Morgunblaðið - 22.12.1996, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 1996 33
vera lengur á spítalanum með dótt-
ur sína en við.
Sandra Sif og Þórunn Björk lágu
stundum saman í rúminu hennar
Söndru og var hún þá að passa
Þórunni Björk, „litla bannið“, eins
og hún sagði sjálf.
Sandra Sif vildi sjaldnast sitja
aðgerðalaus. Ef hún var þreytt og
gat ekki leikið sér sjálf sat hún í
kerrunni sinni og foreldrar hennar
keyrðu hana fram og til baka á
ganginum og ef þau stoppuðu of
lengi sagði Sandra Sif: „Labbi,
labbi“ eða „pabbi labbi", ef faðir
hennar var með hana. Það var að-
dáunarvert að sjá hversu natin þau
voru við litlu fallegu stelpuna sína.
Sandra Sif var svo dugleg og
skynsöm. Hún vissi nákvæmlega sín
takmörk. Ef hún var þreytt varð hún
að hlaða batteríin smástund til að
geta byijað aftur að leika sér.
Elsku Dóra, Jói og synir. Við fjöl-
skyldan erum svo þakklát fyrir að
hafa kynnst ykkur, þó að kynni
okkar af Söndru Sif hafi verið stutt
þá skilur hún eftir sig svo góðar
og fallegar minningar.
Sárin sem eftir sitja gróa aldrei,
en maður verður að læra að lifa
með þeim og vera þakklátur fyrir
þennan tíma sem hún var hér á
meðal okkar.
Við vitum að henni líður vel núna
og hugur hennar verður alltaf hjá
ykkur, ef þið eruð glöð er hún líka
glöð.
Kæra fjölskylda, við biðjum Guð
að gefa ykkur styrk til að ganga í
gegnum þessa erfiðu lífsreynslu.
Elsku Sandra Sif, hvíldu í ró og
friði.
Elsa, Bjarni og Þórunn Björk.
Á svona stundu megna fátækleg
I orð sín lítils. Á örlagastundu geng-
ur lífið oft hratt fyrir sig, oft of
I hratt fyrir mannlega vitund að átta
sig á. Hin venjulega kvöldstund
breyttist í harmleik, hún Sandra
Sif er dáin.
Okkur í fjölskyldunni langar að
minnast hennar, þessa litla sólar-
geisla, sem gaf okkur svo margt
þótt jarðvistin væri stutt. Eftirtekt-
arvert var hið mikla æðruleysi sem
I þetta litla barn bjó yfir og sú mikla
j gleði sem geislaði frá henni. En nú
■ er hún flutt í stjörnuheim og skilur
' eftir sig visku og kærleik okkur til
handa og vonandi fáum við höndlað
þær dýrmætu gjafir.
Þessar ljóðlínur koma upp í huga
okkar er við minnumst Söndru:
Hafið og himinninn hrópa á mig þama,
dýpstu sorgum ég deili með þeim.
Allt sem ég bið um er bátur og stjama,
bara svo að ég rati heim.
(John Masefield.)
Foreldrum og bræðrum Söndru
litlu, svo og öðrum ástvinum hennar
sendum við innilegar samúðar-
kveðjur og biðjum himneskan föður
að veita þeim styrk nú þegar jólahá-
tíð gengur í garð og um ókomna
framtíð.
Friðrik, Sóley og fjölskylda.
Elsku litla músin mín. Nú ert þú
farin yfir móðuna miklu. Mann set-
I ur hljóðan þegar þú ert ekki með
okkur, því þú ert búin að vera svo
dugleg í veikindum þínum.
Nú ert þú komin til hans afa
þíns, sem þú sagðir að væri að blása
í nefið á þér. Þetta sagðir þú, þó
hann afi þinn hafi verið farinn áður
en þú fæddist.
Það er alveg öruggt að ykkar
| vinkvennanna hefur beðið stórt
verkefni um jólin fyrst þú fórst
svona fljótt á eftir henni Heklu vin-
I konu þinni. En við fáum ekki að
vita hvað það er sem þið þurfið að
gera saman. Þó er alveg öruggt að
þú gafst okkur öllum svo mikið með
þínum dugnaði að eitthvað lærir
maður af því.
Elsku litla ástin mín, minning
þín mun lifa með okkur. Guð styrki
mömmu þína og pabba, Davíð, Elv-
| ar og alla í fjölskyldunni sem eiga
L um sárt að binda.
y Guð veri með ykkur öllum, elsk-
I urnar mínar.
Þórunn og Steinn.
MINNINGAR
HALLDÓRA
G UÐJÓNSDÓTTIR
+ Halldóra Guð-
jónsdóttir fædd-
ist í Réttarholti,
Garði, 6. nóvember
1909. Hún Iést 17.
desember síðastlið-
inn á Hrafnistu í
Hafnarfirði. For-
eldrar Halldóru
voru hjónin Guðjón
Björnsson, renni-
smiður, fæddur 3.
desember 1876 á
Imastöðum í Vöðla-
vík, og Guðrún Guð-
mundsdóttir, fædd
6. september 1878 í
Réttarholti, Garði.
Systkini Halldóru voru Þóranna
Lilja, húsmóðir í Reykjavík, f.
4. júní 1904,_d. 17. mars 1970,
Svanhildur Ólafía, verkakona,
f. 6. febrúar 1907, d. 15. júní
1993, Guðmundur, bifreiðasljóri
I Réttarholti, Garði, f. 9. maí
1913, d. 20. október 1981, Björn
Guðni, bifreiðastjóri og útgerð-
armaður, f. 26. ágúst 1916, d.
23. júní 1995. Hinn 17. desember
Elsku amma.
Mig langar til að minnast þín með
fáeinum orðum. Þú varst aldrei þessi
gamla amma eins og þær eru í sögu-
bókum, heldur varst þú alla tíð eins
og ung kona, bæði í lund og fasi.
Þú varst alltaf svo fín og vel snyrt
og hafðir gaman af því að punta þig
með skartgripum og slæðum sem þú
áttir ógrynni af. Maður var svo stolt-
ur af því að eiga þig fyrir ömmu, og
margir höfðu orð á því við mig að
fyrra bragði hvað þú værir alltaf fín.
Þitt heimili var eins og þú, alltaf
angandi af hreinlæti og góðri lykt.
Þú varst mjög lagin í höndunum
og listræn og þess bera vitni allir
þeir ótal hlutir sem þú bjóst til, svo
sem keramik munir, málaðir dúkar,
saumaðar myndir og jafnvel heilu
málverkin.
Nú þegar jólin eru að ganga í
garð verður manni hugsað til jóla-
boðanna þinna með söknuði en það
var hefð að þú bauðst öllum til þín
í hangikjöt á hádegi á jóladag, eins
lengi og þú hafðir heilsu til. Þetta
var alltaf mikil gleðistund og ekki
gleymdir þú okkur börnunum heldur
varst þú búin að útbúa jólapoka með
1933 giftist Halldóra
Jóhanni Vilhjálms-
syni vörubílstjóra, f.
14. júlí 1907, d. 31.
mars 1980. Byggðu
þau sér hús á Norður-
braut 24, Hafnarfirði,
og bjuggu þar allan
sinn búskap, en eftir
að Jóhann lést 1980,
flutti Halldóra að
Suðurvangi 2, Hafn-
arfirði, en hefur dval-
ið á Hrafnistu í Hafn-
arfirði síðan 1. febr-
úar síðastliðinn. Börn
þeirra eru: 1) Guðný
Li(ja, f. 1. ágúst 1935,
gift Hauki Jónssyni, f. 3. júlí 1931,
þeirra börn eru Jóhann, f. 18.
október 1953, kvæntur Ingibjörgu
Harðardóttur og eiga þau fjögur
börn: Vilhjálm, Hrafnkel, Ólaf og
Guðnýju. Halldóra f. 14. ágúst
1957 sambýlismaður hennar er
Ófeigur Ófeigsson og eiga þau tvo
syni: Hjalta og Geir. Steinunn f.
30. nóvember 1960, gift Sigurði
E. Sigurðssyni og eiga þau tvo
nammi handa hverju barni og síðan
hafðir þú alltaf bingó fyrir okkur
börnin eftir matinn og það voru al-
vöru vinningar í boði.
Þú varst alltaf mjög lífsglöð full
af dugnaði svo maður dáðist að og
ekki varst þú að hafa áhyggjur af
því sem miður fór heldur horfðir
bara á það hvernig hægt væri að
bæta úr hlutunum og gera gott úr
öllu. Þessu til skýringar Iangar mig
að segja frá því þegar við systumar
vorum enn í föðurhúsum og amma
var í heimsókn. Þá vorum við stelp-
urnar að kvarta yfir tánum á okkur
því okkur þóttu þær ekki vera nógu
fallegar, þá sagði amma: „hva, af
hveiju lakkið þið þær bara ekki með
fallegum lit“. Við vorum alveg hissa
á þessu svari því þetta var nú amma
okkar, en svona var hún, reyndi
bara að gera gott úr öllu.
Hún amma var alltaf mjög jarð-
bundin í hugsun og raunsæ og ekki
er maður í vafa um að hún var stór-
vel gefin. Hún var fljót að sjá réttu
og oftast einu lausnina á mörgum
málum hvort sem það átti við hið
daglega líf eða þegar afi var að gera
við einhveija hluti úr vörubílnum sín-
Þorsteinn Baldursson,
Jón Baldursson,
Vigdis Baldursdóttir,
Sævar Baldursson,
Helgi Baldursson,
Ágústa Baldursdóttir,
Katrín Magnúsdóttir,
Hermina Benjamínsdóttir,
Axel Bender,
Guðbjörg Marteinsdóttir,
Kristinn Gíslason.
t
Ástkæra eiginkona mín, móðir okkar,
tengdadóttir og amma,
SARA BRYNDÍS ÓLAFSDÓTTIR
Kvistalandi 13,
Reykjavík
lést á gjörgæsludeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur, 20. desember sl.
Gúetaf Þór Ágústsson,
Sverrir Þór Gústafsson,
Guðrún Olga Gústafsdóttir,
Ágúst Óskar Gústafsson,
Gudný Karlsdóttir,
Aron Már Ólafsson.
syni: Hauk og Val. Sigrún, f. 2.
maí 1964, gift Gunnari Erling
Vagnssyni og eiga þau þrjár
dætur: Sonju, Karen, og Ellen.
2) Björgvin Þór, f. 5. maí 1940,
fyrri kona hans var Bodil Plesn-
er Jóhannsson, f. 28. maí 1945,
d. 5. október 1978, og eignuðust
þau tvo syni: Steinar, f. 12. apríl
1968, og Asgeir, f. 20. apríl 1973,
sambýliskona hans er Þórhildur
Þórhallsdóttir, seinni kona
Björgvins er Katrin Bjarnadótt-
ir, f. 15. júlí 1943, og eiga þau
eina dóttur, Bryndísi, f. 24.
mars 1982, en Katrin átti þrjú
börn fyrir, Kristján, Kolbrúnu
og Fríðu. 3) Guðrún Þóra, f. 2.
maí 1943, gift Magnúsi Einars-
syni, f. 9. mars 1936 og eiga þau
þijá syni' Einar Þór, f. 24. sept-
ember 1964, kvæntur Hönnu
Símonardóttur og eiga þau fjög-
ur börn: Magnús Má, Agnesi
Eir, Anton Ara, og Patrik Elí.
Elvar Örn, f. 17. mars 1968,
sambýliskona hans er Anna
María Snorradóttir og eiga þau
eina dóttur, Alexöndru. Agnar
Már f. 30. ágúst 1974, unnusta
hans er Berglind Helga Sigur-
þórsdóttir.
Útför Halldóru fer fram frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði
mánudaginn 23. desember og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
um og lenti síðan í basli með að koma
öllu saman aftur, þá þurfti hann oft
að kalla í hana Höllu sína. Þannig
var hún elsku amma og svona vil ég
muna eftir henni eins og ungri konu.
Guð geymi þig.
Sigrún Hauksdóttir.
Henni ömmu minni, sem nú er
farin yfír móðuna miklu, á ég mikið
að þakka. Eftir að ég missti móður
mína á bamsaldri var hún mér ómet-
anleg stoð, nokkuð sem ég kem aldr-
ei til með að geta þakkað nógsam-
lega fyrir. Þær voru ófáar næturnar
sem ég gisti heima hjá henni, ekki
síst eftir að afí dó. Það er svolítið
skondið að hugsa til þess núna, en
áður en unglingsárunum var náð var
kvöldskemmtun mín um helgar að
fara heim til ömmu, ræða við hana,
horfa þar á sjónvarpið og njóta góðra
veitinga. Eftir þessu beið ég alltaf
eftir alla virka daga.
Amma var einkar jákvæð, hress
og skemmtilega kona. Hún var mik-
il félagsvera og okkur kom mjög vel
saman. Við spjölluðum alltaf mikið
og hláturinn var aldrei langt undan.
Alltaf var amma tilbúin að hlusta á
það sem ég hafði að segja og hjá
henni fann ég mikið öryggi.
Eðlilega breyttist samband okkar
þegar ég varð eldri en það breyttist
ekki hversu sérlega gott var að eiga
ömmu að. Oft kom ég við hjá henni
þegar ég var við sumarvinnu og þá
bar hún á borð fyrir mig allar þær
kræsingar sem hún hafði yfir að
ráða hveiju sinni. Þetta gat verið
býsna skemmtileg athöfn því hún
virtist hafa töluverðar áhyggjur af
því að ég fengi of lítið að borða í
vinunni eða af því að ég væri al-
mennt að horast niður.
Fyrir mér voru jólin og amma
mjög nátengd því jólin komu alltaf
fyrst hjá ömmu enda gerði hún jól-
unum hátt undir höfði. íbúðin henn-
ar var þá skreytt í bak og fyrir jóla-
skrauti og fyrir mér var heimilið
hennar sannkallað ,jólaland“. Þá
voru fjölskylduboð hennar á jóladag
ómissandi hluti jólanna og maturinn
sem við fengum þá fannst mér besta
máltíð ársins.
Bingó var eitt aðaláhugamál
ömmu og það var fróðlegt að hlusta
á lýsingar hennar af tilteknum bingó-
kvöldum og hversu nálægt hún hefði
verið þeim stóra. Seinustu árin kom
ég oft með skafmiða til hennar og
það var mikið stuð á okkur þegar hún
skóf og alltaf var hún jafn spennt.
Nú er komið að kveðjustund, elsku
amma mín, þakka þér kærlega fyrir
allar samverustundirnar, vonandi
verða þær fleiri einhvern tímann
seinna. Ég veit að afi tekur vel á
móti þér. Guð blessi þig og minningu
þína.
Ásgeir Björgvinsson.
t
Flytjum öllum ættingjum og vinum
bestu þakkir fyrir auðsýnda samúð
vegna andláts
KARLS JÓNSSONAR,
Skaftahlíð 25.
Guðfinna Guðjónsdóttir,
Jón Róbert Karlsson, Hlíf Hjálmarsdóttir,
Gunnlaugur Karlsson, Svava Engilbertsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum innilega alla aðstoð og auð-
sýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför föður okkar, tengdaföður og
afa,
ALBERTS INGIBJARTSSONAR,
Hlíf 1,
Isafirði.
Fyrir hönd aðstandenda,
Bjarni Albertsson, Guðrún Guðbjartsdóttir,
Friða K. Albertsdóttir, Hörður Kristjánsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
vináttu og hlýhug við fráfall elskulegs
eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
SÆMUNDAR SIGURÐSSONAR
málarameistara,
Ferjuvogi 15.
Guð gefi ykkur öllum góð og friðsæl jól.
Sigríður Þórðardóttir,
Inga Rúna Sæmundsdóttir, Hafsteinn Pétursson,
Kolbrún Sæmundsdóttir, Björn Árdal,
Auður Stefanía Sæmundsdóttir,
Sigurður Rúnar Sæmundsson, Anna Maria Steindórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.