Morgunblaðið - 25.01.1997, Síða 56
56 LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MYNDBÖIMD/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
PRICE sem Yaldemar risinn upp frá dauðum hræðir bókstaf-
lega líftóruna úr Basil Rathbone í „The Case of M. Valdemar.“
VINCENT Price í hlutverki Prosperos prins
í „The Masque of the Red Death“.
Heyra B-mynd-
ir sögnnni til?
SVO BREGÐAST krosstré
sem önnur tré. Roger Cor-
man, framleiðandi og leik-
stjóri, sem uppgötvaði
stjörnur á borð við Jack Nicholson
og Francis Ford Coppola, sagði
nýlega í viðtali við The New York
Post að dagar B-mynda væru liðn-
ir. Stór orð þegar það er haft í
huga að Corman hefur stundum
verið nefndur konungur B-mynda.
„Áður fyrr gat ég gert myndir
með mjög litlum tilkostnaði á afar
skömmum tíma. Það þykir ekki
lengur boðlegt,“ segir Corman. Þá
skírskotar hann til mynda frá
sjötta og sjöunda áratugnum sem
voru nánast með engri leikmynd,
fámennu tökuliði og öldungis
óþekktum leikurum. Svokallaðra
B-mynda. „Þær heyra sögunni til,“
segir Corman. „Áhorfendur vilja
fá meira fyrir sinn snúð.“
Hann segir að þótt kvikmyndir
sem fari beint á myndbandaleigur
séu oftast nær flokkaðar sem B-
myndir, séu þær orðnar mun dýr-
ari í framleiðslu og betri en áður.
Hann nefnir sem dæmi myndina
„Carnosaur 3: Primal Species“
sem fjallar um trylltar risaeðlur.
Þótt hún sé framleidd fyrir einn
hundraðasta af þeim fjármunum
sem fóru í Jurassic Park séu
tæknibrellurnar alls ekki ósann-
færandi.
Hryllingur inn
keyrir úr hófi fram
Ekki eru allir á einu máli um
það hvernig eigi að skilgreina B-
mynd, hvort flokkunin fari eftir
gæðum eða fjármunum sem í hana
er varið. Corman hefur aldrei ver-
ið þekktur fyrir að setja háar
gæðakröfur. Hvað fjármuni varðar
kennir hann stóru kvikmyndaver-
unum um að hafa valdið byltingu
í gerð B-mynda með þeim miklu
fjármunum sem þau hafi haft úr
að moða. Það hafi pínt hann til
að leggja meiri fjármuni í sína
framleiðslu til að hrista af sér
B-mynda stimpilinn.
Að svo komnu máli nefnir Cor-
man myndina „Overdrive" sem
dæmi. Hún kostaði 120 milljónir
króna í framleiðslu, sem er nokkuð
hár kostnaður ef miðað er við það
sem Corman leggur venjulega í
myndir sínar. Stór hluti fjármun-
anna fór í tökur á hraðaksturs-
atriðum. „Hasarinn hefur aukist í
hasarmyndum,“ segir Corman.
„Áhorfendur gerðu ekki kröfur um
svona mikinn hasar á sjöunda ára-
tugnum. Núna verður hryllingur-
inn að keyra úr hófi fram.“
Meiri nekt en áður
Corman rifjar upp að þegar
hann hafi unnið með Vincent Price
að myndum eftir sögum Edgars
Allans Poes hafi hryllingurinn leg-
ið í handritinu. „Núna þurfa áhorf-
endur að sjá hryllinginn, sem er
skref afturábak að mínu mati.
Listin við hrollvekjur felst í að
nálgast hryllinginn óbeint. Hið
sama gildir um kynlífsatriði. Nekt-
aratriðum er troðið inn í myndir
þar sem engin nektaratriði voru á
sjötta og sjöunda áratugnum."
En hversu miklar kröfur er
hægt að gera til B-mynda? Blaða-
maður New York Post veltir því
upp í lokin að myndbandaleigur
virðast leggja æ meiri áherslu á
að bjóða upp á allar helstu stór-
myndirnar í stað þess að auka
úrvalið. Við það heltist margar
smærri myndir úr lestinni, for-
föllnum myndbandaáhugamönn-
um til sárra vonbrigða.
Endalaus
barátta við
vindmyllur
► STAÐIÐ hefur til að gera
kvikmyndina „Don Quixote"
í langan tíma, en það hefur
klúðrast átta sinnum. Nú síð-
ast áttu Robin Williams og
John Cleese að leika í mynd-
inni undir leikstjórn Fred
Schepisi og tökur að hefjast
á Spáni í vor. Phoenix Pictur-
es átti að framleiða myndina,
en hefur nú hætt við vegna
þess að kostnaðaráætiunin
var komin yfir fjóra millj-
arða króna. Á meðal þeirra
sem orðaðir hafa verið við
myndina í gegnum tíðina eru
Richard Burton, Buddy Hac-
kett og Sean Connery. Will-
iams hefur lengi haft hug á
því að leika í myndinni, en
það virðist vera endalaus
barátta við vindmyllur.
Evita aldrei
vinsælli
VINSÆLDIR Evitu virðast
ekki hafa komið bókaútgef-
endum í opna skjöldu.
ÞRÁTT fyrir að Eva Perón hafi verið látin í 44
ár hefur hún líkast til sjaldan eða aldrei verið
vinsælli en um þessar mundir. Vafalaust er það
fyrst og fremst kvikmynd Alans Parkers að þakka
sem hefur fengið frábæra dóma og vann nýverið
til þriggja Golden Globe-verðlauna.
Myndin þykir ekki einungis vel heppnuð heldur
þykir söngkonan umdeilda Madonna hafa fengið
uppreisn æru og unnið leiksigur í hlutverki forset-
afrúarinnar. Svo virðist sem útgefendur hafi verið
við öllu búnir, því núna á skömmum tíma hafa ver-
ið gefnar út a.m.k. sex bækur um forsetafrúna.
Skyggnst bakvið tjöldin
Ber þar fyrst að nefna bókina „The Making of
Evita“ eftir Alan Parker, þar sem skyggnst er bak
við tjöldin við gerð myndarinnar.
Bókin „In My Own Words“ eftir Evu Perón er
tilfinningaþrungin málsvörn fyrir Juan Perón, sem
Eva skrifaði skömmu áður en hún lést úr krabba-
meini aðeins 33 ára.
„Evita: First Lady“ er skrifuð af John Barnes.
Um er að ræða endurútgáfu frá 1978 sem lýsir Evu
Perón sem slóttugum framapotara.
Bókin „Evita: The Real Life of Eva Perón“ eftir
Nicholas Fraser og Marysu Navarro kom fyrst út
árið 1980. Þar er ráðist gegn fordómum gagnvart
Evitu og sökinni skellt á Juan, sem á að hafa not-
fært sér vinsældir eiginkonu sinnar til að stjórna
landinu.
Að síðustu kom út bókin „Santa Evita“ eftir Tom-
ás Eloy Martinez. Um er að ræða skáldsögu sem
fjallar um það þegar líki Evitu er rænt af hernum
og smyglað úr landi.
Hálsbindið
sem hvarf
ÝMISLEGT getur farið
úrskeiðis við gerð kvik-
mynda, enda er flýtirinn oft
mikill við að ljúka tökum og
halda áætlun. Sem dæmi má
nefna að Harrison Ford opn-
ar sömu skrifborðsskúffuna
tvisvar í „Clear and Present
Danger“, hálsbindi Jacks
Nicholsons gufar upp í „A
Few Good Men“, skotgöt
hverfa úr bílrúðu og tvær
bifreiðar mætast á einni
akrein án þess að víkja til
hliðar í Twister. Um þetta
og fleiri mistök í kvikmynd-
um má fræðast á slóðinni:
„http://www.aros.net-
/*davej/welcome.htm“.
Bruce Willis
í Cannes
► KVIKMYNDIN „The
Fifth Element“, sem leik-
stýrt er af Luc Besson, verð-
ur opnunarmynd fimmtug-
ustu Cannes-hátíðarinnar.
Bruce Willis fer með aðal-
hlutverk í myndinni, sem er
talin hafa kostað um sex
milljarða króna í fram-
leiðslu.
August opnar
hátíðina
í Berlín
KVIKMYNDAHÁTÍÐIN í
Berlín sem hefst 13. febrúar
verður opnuð á myndinni
„Smilla’s Sense of Snow“
sem leikstýrt er af danska
leikstjóranum Bille August.
Einnig mun danska myndin
„0en i fuglegaden" sem
leikstýrt er af Soren Kragh
Jacobsen keppa á hátíðinni.
Þrjár breskar kvikmyndir
verða sýndar í Berlín, eða
„The English Patient",
„Twin Town“ og „In Love
and War“. Franska myndin
„Lucie Aubrac", sem fjallar
um konu sem barðist í
frönsku andspyrnuhreyf-
ingunni, verður einnig sýnd.
Eina þýska myndin sem
tilkynnt hefur verið fram að
þessu er „Das Leben ist eine
Baustelle", sem leikstýrt er
af Wolfgang Becker. Um er
að ræða ljúfsára gaman-
mynd sem fjallar um leit
Berlínarbúa að sjálfum sér.
>
KSpborgcir sig að hafa hraðann á
og gera góð kaup. A þessari útsölu eru efni
og áhöld til að fegra heimilið —"ódýr.
VERSLUN MEÐ VEGG- OG GÓLFEFNI
VEGGFOÐRARINN
EINAR ÞORVARÐARSON & CO HF
FAXAFEN 10 SÍMI: 568 7171
SÖLUSTAÐIR U M ALLT LAND