Morgunblaðið - 06.03.1997, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
BJÖRGUNARAFREK VIÐ ÞJÓRSÁRÓS
„ Morgunblaðið/RAX
SÉÐ yfir Vikartind síðdegis í gær í átt til lands þar sem brimið brotnar á grynningunum við sandinn. Akkerisfestarnar eru strekktar
á myndinni, en nokkru síðar gáfu þær sig og skipið rak hratt undan 8-9 stiga vindi upp í fjöruna austan við Þjórsárós.
Veðurofsi, haglél og sandrok gerðu bj örgnnars veitarmönnum erfitt fyrir
Sáu ekkí áhöfnina hífða
„MEÐAN á björgunarstarfinu stóð gekk á með
mjög kröppum suðvestanhryðjum og hvössu
hagléli og það rifnuðu upp bæði sand- og ísgarð-
ar og veðrið var svo slæmt að við sáum ekki
þegar þyrlan hífði mennina upp þótt skipið væri
mjög nærri landi, eða 100-150 metra," segir Jón
Hermannsson, svæðisstjóri björgunarsveita á
strandstað, þegar Morgunblaðið ræddi við hann
á tólfta tímanum í gærkvöldi.
„Það er hæpið að björgunarsveitir hefðu leyst
þann vanda að koma mönnunum í land án þyrl-
unnar, fyrr en skipið rak að landi. Þyrlan sann-
aði sig með glæsibrag."
Jón segir að skipbrotsmennirnir hafi virst vel
á sig komnir, en veðrið hafi þó verið svo vont
að erfitt hafí verið að ræða við þá eða sjá hvern-
ig komið var fyrir þeim. „Skipið snýr þvert á
brimið og er byrjað að láta undan sjóganginum,
þótt stórt sé og voldugt að sjá. Engir gámar
hafa hins vegar losnað ennþá,“ segir hann.
Jón kvaðst gera ráð fyrir að um 20 björgunar-
sveitarmenn myndu ganga fjörur í nótt og þeg-
ar birtir í dag í leit að skipveijanum á varðskip-
inu Ægi sem féll útbyrðis þegar brot kom á
það. Um 40-50 björgunarmenn voru á sandinum
skömmu fyrir klukkan 23, en væntanlegur var
liðsauki frá Ámessýslu og Rangávallarsýslu og
kvaðst Jón gera ráð fyrir að alls hafi um 100
björgunarsveitarmenn komið að björguninni.
Sjór ýfðist skyndilega
Björgunarmenn voru kallaðir út skömmu eftir
hádegi vegna vandræða Vikartinds við suður-
ströndina. „Þegar varðskipið kom upp til að
svara beiðni Vikartinds um að fá dráttartaug
var eins og bensíni væri skvett á eld; sjór ýfðist
allur og varðskipið varð fyrir áföllum, ankeris-
festar Vikartinds slitnuðu og það rak í land á
nokkrum mínútum,“ segir Jón.
Forstöðumaður
skiparekstrardeildar
Eimskips
Alfaríð
ákvörðun
skip-
stjórans
HAUKUR M. Stefánsson, forstöðu-
maður skiparekstrardeildar Eim-
skips, segir að það hafi alfarið verið
ákvörðun skipstjórans á Vikartindi
að þiggja ekki aðstoð Landhelgis-
gæslunnar þegar skipið varð vélar-
vana, en skipstjóri hafi úrslitavald
undir kringumstæðum sem þessum
og hann sé ábyrgur fyrir skipinu.
„Við höfum legið í manninum og
Landhelgisgæslan hefur gert það
líka, en þetta er hans ákvörðun alfar-
ið,“ sagði Haukur í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi.
„Þetta er alltaf ákvörðun skip-
stjóra. Aftur á móti höfðum við að
eigin frumkvæði samband við Gæsl-
una á undan og Ægir sigldi á móti
skipinu áður en neyðarkallið kom.
Við mátum aðstæður þannig að við
töldum að þetta væri hættulegt
ástand og höfðum þess vegna sam-
band við Landhelgisgæsluna. Þeir
dæmdu það líka þannig að þeir sneru
Ægi sem var við Eldey og hann fór
að sigla um hádegisbilið í átt að
skipinu. Síðan kemur neyðarkallið
frá skipstjóra tíu mínútum fyrir eitt
og þá var hann [Ægirj kominn lang-
leiðina að honum,“ sagði Haukur.
Með 2.700 tonna farm
Vikartindur var með 2.700 tonn
af innflutningsvöru af ýmsu tagi, en
í gærkvöldi lá ekki fyrir hvert verð-
mæti farmsins væri. Eimskip tók
skipið á leigu í júlí í fyrra og var
það þá nýtt af stokkunum en það
var smíðað í Póllandi. Burðargeta
þess er 9.200 rúmmetrar, lengd 133
metrar og breidd 22,9 metrar. Eig-
andi skipsins er þýska fyrirtækið
Peter Döhle, sem að sögn Hauks á
eða rekur um 160 skip og eru flest
þeirra gámaskip.
Skipsljórinn á Víkartindi dró í lengstu lög að þiggja aðstoð frá varðskipinu Ægi
.v. . '-jrh
v.
■ -.. ■
...........................
■■ '■■■■-'v^ÍÉÉjP
'■^•**'*'*•' ||| *■
’ ' ->v.-. . ' '■ ■■ . .
. . • .. , • : ÍT -t ^ ~ ‘V i-i / '"V * “* 1 ' : •;•: . ,,
W* ' •&&&*&*
0 V-; f “ V ^ ^
~W-'- 3U ■'
•’,'5P**v.*-
Jí U> _ *•
-'fi
VARÐSKIPIÐ Ægir hélt sjó í gærdag skammt frá Vikartindi.
Morgunblaðið/RAX
„Vekur furðu vegna
allra aðstæðna“
SKIPSTJÓRI Vikartinds hafnaði
ítrekað ábendingum Landhelgis-
gæslunnar um aðstoð varðskipsins
Ægis í gær og taldi ástandið viðráð-
anlegt, að sögn Helga Hallvarðs-
sonar yfirmanns gæslufram-
kvæmda hjá stofnuninni.
„Þetta vekur furðu, vegna allra
aðstæðna, en skipstjórinn verður
að svara því hvað lá að baki og
gerir það að sjálfsögðu í sjópróf-
um,“ segir Helgi.
Beiðni kom
eftir myrkur
„Eftir að ankerisspilið bilaði
fannst mönnum skrýtið að taka
afturspilið í sundur til að fá vara-
hluti, sem taka átti hálftíma eða
meira, í stað þess að leita aðstoðar,
auk þess sem ég veit ekki til þess
að ankerisspilið hafi nokkuð komist
í gang að nýju.
Þegar aðalvélin bilaði aftur eftir
fyrstu viðgerð var sagt að um tvo
tíma tæki að gangsetja hana að
nýju. Þá bentum við skipstjóra á
að veðurspá væri mjög slæm og
myrkur færi í hönd. Því miður kom
samt engin beiðni um aðstoð til
okkar, fyrr en myrkrið var skollið
á, og þá var skipið komið upp í
grunnbrotið," segir Helgi.
Taugin sem Ægir reyndi að
koma á milli skipanna slitnaði í
fyrri tilraun og við seinni tilraun
fékk Ægir brot yfir sig, með þeim
afleiðingum að maður féll fyrir
borð og skemmdir urðu á varðskip-
inu.
Ægir hélt sjó
í fyrstu var talið að eignatjón
væri mikið, en við nánari athugun
kom í Ijós að aðeins lausamunir
höfðu orðið fyrir skemmdum, en
stjórntæki og annar búnaður virtist
hafa sloppið óskemmdur. Ekki
liggja enn sem komið er fyrir skýr-
ingar á því að maðurinn féll fyrir
borð, að sögn Helga. Ægir hélt sjó
í gærkvöldi og í nótt skammt frá
landi, meðan beðið var þess að veðu-
rofsanum linnti og hægt væri að
sigla skipinu til hafnar.