Morgunblaðið - 18.02.1997, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 23
ERLENT
Reuter
Lebed í París
ALEKSANDER Lebed, fyrrver-
andi öryggismálaráðgjafi Borís
Jeltsíns Rússlandsforseta, fór í
fimm daga heimsókn til Frakk-
lands á sunnudag og spáði því
að rússneska stjórnkerfið
myndi hrynja innan árs ef Jelts-
ín yrði áfram við völd. Hann
kvaðst búast við því að efnt
yrði til forsetakosninga á árinu
og neitaði því að hann kynni
að reyna að steypa stjórninni í
valdaráni.
Lebed horfir hér í sjónauka á
þriðju hæð Eiffel-turnsins í Par-
ís.
Sænskur hallar-
vörður
Skaut á fé-
laga sína
Stokkhólmi. Reuter.
SÆNSKUR hermaður skaut á
félaga sína fyrir utan konungs-
höllina í Stokkhólmi á sunnudag
og særði tvo með sömu kúlunni.
Atburðurinn átti sér stað rétt
áður en skipt var um verði við
konungshöllina. Mjög kalt var
í veðri og því voru óvenju fáir
viðstaddir.
Vitni segja, að hermaðurinn
hafi skyndilega miðað byssu
sinni á hóp hermanna, sem
nálgaðist vegna vaktaskipt-
anna, og hleypt af. Fór kúlan
í gegnum þjóhnapp á foringja
fiokksins og síðan í fótinn á
öðrum hermanni. Særðist hvor-
ugur alvarlega.
Hermaðurinn var handtekinn
en Johan Medin, foringi hallar-
varðanna, sagði fréttamönnum,
að byssa hermannsins hefði alls
ekki átt að vera hlaðin þar sem
aðeins væri um að ræða gamlan
og táknrænan sið en sænska
konungsfjölskyldan býr ekki í
höllinni í Stokkhólmi.
Annar fóturinn
tekinn af Uday?
Amman, Reuter.
EINN talsmanna stjórnarand-
stöðunnar í írak sagði í gær, að
þrír kúbverskir læknar Udays,
sonar Saddam Husseins íraks-
forseta, hefðu lagt til, að annar
fóturinn yrði tekinn af honum
við hné.
Haroun Mohammad, talsmaður
írösku þjóðarsáttarinnar, sagði í
Amman í Jórdaníu, að annað hnéð
hefði mölvast í sundur þegar reynt
var að ráða Uday af dögum fýrir
tveimur mánuðum.
„Læknamir lögðu til, að
fóturinn yrði tekinn af við hné
og virðast nú bíða eftir að Sadd-
am taki ákvörðun,“ sagði Mo-
hammad.
íraskir og franskir læknar
hafa annast Uday auk Kúbverj-
anna en Mohammad sagði, að
þeir hefðu komið til íraks frá
Iran. íraska sjónvarpið hefur
sýnt myndir af Uday í hjólastól
og hann hreyfði hendur og höfuð
en margt bendir til, að hann sé
lamaður að einhverju leyti að
minnsta kosti.
Toppurinn
í þeim amerísku!
Sérkannaáir eftir Jjínum jicVrfu m
Amana er í fremstu röð framleiáenda frysti- og kæliskápa
{ Bandaríkjunum. Otal innréttingar lrjóáast, val er um
stál-, spegil- og viáaráferá eáa næstum kvaáa lit sem er.
1 Amana er sérstakt kólf [lar sem mjólkin kelst ísköld.
ana 30 ára reynsla á íslandi!
blabib
-kjarni málsins!
E S S () l. œ kj u rg ö t u , // u fn u r fi r Ö i
Þarfir viðskiptavina ráða því hvaða
vörur fást á ESSO stöðvunum. Ef þú
ætlar að gera þér dagamun færðu þar
alls konar snarl og góðgæti að
ógleymdum vörum sem stuðla
að öryggi manns eða bfls.
[Essqj
Olíufélagið hf