæði í faggreinum og kennslufræði þeirra. Mikilvægt er að efling kennslu í faggreinum og kennslufræði verði ekki á kostnað uppeldisfræði þar sem uppeldishlut- verk grunnskólanna hefur aukist verulega á undanfömum árum.“ Stjórnin segist taka alvarlega nið- urstöður könnunar, sem sýndi að ís- lenskir nemendur stæðu sig slælega í raungreinum. Hins vegar er varað við því að dregin verði sú ályktun að slök frammistaða nemenda sé vegna of mikillar áherslu á uppeldis- fræði í kennaranámi. FRÁ UNDIRRITUN samnings heilbrigðis- og tryggingamálaráðu- neytisins og Hjartaverndar. Frá vinstri: Svanhvít Jakobsdóttir úr ráðuneytinu, Nikulás Sigfússon frá Hjartavernd, Ingibjörg Pálmadóttir ráðherra, Magnús Karl Pétursson frá Hjartavemd og Halldór Eiríksson frá ráðuneytinu. Ríkið gerir þjónustu- samning við Hjartavernd Krossgátubókin komin út KROSSGÁTUBÓK ársins 1997 er nýkomin í verzlanir. Þetta er 14. árið, sem ÓP-útgáfa gefur bókina út._ í bókinni eru krossgátur með ýmsum formum svo og talnagátur. Lausnir er að finna aftast í bók- inni. Helstu höfundar krossgátanna í bókinni eru Gísli Ólafsson og Sig- tryggur Þórhallsson. ------»■ ♦ ♦----- ■ JÓLAKVEÐJUR Endastöðv- arinnar, sem er jólaútvarp Sunn- lendinga á FM 103,7, verða sendar út sunnudaginn 22. desember og á Þorláksmessu milli kl. 13 og 18. Alls verður hver kveðja lesin sex sinnum. Skipað í Tóbaksvarnar- nefnd HEILBRIGÐIS- og trygginga- málaráðherra hefur skipað Tób- aksvarnamefnd til fjögurra ára. Hlutverk tóbaksvarnarnefndar er m.a. að vera ráðgefandi aðili í tób- aksvörnum og gera tillögur til stjórnvalda um ráðstafanir til þess að vinna gegn neyslu tóbaks í samræmi við lög um tóbaksvarnir. í nefndina hafa verið skipuð: Þorsteinn Njálsson, læknir, for- maður og Guðbjörg Pétursdóttir, hjúkrunarfræðingur, varaformað- ur. Samkvæmt tilnefningu Krabba- meinsfélags íslands: Þorvarður Örnólfsson, framkvæmdastjóri. Til vara: Þuríður Backmann, hjúkrun- arfræðingur. Samkvæmt tilnefn- ingu Hjartaverndar: Helgi Guð- bergsson, læknir. Til vara: Þor- steinn Blöndal, læknir. -----» ♦ ♦---- LEIÐRÉTT Snælda eldri borgara í FRÉTT um nýútkomna snældu eldri borgara í Morgunblaðinu síð- astliðinn sunnudag var nafn Önnu Júlíu Magnúsdóttur misritað. Er beðist velvirðingar á þeim mistök- um. HEILBRIGÐIS- og tryggingamála- ráðuneytið hefur gert þjónustu- samning við Hjartavernd og tekur samningurinn gildi frá og með 1. janúar næstkomandi. Markmiðið með samningnum er að gefa Hjartavernd aukið svigrúm til lengri tíma til að skipuleggja starfsemi sína og fá þannig fram betri nýtingu fjármagns til rann- sókna í baráttunni gegn hjarta- og æðasjúkdómum, segir í fréttatil- kynningu. Samningurinn felur í sér breytt samskiptaform heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og Hjartaverndar, þar sem nú er ýtar- lega skilgreint hvaða þjónustu Hjartavernd býður upp á og um leið er fyrirfram skilgreint hvaða þjónustu ráðuneytið greiðir fyrir hjá Hjartavernd. p Jólatilboðsverð 5.400 kr. Kortasafn í möppu Níu hlutakort af öllu landinu Kærkomin gjöf fyrirferðamanninn. Önnur kortasöfn einnig fáanleg í möppum. Jólatilboðsverð Landmælingar og, kortagerð Dana á íslandi Upphaf Landmælinga Íslands Vönduð bók sem fjallar um sögu eins mesta stórvirkis Dana á stjómarárum þeirra hérlendis. TÁl /ffí' ólatilboðsverð 2.400 kr. Upphleypt íslandskort Falleg og áþreifanleg gjöffyriralla aldurshópa, í vandaðri gjafaöskju. 4.900 kr ^ Fróðlegaf og nytsamar gjafir Jólatilboðsverð 2.900 kr. Norðurlandakort Geisladiskurmeðkortumímælikvarða 1:2.000.000 af Norðurlöndum og Grænlandi. Auðvelt er að mæla fjarlægðir og finna örnefni. íslandskort Yfirlitskort, jarðfræðikort og gróðurmynd. Þrír disklingar í pakka, fyrir PC og Macintosh tölvur. LANDMÆLIIMGAR ÍSLANDS Söludeild, Laugavegi 178, Reykjavík. Opiö virka daga kl. 9-17 og laugardaga í desember kl. 10-16. Sími 533 4000.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.