Morgunblaðið - 25.01.1997, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1997 27
Dregið í áramótagetraun og
fomasagnagetraun Morgunblaðsins
FJÖLDI lausna barst í áramótagetraun og fornsagnagetraun
Morgunblaðsins. Áramótagetraunin skiptist í barnaget-aun,
unglingagetraun og fullorðinsgetraun. Veitt eru þrenn verðlaun
fyrir hvern flokk í áramótagetraun og ein glæsileg verðlaun í
fornsagnagetraun. Morgunblaðið þakkar lesendum sínum góða
þátttöku í getraununum. Eftirtalin nöfn voru dregin úr innsend-
um lausnum:
ÁRAMÓTAGETRAUN
Barnagetraun
1. Pétur Jónsson, 10 ára, Gljúf-
raseli 5, 109 Reykjavík. Vöruút-
tekt frá Nike-búðinni Frísport á
Laugavegi 6 að andvirði 20.000
kr.
2. Anna Guðbjört Sveinsdóttir,
10 ára, Heiðmörk 60, 810 Hvera-
gerði. Vöruúttekt frá versluninni
Genus í Kringlunni að andvirði
10.000 kr.
3. Birna Guðrún Einarsdóttir,
7 ára, Suðurhvammi 7, 220
Hafnarfjörður. Bækur að eigin
vali frá Vöku-Helgafelli að and-
virði 5.000 kr.
Unglingagetraun
1. Sverrir Hrafn Steindórsson,
12 ára, Lónabraut 37, 690
Vopnafjörður. Fataúttekt að eig-
in vali frá versluninni Deres að
andvirði 20.000 kr.
2. Inga Þóra Ingvarsdóttir, 17
ára, Holtsgötu 41, 101 Reykja-
vík. Geislaplötur að eigin vali frá
Skífunni að andvirði 10.000 kr.
3. Ágúst R. Einarsson, 13 ára,
Hafnarbraut 15, 780 Höfn. Bæk-
ur að eigin vali frá Vöku-Helga-
felli að andvirði 5.000 kr.
Fullorðinsgetraun
1. Aðalbjörg Björnsdóttir, 41
árs, Tungubakka 10, 109
Reykjavík. Vöruúttekt að eigin
vali frá versluninni Habitat að
andvirði 20.000 kr.
2. Sigurberg H. Daníelsson,
55 ára, Löngubrekku 25, 200
Kópavogur. Bækur að eigin vali
frá Vöku-Helgafelli að andvirði
10.000 kr.
3. Matthías Magnússon, 39 ára,
Hraunbæ 31, 110 Reykjavík.
Geislaplötur að eigin vali frá
Skífunni að andvirði 5.000 kr.
FORNASAGNAGETRAUN
Eyþór Benediktsson, 44 ára,
Tangagötu 13, 340 Stykkishólm-
ur. Heildarsafn íslendingasagn-
anna í útgáfu Fornritafélagsins,
sem Hið íslenska bókmenntafé-
lag hefur umboð fyrir, að and-
virði 75.000 kr.
Morgunblaðið/Ásdís
ELÍN Hrönn Káradóttir dregur út nöfn vinningshafa. Eins og sést á
myndinni bárust fjölmargar lausnir.
Rétt svör við ára-
mótagetraun o g
fornsagnagetraun
Svör við barnagetraun 5-11 ára
1. Eiginkona Ólafs Ragnars Grímssonar,
forseta íslands, heitir Guðrún Þorbergs-
dóttir.
2. Skeiðarárhlaupið í október kom úr
Vatnajökli.
3. Hjálmurinn kom oftast í veg fyrir
meiriháttar slys þegar börn lentu í umferð-
aróhöppum.
4. Fyrsta teiknimyndin í fullri lengd sem
unnin var eingöngu í tölvum heitir Leik-
fangasaga (Toy Story).
5. Aðalsöguhetjan í myndasögunni sem
hóf göngu sína í Daglegu lífi í Morgun-
blaðinu á árinu heitir Egill.
6. Snákar voru á meðal dýranna á sýn-
ingu sem fór um landið í vetur.
7. Hillary Clinton er kona Bandaríkjafor-
seta.
8. Gamli maðurinn í turninum í Kar-
demommubænum heitir Tóbías.
9. Vísindamenn telja sig hafa fundið merki
um líf á Mars.
10. Þjálfari íslenska landsliðsins í hand-
bolta heitir Þorbjörn Jensson.
11. Vala Flosadóttir á heimsmet ungl-
inga í stangarstökki.
Svör við unglingagetraun 12-17 ára
1. Söngkonan heimsfræga, sem varð móð-
ir 1996 og lék Evu Peron, heitir Madonna.
2. Séra Flóki Kristinsson var prestur í
Langholtskirkju.
3. Sólveig Guðmundsdóttir var kjörin
fegurðardrottning íslands á árinu.
4. Uppselt var á allar sýningar á Stone
Free í Borgarleikhúsinu.
5. Damon Albarn dvaldi á íslandi í fyrra-
sumar við upptökur og hélt einnig tónleika.
6. Það var dagblvðið Dagur-Tíminn sem
leit dagsins ljós á árinu.
7. Nýkjörinn forseti íslands ólst upp á
Þingeyri.
8. Stöð 2 varð tíu ára í fyrrahaust.
9. Hinn nýi formaður Álþýðuflokksins
heitir Sighvatur Björgvinsson.
10. Samkynhneigðir öðluðust rétt til að
skrá sig í sambúð á árinu.
11. Nýi geisladiskurinn hennar Emelíönu
Torrini heitir Merman.
12. Danski prinsinn sem kom til Islands
í sumar heitir Friðrik.
13. Þjálfara íslands- og bikarmeistara
Akraness, Guðjóni Þórðarsyni, var vikið
úr starfi á árinu.
14. Vanda Sigurgeirsdóttir tók við
kvennalandsliðinu í knattspyrnu á árinu.
15. Rúnar Alexandersson varð Norður-
landameistari í æfingum á bogahesti.
16. Fyrrum heimsmeistari í þungavigt
hnefaleika, Muhammed Ali, tendraði
Ólympíueldinn við setningu Ólympíuleik-
anna í sumar.
Svör við fullorðinsgetraun
18áraog eldri
1. Fjölbýlishús rís á umdeildri lóð við
Kirkjusand.
2. Varnarliðsmenn skiptu um númeraplöt-
ur vegna þess að bílar sérmerktir varn-
arliðinu urðu fyrir barðinu á skemmd-
arvörgum.
3. Þegar talað var um að síldin hefði synt
hraðar en embættismenn væntu, var átt
við að það hefði komið Norðmönnum í
opna skjöldu hve hratt norsk-íslenska
síldin gekk inn í norska lögsögu við
Jan Mayen.
4. Menntaskólinn í Reykjavík varð 150
ára árið 1996.
5. Bíllinn svífur í lausu lofti vegna þess
að Umferðarráð og tryggingafélögin
létu hann falla til jarðar til að sýna
afleiðingar þess ef bíl er ekið á stein-
vegg á 90 km hraða.
6. Islenskir lögreglumenn á Ólympíuleik-
unum i Atlanta voru óánægðir vegna þess
að þeir gistu í skóla í svo hættulegu
hverfi borgarinnar að sjálfir þurftu
þeir öryggisgæslu.
7. Nýtt leikhús, þar sem leikritið Orm-
stunga er sýnt, heitir Skemmtihúsið og
reis í garði leikaranna Erlings Gísla-
sonar og Brynju Benediktsdóttur.
8. Skýringin á því hvers vegna umsóknir
um leigu á sumarhúsum verkalýðsfélaga
voru eins fáar og raun bar vitni er talin
vera sú að Islendingar flykktust til út-
landa.
9. Borís Jeltsín Rússlandsforseti gekkst
undir hjartaaðgerð í nóvember sl.
10. Jack Kemp var varaforsetaefni Bob
Dole í bandarísku forsetakosningunum.
11. Konan sem „gafst upp og borðaði
hafragraut barnanna“ var fyrrverandi
barnfóstra á heimili Netanyahus, for-
sætisráðherra ísraels, en hún sagði
hann og konu hans spör á mat.
12. Stúlkan á myndinni er að skoða hita-
beltisfiðrildi sem klöktust út á Nýlista-
safninu.
13. íbúar á Hellu efndu til mótmæla við
verslun á staðnum, því hún seldi brauð
frá Þorlákshöfn og höfðu íbúar Hellu
áhyggjur af atvinnu bakarans á staðn-
um.
14. Breska rokkstjarnan David Bowie
hélt tónleika í Laugardalshöll á árinu.
15. Söngvarar úr Stone Free eru um-
kringdir 2.400 sleikipinnum.
16. Rannveig Rist tók við af Christian
Roth, sem forstjóri álversins í Straumsvík
um áramótin.
17. Mennirnir tveir sem buðu sig fram í
formannskjöri Alþýðuflokksins heita Guð-
mundur Árni Stefánsson og Sighvatur
Björgvinsson.
18. Gestirnir í heita potti Bryndísar
Schram voru kvikmyndaleikstjórinn
Mika Kaurismaki og eiginkona hans,
Pia Tikka.
19. Steinninn sem fannst í garði við Tjarn-
argötu reyndist vera legsteinn frá 19.
öld.
20. Mikið var rætt um Almannagjá á Þing-
völlum eftir að breskt auglýsingafyrir-
tæki fékk heimild til að taka upp aug-
lýsingar í gjánni.
21. Ekkert hafði spurst til kaþólska bisk-
upsins af Argyll fyrr en hann sagði af
sér embætti og tók saman við þriggja
barna móður sem hann hafði hjálpað
í gegnum erfiðan skilnað.
22. Tilefni myndatökunnar var svokallað-
ur skátalífsdagur skátafélaganna í
Reykjavík í Laugardal.
23. Maður sem sótti um heimild til inn-
flutnings á strútseggjum sakaði yfir-
dýralækni um seinagang.
24. Nær tvö hundruð kannabisplöntur
fundust í kirkjugarðinum í Hafnarfirði.
25. í æviminningum Riitu Uosukaienen,
forseta finnska þingsins, vöktu mesta
atygli berorðar lýsingar á ástarlífi
hennar og eiginmannsins.
26. Er Guðrún Arnardóttir setti íslands-
met í 400 m grindahlaupi í Atlanta í sum-
ar voru 20 ár liðin frá því að Ágúst Ás-
geirsson setti Islandsmet í Montreal.
27. Englendingurinn Alan Shearer varð
markakóngur Evrópukeppni landsliða í
knattspyrnu.
28. Á1 Oerter, kringlukastari frá
Bandaríkjunum, varð fyrstur manna til
að vinna gullverðlaun í sömu grein á fjórðu
Ólympíuleikunum í röð.
29. í leikskrá Lengjunnar var haft eftir
Eyjamönnum að best væri að tapa fyrir
ÍÁ til að komast í Evrópukeppnina og
voru þeir að vonum afar óhressir með
þessi skrif.
30. Vátryggingafélag íslands hf. keypti
Fjárfestingafélagið Skandia hf. og Vá-
tryggingafélagið Skandia hf.
31. Utgerð Íslenskra sjávarafurða í Rúss-
landi er á Kamtsjatkaskaga.
32. Verslunarmiðstöðin Borgarkringlan
var sameinuð Kringlunni.
Svör við fornsagnagetraun
I. Urðarköttur fékk síðar nafnið Finn-
bogi.
II. Höfundur er ókunnur að vísunni um
þann sem hékk vindga meiði á.
III. Frásögnin af Hrappi var úr Laxdæla
sögu.
IV. Það var Sighvatur Þórðarson sem
orti Ungr, var eg með þér, þengill.
V. Gretti Ásmundarsyni var sagt að
vera stilltur þegar þeir bræður Þorgeir
og Þormóður kæmu í heimsókn.
VI. Það var Þormóður Bessason sem
orti Undrast öglis landa eik.
VII. Frásögnin af vígi Brodd-Helga á
Svarti var úr Vopnfirðinga sögu.
VIII. Höfundur kvæðisins um hina björtu
ísoddi er ókunnur.