Morgunblaðið - 06.03.1997, Page 41

Morgunblaðið - 06.03.1997, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997 41 MINNINGAR INA JENSEN +ína Jensen fæddist í Selja- nesi í Árneshreppi 2. október 1911. Hún lést á Land- spítalanum 17. febrúar síðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Fossvogskirkju 25. febrúar. Ina Jensen var mik- ilhæf kona og lét alls staðar gott af sér leiða. Mér fannst ætíð ótrúlegt hvað ína gat hjálpað öðrum, enda þótt hún væri samtímis með stórt heimili. Þegar ég kynntist henni fyrst í Djúpuvík, árið 1942, þá voru þau hjón með símstöðina og fjölmenni mikið í Djúpuvík yfir sumarmánuð- ina. Þá var síldin í Húnaflóa og mikilli síld landað í Djúpuvík, en síldarverksmiðjan þar var þá full- komnasta og jafnframt stærsta síldarverksmiðja landsins. í júníbyijun 1947 brenndist ég mikið og var rúmliggjandi næstu sjö mánuði, fyrst heima á Gjögri. Læknarnir ungu, sem höfðu aðset- ur í Djúpuvík, komu daglega og vildu svo að ég yrði flutt inn í Djúpuvík. Þar lá ég í tæpan hálfan mánuð. Þann tíma kom Ina heitin oft á dag til mín. Ég man það allt- af hversu góðir andar komu með ínu, og mér leið betur þegar hún með sínum lánshöndum hjálpaði Bjarnveigu í Naustvík að skipta á mér. Pabbi minn vildi strax að ég yrði flutt á Landspítalann, en ungu læknarnir vildu það ekki og þótt- ust geta hjálpað mér. Loksins var ég flutt á Landspítalann, því ína og Bjarnveig sögðu að það væri A Veitiitgaltú/ið GAPi-mn Sími 555-4477 Erfidrykkjur HÓTEL REYKJAVÍK Sigtúni 38 Upplýsingar í símum 568 9000 og 588 3550 jniiinnix H H Erfidrykkjur P E R L A N Sími 562 0200 lIIHÍlTIlf ekki leyfilegt að lækn- arnir ungu hefðu svona mikil völd, þar sem þeir vissu ekki hvað þeir væru að gera. Mér er í fersku minni hvað læknamir á Landspítalanum sögðu þegar ég kom þangað. Þeir hristu höfuðið og sögðu að læknarnir í Djúpuvík vissu ekki hvað bruni væri. Það var stórt heim- ili hjá þeim heiðurs- hjónum Sigurði Pét- urssyni og ínu. Og börnin þeirra níu að tölu, öll svo efnileg og lærðu fljótt að vinna. Enda veit ég ekki annað en þau hafi öll reynst ábyrgt og elskulegt fólk. Athyglisvert er hversu ína komst vel áfram í þessu jarðneska lífi. Sigurður hafði útgerð og börn- in fylgdust vel með athafnalífinu. Ég tel nauðsynlegt að börn alist upp í sveit og læri að vinna við atvinnulífið. Það á ekki að henda börnunum á barnaheimilin eins og nú er í tísku. Guð blessi minningu ínu Jensen. Ég óska börnum, afkomendum og tengdabörnum ínu Jensen að þau líkist henni og Sigurði Péturs- syni, hvað manngæsku varðar, og láti alls staðar gott af sér leiða eins og þau heiðurshjón gerðu. Guðs blessun fylgi ykkur öllum í nútíð og framtíð. Lifið öll heil og lengi. Þess óskar, Regína Thorarensen, Hulduhlíð, Eskifirði. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld- ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 5691115, eða á netfang þess þess Mbl@centrum.is en nánari upp- lýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínu- bil og hæfilega línuleng — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Crfisdrykkjur + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA SÓLBJARTSDÓTTIR (Lóa) sem lést á heimili s'ínu 26. febrúar, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstudaginn 7. mars kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún M. Sigurbjörnsdóttir, Jón Guðmundsson, Hulda Sigurbjörnsdóttir, Orweli Utley, Margrét Sveinbjörnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartanleg móöursystir, mágkona, frænka og vinur, SÓLVEIG PÉTURSDÓTTIR sjúkraliði, Njálsgötu 79, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstu- daginn 7. mars kl. 13.30. Aðstandendur. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför móður minnar, tengda- móður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR ÞORMAR VIGFÚSDÓTTUR, Torfufelli 25, Reykjavík. Vigfús Þormar Guðmundsson, Guðlaug Pálsdóttir, Stefán Þormar Guðmundsson, Jóna Gunnarsdóttir, Rafn Guðmundsson Jóhanna Pétursdóttir, Skúli Guðmundsson, Þórdís Rúnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (5691115) og í tölvupósti (MBL@CENTRUM.IS). Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfi- legri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þijú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.- Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmæl- isfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi út- prentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR SVEINS GUÐMUNDSSON frá Árbakka, Hnífsdal, andaðist á Sjúkrahúsi ísafjarðar 2. mars. Útförin fer fram frá ísafjarðarkirkju laugardaginn 8.mars kl. 14.00. Aðalheiður Tryggvadóttir Guðmundur Tr. Sigurðsson, Kristín R. Einarsdóttir, Gerður Kristinsdóttir, Sóley Sigurðardóttir, Jón Halldórsson, Heiðar Sigurðsson, Einhildur Jónsdóttir, Magnús R. Sigurðsson, Hafdís Brandsdóttir, Ólafur G. Sigurðsson, Ósk Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Faðir okkar og tengdafaðir, BERGUR BJARNASON, dvalarheimilinu Fellaskjóli, Grundarfirði, áður til heimilis Hjarðarholti, Grindavík, lést á Sjúkrahúsi Stykkishólms þriðjudaginn 4. mars. Kveðjuathöfn fer fram frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 8. mars kl. 14.00. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd ættingja og vina hins látna, Bjarni Bergsson, Guðbergur Bergsson, Vilhjálmur Bergsson, Hinrik Bergsson, Hanna Sigurðardóttir, Marita Bergsson, Guðný Guðbjartsdóttir. + Ástkær eiginkona min, móðir okkar, tengda- móðir, amma og dóttir, GUÐNÝ STEFÁNSDÓTTIR kennari, andaðist á heimili sínu, Flraunflöt við Álftanes- veg, að kvöldi þriðjudagsins 4. mars. Magnús Hjörleifsson, Erla Magnúsdóttir, Sigurður Óli Sigurðsson, Ari Magnússon, Silja Magnúsdóttir, Magnús Óli Sigurðsson, Erla Guðmundsdóttir, Stefán V. Þorsteinsson. + Móðir okkar, tengdamóðir og amma, KRISTÍN RAGNHEIÐUR JÖRGENSEN, lést á heimili sínu, Bugðulæk 9, Reykjavík, þriðjudaginn 4. mars 1997. Kristín R. Úlfljótsdóttir, Sigurgísli Skúlason, Björn Úlfljótsson og barnabörn. + Ástkær móðir okkar, KRISTJANA JAKOBSDÓTTIR, Aðalgötu 5, Keflavfk, andaðist á Sjúkrahúsi Suðurnesja þriðjudaginn 4. mars. Böm hinnar látnu. + Utför móður okkar og tengdamóður, SIGRÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Fagradal, verður gerð frá Víkurkirkju laugardaginn 8. mars. Athöfnin hefst kl. 14:00. Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á dvalarheimilið Hjallatún í Vík. Bílferð verður frá Umferðarmiðstöðinni Í Reykja- vík kl. 9:30 með viðkomu í Fossnesi á Selfossi. Böm, tengdabörn og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.