Morgunblaðið - 06.03.1997, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 06.03.1997, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997 13 AKUREYRI Morgunblaðið/Kristján UMRÆÐUR um skólamál í bæjarstjórn Akureyrar drógu að sér áheyrendur en þeir komu einkum úr röðum kennara við Gagnfræðaskóla Akureyrar og foreldra barna í skólanum. Akureyri, Iðnskólinn á Akureyri hefði runnið inn í Verkmenntaskól- ann á Akureyri. „Þessar breytingar voru gerðar án þess að skólarnir töpuðu reisn sinni og virðingu." Skiptir mestu að vinna vel Sigríður Stefánsdóttir, Alþýðu- bandalagi, gerði í upphafi máls síns grein fyrir áliti sem hún hefði óskað eftir frá bæjarlögmanni, en hann hefði einnig leitað álits lögfræðinga í félagsmálaráðuneyti um hugsan- legt vanhæfi sitt í málinu, en skóla- stjóri Barnaskólans er mágur henn- ar. Fram kom í álitinu að ekki væri hægt að efast um hæfi hennar til að taka þátt í stefnumótandi umræðum í bæjarstjórn, en öðru máli gegndi á síðari stigum þegar fjallað yrði um ýmsa persónulega hagsmuni ákveðinna einstaklinga. Sagði Sigríður endalaust hægt að takast á um hvort kerfið væri betra, hverfisskólar eða safnskólar. Það væru til góðir og slæmir hverf- isskólar og sama gilti um safn- skóla. Rök væru með_ og á móti báðum skólagerðum. Ástæða þess að málið var tekið til athugunar var skortur á skólahúsnæði. Allar breytingar yllu einhverjum röskun- um, en það hefði lfka valdið sárs- auka hefðu engar breytingar verið gerðar. Nú skipti mestu að allir reyndu að vinna vel, til heilla fyrir nemendur, að byggt yrði upp en ekki rifið niður. Lagði Sigríður til við bæjarstjórn að þar sem vinnuheitið Brekkuskóli fyrir sameinaðan Gagnfræða- og Bamaskóla hefði farið fyrir bijóstið á mörgum yrði hætt að nota það og var það samþykkt á fundinum. Fjármunir festir í steinsteypu Valgerður Hrólfsdóttir, Sjálf- stæðisflokki, sagði faglegt og gott starf hafa verið unnið í skólanefnd og í fyrstu atrennu hefði hún tekið undir tillögu nefndarinnar. Mikið af nýjum upplýsingum hefði hins vegar borist og hún hefði fundið fyrir óöryggi meðal foreldra vegna fyrirhugaðra breytinga. Það væri því skoðun sín að betra væri að bíða dálítið með að taka ákvörðun, vinna málið betur. „Ég vil ekki láta taka allan bitann í einu,“ sagði Valgerður og benti einnig á að í kjölfar breytinganna yrðu miklir fjármunir festir í steinsteypu á sama tíma og peninga skorti til innra starfs í skólunum. Kostur að hafa tvö kerfi Þórarinn B. Jónsson, Sjálfstæðis- flokki, greiddi atkvæði á móti breyt- ingum á skólaskipan og sagðist eng- in rök hafa heyrt sem sannfærðu hann um að með þeim væri verið að bæta skólastefnu í bænum. Taldi hann óþarft að allir skólar bæjarins væru steyptir í sama mótið, það gæti haft sína kosti að hafa tvö kerfi. Þá efaðist Þórarinn um að það væri gott fyrir unglinga að stunda nám í skóla sem hefði einn bekk í árgangi og nemendur væru kannski rétt um 15 talsins eins og liti út fyrir að verða í Oddeyrarskóla. ur í söng. Konur í Eyjafirði eru hvattar til að mæta. Sérstök bæn verður að þessu sinni fyrir konum í Kóreu sem orðið hafa fyrir kúgun og áreitni og eiga sér sársauka- fulla fortíð. Sömu ritningakaflarn- ir eru lesnir hvarvetna í heiminum á næstum því 100 tungumálum. ♦ ♦ ♦------ Ameríka í Borgarbíói ÍTALSKA kvikmyndin Ameríka (La Amerika) verður sýnd á vegum Kvikmyndaklúbbs Akureyrar í Borgarbíói sunnudaginn 9. mars kl. 17 og mánudaginn 10. mars kl. 18.30. Kvikmyndin Ameríka var sýnd á Kvikmyndahátíð í Reykjavík í fyrra við góða aðsókn og hlaut hún góða dóma. Myndin gerist í Albaníu eftir fall Hoxha 1991 þeg- ar þetta ríki var ijúkandi rústir eftir fall einræðisherrans. Albanía lá því vel við höggi hvers kyns svikahrappa sem nýttu sér ástand- ið til að hafa fé út úr ítalska rík- inu undir yfirskini uppbyggingar. Alþjóðlegur bænadagur kvenna Snyrtivöruverslunin BYLGJAN Hamraborg 14a, Kópavogi, sími 564 2011 ALÞJÓÐLEGUR bænadagur kvenna verður haldinn á morgun, 7. mars um allan heim, en hann var fyrst haldinn fyrir 110 árum, 1887. Á Norðurlandi verða samkomur á bænadaginn í kirkjunni á Skaga- strönd, að Hnitbjörgum á Blöndu- ósi, í safnaðarheimilinu á Sauðár- króki, í safnaðarheimilinu á Siglu- firð( í Glerárkirkju á Akureyri og að Ásgarðsvegi 14 á Húsavík, en þær hefjast allar kl. 20.30. Á Akureyri bætist stöðugt í hóp þeirra kvenna sem taka þátt í að undirbúa daginn og koma þær úr ýmsum kristnum söfnuðum. Áhersla verður lögð á bæn og lof- gjörðarsöng. Hugleiðingar flytja Ann Merethe Jakobsen og Krist- jana Svavarsdóttir. Ömmukórinn syngur undir stjórn Sigríðar Schi- öth og Sara Helgadóttir leiðir kon- RUBINSTEIN Kynnum vorlitina í dag og ó morgun Skemmtileg snyrtibudda ásamt vöru fylgir þegar keyptir eru tveir eða fleiri litir úr nýju litalínunni. Komdu og fáðu prufu af nýja „Softwear" farðanum. FLÍSPEYSU- NÝJUNGAR 1980,- SERTILBOÐ VINNUSKYRTUR ÁÐUR1490r 895,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.