Morgunblaðið - 06.03.1997, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 06.03.1997, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Stj órnarherinn hörfaði eftir bardaga við albanska uppreisnarmenn Vestræn ríki reyna að stilla til friðar í Albaníu HERSVEIT albanska stjórnarhersins hörfaði í gær undan liði uppreisnar- manna eftir meiriháttar átök við borgina Sarande í suðurhluta Alb- aníu, skammt frá grísku landamær- unum. Stjómarandstæðingar höfðu tekið skriðdreka og önnur hergögn úr vopnabúri hersins. Tveir stjórnar- hermenn særðust en eftir bardagann óku uppreisnarmenn skriðdreka sigri hrósandi um götur Sarande. Evrópsk stjórnvöld og bandarísk hófu í gær tilraunirtil þess að lægja öldur í land- inu og koma í veg fyrir flóttamanna- straum til nágrannaríkja. Evrópusambandið (ESB) og Evr- ópuráðið freistuðu þess í gær að senda fulltrúa til viðræðna við Sali Berisha forseta og fulltrúa stjórnar- andstöðunnar í þeirri von að koma í kring viðræðum um pólitíska lausn. Lýðræðisvettvangurinn, samtök 11 stjórnarandstöðuflokka, hvatti til þess í gær, að erlend ríki sæju til þess að neyðarlögum yrði aflétt í Albaníu og frekari efnahags- og fjár- hagsaðstoð til landsins yrði stöðvuð þar til stjórn Berisha féllist á að koma í kring umtalsverðum pólitísk- um umbótum. Bandarísk stjómvöld fylgjast grannt með gangi mála í Albaníu en bandarískar hersveitir hafa enn ekki verið settar í viðbragðsstöðu til að sækja þangað um eitt þúsund banda- ríska borgara, að sögn Williams Co- hens vamarmálaráðherra Bandaríkj- anna. Bandarísk herskip em þó und- Reuter ALBANSKUR drengur vopnaður kalashnikov-riffli fylgist með liðsmönnum stjórnarandstöðunnar undirbúa varðstöðu við borgarmörk Sarande í suðurhluta Albaníu í gær. an ströndum landsins og hafa þau komið á stöðugu fjarskiptasambandi við bandaríska sendiherrann, Marisa Lino, i Tirana. Grannríki Albaníu óttast straum flóttamanna yfír landamærin vegna upplausnarástandsins í landinu. í gær stöðvaði ítölsk freigáta bát með 15 Albani á Adríahafí og sést hafði til annars úr flugvél. ítalska stjórnin kvaðst í gær reiðubúin að senda herl- ið til Albaníu til friðargæslustarfa. Lamberto Dini, forsætisráðherra, hafði eftir hinum albanska starfs- bróður sínum, Tritan Shehu, að þijár borgir, Vlore, Sarande og Delvine, væm „stjórnlausar með öllu“. Miranda Vickers, höfundur tveggja fræðibóka um Albar.íu, sagði í grein í breska blaðinu Guardian í gær, að það hefðu verið mistök Evr- ópuríkja að eiga samstarf við Berisha eins og hann væri tákn stöðugleika og umbóta. Nær hefði verið að krefj- ast pólitískra breytinga og umbóta. Bandaríska blaðið New York Times sagði að hætta bæri allri vestrænni aðstoð við Albaníu þar til Berisha hefði hafið sáttaumleitanir í stað harðstjómar og kúgunar. ALOE VERA gelið frá JASON einkennist af því AÐ ÞAÐ ER HVORKI GULT, RAUTT, GRÆNT, BLÁTT EÐA FJÓLUBLÁTT OG ER ÞVÍ ÁN LITAR OG ILMEFNA. ALOE VERA gelið frá JASON er eins KRISTALTÆRT OG SJÁLFT LINDARVATNIÐ ALOE VERA gelið frá JASON gefur því tilætlaðan árangur sé það notað gegn bruna (sólbruna), sárum eða öðrum húðvandamálum. Nýr miðí 98%AJoe Vera SUPER Cli ALOE VERA gelið frá JASON á engan sinn líka, gæðin tandurhrein og ótrúleg. Fæst meðal annars í öllum apótekum á landinu. P.S. Frábært fyrir herra eftir rakstur. HEILDARNÆRIIMG S/F. SÍMAR 566 8593/566 8591. Verður ríkiseinkasala á áfengi lögð niður í Svíþjóð? Almenningur vill aukið fijálsræði Stjórnmálamennirnir eru hins vegar hikandi Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. SVÍAR hafa búið við ríkisafskipti af áfengissölu síðan 1905 og ríkis- einkasölu síðan 1917, en ef dæma má af viðbrögðum almennings við áliti lögfræðinga ESB-dómstólsins um að ríkiseinkasala stangist á við ESB-reglur þá vildu Svíar auk- ið fijálsræði í áfengissölu. Stjórn- málamenn leita hins vegar ákaft leiða til að halda í áfengiseinka- sölu ríkisins og ýmsir þeirra líta með tortryggni ákafa kaupmanna að selja áfengi. Flestir kaupmenn undirstrika þó að þeir hafí aðeins áhuga á að selja vín og öl, ekki brennda drykki. Tilhugsunin um að geta gengið út í næstu matvörubúð og keypt vín og bjór er freistandi fyrir marga Svía og viðbrögð almenn- ings í fjölmiðlum hafa yfirleitt ff EKKERT SKOÐUNAGJALD lmun;rjT.iT.i -GÆÐI Sæmundur H. Sæmundsson, sölustjúri/byggingam. Rósa Halldórsdóttir, sölufulltrúi/ritari Sigurberg Guðjónsson, hdl. lögg. fasteignasali. Suðurlandsbraut 16 (3. hæð), 108 Rvík. Sími 588 8787. fax 588 8780 ★ Höfum kaupanda að 4ra herbergja íbúð á Melunum. ★ Höfum kaupanda að 3 - 4ra herb. íbúð í Þingholtunum. ★ Höfum kaupanda að sumarhúsi eða landi fyrir félagasamtök. ★ Fjárstekur kaupandi að fyrirtæki. Verð allt að 20-25 milljónir. VIÐ TÖKUM VEL Á MÓTI ÞÉR verið jákvæð. Margir nefna þó að úrvalið í ríkiseinkasölunni sé gott og kannski myndu búðirnar fyrst og fremst keppast við að selja ódýr og ómerkileg vín. Reynslan frá Danmörku er þó önnur, því þar leggja bæði kjörbúðakeðjur og búðir mikið upp úr að leita uppi góð vín, bæði dýr og ódýr, og líma á flöskurnar fræðandi upplýs- ingar. Bindindishreyfingin öflug Bindindishreyfíngin stendur á gömlum merg í Svíþjóð og á sér hlutfallslega fleiri stuðningsmenn í sænska þinginu en meðal al- mennings. Til dæmis eru þing- menn úr öllum flokkum í samtök- um bindindissamra þingmanna. Þótt ekki liggi fyrir nýjar skoðan- akannanir um stuðning við áfengi- seinkasölu ríkisins þá bendir allt til þess að meirihluti sé fyrir að áfengi verði selt í búðum. Svíar neyta 6,3 1 af hreinum vínanda á ári, Islendingar 3,34 1 og Danir 10 1. Landaframleiðsla er hluti af sænsku neðanjarðar- hagkerfi, kallast „heimabrennt“, og er hún stórfelld, þrátt fyrir stöðugt eftirlit lögreglunnar. í Danmörku er slík framleiðsla hins vegar óþekkt og erfitt er að sjá aðrar ástæður fyrir því en að þar er áfengi bæði auðfengnara og ódýrara en í Svíþjóð. Tsjúbais í rússnesku stjórnina? BÚIST er við að Anatolí Tsjúbais, skrifstofustjóri Rúss- landsforseta, verði skipaður fyrsti aðstoðarforsætisráð- herra þegar stokkað verður upp í stjórn lands- ins síðar í vikunni, að sögn rúss- neska dag- blaðsins Sevodnja í gær. Blaðið sagði að Borís Jeltsín forseti og Viktor Tsjernomyrdín for- sætisráðherra hefðu samþykkt þetta á fundi á þriðjudag. Heimildarmenn blaðsins töldu að Tsjubais yrði falið að fást við efnahagsvandann og að Alexander Lívshíts fjármála- ráðherra yrði vikið frá. Gert er ráð fyrir að uppstokkunin verði tilkynnt eftir að Jeltsín flytur stefnuræðu sína á þing- inu í dag. Ferðamönn- um rænt í Jemen FIMM þýskum ferðamönnum var rænt í suðausturhluta Jemens í gær og mannræn- ingjarnir kröfðust sem svarar 500 milljónum króna í lausnar- gjald. Jemenskir ættbálkar, sem eiga í deilum við stjórnina og erlend olíufyrirtæki, hafa rænt tugum ferðamanna, stjórnarerindreka og annarra útlendinga á síðustu árum. Gíslar falla í Kólumbíu TVEIR erlendir ferðamenn, Þjóðveiji og Austurríkismað- ur, biðu bana í Kólumbíu á þriðjudag þegar hermenn réð- ust á búðir vinstrisinnaðra skæruliða, sem höfðu haldið þeim í gíslingu í tæpan mán- uð. Tveimur öðrum gíslum, Þjóðveija og Austurríkis- manni, var bjargað. Verkfall í Frakklandi OPINBERIR starfsmenn í Frakklandi efna til sólarhrings verkfalls í dag til að krefjast launahækkana. Búist er við að fjórar milljónir manna leggi niður vinnu en ekki er talið að almenningur verði mikið var við verkfallið þar sem það nær ekki til starfsmanna í al- mannasamgöngum. Skilyrði fyrir byssu- kaupum hert BILL Clinton Bandaríkjafor- seti undirritaði í gær fyrirskip- un um að til þess að geta keypt skotvopn í einhveiju ríkja Bandaríkjanna þyrftu menn að hafa búið þar minnst 90 daga. Ákveðið var að grípa til þessa ráðs eftir að einn maður lést og sex særðust í skotárás í Empire State-byggingunni í New York. Árásarmaðurinn keypti byssuna, sem hann not- aði, í Flórída eftir að hafa dvalið þar á hóteli í þijár vikur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.