Morgunblaðið - 06.03.1997, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.03.1997, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997 17 NEYTENDUR EITT brauð, tvo lítra af mjólk, vanilludropa og tvo miða til Benidorm ... takk fyrir. Bónus hefur sölu á sólarlandaferðum Bjóða allt að 25% lægri fargjöld BÓNUS hefur samið við Plúsferð- ir um sölu á 300 ferðum til Bil- lund, Mallorca og Benidorm. Að sögn Jóns Asgeirs Jóhannes- sonar hjá Bónus eru ferðirnar keyptar af Plúsferðum en það fyrirtæki er í eigu Úrvals-Útsýnar og Flugleiða. „Fyrirkomulagið er þannig að viðskiptavinir fara í Bónus í Holta- görðum. Á morgun, föstudaginn 7. mars verður kominn upp stand- ur með 20 valmöguleikum og hægt að velja spjöld með ferðum þangað sem hugurinn gimist. Þeg- ar spjaldið er fundið er farið með það að kassanum og borgað fyrir ferðina. Að því loknu er haldið til Plúsferða með kvittun þar sem farseðillinn fæst afhentur. Þegar Jón Ásgeir er inntur eftir því hvort um sé að ræða lægri fargjöld en keppinautarnir bjóði, segir hann ferðirnar seldar allt að 25% ódýrari en verið er að bjóða annars staðar. „Sem dæmi um verð má nefna að ferð til Billund fram og til baka kostar 19.900 krónur, Flug til Benidorm og Mall- orca fram og til baka á 22.900 krónur, 35 dagar á Benidorm með hótelíbúð miðað við að tveir ferð- ist saman kosta 39.900 á mann og 33.900 á mann miðað við tvo farþega með gistingu í 14 daga á Mallorca. Fyrstu ferðirnar verða til Benid- orm 25. mars og síðan eru ferðir af og til fram til 20. ágúst í sumar. Jón Ásgeir segir fyrirmyndina koma frá Rúmfatalagemum í Dan- mörku en þar eru seldar ferðir til útlanda í samstarfi við Larsen rejs- er. Að sögn hans hefur þetta sölu- form gefið góða raun þar. Þegar Jón Ásgeir er spurður hvort framhald verði á sölu far- seðla hjá Bónus segir hann það alfarið velta á viðbrögðunum. „Ef þetta gefst vel munum við fara í frekara samstarf við Plús- ferðir og hefja sölu á ferðum sem einungis verða á boðstólum í Bón- us.“ Nýtt BOOK’S herra- fatnaður HERRAFATAVERSLUNIN BOOK’S við Laugaveg sem var opnuð fyrir nokkrum mánuðum er fyrsta verslunin utan Hol- lands sem selur BOOK’S herra- fatnað. Boðið er upp á sveigjan- legan afgreiðslutíma fyrir herramenn sem eiga erfitt með að nýta sér hinn almenna versl- unartíma og er þá pantaður tími þjá verslunarstjóranum. Auk þess sem verslunin selur vörur frá BOOK’S er þar til sölu fatn- aður frá til dæmis Paul Smith, Urban Stone, Peter Van Holland, Paul Smith Jeans, Bogie, R. Newbold og skór frá Panelli. Findus dagar hjáKÁ NÚ standa yfir svokallaðir Findus dagar í verslunum KÁ á Suður- landi. Ýmsar vörur frá Findus eru á tilboði og kynningar á vörum frá fyrirtækinu í verslunum KÁ. Þá stendur yfír skíðaleikur Burton’s og KÁ þar sem vöruúttektir eru í boði fyrir heppna. Skerpa hnífa, garðáhöld og skæri VIÐAR Sigurðsson hjá Bygginga- vöruversluninni Smiðsbúð í Garðabæ hafði samband og vildi vekja athygli á þjónustu sem þar er í boði. Þangað er hægt að koma með heimilishnífana, skæri, klipp- ur og önnur garðáhöld og fá skerp- ingu á þessum áhöldum. Að sögn Viðars kostar um 200-250 krónur að skerpa hnífa, aðeins ódýrara er að skerpa skæri og til dæmis kostar um 350 krónur að skerpa handklippur. Hækkun á kaffi yfirvofandi EKKI er ólíklegt að verð á kaffí hækki á næstunni því heimsmark- aðsverð á kaffíbaunum hefur tvö- faldast frá áramótum. „Um áramótin fengust 100 cent fyrir pundið af kaffibaunum en í fyrradag var pundið komið í yfír 200 cent“, segir Úlfar Hauksson framkvæmdastjóri hjá Kaffí- brennslu Akureyrar. Hann segir að menn hafí búist við lækkun í janúar- byijun og því hafi þessi hækkun komið gjörsamlega á óvart. „Það er erfítt að koma auga á skýringar fyrir þessum hækkunum en það hefur þó verið þröngt um vissar tegundir af kaffí, sérstak- lega frá Kólumbíu og Mið-Amer- íku. Síðan er það spákaupmennska sem ræður ferðinni.“ - Hvaða þýðingu hefur þessi hækkun fyrir neytendur? „Kaffí hefur þegar hækkað sums staðar t.d. bæði í Þýskalandi og Danmörku og þar á það eftir að hækka meira. Fyrr en síðar hlýtur þessi hækkun að skila sér hingað." Birgðastaða rýr „Líklega fer það eftir birgðum þeirra sem mala og brenna hversu mikið þessi hækkun kemur til með að bitna á íslenskum kaffiunnend- um“, segir Friðþjófur Ó. Johnsson forstjóri hjá Ó. Johnson & Kaaber. „Framleiðendur voru að bíða eftir lækkun í janúar sem aldrei kom þannig að margir eru núna illa staddir með birgðir. Ég á frek- ar von á að hækkun á kaffí fari að bresta á.“ Aðalheiður Héðinsdóttir eigandi kaffíbrennslunnar Kaffitárs er sama sinnis, hún á frekar von á að kaffi hækki verði gangur mála sá sami næstu mánuði. „Það sá enginn þessa hækkun fyrir en menn vona núna að kaffí lækki á ný í haust þegar Brasilía kemur inn á markaðinn með sitt kaffi." Aðalheiður segir að í Kólumbíu sé kaffíframleiðsla allt árið, þar hafí staðið yfír verkföll í nokkrar vikur hjá vöruflutningabílstjórum og því hafí borið á kaffískorti þaðan. „Slíkt hleypir upp verði og kann að vera hluti af skýringunni." Stöðvaður tímann næstu árin með því að nota CELLULAR DEFENSE SHIELD Kynning í dag og föstudag kl. 12-17. 10% kynningar- afsláttur og veglegur kaupauki. H Y G E A .»nyrtivfiru ver.t/tta Austurstræti 16 Húð þín endurheimtir æskuljómann á ný - þökk sér stórkostlegri virkni. CELLULAR DEFENSE SHIELD - frá laprairie | SWITZERLANO œvi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.