Morgunblaðið - 06.03.1997, Qupperneq 34
MORGUNBLAÐIÐ
34 FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997
AÐSENDAR GREINAR
FYRIR jól kom út í
Danmörku bók eftir
Uffe Ellemann-Jensen,
fyrrverandi utanríkis:
ráðherra landsins. í
henni lýsir hann störf-
um sínum í því embætti
og er honum meðal ann-
ars tíðrætt um stuðning
Dana við sjálfstæðis-
baráttu Eystrasaltsríkj-
anna, Eistlands, Lett-
lands og Litháens, árin
1990 og 91. Hann
minnist einnig á afstöðu
íslenskra stjórnvalda og
gætir nokkurs misskiln-
ings í þeirri frásögn.
í bók sinni segir Elle-
mann-Jensen að íslensk stjórnvöld
hafi að ýmsu leyti átt hægara um
vik að verða við óskum sjálfstæðis-
sinna við Eystrasalt um stuðning en
þau dönsku. Þannig hefði starfsbróð-
ur hans, Jóni Baldvin Hannibalssyni,
verið kleift að halda í frægðarför til
Eystrasaltslandanna í janúar 1991,
eftir árás sovéskra sérsveita á sjón-
varpsturninn í Vilníus þar sem fjórt-
án óbreyttir borgarar féllu. Orðrétt
skrifar Ellemann-Jensen um þetta:
„Hann var í þeirri sérstöku aðstöðu
að geta farið vegna þess að ísland
hafði verið hluti Danmerkur þegar
við viðurkenndum sjálfstæði Eystra-
saltslandanna árið 1921. Það þýddi
að íslensk stjórnvöld höfðu aldrei
tekið beina afstöðu til innlimunar
landanna þriggja og að þau höfðu
ekki gamla viðurkenningu að verja.“
Þetta er ekki rétt. ísland var fijálst
og fullvalda ríki árin milli stríða. Að
vísu fóru Danir með utanríkismál
íslendinga en aðeins í umboði þeirra
og íslensk stjómvöld áttu frumkvæði
að því að ræðismenn Danmerkur í
Eystrasaltslöndunum fluttu ráða-
mönnum þar sérstaka sjálfstæðisvið-
urkenningu íslands árið 1922. Þetta
hefði Ellemann-Jensen átt að vita,
einkum vegna þess að það voru emb-
ættismenn danska utanríkisráðu-
neytisins sem grófu upp þessa vitn-
eskju vorið 1990, þegar sjálfstæðis-
barátta Eystrasaltsríkjanna færðist
í aukana.
Það var líka íslenskra yfirvalda
að taka afstöðu til innlimunar land-
anna þriggja í Sovétríkin sumarið
1940, því íslendingar höfðu tekið
utanríkismál sín í eigin hendur í maí
sama ár, þegar Þjóðveijar hemámu
Danmörku. Ráðamenn á íslandi voru
ekki jafnósjálfbjarga á þessum árum
og Ellemann-Jensen
segir að hafí síðan kom-
ið eftirmönnum þeirra
til góða.
Hefði líka getað
farið austur
Danski utanríkisráð-
herrann skrifar að hann
hefði alls ekki getað
heimsótt Eystrasalts-
löndin áður en sjálf-
stæðisbaráttan var far-
sællega til lykta leidd.
Hann hefði orðið að
biðja um áritun þangað
hjá sovéskum yfirvöld-
um og það hefði falið í
sér viðurkenningu á
innlimun landanna í Sovétríkin. En
þetta var nákvæmlega það sem Jón
Baldvin gerði; hann horfði alveg
framhjá þeirri þversögn að álíta
Eystrasaltslöndin sjálfstæð ríki en
Rétt skal vera rétt,
segir Guðni Th. Jó-
hannesson í umfjöllun
sinni um bók fv. utan-
ríkisráðherra Dana.
sækja um leyfi til farar þangað hjá
Sovétmönnum. Heimsóknin hafði
ekki þær afleiðingar sem Ellemann-
Jensen fullyrti að raun yrði í hans
eigin tilfelli og ráðamenn í Eystra-
saltslöndunum létu sig engu varða
að Jón Baldvin var með sovéskan
stimpil í vegabréfínu. Þeim fannst
ávinningurinn af heimsókninni skipta
miklu meira máli.
Eins mætti benda á að alls héldu
sex danskir ráðherrar til Eystrasalts-
landanna þessi misseri, auk forsætis-
nefndar danska þingsins. Allir þurftu
þeir sovéskar vegabréfsáritanir
þannig að Ellemann-Jensen hefði átt
að geta farið líka hefði hann viljað.
Utanríkisráðherrar íslands og Dan-
merkur voru á sama báti.
„Danmörk var fyrst“
Ellemann-Jensen heldur því fram
að Danir hafi fyrstir þjóða komið á
stjórnmálasambandi við Eystrasalts-
ríkin, strax eftir að valdaránstilraun
í Moskvu fór út um þúfur í ágúst
1991. „Danmörk varð þar með fyrsta
ríkið sem í raun viðurkenndi fullt
sjálfstæði landanna þriggja," skrifar
hann. Laugardaginn 24. ágúst voru
símbréf send frá Kaupmannahöfn til
höfuðborga Eystrasaltslandanna og
í þeim sagði að Danir hefðu tekið
upp stjórnmálasamband við löndin
þijú. „Daginn eftir gaf ísland út
formlega viðurkenningu sem utan-
ríkisráðherrar Eystrasaltslandanna
undirijtuðu í Reykjavík," bætir Elle-
mann-Jensen við. Þannig að það voru
Danir sem báru sigur úr býtum í
„Eystrasaltsrallinu", lítt dulinni
keppni norrænna ráðamanna og fleiri
um að verða Eistum, Lettum og Lit-
háum að sem mestu gagni.
Ekki myndu allir taka undir vígreif-
ar yfirlýsingar Ellemanns-Jensens.
„Við vorum fyrstir þótt Uffe viður-
kenni það aldrei,“ hefur Jón Baldvin
Hannibalsson sagt. Því til stuðnings
mætti benda á að 11. febrúar 1991
hafði Alþingi áréttað að hin gamla
viðurkenning íslands á sjálfstæði Lit-
háens væri í fullu gildi og 22. ágúst,
tveimur dögum fyrir símbréfasend-
ingar Ellemanns-Jensens, hafði Jón
Baldvin lýst yfir vilja íslenskra stjóm-
valda til að stofna án tafar til stjóm-
málasambands við Eystrasaltsríkin.
Utanríkisráðherrar þeirra skrifuðu
svo fyrst undir formlega samninga
þess efnis í Reykjavík 26. ágúst 1991.
Þaðan héldu þeir til Kaupmannahafn-
ar til hins sama.
Karp um þetta virðist jafnvel hjá-
kátlegt og um keisarans skegg frekar
en eitthvað sem máli skiptir. En rétt
skal þó vera rétt. Vytautas Lands-
bergis, sem var leiðtogi sjálfstæðis-
sinna í Litháen, hefur sagt að honum
hafí alltaf þótt Danir feta í fótspor
íslendinga, ekki öfugt. Og í miðborg
Vilníus er lítil og snotur gata sem var
nefnd Islandsgata til heiðurs íslensku
þjóðinni. Þar er engin Danagata. Að
mati Litháa gerðu íslenskir ráðamenn
meira en aðrir.
Þótt íbúar í hinum Eystrasaltslönd-
unum tveimur beri mikinn hlýhug til
íslendinga vegna aðgerða í sjálfstæð-
isbaráttunni hefur farið minna fyrir
því en í Litháen, sérstaklega í Lett-
landi, en þar voru valdhafar einna
varkárastir og töldu hina geðríkari
granna sína í suðri allt of fífldjarfa.
I Lettlandi hafa Danir vinninginn og
þar naut Ellemann-Jensen þvílíkrar
hylli þegar sjálfstæði vannst að
óvenjumörg meyböm vom skírð lett-
neska konunafninu Uffe.
Frásögn Ellemanns-Jensens af
þætti hans og danskra stjómvalda í
sj álfstæðisbaráttu Eystrasaltsríkj -
anna er fróðleg og skemmtileg. Hún
er líka gagnleg þrátt fyrir þá ann-
marka sem hér hefur verið bent á.
Kannski misskilningur hans um
stöðu íslands sýni líka fyrst og
fremst að hann var ekki að hafa
fyrir því að kynna sér til hlítar af-
stöðu og aðgerðir íslenskra ráða-
manna. Honum hefur kannski ekki
þótt taka því vegna þess að þeir
væru of áhrifalitlir og máttvana.
Höfundur erstundakennari í sögu
við Háskóla íslands.
Misskilningur
Ellemanns-
Jensens
Guðni Th.
Jóhannesson
Discovory Diesel ▼
ÞÚ KEMST
VEL ÁFRAM
- á Discovery Diesel
Glæsilegur og rúmgóður farkostur, með
slaglanga og mjúka gormafjöðrun sem er
ein sú besta sem í boði er. Komið
og skoðið vel útbúinn _
□iscovery Diesel í sýningar-
sal okkar Suðurlandsbraut 14.
SUBURLANDSBRAUT 14 . SÍMI 553 8B3B