Morgunblaðið - 18.12.1996, Page 50
50 MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
+ Unnar Arnórs-
son var fæddur
í Reykjavík 14. maí
1959. Hann lést af
slysförum hinn 11.
desember síðastlið-
inn. Foreldrar
hans, sem bjuggu á
Bjarmalandi í
Breiðdalsvík, eru
Arnór Karlsson frá
Skarði í Breiðdal
og kona hans
Sigurbjörg Guð-
mundsdóttir frá
Þvottá í Álftafirði.
Eldri bróðir Unn-
ars er Eyþór búsettur í Hval-
firði. Unnar fluttist fjögurra
ára með foreldrum sínum til
Sauðárkróks. Hann tók gagn-
fræðapróf á Sauðárkróki og
nam bifvélavirkjun og síðar
vélvirkjun hjá Atla hf. á Akur-
eyri.
Að morgni dags barst okkur
fregnin af slysi um borð í Þorsteini
á miðunum fyrir austan land. Skarð
var höggvið í hóp okkar duglegustu
og bestu starfsmanna. Almættið
hafði tekið til sinna ráða án þess
að nokkur fengi við ráðið. Og enginn
' er samur eftir.
Unnar Amórsson hóf störf hjá
Samherja fyrir tæplega átta árum,
þá sem vélamaður á Akureyrinni.
Hann hafði einstakt lag á öllu við-
komandi vélum til fískvinnslu og sá
um viðgerðir og viðhald á þeim.
Hann átti að baki nám í bæði bif-
véla- og vélvirkjun og þekkingin sem
hann þannig aflaði sér reyndist hon-
um gott veganesti í lífinu. En það
voru þó mannkostirnir sem fyrst og
fremst gerðu hann jafnfarsælan í
AStarfi og raun bar vitni. Hann var
harðduglegur, reglusamur og trúr
öllum þeim_ verkefnum sem honum
voru falin. í apríl á þessu ári skipti
hann um skiprúm hjá Samheija og
hóf störf á Þorsteini. Fagmennska
einkenndi störf hans, hann gerði
aldrei minni kröfur til sjálfs sín en
annarra og bar hag fyrirtækisins
fyrir bijósti. Sjómennskan er um
margt óvenjulegt starf og henni
fylgir vinnutilhögun sem ekki hentar
öllum. í starfinu skiptast á langar
útiverur og löng frí. Sumir vilja hafa
reglulegan vinnutíma í sínum störf-
um á meðan öðrum fellur betur að
Unnar hóf búskap
með Hugrúnu
Magnúsdóttur 23.
mars 1979 og
bjuggu þau fyrsta
árið á Sauðárkróki
en fluttust síðan til
Akureyrar og hafa
búið þar síðan. Unn-
ar og Hugrún
gengu í hjónaband
23. mars 1991. Þau
eignuðust tvær dæt-
ur, Tinnu, sem er
14 ára, og Brynju,
sem er fimm ára.
Unnar stundaði
sjómennsku með hléum frá 17
ára aldri en á árinu 1989 réðst
hann til Samherja hf. og starf-
aði þar óslitið síðan, lengst af
sem Baader-maður.
Útför Unnars fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
vinna í lotum og eiga síðan góða
hvíld á milli. Unnar var stoltur fag-
maður og góður sjómaður og það
virtist sem honum félli sjómennskan
vel. Fríunum eyddi hann með fjöl-
skyldunni og heimili þeirra hjóna og
dætranna tveggja er einstakt. Það
kom ekki á óvart þegar þau fengu
sérstök verðlaun frá bæjaryfirvöld-
um fyrir garðinn sinn. Allt í kringum
þessa fjölskyldu ber vott um snyrti-
mennsku, einhug og fagurt líf. Við
höfum alltaf vitað að sjómennskan
er ekki hættulaust starf og haflð við
strendur íslands tekur sinn toll. Skip
og áhafnir Samherja h’afa í gegnum
árin átt láni að fagna og ekki orðið
fyrir stóráföllum. Nú hefur okkur
öllum verið greitt þungt högg, eng-
um þó eins og litlu samhentu fjöl-
skyldunni í Þorpinu á Akureyri.
Enginn skilur hvers vegna.
Hugrún, Tinna pabbastelpa og
Brynja, þetta eru erfiðir tímar. Við
sendum ykkur og öllum ykkar að-
standendum okkar dýpstu samúðar-
kveðjur og biðjum almáttugan guð
að vernda ykkur.
Þorsteinn Már,
Þorsteinn og Kristján.
Sú harmafregn barst nú á miðri
aðventunni að vinur minn Unnar
hefði látið líflð af slysförum við
vinnu sína á hafi úti. Jólaljósin sem
áður lýstu svo skært blikna og
dökkur skuggi sorgarinnar leggst
yfír eins og þykk voð, hugurinn
leitar til ástvina hans og minning-
arnar streyma fram.
Unnar hafði til að bera einstak-
lega marga og góða kosti sem urðu
hans aðalsmerki við nánari kynni,
heilsteyptur og traustur svo af bar,
hlýlegur og ljúflega gamansamur
svo að sérstaklega gott var að vera
í návist hans. Umfram allt annað
var hann þó góður eiginmaður og
yndislegur faðir.
Nú þegar leiðin með Unnari er á
enda og komið er að lokum er ég
þakklát fyrir samfylgdina og það
að hafa fengið að kynnast svo góð-
um manni.
Mínar kæru vinkonur Hugrún,
Tinna og Brynja, hugurinn dvelur
hjá ykkur, ég vona að góð öfl og
minningin um einstakt ljúfmenni
styrki ykkur í sorginni.
Ragna Eysteinsdóttir.
Félagi okkar, Unnar Arnórsson,
er fallinn frá, horfinn burt úr áhöfn
sem var að mótast og tilbúin að tak-
ast á við ný verkefni. Þorsteinn EA
er nýlega kominn í rekstur Sam-
heija og því nýr starfsvettvangur
fyrir okkur alla. Flestir úr áhöfninni
hafa unnið á öðrum skipum fyrir-
tækisins um árabil og þekkjast því
mjög vel og átti það einnig við um
Unnar. Hann hafði verið í nokkur
ár á Akureyrinni þar sem hann hafði
umsjón með fiskvinnsluvélum skips-
ins og fórst það vel úr hendi, enda
lærður vélvirki. Hann var góður
verkmaður, duglegur og samvisku-
samur.
Það var á vordögum sem Unnar
kom í áhöfn Þorsteins og nýlega
hafði hann orð á því að tilbreytingin
væri góð og undi hann hag sínum
vel.
Um leið og við kveðjum góðan
félaga þökkum við þann tíma sem
hann var einn af hópnum. Hugrúnu,
dætrum og öðrum ástvinum sendum
við innilegar samúðarkveðjur. Megi
góður guð styrkja þau. Missir ykkar
er mikill en eftir stendur minning
um góðan dreng.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem.)
Áhöfn Þorsteins EA.
___________MINIMIIMGAR
UNNAR ARNÓRSSON
GUÐLAUG ÓSK
GUÐMUNDSDÓTTIR
+ Guðlaug Ósk
Guðmundsdóttir
fæddist í Innri-
Fagradal 24. febr-
úar 1913. Hún and-
aðist á St. Frans-
iskusspítalanum 15.
nóvember síðastlið-
inn og fór útför
hennar fram frá
Stykkishólmskirkju
22. nóvember.
Á æskuárum sín-
um giftist Guðlaug
Jóhannesi Guðjóns-
syni verslunarmanni
í Stykkishólmi. Þau
eignuðust fimm
börn. Þau eru: Hólmfríður, f. 10.8.
1939, d. 29.5. 1942; Guðmundur
Sigurður Sturla, f.
13.7. 1945, d. 7.3.
1962 í Reykjavík, en
þar var hann við nám
í Kennaraskólanum;
Sigurborg Þóra, f.
10.5. 1948, gift og
búsett i Englandi;
Karvel Hólm, f.
10.10. 1952, giftur og
býr í Stykkishólmi;
Sturlaug Rebekka
Rut, f. 30.9.1956, gift
og búsett í Nígeríu.
Bróðir Guðlaugar,
sem henni var mjög
kær og annaðist
hana vel í veikindum
hennar, er Kjartan Guðmunds-
son, Stykkishólmi.
Þó seint sé langar mig með nokkr-
um orðum að minnast minnar kæru
trúsystur og frænku Guðlaugar Ósk-
ar Guðmundsdóttur. Hún var mér
mikið kær og ég lofa Guð fyrir að
hafa fengið að kynnast henni. Hún
. var falleg og myndarleg kona í öllu
sem hún tók sér fyrir hendur. Á
. besta æviskeiði sínu mætti hún Jesú
; Kristi sem lifandi upprisnum frels-
: ara. Hann kallaði hana til fylgdar
■ við sig. Hún stóð skjótt upp og fylgdi
honum, tók niðurdýfíngarskím og
gekk í Hvítasunnusöfnuðinn og þráði
j það eitt að lifa Guði til dýrðar og
, vera honum trú. Hún var mikil bæna-
kona, hún bað fyrir ástvinum sínum,
íslensku þjóðinni og öllu sem Guð
lagði henni á hjarta. En sérstaklega
bað hún mikið fyrir æskulýð íslands
því Guð hafði á sérstakan hátt lagt
það á hjarta hennar. Guð gefí ís-
lensku æskunni náð að gefa Jesú
Kristi æskuár sín því það er yndisleg
sjón að sjá æskuna á knjám í bæn.
Og fylgja svo Jesú allan æviveginn
því það er hamingjuvegurinn, Jesús
Kristur er vegurinn, sannleikurinn
og lífið. Jesús er vegurinn heim til
hinnar himnesku borgar.
Stundum kom Guðlaug heim til
mín. Þá vildi hún vakna snemma til
að lofa Guð. Það voru oft dásamleg-
ar náðarstundir. Hún bað fyrir ást-
vinum sínum, landinu okkar, fjörðum
og dölum, borgum og bæjum, hún
bað um meiri helgan hreinleik og
náð. Þú sem lest þessar línur, kom
þú til Jesú og gefðu honum allt þitt
hjarta, það er hann sem gefur sanna
gleði í hjarta og himneskan frið.
Hann gaf sitt líf svo við fengjum líf,
hann leið og þjáðist vegna okkar,
hann er sá tryggasti og besti vinur
sem til er. Hann elskar þig. Kæru
aðstandendur Guðlaugar, ég bið Guð
að styrkja ykkur og blessa og gefa
okkur öllum náð og við fáum að
mætast heima hjá Jesú, þar sem
engin sorg er neyð, eða sjúkdómar,
þar er eilíf sæla í örmum Jesú fyrir
þá sem trúa á Jesúm Krist, Guðs
eingetinn son. Það stendur í Guðs
orði að þar er svo mikil dýrð, það
hefur ekki eyra heyrt né auga séð
eða í nokkurs manns huga komið
slík dýrð sem á okkur mun opinbe-
rast, allt það sem Guð fyrirbjó þeim
er elska hann. I Opinberunarbókinni
22,4 stendur: „Og þjónar hans munu
honum þjóna og þeir munu sjá ásjónu
hans og nafn hans mun vera á ennum
þeirra." Sælir eru þeir sem í drottni
eru dánir. Guðlaug hefur varðveitt
trúna, fullkomnað skeiðið. Og nú er
henni geymdur sveigur réttlætisins
og kóróna eilífs lífs.
Elsku Guðlaug, hjartans þökk fyr-
ir kærleik þinn til mín.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Anna Guðrún Jónsdóttir.
Bergsteinn,
16 ára, vann
Rússann
SKAK
íþróttahúsiö við
Strandgötu í
liafnarfirði
2. GUÐMUNDAR
ARASONAR MÓTIÐ
13.-21. desember. Teflt kl. 17 virka
daga. Aðgangur ókeypis.
DANINN Bjarke Kristensen náði
forystu með sigri á Guðmundi
Gíslasyni í fjórðu umferð. Berg-
steinn Einarsson sigraði stiga-
hæsta keppandann á mótinu, Rúss-
ann Alexander Raetsky.
Það gekk ekki ekki vel hjá ís-
lendingunum á toppn-
um, en Englendingarn-
ir bættu stöðu sína.
Andrew Martin vann
Kristján Eðvarðsson
og Bragi Þorfinnsson
lék niður vænlegu tafli
gegn Matthew Turner
og tapaði.
Kristensen hefur
þijá og hálfan vinning
af fjórum mögulegum,
en í öðru til sjöunda
sæti eru þeir Berg-
steinn Einarsson, sem
aðeins er 16 ára gam-
all, Guðmundur Gísla-
son, Jón Garðar Við-
arsson, Martin, Turner
og Thomas Engquist,
Svíþjóð.
Áf skákinni við Rússann Raetsky
að dæma er Bergsteinn í hraðri
framför um þessar mundir. Þessi
geðþekki Rússi, sem er stærðfræð-
ingur að mennt, hefur orðið fyrir
því að íslenskir andstæðingar hans
hafa teflt af miklu meiri styrkleika
en lág stig þeirra gefa til kynna.
Hvítt: Bergsteinn Einarsson
Svart: Raetsky, Rússlandi
Móttekið drottningarbragð
1. d4 - d5 2. c4 - dxc4 3. Rf3
- Rf6 4. e3 - e6 5. Bxc4 - c5
6. 0-0 - a6 7. De2 - b5 8. Bb3
- Bb7 9. a4 - Rbd7 10. axb5 -
axb5 11. Hxa8 — Dxa8 12. Rc3
- b4 13. Rb5 - Db8 14. e4 -
cxd4 15. Rbxd4 - Bd6 16. Hel
- e5?! 17. Rf5 - 0-0 18. Rg5 -
Bc5 19. Dc4!
SJÁ STÖÐUMYND
Byijunin hefur misheppnast hjá
Rússanum og nú getur hann ekki
Sterkara var 21. Dd3 með vinn-
ingsstöðu á hvítt. Nú réttir svartur
aðeins úr kútnum.
21. - Bxe3 22. Hxe3
- Hc8 23. Dfl -
Rxe4 24. Dbl!?
Leggur laglega
gildru: 24. — Rd2? 25.
Re7+! - Rxbl 26.
Rg5+! Og svartur get-
ur aðeins valið á milli
26. - hxg5 27. Hh3
mát og 26. —Kh8 27.
Rg6 mát. Rússinn átti
nú aðeins rúmlega
mínútu eftir á 17 leiki,
en tókst samt að forð-
ast þetta.
24. - Dc7 25. Hel -
Dc5 26. Re3 - g6 27.
Be6 - Hc7 28. Rd8!
- Rdf6? 29. Rxb7 -
Hxb7 30. Bd5! - Rd2 31. Dd3 -
Hd7 32. Dxd2 - Rxd5 33. Rg4
og Raetsky féll á tíma í þessari
vonlausu stöðu.
Kasparov og ívantsjúk efstir
Indveijinn Anand tapaði á mánu-
dagskvöldið fyrir Rússanum Vlad-
ímir Kramnik á stórmótinu í Las
Palmas á Kanaríeyjum. Þar með
féll Anand úr efsta sætinu en þeir
Gary Kasparov, heimsmeistari PCA
og Vasílí Ivantsjúk, Úkraínu, tróna
á toppnum. í sjöttu umferðinni
hafði Kasparov hvítt gegn Búlgar-
anum Topalov en varð að láta sér
nægja jafntefli. Skák ívantsjúks
við Karpov, FIDE heimsmeistara,
var snubbótt, sá fyrmefndi fómaði
manni strax í fjórtánda leik til að
þráskáka. Stórmeistarajafntefli
varð því niðurstaðan. Eftir er að
tefla fjórar umferðir á mótinu.
Ritskoðun íþróttadeildar RÚV
Það hefur vakið athygli margra
Bergsteinn
Einarsson
2. Guðmundar Arasonar mótið, Hafnarfiröi, 13.-21, des.
Nafn Titill Land Stig 1. 2. 3. 4. Vinn. Röð
Alexander Raetsky AM RÚS 2455 llé 0 11 1<4 04° 2 14.-18.
Anqus J. Dunniqton AM ENG 2450 % 14 y,,! 110 21/2 8.-13.
Andrew Martin AM ENG 2425 y,u 1 áó y,10 1,B 3 2.-7.
MatthewTumer AM ENG 2425 o1i 1 116 144 3 2.-7.
Bjarke Kristensen AM DAN 2420 T*" y. 1i ~T4r 1" 3 1/2 1.
Albert Blees AM HOL 2415 141 1 13 o11 TT7- 2 1/2 8.-13.
Bruno Cariier AM HOL 2380 1 0 ié 1 V, 6 2 1/2 8.-13.
Thomas Enqqvist AM svl 2375 129 1 22 ~ýír 3 2.-7.
Jón Garðar Viðarsson FM ISL 2360 119 % 2i 1 y,8 3 2.-7.
Sævar Bjamason AM fSL 2285 v,30 1 ’A5 o2 2 14.-18
Guðmundur Gislason FM ISL 2285 1 M 11 1S 0* 3 2.-7.
Björqvin Víqlundsson ÍSL 2280 12' % 9 09 o21 1 1/2 19.-23.
Braqi Halldórsson ISL 2270 o 44 1 24 O54 1 “ 2 14.-18.
Jón Viktor Gunnarsson ÍSL 2250 y,1 % 2 o1 1 1/2 19.-23.
Áskell Öm Kárason ISL 2245 1 0 6 ’/,5 1 25 2 1/2 8.-13.
Arnar E. Gunnarsson (SL 2225 o1 1 2é 0* 'AU 1 1/2 19.-23.
Einar Hjatti Jensson ISL 2225 y,2 0 1U O52 y,l‘ 1 24.-28
Kristján Ó. Eðvarðsson ISL 2200 1 1 y y,* 0 3 2 1/2 8.-13.
Heimir Asgeirsson ISL 2185 o9 1 27 o' 12S 2 14.-18.
Bergsteinn Einarsson ISL 2175 0* 1 29 113 1’ 3 2.-7.
Torfi Leósson ISL 2170 oé % 28 125 112 2 1/2 8.-13.
Bragi Þorfinnsson ISL 2155 115 0 é 1 n o4 2 14.-18.
James Burden BNA 2125 o24 0 4 o2' 1 24.-28.
Susanne Berq FM svl 2100 0<! 0 13 >hrl TT^ 1 24.-28.
Einar K. Einarsson ISL 2100 1 % 9 o5 o,s 1 1/2 19.-23.
Jóhann H. Ragnarsson ÍSL 2100 0H' 0 16 0 19 1/2 29.-30.
Bjöm Þorfinnsson ÍSL 2065 04i 0 19 y,4- 0 23 1/? 29.-30.
Þorvarður F. Ólafsson ÍSL 1905 0 7 y. 21 0 vsn 1 24.-28
Stefán Kristjánsson ISL 1850 0* 0 2ó TT^ y,u 1 24.-28
Davíð Kjartansson ÍSL 1785 y,’° 0 3 1 24 o13 1 1/2 19.-23.