Morgunblaðið - 18.12.1996, Side 34

Morgunblaðið - 18.12.1996, Side 34
34 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ 9Kt¥$nu$|ftfrife STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. MIKILVÆGAR ÁKVARÐANIR ESB TVÆR ákvarðanir leiðtogafundar Evrópusambandsins, sem fram fór í Dublin á írlandi um síðustu helgi, skipta miklu fyrir Ísland og íslenzka hagsmuni. Annars vegar gengu leiðtog- arnir frá mikilvægum þáttum í væntanlegu Efnahags- og mynt- bandalagi Evrópu (EMU). Hins vegar staðfestu þeir, á fundi með ellefu Evrópuríkjum, sem sótt hafa um aðild að samband- inu, að aðildarviðræður yrðu hafnar við þau að ári. Samþykkt „stöðugleikasáttmálans", sem kveður á um viður- lög við hallarekstri ríkissjóða í aðildarríkjum EMU, markar tíma- mót. Hún þýðir að stærstu deilumálin varðandi myntbandalagið hafa verið leyst og er jafnframt líkleg til að stuðla að trausti á hinum nýja Evrópugjaldmiðli. Fátt getur úr þessu komið í veg fyrir að sameiginlegur gjaldmiðill, evró, verði tekinn upp eftir aðeins tvö ár. Við þessari staðreynd verða íslendingar að bregð- ast, jafnt fyrirtæki og fjármálastofnanir sem stjórnkerfið. Það er sérstaklega mikilvægt að á vettvangi stjórnmálaflokkanna, á Alþingi og í ríkisstjórn fari fram umræður og stefnumótun í þessu máli. EMU mun hafa áhrif á ísland, hvort sem mönnum líkar bet- ur eða verr. Hér þurfa að fara fram umræður um hvort það sé verjandi í ljósi hagsmuna íslenzks efnahagslífs að ísland standi utan evró-svæðisins eða hvort við eigum að tengjast hinum sameiginlega gjaldmiðli og þá með hvaða hætti. Hið væntanlega myntbandalag setur umræður um afstöðu íslands til Evrópusam- bandsins í nýtt ljós, eins og Morgunblaðið hefur áður bent á. Ekki er víst að Evrópusambandið geti staðið við það fyrir- heit að hefja aðildarviðræður við ríki Austur-Evrópu strax á næsta ári. Ríkjaráðstefnu ESB gæti seinkað, ekki sízt vegna kosninganna í Bretlandi. Sú seinkun verður hins vegar varla meiri en nokkrir mánuðir. Flest bendir til að á kjörtímabili þess Alþingis, sem nú situr, muni þessar viðræður hefjast. Með inn- göngu nýrra ríkja verður Evrópusambandið öflugra bandalag, stærri markaður og nær því að sameina öll ríki Evrópu. Þá blasa ný viðhorf við þeim Evrópuríkjum, sem utan sambandsins standa. RÖK EÐA SAMSÆRIS- KENNINGAR? HÉR Á landi hefur dvalið að undanförnu dr. Jane Kelsey, einn af gagnrýnendum þeirra róttæku breytinga í efna- hagsmálum, sem stjórnvöld á Nýja-Sjálandi hafa gengizt fyrir á undanförnum árum. í viðtali við Morgunblaðið í gær var dr. Kelsey spurð hvers vegna umbætur Nýsjálendinga nytu alþjóð- legrar viðurkenningar ýmissa virtra stofnana og fjölmiðla. Svar hennar var á þessa leið: „Ráðamenn velja af kostgæfni það sem þeir vilja að sé birt erlendis. Þeir reyna að fegra mynd- ina eftir föngum og þetta getur leitt fólk á villigötur ef það vill mynda sér skoðun á afleiðingum breytinganna ... The Economist er hlutdrægt í þessum efnum, það leitar upplýsinga hjá ákveðnum aðilum, mönnum sem taka undir álit stjórnvalda. Þetta er ekki samsæri heldur vinnuaðferðir þeirra sem hafa áhrif á efnahagsumræður." Á því leikur varla vafi að ekki hafa allar breytingar á Nýja- Sjálandi orðið til góðs. En væri andstæðingum þeirra ekki nær að beijast með rökum, fremur en að grípa til gamaldags sam- særiskenninga í stíl afdankaðra marxista - þótt þeir vilji ekki kalla þær því nafni? í hinu opna upplýsingasamfélagi Vestur- landa geta stjórnvöld ekki ráðið því, hvaða upplýsingar umheim- urinn fær, jafnvel þótt þau vildu. TÓNLIST Á HLJÓMDISKUM ILENZK hljómdiskaútgáfa hefur tekið miklum framförum undanfarin ár. Fjölmargir hljómdiskar eru gefnir út árlega með hvers konar efni, þótt útgáfa dægurtónlistar sé þar mest áberandi. Hljómdiskaútgáfan tekur fjörkipp fyrir jólin eins og bókaútgáfan. Fyrir þessi jól er áberandi, hversu margir hljóm- diskar eru gefnir út með sígildri tónlist í flutningi íslenzkra lista- manna, þ.á m. eftir íslenzk tónskáld. Þessi þróun er sérstakt fagnaðarefni. Hljómdiskaútgáfa sígildra tónverka, jafnt íslenzkra sem er- lendra, hefur miklu menningarhlutverki að gegna. Tónlistin verður þannig öllum aðgengileg og varðveizlugildið er ómetan- legt. Margir íslenzkir einleikarar og aðrir tónlistarmenn, svo og hljómsveitir, hafa getið sér gott orð víða um heim og sumir hverjir eru í fremstu röð. í því sambandi má minna á útgáfur á flutningi Sinfóníuhljómsveitar íslands á verkum Jóns Leifs, sem hafa hlotið mikið lof erlendra gagnrýnenda. Metnaður í hljómdiskaútgáfu sígildrar tónlistar, sem vel lýsir sér fyrir þessi jól, er því fengur fyrir íslenzka menningu. Drög að reglugerð um skráningu og útgáfu markað; lyfja til skoðunar hjá heilbrigðisráðuneytinu og lyfjc Ágreiningrir um ■ lag og skilgreinij SAMKVÆMT nýju reglugerðinni munu þessar vörur allar flokkast un unnar úr ginseng, musteristré, hvítlauk og sólhatti; jurtum sem áv í heilbrigðisráðuneytinu og lyfjanefnd ríkisins er unnið að reglugerð um skráningu og útgáfu markaðsleyfa náttúru- lyfja. Margrét Svein- björnsdóttir kynnti sér drögin og mismunandi skoðanir manna á þeim. IHEILBRIGÐISRÁÐUNEYTINU liggja til skoðunar drög að nýrri reglugerð um skráningu og út- gáfu markaðsleyfa náttúru- lyfja, samin af lyfjanefnd ríkisins. Þar liggur einnig nokkur fjöldi athuga- semda frá einstaklingum, fyrirtækjum og félagasamtökum sem málið varð- ar. Þær gagnrýnisraddir heyrast úr röðum náttúrulækningafólks að reglu- gerðin muni auka miðstýringu og kostnað við heilbrigðisþjónustuna og takmarka frelsi einstaklinga til að velja sér sjálfir hvaða aðferðir þeir kjósa til heilbrigðis og lækninga. Skrifstofustjóri lyfjamála í heilbrigðis- ráðuneytinu segir gagnrýnina að miklu leyti á misskilningi þyggða en viðurkennir þó ákveðna galla á reglu- gerðardrögunum. Reglugerðin er sett samkvæmt heimild í lyfjalögum nr. 93 frá 1994 og I samræmi við tilskipanir Evrópu- sambandsins. Lyfjanefnd ríkisins hófst handa við samningu draganna á liðnu vori og var í því sambandi lit- ið til hliðstæðra reglugerða nágranna- þjóðanna, einkum Norðmanna. Að sögn Einars Magnússonar, skrifstofu- stjóra á skrifstofu lyfjamála í heil- brigðisráðuneytinu, leitaði lyfjanefnd til helstu hagsmunaaðila, þ.e. lyfja- fræðinga og heildsala. Heilsuhringur- inn fór þess á leit við heilbrigðisráðu- neytið að fá áheyrnarfulltrúa í lyfja- nefnd þegar fjallað yrði um náttúrulyf en ráðuneytið varð ekki við þeirri bón. Mikið af málefnalegum og góðum athugasemdum Á fundi sem boðað var til af heil- brigðisráðuneytinu 25. nóvember sl. voru reglugerðardrögin kynnt fyrir Kaupmannasamtökum íslands, Neyt- endasamtökunum, Náttúrulækninga- félagi íslands, Heilsuhringnum, Is- lenskum íjallagrösum hf., Lýsi hf., grasalæknum og öðrum sem málið snertir. „Þeim var boðið að koma með athugasemdir, sem flestir hafa skilað inn nú þegar. Við höfum fengið mikið af málefnalegum og góðum athuga- semdum,“ segir Einar. Reglugerðardrögin ásamt athuga- semdunum eru nú til skoðunar í ráðu- neytinu og hjá lyfjanefrid ríkisins. „Síðan setjumst við yfir þetta með lyfjanefnd og þá munum við kanna til hvers við getum tekið tillit og hvers ekki. Þarna erum við fyrst og fremst að setja reglur um hluti sem margt hefur verið óljóst um áður og menn hafa verið að setja reglur um á evr- ópska efnahagssvæðinu. Við erum í rauninni bara að fylgja þeim tilskipun- um sem þar gilda.“ Óheppilegt orðalag og ekki endanlegt, I fyrstu grein reglugerðardraganna segir meðal annars að náttúrulyf megi „eingöngu vera í lyfjaforrnum til inntöku eða staðbundinnar notkun- ar á húð eða slímhúðir“. Orðalagið „í lyfjaformum" hefur af mörgum verið skilið á þann veg að setja ætti öll náttúrulyf í hylkjaform. Þannig mætti til dæmis ekki lengur selja fjal- lagrös eins og nú tíðkast, heldur þyrfti að mylja þau og setja í hylki til þess að þau yrðu gjaldgeng sem náttúru- lyf. Einar segir að orðalagið sé ekki endanlegt og jafnvel óheppilegt, þar sem það hafi valdið slíkum misskiln- ingi. Með því að tala um „lyfjaform" sé einungis verið að útiloka stungu- og innrennslislyf en til dæmis geti te og mixtúrur áfram flokkast undir lyfjaform og þar með náttúrulyf. í fyrstu greininni er annað atriði, sem mikið hefur verið gagnrýnt. Þar stendur að notkun náttúrulyfja verði að „byggja á hefð, hérlendis eða í löndum með svipaðar lækningahefð- ir.“ Einar Þorsteinn Ásgeirsson, hönn- uður og einn af talsmönnum Heilsu- hringsins, segir þetta ákvæði bera vott um forræðishyggju og spyr hver eigi að sanna hvort um sé að ræða hefð eður ei. Hann bendir á að með því að gera kröfu um að hefð verði að vera fyrir náttúrulyfjum sem sett eru á markað sé í raun verið að stöðva alla þróun á nýjum náttúrulyfjum. Þessari gagnrýni svarar Einar Magnússon á þá leið að vissulega sé þarna óheppilega til orða tekið og því sé gagnrýnin réttmæt. Hann segir texta reglugerðarinnar að hluta til þýddan og stældan úr erlendum reglu- gerðum og að þessu, eins og svo mörgu öðru, verði að líkindum breytt í endanlegri gerð reglugerðarinnar. Ekki standi til að stöðva eða koma í veg fyrir þróun nýrra náttúrulyfja. Fimm jurtategundir á lista yfir náttúrulyf Margvísleg skilyrði þarf að uppfylla áður en hægt er að fá vöru skráða sem náttúrulyf. Umsókn um skrán- ingu þurfa t.d. að fylgja gögn um gæði, öryggi og verkun lyfsins, ítar- legar skýrslur sérfræðinga um efna- fræðilega og lyfjagerðarfræðilega eig- inleika náttúrulyfs, samantekt á eigin- leikum, þ.e. ábendingum, frábending- um, verkun og skammtastærðum. í viðauka með reglugerðinni eru taldar fímm plöntutegundir, sem ávallt skal skrá sem náttúrulyf, þ.e. allar þær vörur sem innihalda þessar tegundir. Þær eru ginseng, musteristré, hvít- laukur (ekki þó í matvöru), sólhattur og garðabrúða. Tekið er fram að list- inn sé ekki tæmandi. I fjórðu grein kemur fram að aðrar vörur séu skráningarskyldar „séu þær markaðssettar eða auglýstar á þann hátt að ljóst sé, að þær séu ætlaðar til lækninga, fróunar eða varnar gegn sjúkdómum eða sjúkdómseinkennum í mönnum eða dýrum“. í sömu grein er einnig kveðið á um að eftir að tiltek- in vara hafi verið skráð sem náttúru- lyf, skuli aðrir framleiðendur sömu vörutegundar einnig sækja um skrán- ingu. Þetta atriði hefur mætt nokk- urri gagnrýni, t.d. bendir Einar Þor- steinn á að ef einhver taki upp á því að skrá fjallagrös sem náttúrulyf, verði allir þeir sem á eftir koma og vinna vörur úr fjallagrösum einnig að skrá þær sem náttúrulyf. Margir óttast að sá kostnaður sem óhjákvæmilega fylgir því að uppfylla þær kröfur sem til þarf til þess að fá að skrá náttúrulyf, geri það að verkum að lyfin verði annað hvort mjög dýr eða þau komi alls ekki á markað. Einn af þeim sem hafa áhyggjur af þessum aukna kostnaði er Orn Svav- arsson. „Verði þessi reglugerð sam- þykkt óbreytt, mun verð á náttúrulyfj- um hækka. Stór hluti náttúrulyfja hverfur úr búðum af þeirri ástæðu að skráningargjöld og annað í kring- um þetta verður of kostnaðarsamt og mörg þessara efna seljast í það litlum mæli að þau myndu verða það dýr að enginn myndi treysta sér til að bjóða upp á slíka vöru. Síðan er sam- kvæmt reglugerðinni möguleiki á því að opinberir aðilar, sennilega Iyfja- nefnd, geti sópað öllum náttúrulyfjum úr almennum verslunum og heilsubúð- um inn í apótekin ef þeim sýnist svo,“ segir Örn. Kostar sitt að uppfylla gæðakröfur Hér vísar Örn í aðra grein reglu- gerðardraganna, þar sem segir að takmarka megi sölu náttúrulyfs við lyfjabúðir. Einar Magnússon vísar því á bug að ætlunin sé að færa sölu allra náttúrulyfja inn i apótekin og. segir að það sem þarna sé átt við séu fyrst og fremst lyf sem geti verið hættuleg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.