Morgunblaðið - 06.03.1997, Page 28
28 FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Hugarburð-
ur á Mokka
ALÞJÓÐLEGA myndlistarsam-
steypan AKUSA opnar sýningu á
verkum hugarburðarins Werner
Kalbfleisch í
Mokka föstudag-
inn 7. mars. AK-
USA er skamm-
stöfun fyrir
átaksverkefnið
Akureyri-Norð-
ur-Ameríka und-
ir forystu Justin
Blausteins og
Ásmundar Ás-
mundssonar sem
búsettur er í New York. Sýning
Þjóðveijans Wemer Kalblfleisch á
Mokka er eitt fjölmargra listaverka
sem tvímenningarnir hafa skapað
á undanförnum árum. Af öðru
markverðu efni frá samsteypunni
má nefna röð póstkorta og bók
með tilvitnunum í spakmæli heims-
þekktra nýlistarmanna, en þar er
til að mynda haft eftir Yoko Ono:
„Lennon sagði: Give Peace a
Chance. Ég segi: Give My Art a
Chance.“ Þessi orð Ono eru bók-
staflega töluð úr munni Ásmundar
og Blausteins enda fara þeir ekki
fram á annað en að list þeirra njóti
sannmælis.
í kynningu segir: „Sýning Kaib-
fleisch markar viss þáttaskil í sögu
AKUSA því þessi umdeilanlegi
listamaður er nánast óþekktur
samanborið við þær stórstjömur
sem félgamir hafa hingað til átt í
samstarfí við. Satt að segja er
hann svo gott sem óskrifað blað.
í sjaldgæfu einkaviðtali við Kalb-
fleisch í sýningarskrá kemur fram
að hann gengur einkum út frá
þýskum og amerískum popplögum
í málverkum sínum.“
Ásmundur
Ásmundsson
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
í SÖLKU Völku er lífi alþýðufólks á kreppuárunum vel lýst.
Leikfélag Hveragerðis sýnir Sölku Völku
Hveragerði. Morgunblaðið.
í ÁR fagnar Leikfélag Hveragerðis þeim tímamót- unglingar í aukahlutverkum. Anna Jórunn Stefáns-
um að 50 ár eru síðan félagið var formlega stofn- dóttir formaður Leikfélagsins sagði að ótrúlega vel
að. í tilefni af afmælinu mun Leikfélagið frumsýna hefði gengið að fá fólk til liðs við félagið bæði til
leikrit byggt á sögum Halldórs K. Laxness um
Sölku Völku næstkomandi föstudagskvöld. Bækurn-
ar um Sölku Völku eru með fyrstu skáldsögum
Halldórs Laxness. Fyrri bókin, Þú vínviður hreini,
kom út árið 1931 en seinni bókin, Fuglinn í fjör-
unni, árið 1932. í sögunum lýsir skáldið lífi fátæks
alþýðufólks í litlu, afskekktu sjávarplássi á kreppu-
árunum. í leikgerð þeirra Stefáns Baldurssonar og
Þorsteins Gunnarssonar stökkva síðan persónur
bókanna ljóslifandi fram á sviðið.
Leikfélagið ræðst ekki á garðinn þar sem hann
er lægstur með uppfærslu þessa verks. Fyrir lítið
leikfélag getur það verið þrautin þyngri að manna
svo stóra sýningu sem þessa en hlutverkin eru vel
á þriðja tuginn. Einnig koma við sögu börn og
að leika sem til að aðstoða við sýninguna á annan
hátt, en það eru ófá handtökin sem inna þarf af
hendi áður en að frumsýningu kemur. Eins og
gefur að skilja eru leikarar á ýmsum aldri. Yngsti
leikarinn er rétt 5 ára en sá elsti er Stefán Sigurðs-
son, 96 ára. Það má til gamans geta þess að Stefán
er elsti íbúi Hveragerðisbæjar, og hefur hann tekið
virkan þátt í starfi Leikfélagsins undanfarin ár.
Það er Inga Bjarnason sem leikstýrir Sölku
Völku. En hún hefur leikstýrt hjá atvinnu- sem og
áhugaleikfélögum vítt og breitt um landið, setti
hún meðal annars Sölku Völku upp á Egilsstöðum
fyrir nokkrum árum.
Salka Valka verður frumsýnd næstkomandi
föstudagskvöld í Hótel Hveragerði.
Viðar leikstýrir
Krabbasvölun-
um í Færeyjum
LEIKENDUR á æfingu.
„Þú ert í blóma lífsins, fíflið þitt“
LEIKLISTARKLÚBBUR NFFA á
Akranesi frumsýnir laugardag-
inn 8. mars nk. leikritið „Þú ert
í blóma lífsins, fíflið þitt“ sem
Davíð Þór Jónsson samdi ásamt
ungliðadeild Leikfélags Hafnar-
fjarðar. í kynningu segir, að leik-
ritið sé þroskasaga stúlku frá
getnaði til stúdentsprófs og
bregði skoplegu ljósi á hina
venjulegu viðkomustaði mann-
KVIKMYNPIR
Stjörnubíó
GULLBRÁ OG
BIRNIRNIR þRÍR
„GOLDIELOCKS AND THE
THREE BEARS“ ★
Leiksljóri: Brent Loefke. Handrit:
Mike Snyder. Aðalhlutverk: Hanna
Hall, Dwier Brown, Stacy Greason,
Steven Furst og BiU Cobbs. Raddir:
Edward Asner, Rita Rudner og
David Allan Grier. Santa Monica
Pictures. 1996.
ÆVINTÝRIÐ um Gullbrá og
birnina þijá verður sárasaklaust og
eskjunnar á þessari leið. Leikarar
eru 30 auk fjögurra manna hljóm-
sveitar. Töluvert er af frum-
saminni tónlist í sýningunni.
I upphafi sýningar verða
áhorfendur fyrir gjörningum
fjöltæknideildar leikklúbbsins á
hraðferð frá fæðingu til stúdents-
prófs.
Leikstjóri er Sigrún Valbergs-
dóttir.
GRÍMA, eina atvinnuleihúsið í
Færeyjum, sem verður 20 ára á
þessu ári, er nú að æfa leikritið
Krabbasvalirnar eftir Marianna
Goldman. Leikritið var tilnefnt af
hálfu Svíþjóðar til leikskáldaverð-
launa Norðurlanda á síðasta ári.
Leikstjóri sýningarinnar í Færeyj-
um er íslenskur, Viðar Eggerts-
son, og er þetta önnur sýningin
sem hann leikstýrir í Færeyjum í
vetur, en sl. haust frumsýndi Klak-
svikar sjónleikarfelag undir hans
stjóm breskan samkamálagaman-
leik og fékk sú sýning afbragðs
dóma. Viðar er ekki eini íslending-
urinn sem kemur að sýningu
Grímu, því leikmynd og búninga
við Krabbasvalirnar gerir Snorri
Freyr Hilmarsson. Sex leikarar
fara með hlutverk í sýningunni,
þar af tvær leikkonur sem útskrif-
ast hafa frá Leiklistarskóla ís-
lands, Birita Mohr og Kristina
Hansen.
Krabbasval-
irnar eru nú einn-
ig í æfingu í
Þjóðleikhúsinu.
Leikritið segir
frá þremur kon-
um sem beijast
við krabbamein
og lýsir á nær-
færinn og á
stundum mis-
kunnarlausan
hátt samskiptum þeirra, lífi og
viðhorfum.
Krabbasvalirnar verða frum-
sýndar í sjónleikarhúsinu í Þórs-
höfn laugardaginn 5. apríl.
Og eins og mjög er í tísku einnig
eru náttúruvemdarsjónarmið ofar-
lega á blaði í ævintýrinu. Bófarnir
starfa hjá stórfyrirtæki sem vill iðn-
væða fallegt fjallahérað bjamanna
en Gullbrá og frændi hennar standa
í vegi fyrir þeim sem staðfastir
umhverfisvemdarsinnar. Leikur
allra er í besta falli við hæfi þijú-
bíós af þessari stærðargráðu; við-
vaningslegur og tilþrifalaus.
Gullbrá er dæmi um það þegar
kvikmyndagerðarmenn elta uppi
tískustraumana en hafa ekkert til
málana að leggja sjálfir. Þeir ættu
að gera það fyrir okkur að láta
gömlu, góðu ævintýrin í friði.
Arnaldur Indriðason
Talmyndir dýranna
meinlaust í höndum Hollywood-
manna. Þegar fjörutíu mínútur voru
liðnar af þessari bamamynd, sem
byggir lauslega á hinu sígilda ævin-
týri, hafði fátt markvert gerst nema
Gullbrá hafði farið í útreiðartúr.
Eftir það hressist myndin reyndar
nokkuð en eftir situr þó ákaflega
viðburðasnauð og þunnildisleg þijú-
bíómynd í dáðlausri leikstjóm Brent
Loefke.
Það er mjög í tísku að láta dýr
tala á hvíta tjaldinu um þessar
mundir. Lassí greyið upplifði þögla
skeið dýramyndanna og fékk aldrei
að segja neitt en nú samkjafta ekki
hundar, birnir, grísir og hestar í
hverri myndinni á fætur annarri.
Og ekki er það merkilegt sem bless-
uð dýrin segja í þessari nýjustu
talmynd úr dýraríkinu. Birnimir
þrír eru gerðir að dæmigerðri amer-
ískri kjarnafjölskyldu neyslusamfé-
lagsins þar sem bjamarhúnninn
hlustar á ræflarokk en mamma og
pabbi blaðra um vindganginn í karl-
inum og matargræðgi og svo horfa
þau á sjónvarpið! Ed Asner talar
fyrír bjarnapabba og hefur farið
með merkilegri hlutverk.
Viðar
Eggertsson
Niðurfall í
Undir pari
SÝNINGIN Niðurfall verður
opnuð í dag fimmtudaginn kl.
20 í Undir pari. Um sýninguna
segir í kynningu: ,J3ýningin
er sú tilgangslausasta, er jafn-
framt áhrifamesta sem vitað
er til að hafi farið fram. Lista-
mennirnir sækja innblástur í
tilgangslausar samræður. Tré,
niðurföll, naut og rollur ásamt
ýmsum áhugaverðum listmun-
um munu án efa valda óróa
og vekja ugg í heilabúi.
Samspil hljóðs og myndar
er notað til ertingar. Sýningar-
gestir fá að fylgjast með
Skiddi-Gunnari sem mun hafa
aðsetur í sýningaraðstöðunni
um helgina."
Sýningin stendur til laugar-
dagsins 8. mars og er opin kl.
20-23.
Myndlist með
djassívafi
GUNNILLA Möller sýnir um
helgina grafík, teikningar og
myndir unnar með blandaðri
tækni í Haukshúsum á Álfta-
nesi. Sýningin er haldin á veg-
um Lista- og menningarfé-
lagsins Dægradvalar og er
opin á laugardag og sunnudag
milli kl. 14 og 17 báða dag-
ana. Carl Möller spilar djass
til heiðurs mágkonu sinni við
opnun á laugardag.
GRÍMUR Marinó
við eitt listaverka sinna.
Grímur Marinó
í nýjan
sýningarsal
í NÝJUM húsakynnum
Áhaldahúss Kópavogs heldur
Grímur Marinó Steindórsson
sýningu á verkum sínum, en
þar er rými til sýningarhalds.
Grímur hefur valið myndir sem
eru að mestu leyti gerðar við
ljóð, sem sum hver hafa birst
í ljóðabókum, sem hann hefur
myndskreytt. Hér er um að
ræða tvær ljóðabækur eftir
Hrafn A. Harðarson: Tón-
myndaljóð og Hlér og tvær
ljóðabækur eftir Kristjönu
Emilíu Guðmundsdóttur, Ljóð-
blik og Ljóðgeisla. Eitt ljóð er
eftir Guðmund Hermannsson,
yfirlögregluþjón.
Samin hafa verið lög við
mörg ljóðanna og eru nótumar
með ljóðunum við hveija
mynd. Gunnar Reynir Sveins-
son tónskáld er höfundur
flestra laganna, en Þórður G.
Halldórsson er höfundur eins
lagsins. Þijú glerverk era á
sýningunni.
Sýningin er opin frá kl.
13-16.30 virka dag og til kl.
18 laugardaga og sunnudaga.