Morgunblaðið - 25.01.1997, Síða 14

Morgunblaðið - 25.01.1997, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1997 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Héraðsdómur Norðurlands eystra Rúmlega 460 einkamál til meðferðar í fyrra MESSUR AKUREYRARKIRKJA: Æskulýðsfundur í kapellunni í kvöld, laugardag kl. 20. Sunnu- dagaskóli í safnaðarheimili kl. 11 á morgun. Öll börn hjartan- lega velkomin. Guðsþjónusta kl. 11 á morgun, sunnudag. Alnæmisvandans minnst, Jóna Lísa Þorsteinsdóttir fræðslu- fuiltrúi kirkjunnar prédikar. Prestur sr. Svavar Alfreð Jóns- son. Umræður og kaffisopi í safnaðarheimili eftir guðsþjón- ustu. Guðsþjónusta á dvalar- heimilinu Hlíð kl. 17 á sunnu- dag. Arna Yrr Sigurðardóttir guðfræðingur prédikar. Biblíu- lestur í safnaðarheimili kl. 20.30. á mánudag. Mömmu- morgun frá kl. 10 til 12 á mið- vikudag. GLERÁRKIRKJA: Guðs- þjónusta verður á FSA kl. 10 á morgun, sunnudag. Barna- samkoma verður í kirkjunni kl. 11. Foreldrar hvattir tii að koma með börnum sínum. Messa verður kl. 14. Kirkju- kaffi kvenfélagsins í safnaðar- heimili að messu lokinni. Fund- ur æskulýðsfélagsins kl. 17. á sunnudag. Hádegissamvera frá kl. 12 til 13 á miðvikudag. HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagaskóli kl. 11. á morg- un. Unglingaklúbbur kl. 16. Almenn samkoma kl. 20. Heim- ilasambandið kl. 16 á mánudag. Krakkaklúbbur kl. 17 á mið- vikudag. Hermannasamkoma kl. 20.30. á miðvikudag. 11 á fímmtudag kl. 17 og hjálpar- flokkur kl. 20.30 sama dag. Allir hjartanlega velkomnir. HVITASUNNUKIRKJAN: Vakningasamkoma kl. 14 á morgun, sunnudag. Allir hjart- anlega velkomnir. Vonarlínan, sími 462-1210, símsvari allan sólarhringinn með orð úr ritn- ingunni sem gefa huggun og von. SJÓNARHÆÐ: Sunnudaga- skóli á morgun, sunnudag kl. 13.30 í Lundarskóla. Almenn samkoma á sjónarhæð kl. 17. Ástjarnarfundur á mánudag kl. 18 á Sjónarhæð. Unglinga- fundur á föstudag kl. 20.30. Aliir velkomnir. Ólafsfirðing- ar í vinnu á Dalvík Ólafsfirði. Morgunbiaðið. TÓLF manns sem_ unnu hjá Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar hafa fengið atvinnu hjá Frysti- húsi KEA á Dalvík, en öll vinnsla í Hraðfrystihúsi Ólafs- fjarðar stöðvaðist um síðustu áramót. Um 60 manns misstu atvinnu sínu í kjölfar lokunar frystihússins. Atvinnuleysi í Ólafsfirði jókst við það um 90%. Fólkið sem vinnur á Dalvík fer með rútu frá Ólafsfirði. Er nú verið að athuga hvort ekki sé hægt að bæta við fimm manns til starfa hjá frystihús- inu. Auk þeirra sem vinna á Dalvík hafa nokkrir aðrir starfs- menn HÓ fengið vinnu hjá öðr- um fyrirtækjum í bænum. Nú standa yfir viðræður á milii eigenda Hraðfrystihússins og fyrirtækisins Valeikar hf. í Reykjavík um framtíð frysti- hússins. Sýning í Deiglu SIGRÍÐUR Helga Hauksdóttir hönnuður opnar sýningu í Kaffi Karólínu í dag, laugardaginn 25. janúar k). 14. Á sýningunni eru olíumál- verk og leirmyndir. Þetta er fyrsta einkasýning Sigríðar Helgu, en hún hefur tekið þátt í samsýningum í útlöndum. Sýningin stendur í tvær vikur. HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands eystra tók alls 463 einkamál til meðferðar á liðnu ári. Samtals voru afgreidd 413 mál. Þetta eru nokkru færri einkamál en tekin voru til meðferðar við dóminn en árið á undan, þá voru þau 531 en 455 voru afgreidd. Ákærumál sem dómurinn tók til meðferðar voru 208 alls, þar af voru 172 nýjar ákærur teknar fyr- ir á árinu. Árið á undan voru ákærumálin samtals 231, þar af voru nýjar ákærur 201. Dómar féllu í 77 ákærumálum í fyrra en 86 árið á undan. ÞAÐ ER með ýmsu móti sem menn styrkja íþróttafélög. Félag- arnir Jón Ásgeirsson og Sigurð- ur Pétur Ingólfsson voru aðal- mennirnir i því að smiða sérstaka valsavél til að valsa harðfiskflök sem gefin var Knattspyrnudeild Leifturs, en ein af aðaltekjulind- Á liðnu ári voru 23 rannsóknar- úrskurðir kveðnir upp í Héraðs- dómi Norðurlands eystra, þar af voru 14 gæsluvarðhaldsúrskurðir og í 8 skipti var um húsleit að ræða, hún var heimiluð í 7 skipti en einni kröfu var hafnað. Um nokkra fjölgun er að ræða í þessum málaflokki, því árið á undan voru kveðnir upp 8 rannsóknarúrskurðir við dóminn, þar af voru fjórir vegna gæsluvarðhalds og tveir vegna húsleitar, tveir tengdust öðrum málum. Aðfararbeiðnir sem dómurinn tók til voru alls 122, þar af voru um deildarinnar hefur verið sala á harðfiski. Vélin hefur reynst mjög vel, en hún er sérlega vel hönnuð og að sjálfsögðu máluð í litum Leifturs, gulu og bláu. Gárungamir hafa nú á orði að félagarnir hafi gefið Leiftri einn „valsara". 114 þar sem fjárnám var heimilað. Beiðnir af þessu tagi árið á undan voru nokkru fleiri eða 177 samtals og snerust 170 þeirra um fjárnám, sem heimilað var í 167 tilvikum. 106 gjaldþrot Gjaldþrotaskiptamál sem voru til meðferðar við dóminn voru 106 á síðasta ári, 66 einstaklingar og 40 lögaðilar en voru 138 árið þar á undan, um var að ræða 97 ein- staklinga og 41 lögaðila. Úrskurð- ir sem kveðnir voru upp á liðnu ári voru 46 talsins en 56 árið á undan. BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur veitt heimild til átaks í krabba- meinsleit við Heilsugæslustöðina á Akureyri á næstu vikum, en áætl- aður kostnaður er um 200 þúsund krónur. Reglubundin krabbameinsleit var við Heilsugæslustöðina allt þar til í fyrra vor. Skert framlög til reksturs stöðvarinnar leiddu til þess að ýmissa leiða var leitað til að spara peninga, m.a. var krabba- meinsleit ekki tekin upp að nýju eftir sumarleyfi. Átak var gert síðla JÓNAS Ingimundarson heldur tón- leika í Glerárkirkju á Akureyri á mánudagskvöld, 27. janúar kl. 20.30. Á efnisskránni eru valsar, þrjú tónaljóð og sónata í B-dúr eftir Franz Schubert. Tónleikarnir eru Stikur á stefnu- vörum hækkaðar VEGAGERÐARMENN á Akur- eyri hafa að undanförnu verið að hækka stikur á stefnuvörum víðs vegar í Eyjafirði. Snjóruðn- ingsmenn eiga oft erfitt með sjá stefnuvarana (skiltin), sem lent hafa undir snjóskafli og með því að hækka stikurnar er verið að reyna bæta úr því og um leið _ að minnka Ijónið á skiltunum. I gær voru þeir Árni Þorvaldsson t.v. og Geir Guðmundsson á Drottningarbrautinni, við af- leggjarann að Akureyrarflug- velli og ætluðu svo áfram inn Eyjafjörðinn. árs, en þá var boðið upp á krabba- meinsleit við heilsugæslustöðina fimm miðvikudaga í nóvember og desember. Guðmundur Sigvaldason fram- kvæmdastjóri Heilsugæslustöðv- arinnar á Akureyri sagði æskileg- ast að krabbameinsleit stæði ávalit til boða, ýmist einn dag í viku eins og var eða tímabundið á hvetjum degi. „Við vonum að það verði þannig í framtíðinni, en ég fagna því að farið verður í þetta átak nú á næstu vikum," sagði Guðmundur. haldnir í minningu Schuberts, en 200 ár eru liðin frá fæðingu hans 31. janúar næstkomandi. Jónas mun spila á hinn nýja konsertflygil Tónlistarfélags Ak- ureyrar en það var einmitt hann sem veldi flygilinn. Morgunblaðið/Kristján Leiftur fékk „valsara“ Ólafsfirði. Morgunblaðið. > # Atak a næstunm í krabbameinsleit Jónas Ingimundarson leikur í Glerárkirkju

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.