Morgunblaðið - 06.03.1997, Side 22

Morgunblaðið - 06.03.1997, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Kórbók með ver- aldlegum lögnm SÖNGMÁLASTJÓRI þjóðkirkj- unnar hefur sent frá sér Kórbók með veraldlegum lögum, en í fyrra kom út kórbókin Helgist þín harpa og einnig Forspil og eftir- spil fyrir orgel - harmóníum. Nýja kórbók- in kallast Sól og vor ég syng um eftir kvæði Steingríms Thorsteinssonar um smaladreng- inn, en kápumynd er eftir mál- verki Jóhannesar S. Kjarvals sem hann nefndi Foran Paradiset og Björn Th. Bjömsson kallar Við flugstig Paradísar. Bjöm segir að málverkið fjalli „um leit mannsins til ljóss og sigurs, og um hrap hans til dauða“. í formála segist Haukur Guð- laugsson söngmálastjóri vænta þess „að lögin í þessari bók tengi saman líf og trú, því hvomgt má án hins vera“. Söngmálastjóri seg- ir enn fremur í formálanum: „Kirkjukórar landsins, og þá ekíri síst þeir sem em úti á lands- byggðinni, hafa ætíð gegnt fjöl- breyttu hlutverki. Fyrir utan það að leiða safnaðarsöng og halda uppi kórstarfí í kirkjum Iandsins, hafa þeir einnig sinnt ýmsum öðr- um menningarlegum þáttum, svo sem að syngja á þjóðhátíðardegi okkar 17. júní, og öðram samkom- um, svo sem á árshátíðum, kvöld- vökum, skólaslitum og afmælishá- tíðum.“ Fyrsta heftið með veraldlegri tónlist í Helgist þín harpa vom lögin einkum ætluð til söngs við helgiat- hafnir kirkjunnar, en Sól og vor ég syng um er fyrsta heftið þar sem veraldlegri tónlist em gerð skil. Haukur Guðlaugsson orðar þetta svo að komið sé til móts við „þarfír kirkjukóranna á öðmm sviðum en innan kirkjunnar, síðast en ekki síst til að skapa meiri fjöl- breytni í starfseminni". Honum er umhugað um að hver kórfélagi eignist sitt hefti. í útgáf- unni hefur að hans sögn verið keppt að því að „bæði lag og ljóð hafí sem mest listrænt gildi“. Mörgum sé að þakka fyrir að leyfa afnot af lögum. Sérstakar þakkir fær Þórður Kristleifsson fyrir af- not af tveimur lögum við texta eftir Halldór Laxness og Tómas Guðmundsson sem birtust í bókun- um Ljóð og lög á sínum tíma. Haukur segir að vandaðir textar laganna hafí höfðað sérstaklega til _sín. í kórbókinni em lög eftir m. a. Mikis Theodorakis, Sigfús Hall- dórsson, Skúla Halldórsson, Jón Jónsson frá Hvanná, Björgu Björnsdóttur, Oddgeir Kristjáns- son, Áma Thorsteinson og Þórarin Guðmundsson auk þjóðlaga frá ýmsum löndum. HAUKUR Guðlaugs- son. KÁPU nýju kórbókarinnar prýðir málverkið Við flugstig Para- dísar eftir Jóhannes S. Kjarval. GIANTAS Abarius Jazz í Norræna húsinu GIANTAS Abarius heldur tónleika í Norræna húsinu í hádeginu fimmtudaginn 6. mars. í kynningu segir að Giantas Abarius sé einn þekktasti jazzisti Austur-Evrópu og hafí í um tutt- ugu ár verið einn fremsti tónlist- armður Litháen. Píanóið er hans sérgrein auk þess sem hann hefur samið fjölda tónverka, svo sem fyrir leikhús, kvikmyndir, kamm- ersveitir og svo mætti lengi telja. Hafa lög Gintasar verið á vin- sældalistanum í flestum löndum fyrrum Sovétríkjanna um árabil. Gintas Abarius hefur haldið tón- leika í flestum löndum Evrópu og fyrrum Sovétríkjanna auk fjöl- margra tónleika í Bandaríkjunum og víðar. Morgunblaðið/Árni Sæberg GERÐUR Gunnarsdóttir, Hávarður Tryggvason og Bernharður Wilkinson í léttri sveiflu á æfingu. „Peð“ tekur völdin Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Islands í Háskólabíói í kvöld mun hver tónlistarmað- urínn af öðrum þreyta frumraun sína; Bern- harður Wilkinson mun stjóma hljómsveit- inni í fyrsta sinn á áskríftartónleikum og Gerður Gunnarsdóttir fiðluleikarí og Há- varður Tryggvason kontrabassaleikari hljóta eldskírn sína sem einleikarar með henni. Orri Páll Ormarsson tók þau tali. ÞAÐ ER ekki á hverjum degi sem einleiksverk fyrir fiðlu, kontrabassa og hljómsveit hljómar á tónleikum Sinfóníu- hljómsveitar íslands í Háskóla- bíói. Ekki nema von þar sem slík verk eru vísast teljandi á fingrum annarrar handar. í kvöld mun þetta þó gerast, þeg- ar Hávarður Tryggvason kontrabassaleikari og Gerður Gunnarsdóttir fiðluleikari munu flytja Grand duo eftir Giovanni Bottesini, sjálfan „Paganini kontrabassans", með hljómsveitinni. Tónsprotinn verður í höndum Bernharðar Wilkinson en þríeykið hlýtur eldskirn sína í þessum hlutverk- um á tónleikunum. Bernharður Wilkinson er enginn nýgræðingur í starfi Sin- fóníuhy ómsveitar íslands en hann hefur verið flautuleikari þar á bæ í 22 ár. Hin síðari misseri hefur honum margoft verið falið að stjórna hljómsveit- inni á aukatónleikum, skólatón- leikum, tónleikaferðum um landsbyggðina, við upptökur og á foræfingum en í kvöld stígur hann í fyrsta sinn á pali á áskriftartónleikum. „Þetta verður stór stund,“ segir Bernharður, þegar tón- leikarnir berast í tal. „Auðvitað lcggur maður sig alltaf fram þegar manni er treyst til að stjórna hljómsveitinni en þetta verða óneitanlega sérstakir tón- leikar. Þá verður gaman að hafa hæfileikafólk á borð við Hávarð og Gerði með sér á sviðinu.“ Bernharður segir að það sé jafnan skrýtið þegar „eitt peðið á taflborðinu11 taki völdin í sínar hendur. Verkefnið sé því vanda- samt. „Ef til vill væri auðveld- ara fyrir mig að stjórna ein- hverri allt annarri sinfóníu- hljómsveit en þeirri sem ég leik með sjálfur. Sinfóníuhljómsveit íslands er hins vegar skipuð fagfólki sem hefur sýnt mér mikla tillitsemi." Auk starfa sinna í hljómsveitinni hefur Bernharður komið víða við í íslensku tónlistarlífi. Hann kennir við Tónlistarskólann í Reykjavík, var leiðbeinandi Sinfóníuhljómsveitar æskunnar og er félagi í Blásarakvintett Reykjavíkur, auk þess sem hann stjórnar Hljómeyki og Söngsveitinni Fílharmóníu. Tónlistarmanninum fellur því aldrei verk úr hendi - og þannig vill hann hafa það. „Tónlistin er mínar ær og kýr og sem sakir stendur get ég ekki hugsað mér að gefa neitt af þessu upp á bátinn. Ef ég þarf á hvíld að halda fer ég bara upp í Heiðmörk að hlaupa og sný endurnærður til baka.“ Einleikararnir, Hávarður Tryggvason og Gerður Gunnarsdóttir, eru ekki heldur ókunnugí herbúðum Sinfóníuhljómsveitar íslands; Gerður lék með sveitinni veturinn 1994-95 og Hávarður réðsttil hennar haustið 1995. Eru þau á einu máli um að þeim sé sýndur mikill heiður með tónleikunum í kvöld, ekki síst þar sem stjórn Sinfóníunnar hafi haft frumkvæði að því að fá þau til liðs við sig en oftar en ekki verða íslenskir tónlistarmenn að sækja um að fá að leika einleik með hljómsveitinni. „Þetta er einstakt tækifæri og á án efa eftir að verða mikil upplifun," segir Hávarður og bætir við að verkefnið sé í senn ögrandi og örvandi. „Það er nauðsynlegt að uppfylla sínar listrænu kröfur annars staðar en í hljómsveit," segir Gerður, sem tekur upp þráðinn, en hún hefur undanfarin ár verið félagi í Sinfóníu- og Óperuhljómsveit Kölnarborgar. „Þetta er líka mjög mikilvægur liður í því að halda sér í formi og kemur_því öllum til góða á endanum. Á því hefur Sinfóníuhljómsveitin skilning og hefur því stutt vel við bakið á okkur á æfingatímanum og Bernharður Wilkinson hefur reynst okkur ákaflega vel.“ Gerður segir að tónleikarnir séu jafnframt mikilvægir fyrir sig í öðrum skilningi - hún leggi mikla áherslu á að viðhalda tengslunum við ísland og vilji, þrátt fyrir að vera búsett erlendis, vera virk í íslensku tónlistarlífi. í kvöld muni hún þó sýna á sér nýja hlið, því hér um slóðir sé hún kannski þekktari fyrir flutning nútímatónlistar, einkum með Caput-hópnum. Heima er best! Hávarður hefur fullan skilning á þessu viðhorfi en hann bjó um tólf ára skeið í Frakklandi og Belgíu, þar sem hann starfaði meðal annars með Hljómsveit tónlistarskólans í París og Hljómsveit Flæmsku óperunnar í Antwerpen. „Hugurinn leitar alltaf heim,“ segir hann, „og eftir þessa löngu dvöl erlendis þykir mér ákaflega gott að búa á Islandi að nýju.“ Svo sem fyrr segir nefnist verkið sem Gerður og Hávarður munu flytja saman í kvöld Grand duo og er eftir ítalska tónskáldið Giovanni Bottesini sem hóf kontrabassann til vegs og virðingar sem einleikshljóðfæri. Eru einleikararnir sammála um að hér sé á ferð „virtúósískt11 verk af bestu gerð. Einleiksverk sitt sækir Hávarður jafnframt í smiðju Bottesinis, Elegía mun það heita - „lagrænt verk sem sumir sellistar hafa rennt hýru auga og vijjað láta umskrifa fyrir sitt hljóðfæri." Einleiksverkið sem Gerður mun flytja er eftir Ernest Chausson og nefnist Poeme. Segir hún tónskáldið hafa samið það skömmu fyrir andlát sitt. „Chausson var mikill Wagner-aðdáandi og áhrifa frá honum gætir í þessu verki sem er í senn Ijóðrænt og dramatískt í uppbyggingu." A undan og eftir þessum tónverkum mun Sinfóníuhyómsveit íslands flytja Sjóræningjann eftir Hector Berlioz og Sinfóníska dansa eftir Sergei Rachmaninoff á tónleikunum sem hefjast klukkan 20.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.