Morgunblaðið - 18.12.1996, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Samkeppni um heildarskipulag
Naustahverfis
Fimm vinnustof-
ur valdar í forvali
SKIPULAGSNEFND Akureyrar
hefur samþykkt að efna til forvals
vegna fyrirhugaðrar samkeppni
um heildarskipulag svonefnds
Naustahverfis, sem er framtíðar-
byggingarland bæjarins suður frá
núverandi byggð að Kjarnaskógi.
Valdar verða 5 vinnustofur til
þátttöku og verður greidd þóknun
fyrir hveija tillögu og að auki
verða veitt fyrstu verðlaun.
Hér er um mjög stórt verkefni
að ræða en í frumáætlunum hefur
verið gert ráð fyrir um 2.000 íbúð-
um í Naustahverfi og að það skipt-
ist í tvö skólahverfí. Ráðgert er
að byggingaframkvæmdir hefjist
á svæðinu upp úr aldamótum og
er sérstaklega vonast til að niður-
staða samkeppninnar geti vísað til
framtíðar á nýrri öld, með tilliti
til þróunar búsetu, lífs- og at-
vinnuhátta og jafnvægis byggðar
og náttúru.
Árni Ólafsson skipulagsstjóri
segir að samkeppnin hefjist í lok
janúar á næsta ári og standi yfir
í þijá mánuði. í framhaldinu heij-
ast störf dómnefndar og er stefnt
að því að þeim ljúki fyrir sumarið.
Morgunblaðið/Kristján
NEMENDUR Menntasmiðju kvenna sýndu verk sín á Punktinum í gær, frá vinstri er Ragnhildur,
jafnréttis- og fræðslufulltrúi, þá nemendurnir Ingibjörg Ásta, Alma, Ása, Dagný, Sandra, Krist-
jana, Sigríður, Sigríður Soffía rekstrarstjóri, Inga Jóna, Hulda Biering verkefnisfreyja, Helga og
Guðrún Pálína kennari.
jólatilboöj
i Dað er notalegt
| að hafa bíl
' yfir hötíðína.
Europcar - Bílaleiga Akureyrar,
Reykjavöc Skeifan 9, sími 568 6915
Útibú um landið.
Höldur hf.
Menntasmiðja kvenna
Nemendur
sýndu
verk sín
NEMENDUR Menntasmiðju
kvenna héldu sýningu á verkum
sínum á tómstundamiðstöðinni
Punktinum í gær en þær konur
sem stundað hafa nám í Mennta-
smiðjunni eru nú að ljúka námi
og verða útskrifaðar í dag, mið-
vikudag.
Námið skiptist þannig að
þriðjungur þess er bóklegur,
m.a. enska, íslenska og tölvun-
ám, þriðjungur felst í sjálfs-
styrkingu og þriðjungur er
verklegt nám sem í haust hefur
farið fram á Punktinum, en þar
er m.a. um að ræða myndlist-
arnámskeið og handavinnu
ýmiskonar.
Menntasmiðjan hefur nú
starfað frá því síðsumars 1994
SIGURÐUR J. Sigurðsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks ræðir
við tvo nema Menntasmiðjunnar, Söndru Magnúsdóttur og Ölmu
Axfjörð.
og hafa nú alls 87 konur lokið
námi á fimm önnum. Námið er
ætlað atvinnulausum konum og
hefur það að sögn Huldu Bier-
ing verkefnisfreyju Mennta-
smiðju kvenna skilað góðum
árangri. Flestar þeirra kvenna,
sem lokið hafa námi, hafa feng-
ið atvinnu að námi loknu eða
snúið sér að frekara námi, m.a.
við Verkmenntaskólann á Akur-
eyri, Háskólann á Akureyri eða
sótt námskeið Menningar- og
fræðslusambands alþýðu.
Næsta önn hefst eftir áramót
og hafa yfir 30 konur sótt um
að komast að en einungis 20 nem-
ar eru teknir inn á hveija önn.
Rauði
krossinn
kaupir íbúð
RAUÐI kross^ íslands og Akur-
eyrardeild RKÍ hafa tekið höndum
saman um kaup á íbúð á Akur-
eyri. Hún er ætluð til afnota fyrir
sjúklinga og aðstandendur þeirra
og er við Þingvallastræti 20.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akur-
eyri hefur tekið íbúðina til umsjón-
ar og rekstrar og hefur samningur
þess efnis verið undirritaður.
Akureyrardeild RKÍ hefur búið
íbúðina húsgögnum og nauðsyn-
legasta búnaði, en samt sem áður
er enn þörf á ýmsum búnaði til
viðbótar og er hvers konar stuðn-
ingur við þetta verkefni vel þeg-
inn. Einstaklingar og félagasam-
tök sem vilja leggja málinu lið
geta snúið sér til skrifstofu Akur-
eyrardeildar RKÍ í Kaupangi en
hún er opin alla virka daga frá
kl. 13.30 til 16.30.
Þeir sem að verkefninu standa
vona að þjónustan nýtist sjúkling-
um og aðstandendum þeirra sem
þurfa að dvelja á Akureyri, en
þeir sem þurfa á íbúðinni að halda
er bent á að snúa sér til Fjórðungs-
sjúkrahússins.