Morgunblaðið - 18.12.1996, Blaðsíða 64
64 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Sími
'hUf'
F 551 6500
rw,
.fJÖRiW
0 UÍ<> ^
FS51 6500
LAUGAVEG94
JOLAMYND 1996
^yia+tkildw^
6Lng'm venjwleg sfelpa
Ma
Matthildur er skemmtileg og býr yfir ótrúlegum hæfileikum. Hér
er á ferðinni þrælfyndin og unaðsleg gamanmynd fyrir alla fjöl-
skylduna frá meistaranum Danny DeVito. Komið og kynnist
Matthildi. Hún á eftir að heilla ykkur upp úr skónum.
Með öllum miðum fylgja með Matthildar bókamerki.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
"Hættuspil
„ er tví-
mælalaust
ein af betri
myndum
Van
Damme.
Sýnd kl. 9 og 11.B.L 16.
BALTASAR KORMAKUR • GISLIHALLDORSSON • SIGURVEIG JONSDOTTIR
★ ★★ M.R. Dagsljós
★★★★ A.E. HP
★ ★ U.M. Dagur-Tíminn
★ ★★V2 S.V. Mbl
★ ★★ V2 H.K. DV
★ ★★ Ó.H.T. Rás 2
Sýnd kl. 5 og 7.
Engir viðvaningar
TONLIST
Gcisladisku r
,,[LAIV]“
Geisladiskur blásarasveitarinnar
BossaNova sem kallast ,,[laiv]“.
Hljómsveitina skipa Birkir Friðfinns-
son og Kristinn Ottason gítarleikar-
ar, Ellert Guðjónsson bassaleikari,
Helgi Hrafn Jónsson básúnuleikari,
Jón Grétar Gissurarson básúnuleik-
ari, Kjartan Hákonarson trompet-
leikari, Þorbjörn Sigurðsson hljóm-
borðsleikari og Þorvaldur Þór Þor-
valdsson trommuleikari. Lög eftir
ýmsa erlenda höfunda og að auki lög
eftir Lárus H. Grímsson, Sigvalda
Kaldalóns og Ríkarö Óm Pálsson.
Útsetningar að mestu eftir Kára Ein-
arsson og Gylfa Gunnarsson og hafði
Gylfi umsjón með upptökum. Bossa-
Nova gefur út, Hljómalind dreifir.
47,53 min.
FÁTT er skemmtilegra en góð
blásarasveit í rífandi keyrslu;
minnist til að mynda indverskra
og serbneskra brúðkaupssveita
eða þá astralsveitarinnar Júpíters,
sem brugðið gat sér í allra kvik-
inda líki. Reyndar er ekki sann-
gjarnt að bera BossaNova saman
við þær sveitir, því aðal hennar
er allt annað; í stað hamagangs
og hávaða spila þeir BossaNova-
menn af siðfágun og nákvæmni
og í stað hamslausrar tjáningar
einkennir öguð kímni leik sveitar-
innar, að minnsta kosti á disknum
,,[laiv]“.
BossaNova er unglingasveit af
Seltjarnamesi og hafa liðsmenn
hennar leikið saman síðan þeir
voru átta ára gamlir. Það heyrist
og að þrátt fyrir ungan aldur eru
þeir engir viðvaningar í spila-
mennsku og þó sumstaðar megi
heyra illa mótaða tóna eða óná-
kvæmar skiptingar kemur það
ekki að sök en eykur frekar ánægj-
una af plötunni, þetta er sannköll-
uð tónleikaplata, tekin upp á ein-
um degi. Víða er vel leikið, nefni
sem dæmi básúnublástur Helga
Hrafns Jónssonar og trompet
Kjartans Hákonarsonar, en reynd-
ar er ósanngjarnt að taka þá út
úr því allir BossaNova-menn
standa sig framúrskarandi vel og
eiga sína spretti, eins og til að
mynda Þorbjörn Sigurðsson í All
Blues.
Lagaval er kannski eini galli
plötunnar því þó þeir félagar fari
vel með gamlar lummur eins og
Brazil, Cherry Pink og Oye Como
Va, eru útsetningar ekki nógu
ævintýralegar til að gæða þau lífi
eftir hundrað þúsund hlustanir. Á
Sprengisandi er aftur á móti líf-
lega útsett og upp fullt með kímni
og spilagleði og einnig er gaman
að heyra lög þeirra Ríkarðs og
Lárusar, sérstaklega er lag Rík-
arðs skemmtilegt og vel flutt, en
lag Lárusar aftur á móti sveifla
og stuð.
Ekki er vert að meta plötu
BossaNova eftir ströngustu stöðl-
um um spilamennsku atvinnu-
manna, því á plötunni eru ung-
menni að leika sér. Niðurstaðan
er þó ekkert slor, heldur bráð-
skemmtileg plata skemmtilegrar
og efnilegrar sveitar sem á von-
andi eftir að halda áfram enn um
hríð og taka meiri áhættu á næstu
plötu sinni.
Árni Matthíasson
Málanám er
f járfesting til
frambúðar
enslca, franska, ítalska,
þýska, spænska • ••••
ViS bjóðum ungum sem
öldnum úrval námskeiöa
víða um heim.
„Hjá okkur ferð þú í
ævintýralegt málanám".
KÖRFUBOLTAHETJAN
Damon Wayans Daniel Stern uo
STEVEN
SEAGAL
KEENEN IVORV
SNORRABRAUT 37, SÍMI 552 5211 OG 551 1384
NETFANG: http://www.sambioin.com/
Sýnd
11
05
12
og
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. THX DIGITAL B.i. 16 ára.
ÞRJAR OSKIR
RIKHARÐUR III
Synd
og
BLOSSI
AÐDAANDINN
Sýnd
idigitali ' f i
__ THE 5 Wh
GLIMMER MAN
Spennumyndastjarnan Steven Segal nú í samstarfi með Keenan
Ivory Wayans (Low Down Dirty Shame) í hörkuspennandi mynd
þar sem miskunnarlaus fjöldamorðingi gengur laus í Los
Angeles. Æsispennandi eltingaleikur þar sem enginn er óhultur...
Aðalhlutverk: Steven Segal, Keenan Ivory Wayans og Brian Cox.
Konan mín vinnur
í fjölleikahúsi!
KVIKMYNDALEIKAR-
INN Nick Nolte hefur
leikið í mörgum eftir-
minnilegum myndum í
gegnum tíðina eins og
hryllingsmyndinni „The
Deep“, „Cape Fear“,
gamanmyndinni „I Love
Trouble" og „Mulholland
Falls“. Nú hefur hann
snúið sér að myndum
sem eru smærri á banda-
rískan mælikvarða og er
nú að leika í myndinni
„Mother Night" sem
gerð er eftir sögu Kurt
Vonnegut og ijallar um
bandarískan njósnara í
Þýskalandi í seinni
heimsstyijöldinni.
Nick Nolte er þekktur fyrir að
segja vafasamar æsandi sögur í
viðtölum við blaðamenn. „Einu sinni
sagði ég að að ég væri með innfall-
ið eista og að konan mín ynni í fjöl-
leikahúsi, dansaði á línu í ballett-
kjól. Ég átti til að segja allskyns
svona sögur. Ég var oftast undir
áhrifum áfengis í viðtölum og sagði
þá ýmislegt skrautlegt. Þess er að
geta að hér áður fyrr kom ég aldr-
ei til fundar við blaðamenn öðruvísi
en að vera búinn að drekka að
minnsta kosti eina bjórkippu,“ sagði
Nolte sem átti við áfengisvandamál
að stríða í 30 ár en hefur verið
edrú síðan 1989.
Sonur hans er nú í sviðsljósinu
en hann leikur son aðalpersónunn-
ar, sem leikinn er af Mel Gibson, í
myndinni vinsælu „Ransom“. „Ég
var ekkert að reyna að beina honum
inn á leiklistarbrautina og það er
óvíst hvort hann mun leggja leiklist-
ina fyrir sig sem ævistarf," segir
Nolte um son sinn.