Morgunblaðið - 22.12.1996, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 15/12 -21/12.
Einar K. Guðfinnsson um verðþróun aflaheimilda
► LÖGREGLAN í Reylga-
vík lagði hald á 5,6 grömm
af kókaíni, átta E-töflur,
rúm ellefu grömm af amfet-
amíni, auk kannabisfræja,
sl. fimmtudag. Sjö manns á
aldrinum nítján til þijátiu
og eins árs voru handteknir
vegna málsins, en það telst
nú að mestu upplýst og er
fólkið laust úr haldi.
►RAFORKUNOTKUN
Reykvíkinga hefur slegið öll
eldri met að undanförnu.
Gamla metið frá aðfanga-
dagskvöldi í fyrra var 129,8
MW en um kvöldmatarleytið
sl. mánudag sýndu mælar
Rafmagnsveitu Reykjavíkur
135,3 MW.
► MANNBJÖRG varð þeg-
ar eldur kom upp í vélar-
rúmi Snarfara Sh-236 frá
Ólafsvík sl. fimmtudag.
Tveir skipveijar voru á
Snarfara og voru þeir að
veiðum umsex sjómflur
norður af Ólafsvík þegar
eldurinn kom upp og sakaði
þá ekki. Skipveijar á Fann-
eyju SH-248 aðstoðuðu þá
við að slökkva eldinn og
tóku síðan Snarfara i tog
til Ólafsvíkur.
► NEMENDUR 4. og 7.
bekkja í Reykjavík og ná-
grenni standa betur að vígi
í íslensku og stærðfræði en
nemendur í öðrum lands-
hlutum, að því er niðurstöð-
ur úr samræmdum könnun-
arprófum sýna. Alls þreyttu
8.070 nemendur prófin, sem
fóru fram um land allt 5.
og 6. nóvember sl. Árangur
nemenda á Vesturlandi í ís-
lensku er einna slakastur á
landinu, í báðum aldurshóp-
unum.
Rammasamkomulag
um álver á Grundar-
tanga
Fulltrúar Columbia Ventures Corporati-
on, iðnaðarráðuneytisins og Landsvirkj-
unar staðfestu í Lundúnum á þriðjudag
að samkomulag hefði tekist um öll
meginatriði helstu samninga vegna
væntanlegrar álversbyggingar Columb-
ia á Grundartanga. Samkvæmt yfirlýs-
ingu sem Landsvirkjun og iðnaðarráðu-
neytið sendu frá sér er bygging álvers-
ins þó háð því að Columbia takist að
tiyggja fullnægjandi fjármögnun fram-
kvæmdanna um álverið, en fyrirtækið
væntir þess að siík fjármögnun geti leg-
ið fyrir á fyrsta fjórðungi næsta árs.
Reiknað með 127
milljóna tekjuafgangi
FJÁRLÖG ársins 1997 voru samþykkt
á Alþingi aðfaranótt laugardags og er
samkvæmt þeim gert ráð fyrir að tekj-
ur umfram gjöld verði 127,1 milljón
króna. í fjárlagafrumvarpinu eins og
það var lagt fram í haust var stefnt
sað eins milljarðs króna tekjuafgangi,
en við 2. og 3. umræðu voru samþykkt-
ar breytingartillögur sem hækka ríkis-
útgjöld um 1.700 milljónir. Á móti er
reiknað með að tekjur ríkissjóðs á
næsta ári verði um 800 milljónum
króna meiri en reiknað var með.
450 milljónir til
skógræktar og land-
græðslu
RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að
veita 450 milljónir króna í viðbótar-
framlag til landgræðslu- og skógrækt-
arverkefna á næstu fjórum árum.
Opinber framlög til beinna aðgerða á
þessu sviði eru á þessu ári um 253
milljónir en verða 403 milljónir árið
2000. Markmiðið er að auka bindingu
koltvíoxíðs í gróðri um 100.000 tonn
frá því sem var árið 1990, en talið er
að bindingin nú nemi um 50-60 þús-
und tonnum.
Gíslataka í Lima
VINSTRI-skæruliðar Tupac Amaru-
hreyfingarinar í Perú halda á fjórða
hundrað manns í gíslingu í bústað
japanska sendiherrans í Perú.
Skæruliðamir
réðust inn í fjöl-
mennt boð í
bústaðnum á
þriðjudags-
kvöld en
slepptu fljót-
lega úr haldi
konum og öldr-
uðum og á
fimmtudags-
kvöld tæplega
'40 manns til viðbótar. Margir hátt-
settir embættismenn, erlendir sendi-
herrar og kaupsýslumenn eru meðal
gíslanns, sem skæruliðamir hóta að
taka af lífi, verði ekki orðið við kröf-
um þeirra. Skæmliðamir krefjast
lausnar 4-500 félaga sinna úr fang-
elsi en Perústjóm hefur háð harða
baráttu gegn hryðjuverka- og
skæmliðasamtökum. Fulltrúar
Rauða krossins og sendiherrar sem
látnir vora lausir úr hópi gíslanna
hafa milligöngu um lausn málsins.
Sendifulltrúar Rauða
krossins myrtir
SEX sendifulltrúar Alþjóðaráðs
Rauða krossins voru myrtir í
Tsjetsjniju aðfaranótt þriðjudags.
Ekki er vitað hveijir vora að verki
en fólkið var í fastasvefni er ódæðis-
mennimir komust inn í svefnskála
og skutu það. Tveir hinna látnu voru
Norðmenn en hinir vom frá Kanada,
Nýja-Sjálandi, Hollandi og Spáni.
Rauði krossinn hætti starfsemi tíma-
bundið í Tsjetsjníju eftir atburðinn
en morðin hafa verið fordæmd um
allan heim.
►GRETE Faremo, olíu-
og orkumálaráðherra
Noregs, sagði af sér á
mánudag vegna njósna-
hneykslis, sem varð þegar
hún gegndi embætti dóms-
málaráðherra. í Ijós hefur
komið að norska leyni-
þjónustan kannaði Ieyni-
skjöl um einn þeirra
manna sem sat í þingnefnd
Stórþingsins, sem er að
kynna sér njósnir leyni-
þjónustunnar.
►KOFI Annan frá Ghana
var kjörinn sjöundi fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna á allsherjarþingi
þeirra á mánudag. Annan
tekur við af Boutros Bout-
ros-Ghali, sem Banda-
ríkjamenn beittu neitunar-
valdi gegn. Frakkar lögð-
ust um tíma gegn ráðn-
ingu Annan en létu af and-
stöðu sinni.
►MOBUTU Sese Seko,
forseti Zaire, sneri aftur
til sins heima á þriðjudag
eftir fjögurra mánaða dvöl
í Evrópu, þar sem hann
gekkst undir uppskurð.
► ÍGOR Rodíonov, varn-
armálaráðherra Rúss-
lands, neitaði á miðviku-
dag boði ráðherra Atlants-
hafsbandalagsins um að
skiptast á liðsforingjum til
að sjá um samhæfingu
herja Rússa og bandalags-
ins. Sagði hann slikt
ótimabært og ítrekaði
andstöðu Rússa við stækk-
un NATO.
Ytir undir kröfur
um veiðileyfagjald
EINAR K. Guðfinnsson, fyrsti þing-
maður Vestfjarða, segist þess full-
viss að breytingar verði gerðar á
fiskveiðistjórnunarkerfinu á Alþingi
í vetur, einfaldlega vegna þess að
í huga fólksins í landinu gangi það
ekki lengur og menn muni ekki
þola það óréttlæti og þá sóun sem
kerfið veldur. Þetta kemur fram í
viðtali við Einar í nýjasta tölublaði
Vesturlands, blaði vestfirskra sjálf-
stæðismanna.
„Ég er sannfærður um það að
ef þetta gengur svona óbreytt
áfram þá mun fólk rísa upp og það
veit enginn til hvers það muni leiða.
Þreföldun á verði þorskaflaheimilda
á um 20 mánuðum er auðvitað ger-
samlega óþolandi. Girðir fyrir það
að nýheijar hasli sér völl í grein-
inni, býr til óverðskuldaðan auð og
gefur að lokum kröfunni um veiði-
leyfagjald byr undir báða vængi,“
segir Einar.
Hagsmunir greinarinnar að
verðþróuninni linni
Einar segir að hinn heilbrigði og
nauðsynlegi hugsunarháttur einka-
framtaksins, að reyna að hagnast
og komast vel áfram á grundvelli
góðs og ráðdeildarsams atvinnu-
rekstrar, sé eyðilagður í kvótakerf-
inu. Þróunin í því sé ekki sú að það
skipti öllu máli hvernig reksturinn
gangi.
„Eignamyndunin í sjávarútvegin-
um síðustu mánuðina og árin hefur
ekki byggst á því hvort menn hafa
verið að gera vel í rekstrinum, hvort
menn hafa verið að reyna að halda
aftur af kostnaði og hvort að menn
hafa verið útsjónarsamir með að
afla nýrra tekna. Því miður hefur
mui w umu-reisoinwMMi
Á ftestclcr.t, }iíí wjfe, h* luinum. FamlKw * Áuíhil $ YNOMA?
KUSTIL, ó). ivufjit it> >'«■ «4»-:tul tritnsJe h.lvvx*n wifc
0KTH «xl mit WUKWT tomxir. ty. Mm 37 «><
n*#,. Fmu Kfcstil wtnH&VMOÍ ihc WWtów&U rwuWwo wi/l
amid i’TCSSUKr o»« i0«til U> wil há plWiie 1*5,
IxiÍ3« nv|«K»trd a»»guir»cni aUcad- Iwvs "ílitre
ikJíiícs .. jmoredithcwlttnbewrúmo(onsuf*á»uaJy.v Not
lo meniíw. luiutg a i/ií«Xrfttí M thc íuúk' tJme
ICCLANOIC COOL S
Ninttf tb<* cour.irím dul havc
ptudui'vd a pwp-imak riau
ÍV .,-v spr/Jis lo iiiiik)?
í’rr>h*Uy noo I»jt nuy l>e ft's .;
lífOh.dvI BlORK.
lacr Þad M 0i« klic-
N>:xi 4>i? Icrlamlk rock
aroup U>« Si «t*« cul*». h oii
hcr ú>vi> »ii)> a Ixwncy'
jilnmt culkri .Ovíh;.' 1»i ibc
uccwid v-vek of relvrtt. ii
sÍM tir Na. <3«» Brífkli
ríjiiUs T-.ii /i Ihe iw
‘tha; Lv tr.y «r k," stK>
s»w. ~tl>? musk 1 hcji iji rry
mtrd.’ Wiih h«n d»fl< h*:r
joJ tij» bHed
Ivjhrí; wa,i nkÁn«i;K:j "Clbfte
Glrr by <h»nu tlui hrr
lortlcs sI)C »», »1* Ílíaoivtttíy
luJsoJit •>$ mrvltc Oval
nmkmrtmm
Nolkvugalæi HAOmi
CAMFVU.L. ÍJ vríKV
Ufitnin»au'Iunll>
kjtKulsh nrítrívnl nxvl
.fttúig iKou'.-i'--. u; the U.S.
from RHUf k< Pord. pk.uwl
þorrí froríi Uw Utlw
»lmí*t MiíibVs Thcre
rxilho/g V: Ivw -
mr.lríxn l.tke owr.or
jokuiiyCttwbk/ixam, «-I»0
tayt thí iDfx-nnoiH
'uecJv 4 rlájv”' SJics
rr*f«W»rjf, he tokl <5)o
Ubíöki NeieVV* Fkni. f,
,'<jx»<h3«I, uflfirh brat ~
K&||lZ (vir'-.\l 71. TkMtka
r#««i hnrix-u llul
)>ixio»,j>' Aiudemy AwanJ In
W.tf«-h, 'TVe wlurxyN hjxt íun
irwJfirt}', uiíwm/a'* iuvi the
dirnotor ■>! xuch OvCol' wiwwu
i>» ía HtroJu uuO fii. 11« h*ií
piociiM-l to «M*Mxt Un oon.-
moraof «ym*, "Alt «lu»
... rív.-<ki/ign>efflw» rhe
pur afllklin# woréflwJdflft in
lluiyrfe{h:««w/
gWf r/hji)i »*rts4’the
I Hnl «..«-«.fg
mcot, has «Jor.rí
morc tltan ge? a lur<m« »fij a
<oofJv nf «k »• mfty. ITic rmv-
iinw tiroiowed aUHst !»W wi
intsrvkivxx itwt ho Iw* h«'«rv
IxtptúríJ iu t« Ceofgian Ort/K<-
<k««hr:rch.”l havo pkkwe
oi tiw Vir$h» W»f): in n>y
rvííkv- nonr.’' said h«-. ’Oimæh
*ll«T WTrt h i/iik- 'vlvM) I hiíá
hiahn'ipurtraii v« Rx' vvaii.’'
Ttulk w«»nivi«
iJknvtfwíft/. Tb«
Björk í afmælisriti Time
BJÖRK Guðmundsdóttir kemst á
blað í fimmtíu ára afmælisútgáfu
vikuritsins Time, þar sem stiklað
er á stóru yfir helstu atburði og
fólk í fréttum síðustu hálfrar aldar.
Blaðið vitnar til fréttar um
Björk frá því i febrúar 1993.
„Nefndu lönd sem hafa getið af
sér poppstjörnur. Kemur ísland
upp í hugann? Sennilega ekki, en
kannski var kominn tími til,“ seg-
ir í Time.
Síðan er sagt frá fyrstu sóló-
plötu Bjarkar, Debut, sem skaust
upp í sjötta sæti breska vinsælda-
listans þegar á annarri viku. Vitn-
að er I söngkonuna, sem segir að
þetta sé fyrsta platan með hennar
eigin tónlist. Eða eins og hún seg-
ir sjálf, „tónlistinni sem ég heyri
í huga mér“.
Blaðið gerir að umtalsefni aust-
rænt útlit hennar, dökkt hár og
skásett augu, sem hafi gert það
að verkum að hún var uppnefnd
„Kínastelpan" í barnaskóla. Sjálf
segist hún þó vera eins islensk í
útliti og hugsast getur — svöl.
Súla í nýju bæjarmerki
BÆJARSTJÓRN Reykja- bent á að stærsta súlubyggð
nesbæjar hefur valið nýtt sé við Eldey, suðvestur af
bæjarmerki fyrir Reykja- Reykjanesi. Höfundur telur
nesbæ. Valin var súla að F\? \fj*k ve' v*ð hæfi að bæjarfélag,
tillögu Guðjóns Davíðs Uf If / jy sem kenni sig við Reykjanes
Jónssonar. J geri súluna að einkennis-
Á þriðja hundrað tillögur ^//ÆM fugli. Súlan yrði tákn ómet-
bárust í hugmyndasam- anlegrar náttúra en gæti
keppnina og var merki Guðjóns ^B|r jafnframt verið tákn um at-
eitt af fimm sem komu til greina. hafnalíf. Á merkinu rísi upp hvít
í skýringum með merkinu er súla, sem tákn um lifandi samfélag.
allt annað ráðið þar úrslitum. Þar
á ég fyrst og fremst við það að
verðlagning aflaheimildanna og það
hvenær menn hafa eignast þær eða
selt hefur fyrst og fremst ráðið
úrslitum um það hvort um hafi orð-
ið að ræða eignamyndun í einstök-
um útgerðum,“ segir Einar.
Hann segir að mjög mikilvægt
sé fyrir atvinnugreinina að eigna-
myndunin gerist fyrst og fremst í
gegnum það að vel takist til um
reksturinn, en hið sorglega sé að
hagnaðarvonin vegna rekstrar-
árangurs sé smám saman að hverfa.
„Það era fyrst og síðast hags-
munir atvinnugreinarinnar sjálfrar
að þessari verðþróun linni því í
henni felst annars mikil feigð, krafa
um auðlindaskatt og því hætta fyr-
ir atvinnugreinina sjálfa til lengri
tíma litið,“ segir Einar.
Lög um fjarskipti
og póstþjónustu
Sam-
keppni
innleidd
um áramót
FRUMVÖRP ríkisstjómarinn-
ar til laga um póstþjónustu
og fjarskipti, sem lögð voru
fram í framhaldi af setningu
laga um hlutafélagsvæðingu
Pósts og síma, hafa verið sam-
þykkt á Alþingi.
Frumvörpin eru þijú og lúta
öll að þvl sama, að laga
„landslag" póst- og fjarskipta-
mála að þeim miklu breyting-
um sem um þessar mundir eru
að verða á þessu sviði hér á
landi og annars staðar í Evr-
ópu, sem byggjast á þvl að
einkaréttur ríkisins til að reka
slíka þjónustu verði afnuminn
og samkeppni innleidd.
Fyrsta frumvarpið fjallar
um póstþjónustuna, annað um
fjarskipti og þriðja um Póst-
og fjarskiptastofnun, sem á
að setja á fót til að gegna
hlutverki eftirlitsaðila með
samkeppnisrekstri í póstþjón-
ustu og fjarskiptum, sem og
að sjá um útgáfu rekstrar-
leyfa.
Lögin ganga öll í gildi 1.
janúar 1997.
Gagnrýni á hlutverk
ráðherra
Stjómarandstöðuþingmenn
gagnrýndu m.a. ákvæði lag-
anna um hvernig fyrirhugað
sé að haga eftirliti með sam-
keppnisrekstri í fjarskipta-
þjónustu. Guðmundur Arni
Stefánsson, þingflokki jafnað-
armanna, segir óeðlilegt að
samgönguráðherra sé æðsti
yfirmaður, með beinum og
óbeinum hætti, hvort tveggja
yfir stærsta rekstraraðilanum,
Pósti og síma hf., og eftirlits-
stofnuninni, Póst- og fjar-
skiptastofnun. Þetta geti boð-
ið upp á hagsmunaárekstra.
Þingflokkur jafnaðarmanna
hefur farið fram á að ráðherra
skilaði Alþingi skýrslu um
áhrif formbreytingar Pósts og
síma í hlutafélag.