Morgunblaðið - 06.03.1997, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 06.03.1997, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997 21 Forseti Sviss leggur til stofnun mannúðarsjóðs Fjármagnað með sölu águlli fyrir milljarða seti Sviss, reifaði fyrir svissneska þinginu í gær tillögu um að sett- ur yrði á stofn stór sjóð- ur til styrktar mann- úðarmálefnum, svo sem til að aðstoða fórn- arlömb mannréttinda- brota, náttúruhamfara og helfararinnar gegn gyðingum. Sjóðurinn, sem reikna mætti með að hefði um sjö millj- arða svissneskra franka, 336 milljarða króna, til umráða, yrði fjármagnaður með end- urmati á gullbirgðum Sviss, og sölu á hluta þeirra. Sagði Koller vonir standa til að „Svissneski samúðar- sjóðurinn" komist á laggirnar á næsta ári. í kjölfar tilkynningar forsetans greindi Hans Meyer, forseti sviss- neska seðlabankans, frá því á blaða- mannafundi, að með sölu gulls á tíu ára tímabili mætti ná inn „nokkrum milljörðum" franka, en lagði áherzlu á að salan myndi engin áhrif hafa á stöðugleika frankans. Stór hluti þess íjár, sem renna myndi til sjóðsins, feng- ist þó við það einfald- lega, að endurmeta verðmæti gullbirgða seðlabankans. Þær eru nú metnar á um 12 milljarða franka, en það mat þykir mjög varlega áætlað. Við endurmatið gætu losnað hundruð milljóna franka árlega, sem runnið gætu til sjóðsins nýja. Ungveijar ákveða bóta- greiðslur til gyðinga Ungveijar ákváðu einnig í gær að stofna sjóð til aðstoðar gyðingum, sem lifað hefðu helförina af. Ung- verska þingið samþykkti í gær lög, sem heimila ríkisstjórn landsins að greiða gyðingum bætur vegna of- sókna á hendur þeim á dögum síð- ari heimsstyijaldarinnar. Anafnaði þingið fjórum milljörðum flórinta, tæplega 1,7 milljörðum króna, tii þessa. Sérskipuð sjóðstjórn mun hafa umsjón með útdeilingu fjárins. Peter Feldmajer, talsmaður gyð- inga í Ungveijalandi, fagnaði ákvörðuninni sem skrefi í rétta átt. En upphæðin sem þingið hefði sam- þykkt að veita skyldi, væri „minna en tíundi hluti eins prósents" af því sem gyðingar „ættu rétt á“. Sjóður- inn, sem hafa mun umsjón með bótafénu, myndi beijast fyrir meira fé, sagði Feldmayer. Á að gizka tíu til fimmtán þúsund gyðingar búa nú í Ungveijalandi, sem lifðu helförina af. Heildarfjöldi gyðinga í landinu er um 80- 100.000, en var um 800.000 fyrir stríð. Bern, ZUrích, Búdapest. Reuter. Arnold Koller Rekin burt fyrir óhróður Ósló. Morgunblaðið. NORSK hjón, sem fundin voru sek um að hafa lagt í einelti tvo samkynhneigða menn og sam- býlinga, hafa verið dæmd til að koma sér burt úr íbúð sinni í fjölbýlishúsinu innan þriggja mánaða. Hefur þessi dómur vak- ið mikla athygli. Dómurinn var kveðinn upp við borgardóminn í Björgvin og sagði í rökstuðningi dómarans, að hjónin, sem eru á sjötugs- aidri, hefðu verið svo ósvífin í garð nágranna sinna i fjölbýlis- húsinu, að þau ættu ekki um neitt annað að velja en hypja sig burt. Búist er við, að dómnum verði áfrýjað. Hjónin kærðu sig ekkert um samkynhneigt fólk á stigagang- inum og skrifuðu þess vegna með tússpenna alls konar óhróð- ur um mennina tvo á veggina. Fundu þau líka upp á ýmsu öðru og höfðu stanslaust verið að frá 1992. Engin miskunn hjá Magnúsi Við réttarhöldin viðurkenndu hjónin, að framkoma þeirra hefði verið fyrir neðan allar hellur og báðu um að fá að vera áfram í sínu húsnæði. Á það var ekki fall- ist og auk þess urðu þau að greiða allan kostnað nágrannanna af málinu eða um milljón ísl. kr. Reuter AUNG San Suu Kyi, leiðtogi lýðræðissinna í Búrma, ræð- ir við blaðamenn i Rangoon. Yfirvöld í Burma sökuð um ofsóknir Rangoon. Reuter. AUNG San Suu Kyi, leiðtogi lýð- ræðissinna í Búrma, gagnrýndi her- foringjastjórn landsins á þriðjudag fyrir ofsóknir á hendur flokki henn- ar og hét því að halda baráttunni fyrir lýðræði áfram. „Ástandið versnar stöðugt," sagði Suu Kyi á blaðamannafundi í Rangoon og bætti við að herfor- ingjastjórnin hefði látið handtaka tugi félaga í flokki hennar, Lýðræð- isbandalaginu, að undanförnu. Hún sagði yfirvöld einnig hafa _haft í hótunum við félaga í Lýðræðis- bandalaginu til að reyna að knýja þá til að segja sig úr flokknum. Suu Kyi sagði að yfirvöld hefðu hótað að refsa fjölskyldum lýðræð- issinna ef þeir segðu sig ekki úr flokknum. Markmið herforingja- stjórnarinnar væri að láta líta út fyrir að Lýðræðisbandalagið nyti lítils stuðnings meðal almennings. „Þeir eru að reyna að gjöreyða flokknum með því að eyða grasrót- arstuðningi hans.“ Suu Kyi, sem hlaut friðarverð- laun Nóbels fyrir friðsamlega bar- áttu fyrir lýðræði árið 1991, sagði að yfirvöld hefðu ekki enn veitt henni ferðafrelsi en kvaðst ætla að halda ótrauð áfram að beijast fyrir lýðræði. Leyniþjónustan ljósmyndar blaðamenn Blaðamannfundurinn var haldinn í húsi nálægt heimili hennar, sem yfirvöld hafa víggirt til að takmarka heimsóknir til hennar. Fundarstað- urinn var umkringdur leyniþjón- ustumönnum sem tóku myndir af blaðamönnunum fyrir og eftir fund- inn. Segja má að Suu Kyi hafí verið sett í stofufangelsi í desember og herforingjastjórnin segir að mark- miðið sé að vernda hana vegna götumótmæla námsmanna. Suu Kyi kveðst ekki þurfa vernd og segir að hún þurfi að gera yfírvöldunum grein fyrir ferðum sínum og gest- um. Lýðræðisbandalagið vann yfir- burðasigur í þingkosningum í Búrma árið 1990 en komst ekki til valda þar sem herforingjastjórnin viðurkenndi ekki úrslitin. Bandaríkin og Kína deila um mannréttíndi Líkar ekki umvandanir alræðisstjórnar Washington. Reuter. BANDARÍKIN eru í fylkingar- bijósti í mannréttindabaráttunni og kunna lítt að meta umvandan- ir „alræðisstjórna, sem troða á grundvallarréttindum manna“. Kom þetta fram hjá talsmanni bandaríska utanríkisráðuneytis- ins í fyrradag en tilefnið var við- brögð kínverskra stjórnvalda við gagnrýni Bandaríkjastjórnar á ástand mannréttindamála í Kína. Kínastjórn brást mjög hart við aðfinnslum í sinn garð í árlegri skýrslu Bandaríkjastjórnar um mannréttindamál og svaraði með- al annars með því að lýsa Banda- ríkjunum sem landi byssunnar, hryðjuverka og kynþáttamismun- unar. Þar sagði einnig, að banda- rískt lýðræði væri aðeins fyrir hina ríku. Nicholas Burns, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytis- ins, sagði í svari sínu, að Banda- ríkin hefðu ávallt verið lýðræðis- ríki enda vildu milljónir manna um allan heim fá að setjast þar að öfugt við það, sem væri í al- ræðisríkjunum. Straumurinn lægi ekki til þeirra, heldur frá þeim. Bandaríkin og Evrópuríkin ætla að standa saman að harð- orðri ályktun um mannréttinda- mál í Kína á fundi mannréttinda- nefndar Sameinuðu þjóðanna en hún kemur saman til fundar í Genf síðar í þessum mánuði. Bosníska sljómar- andstaðan sameinuð Sarajevo. Reuter. STJÓRNARANDSTÖÐUFLOKK- ARNIR í Bosníu hafa stofnað „skuggaráðuneyti" sem fulltrúar múslima, Króata og Serba eiga aðild að. Það á að vera til mót- vægis við stjórn landsins, sem flokkar þjóðernissinna sitja í. Sex stjórnarandstöðuflokkar og nokkur laustengd stjórnmála- samtök eiga aðild að skuggaráðu- neytinu, sem hefur um 15% at- kvæða á Bosníuþingi. Sagði tals- maður þeirra að stjórnarandstöð- unni fyndist starf stjórnarinnar ganga hægt, en það hefur verið lamað vegna deilna þjóðanna þriggja. Kvaðst hann vona að samstarf múslima, Króata og Serba gengi betur í stjórnarand- stöðunni. HÓTELKEÐJAN FOSSHÓTEL IOPNARTVO NYUPPGERÐ HOTEL I REYKJAVIK Sértilboð á is\mw í marsmánuði írse í marsmánubi, tilbob tvo fyrir einn á Carpe Diem eba Argentínu. I Hótel Lind ianLuoia«w»fe»- ruioiniinirniíra IS!I5aiSL!í?«l®WK£áiII!3][0ILI]lO Citv Hótel Sími: 511 11 Símbréf: 552 62 3351 fe9#MÍI-í4í4ÉE!.r:.v'V, íieiRi .,:AV /illan, Ak 1 Hótel Hallormsstabur, Egilsstöbum Hótel Harpa, Akureyri Hótel Harpa Kjarnalundur, Akureyri
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.