Morgunblaðið - 18.12.1996, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
J
MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996 17
VIÐSKIPTI
Hugbúnaðarfyrirtækið Novalia semur við skoskan fiskeldisrisa
Þróar upplýsinga-
kerfi ífiskeldi
ÍSLENSK-SKOSKA hugbúnaðar-
fyrirtækið Novalia Ltd. hefur gert
samning við Landcatch Ltd., eitt
af stærstu fiskeldisfyrirtækjum
Skotlands, um að þróa upplýsinga-
kerfi, sem tekur á öllum fram-
leiðsluþáttum fískeldisrekstrar. Þá
vinnur Novalia einnig að þróun
hugbúnaðarkerfis fyrir fisk-
vinnslu, og er stefnt að því að það
henti jafnt fyrir fiskeldi sem og
hefðbundnar veiðar. Fyrirtækið
hefur hug á að efna til samstarfs
um hönnun þessa búnaðar við ís-
lensk hugbúnaðarfyrirtæki.
Novalia Ltd. var stofnað á síð-
asta ári og það sérhæfir sig í hönn-
un og framleiðslu á hugbúnaði
fyrir fiskeldi, einkum hugbúnaði
til áætlunargerðar. Það hefur þeg-
ar selt hugbúnað til fiskeldisstöðva
víða um heim, m.a. til Japans og
Kúvæts. Fyrirtækið hefur aðsetur
í Glasgow og eigendur þess eru
Ólafur Helgi Jónsson, verkfræð-
ingur og framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins og Skotinn Donald Far-
mer. Eiga þeir helmingshlut hvor.
Aukin notkun
upplýsingatækni í fiskeldi
Ólafur Helgi sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að um væri
að ræða stærsta samning Novalia
til þessa en andvirði hans væri
tæpar sjö milljónir króna. „Við
erum mjög ánægðir með samning-
inn en þýðing hans liggur ekki
síst í því að með honum erum við
komnir í samstarf við Landcatch,
sem er leiðandi í fiskeldi á alþjóða-
markaði. Það er eitt stærsta fisk-
eldisfyrirtæki Skotlands og sinnir
öllu framleiðsluferli eldisins eða
frá hrognum til vinnslu. Samstarf-
ið við okkur er liður í þeirri stefnu
Landcatch að auka notkun hug-
búnaðar og upplýsingatækni í físk-
eldinu og við urðum fyrir valinu.
Kerfíð á að vera tilbúið í júní á
næsta ári.“
Ný kynslóð
fiskeldishugbúnaðar
Jafnhliða verkefninu fyrir Land-
catch er Novalia að vinna að þróun
„nýrrar kynslóðar“ hugbúnaðar
fyrir fiskeldi og hefur hann hlotið
vinnuheitið Darwin hjá fyrirtæk-
inu. Ólafur segir að hugbúnaðinum
sé skipt í einingar, sem bjóði upp
á sveigjanleika. „Markmiðið er að
framleiða hugbúnað, sem hægt er
að nota í sem flestum greinum
fískeldis, jafnt í skosku laxeldi eða
tælensku humareldi svo dæmi séu
nefnd.“
Styrkur Darwins-hugbúnaðarins
er talinn liggja í mikilli þróunar-
vinnu, sem hefur verið lögð í hann.
Stór hluti þeirrar vinnu fór fram
við verkfræðideild Háskóla íslands
og fólst í því að innleiða stærðfræði-
líkön til notkunar við ákvarðana-
töku í fískeldi. Páll Jensson, pró-
fessor í verkfræði á heiðurinn af
þessari vinnu en Ólafur er fyrrver-
andi nemandi hans.
Áhugi á samstarfi
við íslensk fyrirtæki
Novalia vinnur einnig að þróun
hugbúnaðarkerfís fyrir fiskvinnslu
og er stefnt að því að það henti
jafnt við fiskeldi og hefðbundnar
veiðar. Donald Farmer, hinn
skoski eigandi Novalia, segir að
við þessa vinnu sé kjörið að nýta
tengsl fyrirtækisins við ísland.
„Engin þjóð hefur meiri reynslu
og þekkingu á fiskvinnslu, flutn-
ingi á físki og markaðssetningu á
fiskafurðum en íslendingar. Við
höfum mikinn áhuga á að vinna
með íslenskum aðilum til að hanna
hugbúnað, sem gæti hámarkað
hagkvæmni í öllum þáttum físk-
framleiðslu, allt frá hrognum og
þangað til fískurinn er kominn á
markaðinn eða í verslunina," segir
Farmer.
Bakki hf. í Hnífsdal og Bakki hf. í Bolungarvík
Hluthafar samþykkja
samrunaáætlun
ísafjörður - Hluthafafundir
Bakka hf., í Hnífsdal og Bakka
Bolungarvík hf. sem haldnir voru á
fimmtudag í síðustu viku, staðfestu
áætlun um samruna fyrirtækjanna.
Hið sameinaða félag heitir Bakki
hf., og hefur heimilisfesti í Bolung-
arvík.
Hið nýja félag rekur öfluga út-
gerð, bolfisk- og rækjuvinnslu í
Bolungarvík auk rækjuvinnslu í
Hnífsdal og hefur yfír að ráða veiði-
heimildum sem eru um 5.600
þorskígildistonn. Frá 1. september
1995 til 31. ágúst 1996 voru sam-
anlagðar rekstrartekjur fyrirtækj^
anna um 2.300 milljónir króna og
gert er ráð fyrir að heildartekjurnar
á næsta ári verði um 2.500 milljón-
ir. Á síðasta rekstrarári sem lauk
31. ágúst 1996 var hagnaður Bakka
Bolungarvíkur hf., aðeins 1,7 millj-
ónir króna, sem meðal annars helg-
ast af því vinnslan lá niðri í rúma
fjóra mánuði á rekstrarárinu vegna
verulegra endurbóta sem gerðar
voru á fiskvinnslunni. Nú er svo
komið að í Bolungarvík starfrækir
fyrirtækið eitt af glæsilegustu og
fullkomnustu fiskvinnsluhúsum á
landinu.
Á aðalfundi sem haldinn var á
fimmtudag í síðustu viku var kjörin
ný stjórn fyrirtækisins. Hana skipa
þeir Svanbjörn Thoroddsen, for-
maður, Aðalbjörn Jóakimsson, Agn-
ar Ebenesersson, Guðmundur Krist-
jánsson og Jón Kristjánsson. Fram-
kvæmdastjóri er Aðalbjörn Jóak-
imsson. Hlutafé fyrirtækisins eftir
sameiningu er 531 milljón króna
og eru hluthafar 215 talsins. Stefnt
er að því að hlutabréf í Bakka hf.,
verði skráð á Opna tilboðsmarkaðn-
um fyrir áramót.
Stærstu hluthafar í Bakka hf.,
eftir sameiningu eru Aðalbjörn Jó-
akimsson og fjölskylda með 48,36%,
Sund hf., með 8,20%, Burðarás hf.,
með 6,83%, Skeljungur hf., með
6,38%, Agnar Ebenesersson og fjöl-
skylda með 6,27%, Tryggingamið-
stöðin hf., með 5,47%, Kristján
Guðmundsson hf., með 4,71% og
Gná hf., í Bolungarvík með 4,14%
hlutafjár.
Sjólagnir ehf. buðu lægst
Skólplagnir fyrir
rúmar 416 milljónir
BORGARRÁÐ Reykjavíkur hefur
samþykkt að taka tilboði lægstbjóð-
anda, Sjólagna ehf., í lagningu út-
rása og þrýstilagna frá væntanlegri
skólphreinsistöð við Mýrargötu. í
sameiginlegu útboði borgarverk-
fræðingsins í Reykjavík og bæjar-
verkfræðinganna í Kópavogi og
Garðabæ hljóðaði tilboð Sjólagna
upp á rúmar 416 milljónir eða
84,9% af kostnaðaráætlun. Hlutur
Reykjavíkurborgar er rúmar 348
milljónir, hlutur Kópavogs tæpar
49 milljónir og Garðabæjar tæpar
20 milljónir.
Að sögn Sigurðar Skarphéðinsson-
ar, gatnamálastjóra Reykjavíkur,
verður á næsta ári tekið í notkun
holræsakerfí sem unnið hefur verið
að frá því um 1990 og liggur við
Ægisíðu, Eiðsgranda og Ánanaust.
„Við Ánanaust á móts við Mýrargötu
er verið að byggja fyrstu hreinsistöð-
ina sinnar tegundar hérlendis fyrir
skólp. í hreinsistöðinni verður skólp
síað og hreinsað áður en því er dælt
á haf út í um 4 km fjarlægð frá
landi."
Borgarráð samþykkti einnig að
taka tilboði lægstbjóðanda, Sigurðar
Þórðarsonar, í lokafrágang viðbygg-
ingar Grandaskóla en það nam tæp-
um 92 milljónum króna eða 93,8%
af kostnaðaráætlun.
Avöxtunar-
krafa ríkis-
víxla
lækkaði
ÁVÖXTUNARKRAFA ríkisvíxla
lækkaði lítillega í útboði í gær frá
síðasta útboði fyrir mánuði og var
einnig lægri en ávöxtunarkrafan
var á Verðbréfaþingi íslands í
gær.
Meðalávöxtunarkrafa víxla til
þriggja mánaða var 7,06%, til 6
mánaða 7,28% og 12 mánaða
7,83%.
Alls bárust 18 gild tilboð í víxla
að upphæð tæpar 4.400 milljónir
króna. Heildarfjárhæð tekinna til-
boða var 1.514 milljónir króna.
Hvernig gæludýr
mundir þú fá þér
ef þú ynnir rúmlega
44 milljónir í
Víkingalottóinu?
Til mikils að vinna!
Alla miðvikudaga fyrir kl. 17.00.