Morgunblaðið - 06.03.1997, Side 1
80 SÍÐUR B/C
54. TBL. 85. ARG.
FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
_ ____
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, vann björgunarafrek þegar þýska
flutningaskipið Vikartindur strandaði í gærkvöldi skammt austan Þjórsáróss
Morgunblaðið/RAX
HÉR má sjá yfir flutningaskipið Vikartind síðdegis í gær í átt til lands þar sem brimið brotnar á grynningunum við sandinn. Akkerisfestarnar eru strekktar á myndinni,
en nokkru síðar gáfu þær sig og skipið rak hratt undan 8-9 stiga vindi upp í fjöruna austan við Þjórsárós þar sem björgunarsveitarmenn biðu tilbúnir.
19 bjargað en varð-
skipsmanns saknað
NÍTJÁN skipbrotsmenn af þýska
flutningaskipinu Vikartindi björg-
uðust giftusamlega um borð í þyrlu
Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, eftir
að skipið strandaði skammt frá
Þjórsárósi um klukkan 20.30 í gær-
kvöldi.
Rak á land á örfáum mínútum
Skömmu áður hafði varðskipið
Ægir gert tvær árangurslausar til-
raunir til að koma dráttartaug í skip-
ið þar sem það iá vélarvana fyrir
akkerum um tvo kílómetra frá landi.
Varðskipið varð fyrir broti í seinni
tilrauninni, með þeim afleiðingum að
skipveiji á Ægi féll fyrir borð. Hans
er nú saknað. Skemmdir á Ægi
reyndust minni en talið var í fyrstu
og hélt skipið sjó í gærkvöldi og nótt,
meðan beðið var þess að veður lægði.
Aðstæður voru afar erfiðar á
strandstað og gekk á með vindhvið-
um og hvössu hagléli, þegar TF-LÍF
kom á strandstað, skömmu eftir að
akkerisfestar Vikartinds slitnuðu
með þeim afleiðingum að skipið rak
upp í land á örfáum mínútum, að
sögn sjónarvotta.
Svo slæmt var veðrið að björgun-
armenn í landi sáu ekki þegar skip-
veijarnir voru hífðir um borð, þótt
skipið væri aðeins 100-150 metrum
frá iandi. Þyrlur varnarliðsins voru
kallaðar til aðstoðar en komust ekki
á loft vegna ofsaveðurs.
Tæplega hálftíma tók að hífa alla
áhöfnina um borð í þyrluna. Voru
skipbrotsmennirnir 19 fluttir í land
í einni ferð. Benóný Ásgrímsson
flugstjóri á TF-LÍF segir að hagstæð
vindátt hafi verið til hjálpar við
björgunina
Helgi Hallvarðsson yfirmaður
gæsluframkvæmda hjá Landhelgis-
gæslunni segir um björgunarafrek
að ræða, enda hafi aðstæður verið
afar slæmar.
„Það er hæpið að björgunarsveitir
i landi hefðu komið mönnunum í
land án þyrlunnar, fyrr en skipið rak
að landi. Þyrlan sannaði sig með
glæsibrag," segir Jón Hermannsson
svæðisstjóri björgunaraðgerða á
sandinum.
Skipstjórinn hafnaði aðstoð
Aðalvél Vikartinds bilaði fyrir
hádegi í gær og barst tilkynning til
Landhelgisgæslunnar skömmu síð-
ar. Ægir var í um tveggja stunda
siglingu frá skipinu og hélt strax á
vettvang. Skipstjóri Vikartinds hafn-
aði hins vegar margsinnis ábending-
um Landhelgisgæslunnar um að
tímabært væri að óska aðstoðar
varðskipsins og segir Helgi það sæta
furðu.
Haukur M. Stefánsson forstöðu-
maður skiparekstrardeildar Eim-
skips, sem hefur haft skipið á leigu
um sjö mánaða skeið, segir það al-
farið hafa verið ákvörðun skipstjór-
ans að þiggja ekki aðstoð fyrr en á
áttunda tímanum í gærkvöldi og
hafi hann hvorki sinnt tilmælum
Eimskips né Landhelgisgæslunnar í
þá veru.
Mikið brim og veðurofsi var á
strandstað í gær og er skipið tekið
að láta undan sjógangi, að sögn
Jóns Hermannssonar. Gámar virtust
hins vegar ekki hafa losnað. Skipið
er 9.200 tonn að stærð og lestað
2.700 tonnum af innflutningsvörum.
Freista að bjarga
skipi og farmi
Yfirmaður flutningasviðs Eim-
skips sagði í gærkvöldi að útgerð
skipsins, þýska fyrirtækið Peter
Döhle, liefði sett sig í samband við
björgunarfyrirtæki og hygðist
freista þess að bjarga bæði skipi og
farmi hið fyrsta.
Yfirmenn Vikartinds eru þýskir
fyrir utan lestarstjóra sem er ís-
lenskur og fulltrúi Eimskips um
borð, en aðrir í áhöfn eru Filippsey-
ingar og Pólveijar. Skipið kom hing-
að frá Þýskalandi og Norðurlöndum,
með viðkomu í Færeyjum.
■ Björgunarafrek/4/6/60
Leit ekki bor-
ið árangur
BJÖRGUNARMENN gengu
ijörur í gærkvöldi og nótt í
leit að manninum sem féll út-
byrðis af Ægi.
Hann heitir Elías Örn Krist-
jánsson, þrítugur að aldri, og
starfaði sem bátsmaður.
Leitin hafði ekki borið
árangur um klukkan tvö í nótt.