Morgunblaðið - 22.12.1996, Page 1
88 SÍÐUR B/C/D
294. TBL. 84. ÁRG. SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Tadsíkar lofa
lausn gísla
STJÓRN Tadsíkístan sagðist í gær hafa
náð samkomulagi við skæruliða um
lausn 23 gisla, sem þeir tóku á föstu-
dag. I hópnum eru sjö erlendir eftirlits-
menn á vegum Sameinuðu þjóðanna.
Enginn árangur varð hins vegar af við-
ræðum stjórnvalda landsins og fulltrúa
stjórnarandstöðunnar, sem fram fara í
Moskvu, en þeim er ætlað að binda
enda á borgarastyrjöld, sem staðið hef-
ur í fjögur ár í Tadsíkístan.
Afsögn í Búlgaríu
ZHAN Videnov, forsætisráðherra Búlg-
aríu, tilkynnti í gær um afsögn sína
og ráðuneytis síns, á flokksþingi sósíal-
istaflokks landsins. Þá kvaðst Videnov
ekki myndu sækjast eftir endurkjöri,
hvorki sem forsætisráðherra né for-
maður flokksins. Sagði hann ástæðuna
ónógan stuðning við efnahagsaðgerðir
sljórnarinnar.
Hefnd ellilíf-
eyrisþega
SÆNSKA lögreglan sagðist í gær hafa
fundið tvær sprengihleðslur í verslun-
arsamstæðum í Gautaborg og Stokk-
hólmi. Hvorug var virk en lögreglan
segir skilaboðin hafa verið skýr, „við
getum ef við viljum". Hópur sem kallar
sig VSBS (Við sem byggðum Svíþjóð)
segist hafa komið sprengjunum fyrir,
til að refsa ríkisstjórninni fyrir versn-
andi kjör ellilífeyrisþega, öryrkja og
atvinnulausra. Hefur hópurinn gefið
þær upplýsingar um sig að í honum sé
eldra fólk, flest fyrrverandi verkafólk.
Dýrkeyptur
greiði
DÓMARI í Bandarikjunum hefur fyrir-
skipað 63 ára gamalli konu að mæta
fyrir rétt en hún hefur verið ákærð
fyrir að setja pening í stöðumæla, þar
sem timinn var runninn út, þrátt fyrir
að nærstaddur lögreglumaður hafi sagt
henni að hætta því. „Ég hefði aldrei
trúað því að málinu yrði haldið til
streitu,“ sagði Sylvia Stanton, eftir að
ákveðið var að rétta í málinu. Hún var
handtekin í október sl. og ákærð fyrir
að hindra löggæslumann í starfi og
fyrir ólöglegt athæfi, eftir að hún
ákvað að selja pening í stöðumæla þar
sem tíminn var runninn út til að koma
í veg fyrir að eigendur bifreiðanna sem
lagt var við mælanna, fengju stöðu-
mælasekt. Kvaðst Stanton ekki hafa
hugmynd um hveijir ættu bílana, hún
hafi einungis viljað gera þeim greiða.
Reuter
HÖPUR gísla sem skæruliðar Tupac Amaru létu lausa í fyrrakvöld. Þeir virtust úrvinda af þreytu og spariklæðnaðurinn
orðinn óásjálegur eftir þriggja sólarhringa dvöl á gólfi sendiherrabústaðarins.
Skæruliðar halda 340 manns í japanska sendiherrabústaðnum í Lima
Fulltrúar gíslanna biðja
mat, vatn og rafmagn
um
Lima. Reuter.
FULLTRUAR gíslanna, sem skæruliðar Tupac
Amaru-hreyfmgarinnar hafa í haldi í híbýlum
japanska sendiherrans í Lima í Perú, lásu í
fyrrinótt upp yfirlýsingu þar sem þeir lýsa
slæmum aðstæðum í húsinu, óska þess að vatni,
síma og rafmagni verði komið á að nýju, að
fá mat og að allt verði gert til að finna friðsam-
lega lausn á gíslatökunni. Ekki er vitað hvort
skæruliðar fyrirskipuðu gíslunum að semja og
flytja yfírlýsinguna en fulltrúi 38 manna hóps,
sem látinn var laus seint á föstudagskvöld, las
hana upp.
Vara við áhlaupi
Sagt er að um 340 manns séu nú í haldi
skæruliðanna og eru aðstæður í sendiherra-
bústaðnum afleitar. Gíslarnir eru svangir,
margir eru heilsuveilir, snyrtiaðstaða bágborin
og mennimir úrvinda, þar sem þeir hafa lítið
getað hvílst. Stjórnvöld í Lima ákváðu að loka
fyrir vatn og síma og ijúfa rafmagn að sendi-
herrabústaðnum til að lama baráttuþrek skær-
uliðanna.
Að sögn eins gíslanna, Alex Kouri, borgar-
stjóra Callao, hefur það engin áhrif á skærulið-
ana en kemur illa niður á gíslunum. Varaði
Kouri við því að ósveigjanleg stefna Albertos
Fujimoris, forseta Perú, gagnvart skæruliðum,
kynni að stefna lífi gíslanna í hættu.
Sendiherrar Brasilíu, Suður-Kóreu og
Egyptalands vom í hópi þeirra sem látnir voru
lausir í fyrrakvöld. Voru mennirnir að vonum
fegnir frelsinu. Sögðu þeir að þrátt fyrir allt
liði gíslunum sæmilega. Þeir legðu kapp á að
halda umhverfi sínu hreinlegu, hefðu t.d.
skipst á að þrífa snyrtingarnar fjórar sem eru
í húsinu, svo og önnur herbergi sem þeir dvelja
í. Gíslarnir sofa á gólfi sendiherrabústaðarins,
149 á jarðhæð og 231 á annarri hæð og bið-
röð er jafnan á salernin.
Þá horfðu gíslarnir á sjónvarp á meðan
rafmagn var á húsinu og segir Kouri að spenn-
an hafi aukist um allan helming í hópnum
þegar sagt var frá því í sjónvarpsfréttum að
til stæði að gera áhlaup á húsið. „Þið getið
rétt ímyndað ykkur hvernig okkur leið,“ sagði
hann. Vöruðu gíslarnir við slíkum áformum,
þar sem skæruliðarnir væru „reiðubúnir að
gera hvað sem væri“.
Tvær konur í hópi skæruliða
Samkvæmt alþjóðalögum er sendiherrabú-
staðurinn japanskt svæði og verða stjórnvöld
í Perú því að leita samþykkis japanskra stjórn-
vaida hyggist þau gera árás á húsið. Um 900
lögreglumenn sitja nú um sendiráðsbygging-
una.
Skæruliðarnir ávarpa hver annan með tölu-
stöfum, til að koma ekki upp um sig, og segja
gíslarnir að þeir hafi ekki unnið neinum gísli
mein. Tvær konur eru í hópi skæruliðanna og
segja gíslamir að önnur þeirra sé vart eldri en
sextán ára.
UMDEILDUR
SKATTUR
í AÐSIGI
10
„ÚT VIL EK"!
Verðbréfamiðlari
með fjölbreytta
reynslu
norðrið
í blóðinu