Morgunblaðið - 06.03.1997, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
BJÖRGUNARAFREK VIÐ ÞJÓRSÁRÓS
Nítján skipverjum af Vikartindi bjargað eftir að vélarvana skipið strandaði
við Þjórsárósa í 8-9 vindstigum og mikilli ölduhæð
Morgunblaðið/RAX
FLUTNINGASKIPIÐ Vikartíndur fyrir utan brimskaflana við Þjórársósa siðdegis í gær. Vonskuveð-
ur var og vindhraði 8-9 vindstíg. Sveitir björgunarmanna bíða í fjörunni.
Fljótlega eftir tilkynningu um vélarbilun voru
þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, ogþyrlur
Varnarliðsins settar í viðbragðsstöðu
Stokkseyri
5.
Um svipað leyti
slitnuðu ankerisfestar
VIKARTINDS og
skipið rak upp
og strandaði
um kl. 20.30,
um 2 km austan
við ósa Þjórsár.
TF-LÍF fór frá Reykjavík um kl. 20,
var komin austur um kl. 20.30 og
hafði lokið við að bjarga öllum af
VIKARTINDI íland um kl. 21.30
Þykkvibær X
#;
r
Um kl. 19.30 óskaði VIKARTINDUR eftir
aðstoð. ÆGIR gerði tvær tilraunir til að
koma taug í skipið. í seinna skiptið fékk
ÆGIR á sig brot og missti mann fyrir borð.
Varðskipið Ægir kom á svæðið upp úr kl. tvö,
tilbúið til aðstoðar. Nokkru siðar fór aðalvél
skipsins í gang og hægt að keyrt hana á hægri
ferð. Við hífingu ankera bilaði ankerisspil.
Ankeri voru sett út, drógu úr hraða skipsins
og náðu að stöðva það um 1,5 sjóm. frá landi
1.
Um hádegisbil tilkynnti þýska flutningaskipið
VIKARTINDUR vélarbilun og var þá statt um
6 sjóm. út af Þjórsárós í suðvestan hvassviðri
og rak með um 2,5 sjóm. hraða á klst. að landi
sí
SS
m
10 km
„Ótrúlega vel að verki
staðið miðað við aðstæður
NÍTJÁN manna áhöfn þýska flutn-
ingaskipsins Vikartinds var bjargað
af þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF-
LÍF, í gærkvöldi, þegar skipið strand-
aði í fjörunni fyrir neðan Þykkvabæ
laust fyrir klukkan 20.30. Skipið
hafði þá verið í nauðum um hálfa
aðra sjómílu frá landi síðan í gær-
morgun.
Varðskipið Ægir fékk á sig brot
þegar reynt var að koma dráttartaug
á milli skipanna, og skemmdist mik-
ið, og er eins skipveija saknað. Fjör-
ur voru gengnar í gærkvöldi og í
nótt í leit að manninum.
Menn voru viðbúnir hinu versta er þeir
undirbjuggu aðgerðir og fylgdust með erfíð-
leikum skipveija um borð í Vikartindi í gær.
Skipið varð vélarvana úti fyrir Suðurlandi
um hádegi í gær og um klukkan 20.30 í
gærkvöldi strandaði það við Þjórsárósa í
vonskuveðri.
JEILSUVÖRUR
ÚR ÍSLENSKUM F|ALLAGRÖSUM
- ÞVÍ AÐ HEILSAN ER F|ÁRS|ÓÐUR
Fjallagrasaáburður
Sólarhringskrei
Fótakrem úr fji
Hitakrem með
m
/
’ .:
ISIENSK EJAUACKOS Hf
PRÓFAÐU F|ALLAGI\ASAKREM - PAU FRLI HEILSUBÆTANDI
Vikartindur lenti í erfiðleikum
þegar aðalvél skipsins bilaði skammt
fyrir utan Þjórsárósa í gærmorgun.
Olduhæð í gærkvöldi þegar skipið
rak upp í land var 10-15 metrar.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF,
fór í loftið frá Reykjavík um klukkan
20 og var komin á vettvang skömmu
seinna, eða laust eftir 20.30. Þyrlur
varnarliðsins komust hins vegar ekki
af stað vegna veðurofsa í Keflavík.
Björgun lauk skömmu fyrir klukkan
21.30 og voru skipbrotsmennimir
fluttir til Þykkvabæjar þar sem þeim
var veitt aðhlynning.
„Þarna var vel að verki staðið og
ótrúlega vel sloppið, miðað við hvem-
ig ástandið var,“ segir Hjalti Sæ-
mundsson í stjómstöð Landhelg-
isgæslunnar.
Skömmu eftir hádegi í gær barst
Landhelgisgæslunni tilkynning frá
Vikartindi, sem er 9.200 tonn að
stærð og hefur verið í leigu hjá Eim-
skip frá lokum júlí í fyrra. Þá var
skipið um sex sjómílur frá landi útaf
Þjórsárósum, í suð-vestan hvassviðri,
eða um 8-9 vindstigum, og náði öldu-
hæð þá allt að tólf metmm. Skipið
rak að landi með tveggja og hálfrar
sjómílu hraða þegar tilkynningin
barst.
Viðbúnir hinu versta
„Við biðum í ofvæni frá hádegi
og vonuðum það besta en vorum við-
búnir því versta og höguðum okkar
undirbúningi í samræmi við það,“
segir Einar S. Sigurgeirsson vakt-
stjóri þjá stjórnstöð Landhelgisgæsl-
unnar.
Landhelgisgæslan setti þyrlu sína,
TF-LÍF, í viðbragðsstöðu og einnig
þyrlur vamarliðsins, auk þess að fyr-
irskipa að bæði akkeri skipsins yrðu
látin falla til að draga úr rekhraða,
og eins mikið af akkeriskeðjunum
og hægt væri. Fljótlega eftir að þetta
var gert minnkaði rekið og þegar
Vikartindur átti um 1,5 sjómílur að
landi, eða um tvo og hálfan kíló-
metra, náðu akkerin festu.
Varðskipið Ægir, sem var statt
tæplega tveggja klukkustunda sigl-
ingu frá Vikartindi, var þegar sent
á vettvang og kom að skipinu um
klukkan 14.16, en þá hafði farþega-
feijan Herjólfur legið nærri Vikarindi
um klukkutíma, reiðubúin að koma
til aðstoðar ef þess gerðist þörf. Ferj-
an var á leið til Vestmannaeyja, en
Vikartindur var skammt frá sigling-
arleið hennar.
Rifu afturspilið í sundur
Varðskipsmenn gerðu dráttar-
taugar klárar til að taka skipið í tog,
en nokkru eftir að varðskipið kom á
staðinn gátu vélstjórar Vikartinds
gangsett aðalvél samkvæmt neyð-
aráætlun og keyrt vélina á mjög
hægri ferð. Hafist var handa við að
hífa akkerin, en þá bilaði akkerisspil
og þurfti áhöfn skipsins að rífa aftur-
spilið í sundur til að ná í varahluti.
Um svipað leyti var ákveðið að
ekki væri þörf á að hafa þyrlur vam-
arliðsins í viðbragðsstöðu, með þeim
fyrirvara þó að hægt væri að kalla
þær út ef ástandið versnaði.
Skipveijar unnu hörðum höndum |
við að koma akkerisspilum í lag og »
töldu sér hafa tekist það síðdegis í F
gær, auk þess að halda viðgerð á |
vél áfram. Vélarbilunin var rakin til
kælivatnsrörs, sem brást með þeim
afleiðingum að skipið missti kælivatn
og loft komst inn á kerfíð, og sló
vélinni út í kjölfarið. Um klukkan 19
í gær taldi áhöfnin að fullt afl væri
komið á vélina og hóf undirbúning
að því að draga upp keðjurnar.
Skömmu síðar óskaði skipstjóri t
Vikartinds eftir aðstoð varðskipsins »
Ægis sem beðið hafði átekta og voru
gerðar tvær tilraunir í þá vem. Fyrri |j
tilraun mistókst og þegar átti að
reyna aftur fékk varðskipið brot yfir
sig og tók einn skipveija út af Ægi.
Ekki mun hafa orðið mikið eignatjón
um borð. Sjógangur og vindur var
svo mikill að Vikartindur barst hratt
að landi.og munu akkerisfestar hafa
slitnað, samkvæmt upplýsingum frá
Landhelgisgæslunni. Skipið rak upp |
í flöm um klukkan 20.30 eins og
áður sagði.
Vikartindur var smíðaður í fyrra |
og er í eigu þýskra aðila. Skipið hóf
strax eftir að því var hleypt af stokk-
unum að sigla fyrir Eimskip, en það
er leigt með þeim hætti að fyrirtæk-
ið ber ekki rekstrarlega ábyrgð á því
og greiðir ekki hugsanlegan kostnað
af skemmdum á því vegna vélarbilun-
arinnar í gær. Leigusamningur nær
fram í ágúst í ár, að sögn Hauks ■
M. Stefánssonar forstöðumanns
skiparekstrardeildar Eimskips.
Skipið var lestað gámum með vör- h
um af ýmsum tagi frá Þýskalandi
og Norðurlöndum. i