Morgunblaðið - 25.01.1997, Side 10
10 LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
-
FRETTIR
Aðalfundur miðstjórnar Alþýðubandalagsins var settur í gær
Núverandi fiskveiðistefna
„hróplegt óréttlæti“
Morgunblaðið/Kristinn
AÐALFUNDUR miðstjórnar Alþýðubandalagsins, sem frestað var i haust vegna veikinda for-
manns, hófst í gær og stendur til morgundags.
MARGRÉT Frímannsdóttir for-
maður Aiþýðubandalagsins vék
meðal annars að „hróplegu órétt-
læti“ núverandi stefnu í fiskveiði-
málum á aðalfundi miðstjómar
flokksins í gær. „Ég get ekki orða
bundist vegna þeirrar gríðarlegu
eignatilfærslu sem nú á sér stað i
sjávarútvegi," sagði hún. Einnig
varpaði formaðurinn fram þeirri
spurningu hvort best yrði barist
fyrir friði innan eða utan NATO
og sagði jafnframt að Islendingar
yrðu að halda vöku sinni og fylgj-
ast með málefnum Evrópusam-
bandsins.
„Við verðum að taka afstöðu til
þeirra með hagsmuni íslensku
þjóðarinnar að leiðarljósi. Það mun
aðeins leiða til ófamaðar að stinga
höfðinu í sandinn og segja að
málið sé ekki á dagskrá... Evrópu-
sambandið er orðið mun upptekn-
ara en áður af sínum innri málefn-
um og fyrirhugaðri aðild ríkja í
Mið- og Austur-Evrópu. Þessar
ástæður hafa gert að verkum að
staða EFTA-ríkjanna er mjög veik
gagnvart Évrópusambandinu.
Möguleikar þeirra til að hafa áhrif
em nær engir, en það þýðir meðal
annars að stór hluti af íslenskri
lagasetningu er í höndum annarra
ríkja. Þar með höfum við afhent
forræði okkar í mjög mikilvægum
málaflokkum sem er óþolandi fyrir
sjálfstæða þjóð,“ sagði hún.
Raka saman auðæfum
Fundur miðstjórnarinnar er
haldinn undir yfirskriftinni Fjöl-
skyldan - kjörin - umhverfið, en
Margrét vék jafnframt að sjávarút-
vegsmálum í setningarræðu sinni.
„Ég ætlaði ekki að fjalla um sjávar-
útvegsmál að þessu sinni, en get
þó ekki orða bundist vegna þeirrar
gríðarlegu eignatilfærslu sem nú á
sér stað í sjávarútvegi. Ranglætið
sem er fylgifiskur þeirrar stefnu
sem rekin er í fiskveiðimálum er
hróplegt. Fáir einstaklingar eru að
raka saman auðæfum á kostnað
annarra - ekki aðeins einstaklinga
og fyrirtækja, heldur heilu byggð-
arlaganna. Arðurinn af sameigin-
legri auðlind okkar rennur í vasa
fárra manna ... Það er alveg ljóst
að við getum ekki sætt okkur við
að arðurinn af sameiginlegri auð-
lind okkar safnist á fárra manna
hendur," sagði hún.
Þá vék formaðurinn að breyttri
heimsmynd. „Er einhver von til
þess að hemaðarbandalagið NATO
lagi sig að breyttum tímum og
leggi áherslu á afvopnun, friðar-
gæslu; baráttu gegn sölu vopna
og miðlun tækniþekkingar á sviði
efnavopna og kjarnorkuvopna?“
Einnig spurði Margrét: „Höfum
við trú á að Atlantshafsbandalagið
geti breyst? Við þurfum að ræða
þessi mál og taka afstöðu til þeirr-
ar þróunar sem nú á sér stað.
Meta á hvern hátt við getum best
barist fyrir friði í heiminum. Gerum
við það með því að standa utan
allrar starfsemi NATO eða eigum
við að taka þátt í einhverjum hluta
EKRUSMÁRI 17
í KÓPAVOGI
Opið hús - Opið hús
Nýtt 104 fm raðhús á
einni hæð auk bílsk. til
sölu. Verð 11,9 millj. Helga
og Jósef hafa opið hús um
helgina milli kl. 14-17.
Verið velkomin.
Ársalir ehf. -
fasteignasala
Lágmúla 5,
108 Reykjavík,
SÍmi 533-4200, 892-0667,
567-1325.
starfseminnar og reyna að koma
okkar áherslum og sjónarmiðum á
framfæri þar? Þetta þarf að ræða
af hreinskilni, meðal annars hvort
við eigum að senda þingmenn okk-
ar á þingmannafundi NATO og
taka þátt í samstarfi þjóða í þágu
friðar.“
Félagshyggja, jöfnuður og
kvenréttindi í einni sæng?
Fulltrúar vinstri flokkanna og
Kvennalista ávörpuðu aðalfund
miðstjórnarinnar að ávarpi form-
annsins loknu. Sighvatur Björg-
vinsson, formaður Alþýðuflokks-
ins, spurði hvort ekki væri tíma-
bært að láta 60 ára stríði lokið og
semja frið í dögun nýrrar aldar.
Kristín Ástgeirsdóttir, þingkona
Kvennalista, varpaði fram þeirri
spurningu hvað væri stjómun í
anda jafnaðarstefnu og sagði
skorta málefnalega umræðu í
þessu samhengi. Jóhanna Sigurð-
ardóttir, formaður Þjóðvaka, sagði
að orka jafnaðarmanna hefði í ára-
tugi farið í að reisa múra sundr-
ungar í stað þess að byggja brýr.
Nú riði á að einblína.á það sem
sameinaði eina, öfluga hreyfingu
jafnaðarmanna. Vilhjálmur H. Vil-
hjálmsson, fulltrúi Grósku, nýrra
samtaka jafnaðar- og félags-
hyggjufólks, benti á að múrar sem
áður aðskildu þjóðríki, atvinnu- og
fræðigreinar, hryndu hver af öðr-
um og hið sama hlyti að geta gilt
um stjórnmálaflokka. „Sleggjur,
hamrar, meitlar, þjalir. Allt kemur
að gagni. Síðan má nýta stórvirk-
ari vinnuvélar til starfans, Gróska
er slíkt tæki,“ sagði hann.
GULLSMÁRI 5
í KÓPAVOGI
Opið hús - Opið hús
Ný gullfalleg 3ja herb.
íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi til
afh. strax. Sölusýning um
helgina milli kl. 14-16.
Verið velkomin.
Ársalir ehf. -
fasteignasala
Lágmúla 5,
108 Reykjavík,
sími 533-4200, 892-0667,
567-1325.
ísafjörður
Oboðinn
gestur í
barnarúmi
ísafiröi. Morgunblaðið.
FJÖLSKYLDA ein á ísafirði fékk
heldur óskemmtilega heimsókn
árla morguns í vikunni. Um kl.
6.30 um morguninn vöknuðu hús-
ráðendur við að sjö ára barn þeirra
sagði mjög ölvaðan mann vera
sofandi í rúmi sínu. Fóru húsráð-
endur, sem sváfu á neðri hæð
hússins, þegar upp í herbergi
barnsins, sem er á annarri hæð
og blasti þá við þeim öldauður
maður í rúmi barnsins.
Að sögn lögreglunnar á ísafirði
mun hinn óboðni gestur hafa kom-
ið inn um dyr á þvottahúsi sem
húsráðendum hafði láðst að læsa.
Ljós var þar innandyra og mun
það hafa ýtt undir heimsókn
mannsins. Maðurinn mun hafa
ráfað um húsið og síðan haldið
upp á aðra hæð og inn í barnaher-
bergið. Þar mun hann hafa dottið
um leikföng og barnið vaknað við
hávaðann, skelfingu lostið.
Þar sem húsráðendum tókst ekki
að vekja hinn óboðna gest var lög-
regla kölluð til. Náði hún að vekja
manninn og fékk hann að sofa úr
sér í fangageymslum lögreglunnar.
Er hann vaknaði óskaði hann eftir
að fá að hitta húsráðendur og baðst
afsökunar á framferði sínu. Lög-
reglan hefur lagt fram kæru á
hendur manninum.
Að sögn lögreglunnar hafa
heimsóknir sem þessar verið tíðar
undanfarin misseri og vill hún því
hvetja húsráðendur að læsa hibýl-
um sínum að næturlagi sem og
að læsa bifreiðum sínum. „Við
búum ekki lengur í sveitasamfé-
lagi og því verða allir að hafa
varann á sér,“ sagði lögreglumað-
ur í samtali við blaðið.
-----» ♦ ♦-----
íslandsbanki
gefur út
þingvíxla
ÍSLANDSBANKI hóf útgáfu á
nýrri tegund skammtímaverðbréfa
í síðasta mánuði. Bréfín eru skráð
á Verðbréfaþingi íslands undir
heitinu þingvíxlar íslandsbanka.
Þessir víxlar henta einkum stórum
stofnanaíjárfestum sem, vegna
ákvæða í samþykktum eða ann-
arra reglna, kaupa nær eingöngu
verðbréf skráð á Verðbréfaþingi,
að því er segir í frétt frá Islands-
banka.
Skráðir á Verðbréfaþingi
Þingvíxlar Islandsbanka eru
gefnir út í föstum fjárhæðum: 5,
10 og 50 milljónum króna. Víxl-
arnir eru vaxtalausir, óverð-
tryggðir og gefnir út til 90 daga
í senn. Gert er ráð fyrir að gefinn
verði út nýr flokkur einu sinni í
mánuði. Víxlarnir eru framseljan-
legir og engar hömlur eru á endur-
sölu þeirra.
Víxlarnir eru skráðir á Verð-
bréfaþingi íslands og fara öll við-
skipti með þá í gegnum það. Öllum
er fijálst að kaupa víxlana, t.d.
með endursölu í huga. Verð þeirra
tekur mið af verði ríkisvíxla og
markaðsaðstæðum á hveijum tíma
en sama bil er milli kaup- og
sölukröfu á þingvíxlunum og á
ríkjsvíxlum.
íslandsbanki er með viðskipta-
vakt á þingvíxlunum og tryggir
þannig greiðsluhæfni þeirra. Við-
skiptavaktin miðast við að íslands-
banki sé ávallt reiðubúinn til að
kaupa fyrir að lágmarki 500 millj-
ónir króna fram til klukkan 14 á
hveijum virkum degi.
EINBYLISHUS I HAFNARFIRÐI
Til sölu vandað hús á eftirsóttum stað við Sævang. Aðalhæð
146 fm.- tvær stofur, fjögur herbergi, eldhús og bað. 56 fm.
rúmgóður kjallari. Byggt 1954fstækkað 1970. Suðursvalir. Allt
i mjög góðu ástandi. Fagurt útsýni til sjávar yfir óbyggt
hraunsvæði. Skipti á minni eign í Hafnarfirði koma til greina.
Opið í dag
frá kl .11-17.
Arni Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10, sími 555 0764.
5521150-5521370
LÁRUS Þ. VALDIMRRSSQrj, FRAMKVÆMOAST JORI
JÓHAKHIÞÓROARSOIU, HRL. LÖGGILTUR FASTEIGAIASALI.
Nýjar eignir á fasteignamarkaðinum - til sýnis og sölu
Einbýlishús í sérflokki.
Steinhús með um 160 fm íbúð, 6 herb., á aðalhæð. Á jarðhæð eru
um 40 fm innb. bílskúr. Mikið húsrými til margskonar nota.
Stór ræktuð lóð á útsýnisstað í Skógahverfi.
Nánarí upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
Skammt frá Hótei Sögu
Stór sólrík 4ra herb. íbúð, 112,2 fm nettó, í suöurenda. Mikið
endurnýjuð laus fljótlega. Vmsæll staður, gjafverð.
Lítið einbýlishús - vinsæll staður
Járnklætt timburhús á steinkjallara með um 3ja-4ra herb. íbúð.
Endurbætt. Langtímalán 4 mlllj.
Skipti möguleg á kvótalausri jörð, helst á Vestfjörðum.
Útborgun aðeins kr. 500.000.
Nýendurbyggð. 2ja herb. risfbúð í reisulegu steinhúsi, skammt frá
Hlemmi. Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga.
Dugmiklir, fjársterkir athafnamenn
óska eftir verslunarhúsnæði
við Laugaveg-Bankastræti-nágrenni. Byggingarlóð eða gamalt hús
til niðurrifs eða endur- eða viðbyggingar kemur til greina. Rétt eign
verður greidd við kaupsamning.
Allar upplýsingar trúnaðarmál.
• • •
Opið í dag kl. 10-14.
Fjöldi fjársterkra
kaupenda Margskonar
eignaskipti.
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 S. 5521150 - 5521370
l
i
l
\
I
1
:
í
í
R
1
,
i