Morgunblaðið - 06.03.1997, Side 31
30 FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997 31
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
ÁTÖKIN í ALBANÍU
UPPREISNARÁSTANDIÐ í Albaníu sýnir glögglega,
hversu erfitt það er að koma á lýðræði og markaðsbú-
skap í fyrrum kommúnistaríkjum Austur-Evrópu. Ástæð-
urnar eru margvíslegar og nokkuð breytilegar eftir lönd-
um, en mestu erfiðleikarnir stafa af efnahagslegu hruni
í flestum þeirra og niðurníðslu opinberra stofnana. Lýð-
ræðisleg hefð er ekki til i sumum þessara landa og rétt
merking hugtaksins varla til í hugum almennings, því um
áratugaskeið notuðu kommúnistar það um alræði Flokks-
ins. Það er því engin furða, að uppbygging lýðræðislegra
stjórnarhátta að vestrænni fyrirmynd taki lengri tíma en
margir vonuðust til eftir fall kommúnismans í þessum
heimshluta.
Kveikjan að ólgunni í Albaníu, sem er fátækasta land
Evrópu, var gjaldþrot svonefndra píramítasjóða, sem
fjárglæframenn notuðu til að ginna auðtrúa almenning
til að fjárfesta í með fyrirheitum um mikinn hagnað. Fjöldi
fólks glataði þannig aleigu sinni og komst á vonarvöl.
Forseti landsins, Sali Berisha, og ríkisstjórn hans er talin
bera ábyrgð á gjaldþroti sjóðanna og því beindist reiði
almennings gegn stjórnvöldum. Mótmælin hafa síðan
breytzt í vopnuð átök og talið er, að tugir manna hafi fallið
í þeim. Algjört uppreisnarástand hefur ríkt á sumum lands-
svæðum. Berisha forseti, sem þingið endurkaus í byijun
vikunnar sem forseta næstu fimm árin, hefur fyrirskipað
her og lögreglu að láta til skarar skríða gegn mótmælend-
um. Neyðarlög gilda í landinu, sem sviptir fólk réttindum
sínum, og fjölmiðlar eru allir undir hæl stjórnvalda. Það
er til marks um, hversu alvarlegt ástandið er í landinu,
að erlendir fréttamenn hafa flestir horfið á brott. Erfitt
er því að fá réttar upplýsingar um framvindu mála í Alban-
íu.
Bandaríkjastjórn hefur mótmælt endurkjöri Berisha
forseta og setningu neyðarlaga, sem að hennar mati eru
sett til að koma í veg fyrir tjáningarfrelsi og réttmæt
mótmæli almennings. Engar líkur eru þó á íhlutun í Alban-
íu af hálfu Bandaríkjastjórnar eða ríkja Evrópusambands-
ins. Framkvæmdastjóri NATO, Javier Solana, hefur og
vísað á bug slíkum hugmyndum og segir samningaviðræð-
ur einu leiðina til lausnar á vanda Albana.
Enn er óljóst, hvort ástandið í Albaníu leiðir til endan-
legs uppgjörs við hina kommúnísku fortíð landsins. Það
virðist ætla að taka allmörg ár í sumum þeirra ríkja, sem
áður töldust leppríki Sovétríkjanna.
DEILA ÍSRAELA OG
PALESTÍNUMANNA
*
AKVÖRÐUN ríkisstjórnar Israels um byggingu nýs
íbúðarhverfis fyrir gyðinga í austurhluta Jerúsalem
hefur verið harkalega gagnrýnd af ríkisstjórnum víða um
heim. Yasser Arafat, leiðtogi Palestínumanna, hefur for-
dæmt ákvörðunina, og sagt hana brot á samþykktum
Sameinuðu þjóðanna og á Hebron-samkomulaginu, sem
Bandaríkin hafa ábyrgzt. Clinton Bandaríkjaforseti harm-
aði þetta skref ísraelsstjórnar strax á fimmtudag og sagði:
„Ég hefði viljað að þessi ákvörðun hefði ekki verið tekin
vegna þess að ég tel hana ekki skapa traust, ég tel hana
skapa tortryggni." Þessi ummæli viðhafði forsetinn áður
en fundurinn hófst í Hvíta húsinu.
Stjórn Benjamins Netanyahus, forsætisráðherra Israels,
virðist m.a. vera að reyna á þolrifin í Bandarikjastjórn
með ákvörðun sinni um að reisa 6.500 íbúðir á hæð milli
Jerúsalem og Betlehem. ísraelar náðu Austur-Jerúsalem
á sitt vald í stríðinu við araba 1967 og líta á alla borgina
sem höfuðborg sína, en Palestínumenn vilja gera Austur-
Jerúsalem að höfuðborg ríkis síns þegar fram líða stundir.
Það er hættuspil, sem ísraelar leika nú og tilræði við
friðarferlið í Austurlöndum. Framkoma þeirra eykur ekki
á traust manna á þessum slóðum, sem er grundvöllur
þess að Palestínumenn og ísraelar geti búið saman í sátt
og samlyndi. Sú var tíðin, að ísraelar áttu óskipta samúð
Vesturlandabúa í átökum þeirra við araba. Það á ekki
lengur við og ástæðan er fyrst og fremst sú7 að umheimin-
um ofbýður hvað eftir annað framferði Israelsmanna í
þessum deilum. Það er augljóst, að núverandi stjórnvöld
í Israel verða af pólitískum ástæðum heima fyrir að ganga
lengra en góðu hófi gegnir. Það er hins vegar ekki til
framdráttar málstað Israelsmanna á alþjóða vettvangi.
*
Tekist á um einsetningu skóla í Arbæjarhverfi
SÚ hugmynd hefur m.a. komið fram að skipta Árbæjarskóla í tvo sjálfstæða og ótengda skóla, annars vegar
barnaskóla og hins vegar unglingaskóla sem yrði jafnframt safnskóli hverfisins.
Morgunblaðið/Sverrir
Skiptar skoðanir um nýjan
skóla norðan Hraunbæjar
Unnið er að því innan Rey kj avíkurborgar að
koma á einsetningu skólanna í Arbæjarhverfí.
Ýmsar hugmyndir eru uppi en ekki eru allir
á eitt sáttir. Ama Schram kynnti sér m.a.
sjónarmið foreldra og skólastjóra í þessu máli.
IGRUNNSKÓLALÖGUM er
stefnt að því að allir grunnskól-
ar landsins verði einsetnir fyrir
árið 2003. Á höfuðborgarsvæð-
inu vantar einna mest upp á að þetta
markmið náist og að sögn Sigrúnar
Magnúsdóttur, formanns Fræðs-
luráðs Reykjavíkur, eru þijú hverfí
hvað erfiðust, en þau eru Árbæjar-
og Laugarneshverfið og vesturbær-
inn. Að sögn Sigrúnar er það m.a.
vegna þess að þar eru litlar skólalóð-
ir og því erfitt að koma við viðbygg-
ingu við skólana til að koma á einsetn-
ingu.
í Árbæ eru þrír skólar sem taka
við börnum á grunnskólastigi og eru
þeir allir tvísetnir. Selásskóli á Selás-
braut tekur við nemendum frá 1. og
upp í 7. bekk. Ártúnsskóli í Ártúns-
holti tekur_ við nemendum á sama
aldri, en Árbæjarskóli við Rofabæ
tekur við nemendum frá 1. og upp í
10. bekk. Til þess að kanna hvernig
einsetja megi skólana hafa þeir allir
verið metnir út frá sömu forsendum,
að sögn Sigrúnar, til dæmis hefur
rými þeirra verið skoðað og væntan-
leg jbúaþróun.
„Í framhaldi af því hefur komið í
ljós að til þess að hægt verði að gera
Artúnsskóla og Selásskóla heild-
stæða, þannig að þeir geti tekið á
móti nemendum frá 1. til 10. bekk,
þarf að bæta töluvert við byggingu
þeirra. Til þess er landrými í kringum
þá of lítið og því hefur þurft að leita
annarra leiða," segir hún. Ýmsum
möguleikum hefur verið velt upp, af
foreldrum, skólastjórum og Fræðs-
luráði og hafa þijár hugmyndir eink-
um verið nefndar í því sambandi. I
fyrsta lagi að byggja nýjan skóla sem
tæki á móti nemendum frá 1. til 7.
bekk og jafnframt því að hafa Árbæj-
arskóla einungis unglingaskóla eða
svokallaðan safnskóla, sem tæki við
öllum unglingum frá barnaskólunum
þremur í hverfinu.
í öðru lagi að byggður yrði nýr
unglingaskóli sem einnig yrði safn-
skóli hverfisins, en að Árbæjarskóla
yrði breytt í barnaskóla.
í þriðja lagi að Árbæjarskóla yrði
skipt í tvo sjálfstæða og ótengda
skóla, annars vegar barnaskóla og
hins vegar unglingaskóla sem yrði
jafnframt safnskóli hverfisins.
Ef sú hugmynd verður ofan á að
byggja nýjan skóla, að sögn Sigrún-
ar, verður að byggja þann skóla á lóð
norðan Hraunbæjar, en samkvæmt
| mati frá Borgarskipulagi er það eina
svæðið sem kemur til greina í hverf-
inu.
Nokkur samstaða
um einn safnskóla
Fulltrúar foreldra og skólastjórar
í skólum Árbæjar virðast sammála
þeirri hugmynd að í Árbæ verði einn
safnskóli en þrír barnaskólar, en í dag
er það þannig að Árbæjarskóli er
bæði barnaskóli hverfísins í kring en
jafnframt unglingaskóli eða safnskóli
hinna barnaskólanna tveggja. Að
sögn Sigrúnar er Fræðsluráð einnig
á því að núverandi fyrirkomulagið sé
óæskilegt,„því það verði m.a. til þess
að erfiðara sé fyrir suma nemendur
úr litlum barnaskólum að kom í
heimaskóla til annarra krakka, þar
sem þau hafa verið alla sína skóla-
göngu“, segir hún.
Aðrir benda líka á að safnskólar í
öðrum hverfum borgarinnar hafí gef-
ið góða raun, til dæmis Hagaskóli í
vesturbæ sem er safnskóli fyrir Mela-,
Vesturbæjar-, og Grandaskóla.
Ellert Borgar Þorvaldsson, skóla-
stjóri Ártúnsskóla, segir marga kosti
fylgja því að hafður sé einn safnskóli
í hverfinu sem taki við nemendum
úr þremur bamaskólum. í einum
safnskóla yrðu fleiri nemendur en það
ýti undir fjölbreytileika náms og gefi
aukna möguleika á valgreinum. „Auk
þess tel ég að í stórum safnskóla
verði öll stjórnun og kennsla mark-
vissari þar sem um sé að ræða svip-
aða aldurshópa."
Þá segir Þorsteinn Sæberg, skóla-
stjóri Árbæjarskóla, að með einum
safnskóla fylgi auk þess sá kostur
að öll börn í hverfinu sitji við sama
borð, því „þannig komi þau öll úr sín-
um barnaskólum til sameiginlegrar
skólavistar í unglingskóla“, segir
hann.
Þó flestir séu á einu máli um kosti
þess að hafa einn safnskóla og þrjá
barnaskóla eru skiptar skoðanir um
það hvernig hægt verði að koma slíku
á. Annars vegar eru hugmyndir uppi
um það að byggður verði barnaskóli
norðan Hraunbæjar, en hins vegar
að þar verði byggður unglingaskóli.
Barnaskóli eða unglingaskóli
norðan Hraunbæjar
Eftir fund með skólastjórum í Árbæ
síðasta haust ákvað Sigrún að fylgja
eftir þeirri hugmynd að barnaskóli
yrði þyggður norðan Hraunbæjar og
að Árbæjarskóli yrði unglingaskóli
barnaskólanna þriggja. Þorsteinn
Sæberg, skólastjóri Árbæjarskóla,
hefur verið hlynntur þessari hugmynd
og segir að verði sú ákvörðun tekin
að byggja viðbótarskóla í Árbæjar-
hverfí sé skynsamlegasta leiðin að
byggja lítinn barnaskóla. „Húsnæði
Árbæjarskóla eins og það er í dag
mun með mjög góðu móti rúma fímm
hundruð nemendur á unglingastigi,
en það er líklega of stórt fyrir þijú
hundruð nemendur á barnaskóla-
stigi,“ segir hann.
Þorsteinn segist ennfremur treysta
borgaryfirvöldum fullkomlega til að
standa þannig að skólabyggingu
norðan Hraunbæjar að til fyrirmyndar
verði hvað aðgengi varðar.
Fulltrúar foreldra í hverfinu hafa
hins vegar verið óánægðir með þá
hugmynd að byggja barnaskóla norð-
an Hraunbæjar og kom sú andstaða
berlega í ljós á nýlegum hverfísfundi
með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur,
borgarstjóra Reykjavíkur.
Lára Kristjánsdóttir, formaður for-
eldrafélags Selásskóla, segir að lóðin
norðan Hraunbæjar sé á afar óheppi-
legum stað fyrir yngstu börnin því
ef þar yrði barnaskóli þyrftu börnin
m.a. að fara yfír Bæjarbrautina,
hættulega umferðargötu. „Við hjá
foreldrafélaginu teljum að betra sé
að byggja unglingaskóla norðan
Hraunbæjar og að Árbæjarskóli verði
barnaskóli," segir hún. „Árbæjarskóli
er mjög vel staðsettur og þaðan er
stutt í ýmsa þjónustu fyrir skólaböm,
eins og til dæmis sundlaugina og fé-
lagsmiðstöðina. Þannig þyrftu yngstu
börnin ekki að þeytast fram og til
baka yfir stórar götur til að sækja
skóla og aðra þjónustu," segir hún.
Páll Árnason, formaður foreldrafé-
lags Árbæjarskóla, tekur undir þetta
sjónarmið Láru og segir að þar sem
komið hafí í ljós að ekki sé hægt að
byggja heildstæða grunnskóla við
Selás- og Ártúnsskóla sé hann þeirrar
skoðunar að æskilegast sé að nýr
unglingaskóli verði byggður á svæð-
inu norðan Hraunbæjar. „Við hjá for-
eldrafélaginu teljum það eina valkost-
inn í stöðunni núna,“ segir hann.
Sigrún segist hins vegar hafa beð-
ið byggingardeild Borgarverkfræð-
ings um að láta arkitekt athuga hvort
skólabygging kæmist fyrir á títt-
nefndu svæði norðan Hraunbæjar.
„Samkvæmt þeirri athugun gæti
barnaskóli og jafnvel leikskóli sem
væri eitthvað samnýttur vel komist
fyrir á þessu svæði,“ segir hún. „Á
hinn bóginn yrðu fleiri böm í ungl-
ingaskólanum og því þyrfti sú bygg-
ing að vera stærri og þar með yrði
ef til vill þröngt á þingi."
Sigrún segist hins vegar ætla að
taka tillit til þessara sjónarmiða for-
eldra og leggur áherslu á að hún
muni ekki leggja til að barnaskóli
verði byggður norðan Hraunbæjar við
slíka andstöðu. „Því þarf að skoða
aðrar leiðir betur til dæmis þá að
skipta Árbæjarskóla í tvo sjálfstæða
skóla,“ segir hún og leggur áherslu
á að enn hafí engin ákvörðun verið '
tekin.
Sigrún segir að stefnt sé að því
að Fræðsluráð taki endanlega ákvörð-
un um þessi mál í lok mánaðarins.
„Áður en af því verður munum við
kynna tillögurnar fyrir foreldrum í
Árbæjarhverfi,“ segir hún.
Óánægja með að skóli verði
byggður yfir jarðstreng
Þá hefur eitthvað borið á óánægju
meðal foreldra í Árbæ að skóli verði
yfír höfuð byggður norðan Hraunbæj-
ar vegna þess að undir því svæði ligg-
ur háspennustrengur og hafa sumir
bent á hugsanlega skaðsemi þess fyr-
ir heilsuna. Áhöld eru reyndar um
það hvort háspennustrengur undir
íbúðarhúsi geti haft slæm áhrif á
heilsu manna. Að sögn Ivars Þor-
steinssonar, yfirverkfræðings hjá
Rafmagnsveitu Reykjavíkur, liggja
engar rannsóknir fyrir sem sanna
slíkt.
Fulltrúar foreldra hafa hins vegar
skoðað þessi mál og segir Páll Áma-
son eðlilegan hluta af því að gera lóð-
ina tilbúna til byggingar að annað-
hvort verði farið í það að skerma af
strenginn eða færa hann til. „Hvort
tveggja er hægt og er einfaldlega hluti
af lóðaframkvæmdunum," segir hann.
Samkomulag aðila vinnumarkaðar um heimild til fyrírtækjasamninga
Trúnaðarmenn í forsvari
en félögin til ráðgjafar
S AMNINGS AÐILAR á
almenna vinnumarkað-
inum náðu samkomulagi
í ^rradag um sérstakan
kafla í væntanlegum
kjarasamningum lands-
sambanda og verkalýðs-
félaga innan ASÍ við
vinnuveitendur um heim-
ild til að gera fyrirtækja-
* ___________________
samninga. Omar Frið-
riksson kynnti sér
samningsdrögin.
SAMNINGSAÐILAR á al-
menna vinnumarkaðinum
hafa náð samkomulagi um
sérstakan kafla í væntanleg-
um kjarasamningum um heimild til
að gera fyrirtækjasamninga. Þykir
sú niðurstaða tíðindum sæta, þar sem
ekki hefur áður verið samið um
ramma um formbundið samstarf
starfsmanna og fyrirtækja í viðræð-
um heildarsamtaka um gerð kjara-
samninga.
Skv. heimildum Morgunblaðsins
voru það fýrst og fremst verkalýðsfé-
lögin Dagsbrún og Framsókn sem
leiddu þetta mál til lykta fyrir hönd
launþegafélaga, sem hafa sýnt gerð
fyrirtækjasamninga áhuga en Dags-
brún og Framsókn hafa gert sér-
samninga á stórum vinnustöðum ára-
tugum saman og sýndu þessum þætti
samningsgerðarinnar töluverðan
áhuga. Minni áhugi er á gerð slíks
samkomulags innan annarra verka-
lýðsfélaga VMSÍ á landsbyggðinni
og er óvíst að þau muni nýta þessa
heimild. Samkomulagið verður ekki
undirritað fyrr en ljóst er hvort sam-
komulag næst um gerð kjarasamn-
inga í yfirstandandi viðræðulotu,
skv. upplýsingum blaðsins.
Viðræður undir friðarskyldu
í samningsdrögunum segir að sett
verði heimildarákvæði inn í kjara-
samninga um samninga í fyrirtækj-
um um aðlögun ákvæða samningsins
að þörfum og hagsmunum fyrirtæk-
isins og starfsmanna. „Markmið fyr-
Morgunblaðið/Kristinn
ÓVISSU og talsverðrar spennu gætti í húsnæði sáttasemjara um framgang kjaraviðræðna í allan gær-
dag. Á annað hundrað samningamenn voru í húsinu og ræddu menn málin í öllum herbergjum og á
göngum. Á myndinni má sjá Þórarin V. Þórarinsson, framkvæmdastjóra VSÍ, Arnar Sigurðmundsson,
formann Samtaka fiskvinnslustöðva, Víglund Þorsteinsson, varaformann VSÍ, og Halldór Grönvold,
skrifstofustjóra ASÍ spá í stöðuna.
irtækjaþáttar kjarasamnings er að
efla samstarf starfsfólks og stjóm-
enda á vinnustað með það fyrir aug-
um að skapa forsendur fyrir bættum
kjörum starfsfólks með aukinni fram-
leiðni," segir í textanum.
„Viðræður um fyrirtækjaþátt fara
fram undir friðarskyldu almennra
kjarasamninga og skulu teknar upp
með samkomulagi beggja aðila. Þá
komi skriflega fram til hverra samn-
ingnum sé ætlað að ná. Þegar við-
ræður hafa verið ákveðnar ber að
tilkynna það hlutaðeigandi verka-
lýðsfélögum og samtökum vinnuveit-
enda, VSÍ eða VMS. Rétt er báðum
aðilum, starfsmönnum og forsvars-
mönnum fyrirtækis, að leita ráðgjaf-
ar hjá samningsaðilum. Þeir geta í
sameiningu ákveðið að kalla hvor
sinn fulltrúa til ráðuneytis við samn-
ingsgerð. Náist ekki samkomulag
innan fjögurra mánaða getur hvor
um sig án samráðs kallað ráðgjafa
til þátttöku í viðræðunum."
Samnignsaðilar gera ráð fyrir að
hlutverk trúnaðarmanna verði styrkt
en skv. samkomulaginu eiga trúnað-
armenn að vera i forsvari fyrir starfs-
menn í viðræðum við stjómendur fyrir-
tækis. Þeir geta einnig látið kjósa 2-5
menn til viðbótar i samninganefnd,
sem njóti sérstakrar vemdar í starfi.
Stjórnendur upplýsi um afkomu
og starfsmannastefnu
Áður er gengið er til gerðar fyrir-
tækjasamnings skulu stjómendur
upplýsa trúnaðarmenn og aðra í
samninganefnd um afkomu, framtíð-
arhorfur og starfsmannastefnu fyrir-
tækisins. Trúnaðarmaður á rétt á
upplýsingum um launagreiðslur á
vinnustað.
Samkomulag er um hvaða efnis-
þætti semja má um í fyrirtækjasamn-
ingum og víkja frá aðalkjarasamn-
ingum. Hér er m.a. um að ræða heim-
ild til að Ijúka fullum vikulegum
vinnuskilum dagvinnu á íjórum virk-
um dögum. Heimilt verði að taka upp
vaktavinnu til skamms tíma með
minnst mánaðarfyrirvara, Heimilt
verði að færa hluta yfírvinnuálags í
dagvinnugrunn og semja um að safna
saman yfirvinnutímum og taka í stað
þeirra orlof í jafn margar klst. á virk-
um dögum utan háannatíma. Yfírvin-
nutímarnir komi til uppsöfnunar og
greiðist síðar í dagvinnu en yfír-
vinnuálagið á að greiða út. Einnig
verði heimilt að semja um annað fyr-
irkomulag neysluhléa og ráðstafa
hluta orlofs til að draga úr starfsemi
eða loka á tilteknum dögum utan
háannatíma. Þá verði heimilt að þróa
afkastahvetjandi launakerfí án form-
legra vinnurannsókna þar sem það
þykir henta.
Stéttarfélög fari yfir
sanminginn
Starfsmenn eiga að fá hlutdeild í
þeim ávinningi sem fyrirtæki hefur
af breytingum vegna vinnustaða-
samninga og getur hlutur starfs-
manna m.a. komið fram í fækkun
vinnustunda án skerðingar tekna,
greiðslu fastrar upphæðar á mánuði
eða ársfjórðungi, hæfnisálagi, pró-
sentuálagi eða fastri krónutölu á
tímakaup.
Gera á skriflega fyrirtækjasamn-
inga sem bomir verði upp í leyni-
Iegri atkvæðagreiðslu og teljast sam-
þykktir með stuðningi meirihluta
greiddra atkvæða. Mikilvægt ákvæði
er í samningnum sem segir að hlut-
aðeigandi stéttarfélag skuli ganga
úr skugga um að umsamin frávik
og endurgjald fyrir þau, heildstætt
metið, standist ákvæði laga og kjara-
samninga um lágmarkskjör.
Komi upp ágreiningur innan fyrir-
tækis um fyrirtækjasamninga sem
ekki tekst að leysa milli aðila á vinnu-
stað er starfsmönnum heimilt að leita
aðstoðar stéttarfélags eða fela því
málið til úrlausnar.
Mikil óvissa á löngum fundum í Karphúsinu
Samkomulag um
að taka upp nýtt
kauptaxtakerfi
FULLTRÚAR og samninganefndir
landssambanda og stærstu verka-
lýðsfélaga innan ASÍ biðu spenntir
í allan gærdag og fram eftir kvöldi
eftir að vinnuveitendur legðu fram
gagntilboð að heildarkjarasamningi
svo viðræður um launalið samninga
gætu hafíst af alvöru. Um mið-
nætti lá fyrir að tilboðið yrði ekki
tilbúið fyrr en langt yrði liðið á
nóttu og tók ríkissáttasemjari þá
ákvörðun um að fresta frekari
fundahöldum til morguns og halda
viðræður áfram kl. 9 í dag.
Samningafundir hófust kl. 9 í
gærmorgun og stóðu nánast sam-
fellt fram á kvöld. Mikil óvissa var
meðal samningamanna innan laun-
þegahreyfingarinnar sem rætt var
við í gær um hver viðbrögðin yrðu
við launatilboði atvinnurekenda,
sem væntanlega verður lagt fram
í upphafi viðræðna í dag.
Fram eftir gærdeginum var unn-
ið að samkomulagi um nokkur sér-
mál sem ekki hafði tekist að ljúka
í einstökum hópum og náðist sam-
komulag í einu af erfiðari deilumál-
unum varðandi hvíldartímaákvæði
síðdegis. Talið var afar mikilvægt
að ryðja öllum hindrunum úr vegi
áður en viðræður gætu hafist um
launaliðinn.
Fækkun launaflokka og
starfsaldursþrepa
Viðræður um launabreytingar í
væntanlegum samningum tengjast
samkomulagi sem náðist fyrr í vik-
unni um aðferð við tilfærslu launa-
taxta nær greiddu kaupi. Ekki hef-
ur hins vegar enn náðst samkomu-
lag um upphæðir sem færðar verða
á milli í nýju kauptaxtakerfí.
í endanlegum texta sem sam-
komulag náðist um segir m.a.: „Til
að færa taxtakaup nær greiddu
kaupi eru aðilar sammála um að
taka upp ný kerfi kauptaxta sem
komi að öllu leyti í stað eldri kaup-
taxta. Mikilvægur þáttur í þessari
breytingu er að hækka hlut dag-
vinnukauptaxta. Þetta gerist m.a.
með fækkun launaflokka og starfs-
aldursþrepa eins og fram kemur í
kaupgjaldsákvæðum samningsins.
Á móti taxtahækkun lækka áíags-
og aukagreiðslur sem eru bundnar
í kjarasamningum og/eða ráðning-
arsamningum,“ segir í samkomu-
lagi sem náðst hefur milli vinnu-
veitenda og landssambanda um
þetta mál.
Þar kemur einnig fram að nýir
kauptaxtar eigi ekki að leiða til
meiri hækkunar á launum þeirra
sem vegna álags- eða auka-
greiðslna hafa jafn hátt kaup eða
hærra en skv. nýju kauptöxtunum,
en sem nemur almennri launa-
hækkun skv. samningnum.
Heimilt að halda álags- eða
aukagreiðslum óbreyttum
Kjósi starfsmaður sem nýtur
álagsgreiðslna umfram það sem
kjarasamningar kveða á um að
halda þeim álags- eða aukagreiðsl-
um óbreyttum, þannig að þær
gangi ekki inn í reglubundin dag-
vinnulaun, skal hann tilkynna
vinnuveitanda sínum það skriflega
innan 45 daga frá gildistöku samn-
ingsins.