Morgunblaðið - 06.03.1997, Page 56

Morgunblaðið - 06.03.1997, Page 56
56 FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ MYN DBÖND/KVIKMYN Dl R/ÚTVARP-S JÓN VARP REEF-menn bregða á leik. Blúsgrunnsrokk MYNPBÖNP Sjálfumgleði leikstjórans ► ÞÓ AÐ innan bresks tónlistar- heims þrífist ótal stefnur og straumar i tónlist er til það sem menn vilja kalla hreinræktað enskt rokk. Þess háttar léttleik- andi rokk hvílir á blúsgrunni með þungri undiröldu og söngvarar gjarnan með grófa rödd og þó lagvæna eins og sannast í sveitinni Reef. Reef er um margt dæmigerð fyrir enskt rokk og hefur notið mikillar hylli þar í landi og víðar undanfarið fyrir lög af skífu sinni Glow. Kunnugir heyra strax berg- mál frá áttunda áratugnum á skíf- unni, því þar er margt sem minnir á bernskuár Led Zeppeiin, Savoy Brown, Groundhogs og fleiri sveita. Reef-liðar hafa verið að síðan snemma árs 1993 og náðu snemma eyrum Sony-útgáfunnar sem gaf sveitinni tíma til að mótast frekar áður en fyrsta breiðskífan kom út. Reef-Úðar lögðu land undir fót allt árið 1994, og léku þá á ótelj- andi krám og knæpum um þverar Bretlandseyjar. Á þeirri ferð kom- ust þeir undir verndarvæng Pauls Wellers og hituðu nokkuð upp fyrir hann þar til menn töldu að nóg væri komið af undirbúningi; kominn væri tími á breiðskífu. Skífuna hljóðrituðu Reef-menn síðan á skömmum tima með Clive Martin sér til halds og trausts og sú hefur slegið rækilega í gegn í heimalandinu og meðal annars ná talsverðri hylli hér á landi. Dauður (Dead Man)___________________ D r a m a ★ Framleiðandi: 12 Gauge. Leikstjóri og handritshöfundur: Jim Jarm- usch. Kvikmyndataka: Robby Mull- er. Tónlist: Neil Young. Aðalhlut- verk: Johnny Depp og Gary Farm- er. 115 mín. Bandaríkin. Ciby 2000/Háskólabíó 1997. Útgáfudag- ur: 4. mars. Myndin er bönnuð börn- um innan 16 ára. WILLIAM Blake (Johnny Depp) er ungur maður sem fer á flakk um framandi svæði Banda- ríkjanna á síð- ustu öld, þegar hann lendir á flótta eftir að hafa orðið manni að bana. í fylgd með honum er índí- áninn Enginn, sem heldur að Blake sé sam- nefnda enska Ijóðskáldið. Og eins og Jarmusch orðar það sjálfur: „Augu Blake opnast fyrir því hve lítið skilur milli heims hinna liðnu og lifandi þegar honum er kastað inn í ver- öld sem er bæði grimm og illskilj- anleg.“ Það verður að segja að Jarmusch hefur oft verið betri, ef ekki alltaf. Myndin er lang- dregin, og vægast sagt oftast leið- inleg. Hún er á allan hátt mjög illskiljanleg, þ.e.a.s. ef hún fjallar um eitthvað. Það er eins og þegar menn eru búnir að hljóta vissa viðurkenningu, að þá leyfist þeim allt. Hér hefur þessi annars frum- legi og skemmtilegi leikstjóri fall- ið um sjálfan sig í þeirri blekk- ingu. Persónusköpun er vægast sagt engin, né nálgun við persón- ur, sem ég myndi álíta frumskil- yrði þegar um er að ræða mjög hægar myndir, sem byggjast á sérstæðri upplifun persónanna af t.d. „heimum þeirra liðnu og lif- andi...“. Ýmislegt má þó telja upp myndinni til hróss, og fær hún eina stjörnu í verðlaun fyrir það. Kvikmyndatakan er flott, og er eiginlega verst að myndin sé ekki í lit í þessu fallega landslagi. Margir skemmtilegir leikarar koma við sögu, s.s. Robert Mitc- hum, John Hurt og Iggy Popp og er leikurinn í myndinni almennt mjög góður, þótt þeirri staðreynd takist ekki að lyfta myndinni upp á hærra plan. Búningarnir eru líka flottir, og það er nú bara allt... Hildur Loftsdóttir Ungir kvikmyndagerðarmenn heija á ný lönd Svört komedía úr af- kimum Reykjavíkur RAGNAR Bragason kvikmyndagerðarmaður. M Y N D V A K I ^ Gætiö þess að klukkan í myndbandstækinu sé rétt stillt. Tækin með Myndvaka- búnaði eru yfirleitt merkt ShowView eða VídeoPlus+. Munið að setja tóma spólu I tækið og að hafa það í sambandi. Kennitölur tlayskrarliða // verða birtar á dagskrérsiðti Morgunblaéslns. Sláðu inn kennitölu dagskrárliðar sem þú ætlar að taka upp. Tækið fer sjálfkrafa í gang einni mínútu fyrir auglýstan upphafstíma og hættir 4 mínútum eftir að dagskrárliðnum á að Ijúka samkvæmt dagskrá. Réttar ráslr i myndbandstækinu: Sjónvarpið: rás 1 Stöð 2: rás 2 Sýn: rás 3 Spurningar vegna Myndvaka UNGIR íslenskir kvikmyndagerð- armenn eru óhræddir við að koma sér á framfæri og sífellt berast nýjar fregnir um að þeir hafí feng- ið til liðs við sig erlenda framleið- endur og fjármagnsmenn til að aðstoða sig við að koma hugar- * fóstrum sínum á hvíta tjaldið. Ragnar Bragason, Þórir Snær Sigurjónsson, Skúli Malmquist og Huldar Breiðfjörð eru í þessum hópi kvikmyndagerðarmanna en þeir stofnuðu kvikmyndafyrirtæk- ið Zik Zak í kringum myndina Feldur sem þeir eru nú að koma á laggirnar. Þeim til aðstoðar við fjármögnun myndarinnar verður James Mackay en hann er best þekktur fyrir að hafa framleitt nær allar myndir hins sérstæða kvikmyndagerðarmanns Dereks Jarman. Þórir Snær og Skúli eru nú í London og vinna að fjármögn- un myndarinnar en Ragnar, sem -> verður leikstjóri myndarinnar og handritshöfundur ásamt Huldari Breiðfjörð, sér um hlið mála hér heima. Meðframleiðandi að mynd- inni verður íslenska kvikmynda- samsteypan. Öll á ensku Þeir fengu ábendingu á sínum tíma um að hafa samband við kvikmyndafyrirtækið Basilisk Communications, þar sem það er frekar lítið, en erfiðlega hefur gengið að fá stærri fyrirtæki til samstarfs. „Áður höfðum við fengið undirbúningsstyrk úr evr- ópskum sjóði, „European Script- fund“ og nú höfum við fengið fé frá skoska kvikmyndasjóðnum til að endurskrifa hluta handritsins yfir á skosku en annars verður myndin öll á ensku,“ sagði Ragn- A ar Bragason í samtali við Morgun- blaðið. Myndin verður væntanlega tek- in upp í ágúst og september og fara tökur fram á íslandi og á Skotlandi. Hún segir frá örvænt- ingarfullri leit leigubílstjóra að syni sínum sem hefur verið rænt. Leitin hefst í Glasgow og endar á austurlenskum veitingastað á íslandi þar sem starfsmenn og vandamenn taka á vandamálum sínum á mjög róttækan hátt. Þýðir ekkert að sitja heima Félagarnir þrír í Zik Zak eru allir sjálfmenntaðir í kvikmynda- gerð. Þeir kynntust í gegnum stuttmyndagerð og hafa brallað ýmislegt saman. Ragnar hefur þó farið á námskeið í kvikmyndagerð til New York í tvo mánuði og Þórir Snær hefur starfað hjá Propaganda Films og Lakeshore Entertainments. „Við erum marg- sinnis búnir að sækja um í Kvik- myndasjóði Islands en það hefur hvorki gengið né rekið. Það þýðir þó ekkert að sitja heima heldur herja frekar á önnur lönd.“ LESENDUR Morgunblaðsins hafa nú í nokkra daga haft aðgang að Mynd- vakatölum. Vafalaust hafa ýmsar spumingar vaknað hjá þeim sem hafa reynt að nýta sér þessa tækni. Enn sem fyrr er fólki bent á að leita fyrst í handbókina með myndbandstækinu eða til þess sem seldi því tækið. Ef lesendur hafa hins vegar ein- hveijar frekari spurningar vegna notkunar Myndvaka geta þeir hringt í síma 569 1236 á Morgunblaðinu frá klukkan 11-12 fyrir hádegi út þessa viku, sent símbréf í sima 569 1222 merkt Myndvaki, eða tölvupóst á netfang gudni@mbl.is.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.