Morgunblaðið - 06.03.1997, Síða 60
CB>
AS/400 er...
...med PowerPC
64 bita örgjörva
og stýrikerfi
wgmililfifrifr
<o> NÝHERJJ sk,
OPIN KERFI HF.
Sími: 567 1000
llpyecö'a^
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBLjaCENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTl 1
FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Karl Guðmunds-
son skipverji
á Vikartindi
„Bið fyrir
þakklæti
til allra“
„ÉG vil biðja fyrir þakklæti til allra
sem komu að björguninni," sagði
Karl Guðmundsson hleðslustjóri, eini
íslendingurinn um borð í Vikartindi,
þegar Morgunblaðið ræddi við hann
í Þykkvabæ í gærkvöldi.
Karl sagði að björgunin hefði
gengið vel þegar hún loks hófst og
allir björgunarmenn hefðu staðið sig
frábærlega.
Skipbrotsmennirnir voru fluttir í
björgunarsveitabílum frá strandstað
i félagsheimilið í Þykkvabæ, þar sem
konur á staðnum biðu með ijúkandi
súpu, brauð og kaffi. Innan dyra var
andrúmsloftið tiltölulega afslappað
miðað við aðstæður en óvissuna um
framhaldið mátti þó lesa úr andlitum
skipbrotsmanna. Skipstjórinn vildi
ekkert tjá sig og bannaði skipveijum
að tala við blaðamenn.
Skipbrotsmennirnir eru allir
ómeiddir nema einn sem er lítilshátt-
ar klemmdur á hendi, að sögn Þórs
Kolbeinssonar læknis.
-----» ♦ ♦-----
Eldur í
kjallara
ELDUR kom upp í kjallara í húsi á
Árbæjarbletti, gegnt Árbæjarsafni,
í gærmorgun. Mikill eldur var í íbúð-
inni þegar slökkvilið kom að. Þrír
voru í íbúðinni, menn á miðjum aldri,
en þeir höfðu komist út úr íbúðinni
og voru þeir fluttir til rannsóknar á
slysadeild. Ekki er talið að þeir hafi
orðið fyrir reykeitrun.
Björgunarafrek þegar TF-LÍF bjargaði 19 skipverjum
Morgunblaðið/Kristinn
ÁHÖFNIN á TF-LÍF eftir komuna til Reykjavíkur í gærkvöldi. Talið frá vinstri: Friðrik Sigurbergsson læknir, Hilmar Ægir
Þórarinsson flugstjórnarmaður, Auðunn F. Kristinsson stýrimaður og sigmaður, Benóný Ásgrímsson flugstjóri og Hermann Sig-
urðsson flugmaður.
„Tókst vel að koma
þeim um borð“
BENÓNÝ Ásgrímsson flug-
stjóri á TF-LIF segir að hag-
stæð vindátt hafi orðið til hjálp-
ar þegar áhöfn þyrlunnar
bjargaði skipverjunum 19 af
Vikartindi í gærkvöldi.
„Það tókst mjög vel að koma
þeim um borð,“ sagði Benóný
í samtali við Morgunblaðið eftir
að þyrlan lenti á Reykjavíkur-
flugvelli kl. 23.15 í gærkvöldi,
en tæplega hálftíma tók að hífa
alla áhöfnina um borð í þyrl-
una. Voru skipbrotsmennirnir
19 fluttir í land í einni ferð.
Benóný sagði TF-LÍF hafa
staðið sig vel og hún hefði sann-
að sig við þessa björgun. Þetta
er fyrsta stóra björgunarað-
gerð þyrlunnar af þessu tagi,
en mesta björgunaraðgerð sem
hún hefur áður tekið þátt í var
þegar snjóflóðið féll á Flateyri
haustið 1995.
Helgi Hallvarðsson, yfirmað-
ur gæsluframkvæmda, segir
TF-LÍF og áhöfn hennar hafa
staðið sig með afbrigðum vel
við björgunina.
„Veðrið var svo slæmt og
aðstæður allar að þetta var
mikið björgunarafrek hjá
þyrlumönnum, og hefði getað
farið verr,“ segir hann.
Ríkissjóður tekur 6,3 milljarða kr.
skuldabréfalán á alþjóðamarkaði
Vextir bréfanna undir
millibankavöxtum
Samningafundum frestað á miðnætti
YSÍ og VMS ætla
að leggja tilboð
fram kl. 9 í dag
RÍKISSJÓÐUR gaf í síðustu viku
út skuldabréf til þriggja ára á al-
þjóðlegum markaði að fjárhæð 150
milljónir þýskra marka sem jafn-
gildir tæplega 6,3 milljörðum
króna. Kjör bréfanna liggja undir
millibankavöxtum í Lundúnum og
er þetta í fyrsta sinn sem ríkissjóð-
ur fær slík kjör á löngu erlendu
láni á almennum markaði.
Mikilvægt fyrir ríkið
Að sögn Ólafs ísleifssonar,
framkvæmdastjóra alþjóðasviðs
Seðlabankans, hefur ríkissjóður
ekki áður gefið út bréf á alþjóða-
markaði til þriggja ára. Mikilvægt
sé fyrir ríkið og e.t.v. fyrir aðra
íslenska lántakendur að fá mark-
aðsviðmiðun á vaxtakjörum miðað
við þennan lánstíma.
Bréf ríkissjóðs voru gefin út 27.
febrúar og endurgreiðast að þrem-
ur árum liðnum. Umsjón með út-
gáfunni hafa Credit Suisse First
Nálægt kjörum
lántakenda í láns-
hæfisflokki AA
Boston og Salomon Brothers sem
bæði eru leiðandi fyrirtæki á mark-
aðnum. Bréfin bera vexti sem
svara til 121/2 punkti undir milli-
bankavöxtum í Lundúnum. Út-
gáfugengi bréfanna er 99,847.
Þóknun fyrir útgáfuna nemur 0,1%
af útgáfufjárhæð. Að teknu tilliti
til þessara þátta nemur heildar-
kostnaður við útgáfuna tæpum 4
punktum undir millibankavöxtum
en þeir eru um 3,25% um þessar
mundir. Til samanburðar má geta
þess að heildarkostnaður við út-
gáfu ríkissjóðs á árinu 1996 á
skuldabréfum til fimm ára nam
tæpum 4 punktum yfir millibanka-
vöxtum.
Bréfin eru skráð í Frankfurt og
í Lúxemborg. Andvirði lánsins
verður varið til að greiða upp eldri
lán ríkissjóðs frá 1987 að fjárhæð
125 milljónir marka auk lækkunar
á skammtímalánum.
Kjörin vekja athygli erlendis
Ólafur segir nokkuð hafa verið
skrifað um útgáfuna í erlendum
fjármálaritum og hafi kjör bréf-
anna vakið athygli fyrir það hversu
hagstæð þau séu ríkissjóði. Bent
hafi verið á að þau fari nálægt
kjörum lántakenda í lánshæfis-
flokki AA, en ríkissjóður sé metinn
A1/A+ af bandarísku matsfyrir-
tækjunum Moody’s og Standard &
Poor’s. Hér kunni að vera á ferð
vísbending um að markaðurinn
meti ísland nokkru hærra en mats-
fyrirtækin hafa treyst sér til að
gera til þessa. Að öðru leyti endur-
spegli kjör bréfanna góða eftir-
spurn á markaði og harða sam-
keppni milli verðbréfafyrirtækja.
SAMNINGAFUNDUM hjá ríkis-
sáttasemjara var frestað um mið-
nætti í gærkvöldi til kl. 9 í dag,
að ákvörðun ríkissáttasemjara, en
gagntilboð vinnuveitenda að heild-
arsamningi hafði þá ekki enn verið
afhent gagnaðilunum. Samninga-
nefndir landssambanda ASÍ, Dags-
brúnar, Framsóknar og Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur höfðu þá
beðið klukkustundum saman eftir
tilboðinu en erfiðleikar í tölvu-
vinnslu munu m.a. hafa tafið frá-
gang tillagnanna í gærkvöldi og
var talið að þeim yrði ekki að fullu
lokið fyrr en liðið yrði á nóttina.
„Við höfum afhent sáttasemjara
tillögur að breytingum á kjara-
samningum verslunarmanna,
Verkamannasambandsins, Iðju og
Landssambands iðnverkafólks en
enn eru í vinnslu tillögur að samn-
ingum rafiðnaðarmanna og bygg-
ingariðnaðarmanna," sagði Þórar-
inn V. Þórarinsson, framkvæmda-
stjóri VSÍ. Hann sagði að allar til-
lögurnar yrðu lagðar fram sameig-
inlega á fundinum kl. 9 í dag fyrir
alla samningshópa launþegahreyf-
ingarinnar.
Samkomulag um hvíldartíma
og fyrirtækjaþátt
Á annað hundrað samningamenn
voru saman komnir í húsnæði sátta-
semjara í gærdag og voru þar fram
eftir kvöldi. Gætti töluverðrar
óþreyju meðal ýmissa fulltrúa
landssambanda. Forsendur þess að
launatilboð atvinnurekenda yrði
lagt fram voru að samkomulag
lægi fyrir um ýmis sérmál og liggur
það nú í fyrir í flestum málum.
Náðist m.a. samkomulag í gær um
hvíldartímaákvæði og einnig hefur
náðst niðurstaða um fyrirtækjaþátt
samninga við sum landssambönd
og félög innan ASÍ.
■ Trúnaðarmenn/31