Morgunblaðið - 25.01.1997, Síða 22

Morgunblaðið - 25.01.1997, Síða 22
I. LAUGARDAGUR 25. JANUAR 1997 UTI AÐ BORÐA MEÐ FRIÐRIK KARLSSYNI GÍTARLEIKARA Að hi/er tánn segi Friðrik segir mér í óspurðum fréttum að hann sé orðinn græn- metisæta. Hann leyfír sér þó að borða fisk af og til og þess vegna verð- ur Humarhúsið fyr- ir valinu. Hann er líka byrjaður að stunda jóga og seg- ir að það sé allt annað líf. Friðrik Karlsson er líklega sá tónlist- armaður íslenskur, sem hvað mestan frama hefur hlotið erlendis, að Björk Guðmundsdóttur undanskilinni. Er þá ekki eingöngu átt við fram- göngu hljómsveitarinnar Mezzo- forte á undanförnum árum heldur hefur Friðrik einn og sér tekið þátt í ýmsum áhugaverðum verkefnum sem athygli hafa vakáð. Hann hef- ur komið fram á tónleikum og í sjónvarpi með ekki ómerkari stór- stjörnum en tenórsöngvaranum José Carreras, leikið inn á hljóm- plötur með þekktum hljómsveitum og skemmtikröftum, lék meðal annars á gítar á mest seldu hljóm- plötu í Bretlandi fyrir þessi jól, Take Two, með leikurunum Rob- son og Jerome, auk þess sem hann hefur að undanfórnu leikið á sólógítar í uppfærslu á endurgerð- um söngleilóium Jesus Christ Superstar í West End í London. Fyrir írammistöðu sína þar hlaut hann afar lofsamlega dóma breskra tónlistargagnrýnenda í þarlendum blöðum. Þó er enn ótalið mesta afrek Friðriks á tónlistarsviðinu til þessa, það er gítarleikur hans í kvikmyndinni Evita, þar sem söngkonan Madonna fer með titil- hlutverkið. Friðrik ber þar hitann og þungann af gítarleiknum og er einn af sex tónlistarmönnum, sem nafngreindir eru á hljómplötunni og í nafnaskrá, sem kemur upp á tjaldið í lok myndarinnar. í ljósi þess að tónlistinni í myndinni er spáð Óskarsverðlaununum eftir- sóttu má öllum vera Ijóst, að hér er um mikla viðurkenningu að ræða og meiri frama en íslenskum Friðrik Karlsson lætur vel af dvölinni í London þar sem verkefnin hafa hlaðist upp að -------------------- undanförnu. I kvöldverðarspj alli við Svein Guðjóns- son segir hann með- al annars frá kynn- um sínum af Madonnu og spila- mennsku í kvik- myndinni Evitu. tónlistarmanni hefur áður hlotn- ast á erlendum vettvangi. Mönn- um hefur verið boðið í mat af minna tilefni. Friðrik ákveður að slaka örlítið á grænmetislífsstíln- um þetta kvöld og pantar í forrétt ekta franska gæsalifur, „Foie Gras“. Þetta bragðast afskap- lega vel með Cum- berland sósu. Frið- rik kveðst hafa ákveðið að breyta um mataræði og fara í jóga þegar verkefnin tóku að hlaðast upp í London. „Jógaiðkunin hefur reynst mér ákaflega vel og nú get ég ekki án hennar verið. Jógalífsspekin hjálp- ar mönnum einnig að slaka á og hún hefur auðveldað mér að skipu- leggja tíma minn og losað mig við ýmis ytri áreiti, sem voru að pirra mig áður,“ segir hann. Auðmjúhur Carrerus En hver voru tildrög þess að Friðrik flutti búferlum til London og fékk hið viðamikla verkefni í kvikmyndinni Evitu? „Upphafið má rekja til þess að ég kynntist upptökustjóranum Nigel Wright þegar hann tók upp Mezzoforte-plötuna „No Lirnits". Eftir það fór hann að fá mig í ýmis verkefni og ég flaug þá til London og vann við ýmislegt, spilaði meðal annars á öllum plötum hljómsveit- arinnar Shakatac hin seinni ári. Einnig spilaði ég á einstaka tón- leikum og kom fram í sjónvarps- þáttum...“ - Þú spilaðir meðal annars með stórsöngvaran um José Carreras. Hvernig upplifun var það? „Það var í sjón- varpsþætti, sem tekin var upp beint, og maður var auðvitað skít- hræddur til að Uppskrift7n GriHhumar HUMARINN ER TEKINN ÚR SKELINNI OG GARNHREINS- AÐUR. A HUMARINN ER SETT: RASPUR, SALT, PIP- AR, HVÍTLAUKSSMJÖR OG HVÍTVÍN. SÍDAN ELDADUR UNDIR GRILLI ÞAR TIL HANN ER ORÐINN STINNUR. BORIÐ FRAM MED SÍTRÓNU, SALATI OG HVÍT- LAUKSBRAUÐI. Cumber- landsása með gæsalifur f CUMBERLANDSÓSU ER: RIFSBERJAHLAUP, PORT- VÍN, SAFI AF APPELSÍNU OG SÍTRÓNU, SINNEP OG PAPRIKA. BÖRKURINN AF APPELSÍNUNNI OG SfTRÓN- UNNI FÍNSKORINN OG SETTUR ÚT i. VIKU m fP$l§m i mm % ' TT'TT ; \ / :2... , •'•• ,\ £*&'••• Morgunblaðið/Golli FRIÐRIK Karlsson lét vel af grillsteikta humrinum þótt hann sé nú orðinn grænmetisæta. byrja með, en svo kom í ljós að maðurinn var ekkert nema auð- mýktin og almennilegheitin og þetta gekk allt eins og í sögu. Það kom mér á óvart hversu Carreras var í raun þægilegur og laus við alla stjömukomplexa því yfirleitt eru tenórar afskaplega montnir og sjálfumglaðir menn.“ Friðrik brosir að þessari fullyrð- ingu og heldur svo áíram: „Vinnan í Londn var orðin svo mikil að Nigel stakk upp á því að ég flytti út, sem ég gerði í mars í fyrra. Það reyndist mjög skynsamleg ráðstöfun því ég hef haft meira en nóg að gera síðan. Nigel hefur notað mig mikið í því sem hann er að gera, en hann er mjög virtur á sínu sviði og í góðum samböndum. Hann hefur meðal annars annast alla tónlistarstjóm á verkum Andrew Lloyd Webber og þannig atvikaðist það að ég var fenginn til að spila í uppfærslunni á Superstar, en sýningar á því hafa farið upp í átta á viku og ekkert lát á aðsókninni." - Ogsvo varþað Evita...? „Já, það verkefni kom í gegnum Nigel og reyndar var ég byrjaður að vinna við það áður en ég flutti út. Það er ótrúlega mikil vinna á bak við svona kvikmyndatónlist. Eg byrjaði að vinna við þetta í október 1995 og þurfti svo að fara til Los Angeles á lokasprettinum núna í haust til að ganga frá upp- tökunum. Þetta hefur verið krefj- andi, en um leið mjög skemmtileg vinna og viðamesta verkefni sem ég hef fengist við til þessa.“ Prímadannan Madnnna - Hittir þú Madonnu í eigin per- sónu? „Já, og mótleikara hennar, Ant- onio Banderas. Þau komu bæði í hljóðverið í London og þá kom strax í ljós hversu mikO príma- donna hún er. Hún byrjaði á því að setja út á það sem við vomm að gera, svona rétt til að sýna okkur hver það væri sem réði, en síðan róaðist hún og fór að hrósa okkur. Banderas var hins vegar gjörólík- ur persónuleiki, ekkert nema auð- mýktin og var alltaf að afsaka sig með því að hann gæti ekkert sung- ið. En staðreyndin er samt sú að hann er stórgóður söngvari. / ' • \\. I- • J;4»' . , |T • . \ "M’íLj -»*■ # % T j MORGUNBLAÐIÐ Madonna virtist vera nokkuð ánægð með mína spOamennsku og hún kallaði mig „Frizzy“ sem er raunar það nafn sem notað er í nafnalistanum í kvikmyndinni. Hún fékk mig tU að koma fram með sér í sjónvarpsþættinum Top of the Pops á BBC-sjónvarpsstöð- inni. Gulli Briem var einnig með í þessari útsendingu og þetta var skemmtileg reynsla. En mesta við- urkenningin sem ég hlaut þó af hálfu Madonnu var í sambandi við byrjunarlag kvikmyndarinnar Evitu. Stjórnandi myndarinnar, Alan Parker, vildi að heimsfrægur gítarleikari spilaði það, svona tO að vekja meiri athygli á myndinni og var Eric Clapton nefndur tO sög- unnar. En hann kom því ekki við og þá var blúsgítarleikarinn Garry Moore fenginn til þess. Ég hafði einnig fengið að spreyta mig á þessu og þegar Garry hafði spOað sitt heimtaði Madonna að mín upp- taka yrði notuð, þar sem hún væri betri, að hennar mati. En vegna samnings, sem undirritaður hafði verið við Garry Moore, varð niður- staðan sú að upptökur okkar beggja voru notaðar. Þetta er lík- lega mesta viðurkenning sem mér hefur hlotnast um ævina.“ Marvin, Claptan ag Al OIMeala - Þú nefndir þarna Eric Clapton, hefur þú orðið fyrir áhrif- um frá honum? „Ég hlustaði auðvitað mikið á hann og Jimi Hendrix sem krakki, en ef ég ætti að nefna einhvern einn gítarleikara öðrum fremur, sem hefur haft áhrif á mig, þá er það A1 DiMeola. Á tímabOi fannst mér til dæmis ekkert varið í það sem Clapton var að gera, en mér hefur nú í seinni tíð líkað það sífellt betur. Það er meiri tilfinning í spOamennsku hans nú og það sýnir bara að hljóðfæraleikarar geta skánað með aldrinum, eins og sum vín.“ - Hvað fínnst þér um Hank Mar- vin? „Það besta við Marvin er auðvit- að hversu „orginal" hann var alla tíð og tónninn hans er auðvitað al- veg sér á parti. En í rauninni var hann upp á sitt besta „fyrir mína tíð“. En þar sem við vorum að tala um Clapton og það hversu vel hann hefur elst þá langar mig til að bæta því við, að ég er ekki frá því að ég hafi einnig skánað með aldr- inum. Hér áður fyrr stefndi ég að því að verða heimsmeistari í hraða, tækni og fingralipurð, en nú legg ég áherslu á að spila færri tóna og að hver tónn segi meira. Þannig skOur hver tónn meira eftir sig og best væri auðvitað ef maður þyrfti ekki að spila nema einn tón, sem segði allt sem segja þarf.“ Það er komið að því að panta að- alréttinn og eftir vandlega um- hugsun erum við sammála um að grillaðir humarhalar í hvítvíni og hvítlaukssmjöri, Ibornir fram með fersku salati og brauði, freisti okkar mest af fjölbreyttum matseðli hússins. Með þessu pönt- um við flösku af hvítvíni frá Nýja- MEÐ stórstjörnunni Madonnu í sjónvarpsþættinum „Top of the Pops“ á BBC Prentun af VHS myndbandi/Saga Film

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.