Morgunblaðið - 18.12.1996, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996 15
AKUREYRI
Greinargerð bæjarsljóra vegna sölu á hlutabréfúm í ÚA til SH
Eðlilegt að kanna afstöðu nýrra
eigenda til samstarfsverkefna
BÆJARSTJÓRN Akureyrar sam-
þykkti að selja Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna 13,7% hlut sinn í
Útgerðarfélagi Akureyringa á fundi
sínum í gær.
Á aukafundi bæjarráðs þar sem
málið var til umræðu óskuðu full-
trúar minnihlutans eftir skriflegri
greinargerð bæjarstjóra þar sem
gerð yrði skrifleg grein fyrir því
hvers vegna ekki hafi verið hægt
að afgreiða tilboð SH fyrr en á
aukafundinum.
í greinargerð Jakobs Björnsson-
ar kemur fram að frá því tilboð
SH barst 28. nóvember og til 2.
desember hafi hann verið frá vinnu
vegna veikinda. Áður en tilboð SH
barst höfðu viðræður verið í gangi
milli ÚA og KEA um samstarf
fyrirtækjanna og „voru þar rædd
atriði, sem á einhvern hátt gátu
haft áhrif á eignaraðild að félaginu
(ÚA) í framtíðinni. Á sama tíma
höfðu komið upp ýmsar hugmyndir
sem vörðuðu atvinnuuppbyggingu
á Akureyri, hugsanlega í samvinnu
sjávarútvegsfyrirtækja og fleiri
aðila hér. Niðurstaða Kaupfélags
Eyfirðinga varð sú, að selja sinn
eignarhlut í félaginu. Undirritaður
mat þá stöðu málsins þannig að
eðlilegt væri að kanna afstöðu
væntanlegra eignaraðila til áður-
nefndra samstarfsverkefna, áður
en gengið yrði að kauptilboði
þeirra," segir í greinargerð bæjar-
stjóra.
Einnig segir bæjarstjóri að tilboð
SH hafi verið áhugavert og stefnt
hafi verið að því að afgreiða það
á fundi bæjarráðs 5. desember sl.
en ekki hafi fyrir þann fund verið
búið að afgreiða málið á ákvörðun-
arstig. Málið hafí verið metið það
mikilvægt að ekki hafi verið óeðli-
legt að boða til aukafundar í bæjar-
ráði degi síðar þar sem það var
afgreitt.
Pókerspil
Fram kom í máli Sigurðar J. Sig-
urðssonar, Sjálfstæðisflokki, að
undrun hafi vakið að ekki var hægt
að ganga frá sölu hlutabréfanna
fyrr en 8 dögum eftir að tilboðið
barst og að mönnum læðst sá grun-
ur að hagsmuna eins hluthafahóps
hafí verið óeðlilega vel gætt, jafn-
vel umfram hagsmuni bæjarins.
Drátturinn hafí orðið vegna þess
að einstakir hluthafar hafí ekki
verið búnir að ganga frá sínum
málum og Akureyrarbær notaður
sem pressa á að þeir gengu upp.
Sigríður Stefánsdóttir, Alþýðu-
bandalagi, sagðist fínna ugg í
brjósti margra Akureyringa eftir
að bærinn missti meirihluta sinn í
fýrirtækinu. Hún gagnrýndi að
bréfin hefðu ekki verið auglýst og
seld hæstbjóðenda. Undir þá gagn-
rýni tók flokksbróðir hennar Heimir
Ingimarsson sem og Þórarinn B.
Jónsson, Sjálfstæðisflokki, sem
sagði að vinnubrögð meirihlutans
við söluna væru óviðunandi og
hefðu einkennst af pókerspili.
Saknar bæjarútgerðar
Bæjarfulltrúar virtust almennt
ánægðir með að sölumálin eru frá-
gengin og töldu fýrirtækið eflast í
kjölfar þess. Gísli Bragi Hjartarson,
Alþýðuflokki, kvaðst þó sakna þess
að síðasta bæjarútgerðin væri liðin
undir lok, og það myndi hann gera
alla ævi.
Gjaldskylda
á bílastæðum
felld niður
tiljóla
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fella
niður gjaldskyldu á bílastæðum
bílastæðasjóðs Akureyrar í mið-
bænum frá og með deginum í
dag, miðvikudag og fram að jól-
um. Þetta er gert að frumkvæði
kaupmanna í miðbæjarsamtökun-
um til reynslu.
Kaupmenn ætla jafnframt að
mælast til þess við starfsfólk sitt
sem og aðra sem vinna á miðbæj-
arsvæðinu að leggja ekki bílum
sínum í miðbænum, heldur á upp-
fyllinguna vestan við hús Slysa-
varnafélagsins við Strandgötu.
Gjaldskyldan fellur niður í
fjóra virka daga og verður bíla-
stæðasjóður af töluverðum tekj-
um þá daga. Stöðuverðir verða
engu síður á ferðinni en þeir
munu m.a. fylgjast með því að
bílum sé lagt rétt og lögum sam-
kvæmt.
Jólatré
á Skólatorgi
KVEIKT var á jólatré á
Skólatorgi við Menntaskólann
á Akureyri nú um helgina. Kór
skólans söng nokkur lög og
þá gafst fólki kostur á að
skoða nýbyggingu skólans,
Hóla, sem tekin var í notkun
í september síðastliðnum. Boð-
ið var upp á skemmtiatriði og
veitingar seldar.
Moreunblaðið/Kristján
PáLl Oskan, BogoanL Fonr
og Kaggi Bjanna.
Miðaverð kr. 1.500
Forsala aðgöngumiða í Samspili Laugavegi 168,
s. 562 2710 og í Skífunni Kringlunni.
Húsið opnað kl. 22.00. Miðasala við innganginn
Sapiplímw Sjiídhtna "Snlsnvíisln aláawmm*'
mmkdduR 3 ný íöc roeð onlLunm
Tryggið ykkur miðo í tímo
ÁfS
í> fj lv3-v|g .v/ /Jggjsj
jkjry ml
11 p j fST