Morgunblaðið - 12.03.1997, Side 6

Morgunblaðið - 12.03.1997, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 12. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Óvenju mikil ölduhæð und- anfama viku Gæslu- mönnum færðar þakkir SAMTÖK sjómanna, Far- manna- og fiskimannasam- band íslands, Sjómannasam- band íslands og Vélstjóra- félag íslands, hafa sent þyrlu- sveit og starfsmönnum Land- helgisgæslunnar hugheilar þakkir fyrir frábær störf þeirra við björgun áhafna í sjósköðum hér við land að undanförnu. í þakkarkveðju til þessara aðila segir að afrek þeirra verði lengi í minnum höfð. Jafnframt senda samtök sjómanna aðstandendum, starfsfélögum og vinum þeirra þriggja sem hafa látist sínar innilegustu samúðar- kveðjur. ÓVANALEGA mikil ölduhæð hef- ur mælst við landið undanfarna viku. Hefur ölduhæð ekki farið neðar en fimm metra frá 5. mars síðastliðnum og 6. mars mældist hún 13,5 metrar sem er það mesta sem hefur verið mælt í mánuðin- um, að sögn Gísla Viggósonar, forstöðumanns rannsóknaþróunar hjá Siglingastofnun íslands. Mikil ölduhæð stafar af djúpum lægðum Þegar ölduhæð er mæld er mið- að við svokallaða kenniöldu eða viðmiðunaröldu og segir Gísli að hæsta aldan geti verið um 50 til 86% hærri en kennialdan segir til um. Að sögn Gísla stafar þessi mikla ölduhæð af djúpum lægðum sem hafa stefnt upp að landinu úr suð- vestanátt sem hefur verið ríkjandi það sem af er þessum mánuði. „Lægðirnar hafa verið mjög djúp- ar, en því dýpri sem lægðirnar eru, því meiri vindhraði og eftir því sem vindhraðinn er meiri, þeim mun hærri eru öldurnar,“ segir hann. Gísli segir ennfremur að aldan sé fyrst og fremst á yfirborðinu Héraðsdómur Reykjavíkur Sjópróf vegna Dís- arfells og Þorsteins SJÓPRÓF hefjast í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag vegna Dísarfells- ins. Sjópróf vegna Þorsteins GK hefjast að líkindum næsta mánu- dag í Héraðsdómi Reykjaness. Dómþing haldið fyrir luktum dyrum? Áður en sjópróf vegna Dísarfells hefjast tekur dómari afstöðu til þess hvort dómþing skuli haldið fyrir luktum dyrum. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins í gær var líklegt að svo yrði, með vísan til b og c liðar 8. greinar laga um meðferð opinberra mála, þar sem en ölduhreyfingin fari minnkandi eftir því sem hún nái lengra niður í hafið. „En um tíu metra há alda, sem hefur um 350 metra öldu- lengd, getur náð um eitt hundrað og tuttugu til eitt hundrað og átta- tíu metra niður,“ segir hann. Oft illviðrasamt í marsmánuði Páll Bergþórsson veðurfræðing- ur segir að marsmánuður sé yfir- kveðið er á um heimild til slíks til hlífðar vitnum, brotaþolum eða öðrum sem málið varðar, eða ef um er að ræða þinghöld á meðan á rannsókn máls stendur og sérstök hætta þykir á sakarspjöllum ef þing væri háð fyrir opnum dyrum. Jón Finnbjörnsson, dómarafull- trúi, verður í forsæti dómsins í sjóprófum vegna Dísarfells. Sjópróf vegna Þorsteins GK hefjast að líkindum næsta mánu- dag, samkvæmt upplýsingum Hér- aðsdóms Reykjaness. Skúli Magn- ússon, dómarafulltrúi, verður í forsæti dómsins. leitt sá árstími sem búast megi við slæmu tíðarfari eins og raunin hefur orðið að undanförnu, en venjulega fari veðrið ekki að kyr- rast fyrr en í apríl. Að sögn Unnar Ólafsdóttur, veðurfræðings hjá Veðurstofu Is- lands, er gert ráð fyrir því að það dragi úr lægðagangi upp að land- inu á föstudag og á laugardag en á sunnudag er búist við nýrri lægð úr suðvestri. Morgunblaðið/RAX VIKARTINDUR í stórsjó undan suðurströndinni miðvikudaginn í síðustu viku, en um þær mundir mældist ölduhæð 13,5 metrar. HEGRANES SK 2 er 498 brúttórúmlestir og var smíðað 1977. Hegranes fékk í skrúfuna í fyrrinótt Á reki í tíu tíma Lokaðir bátar í öllum nýrri kaupskipum LOKAÐIR björgunarbátar eru í Arnarfellinu og Heidi, systurskipi Arnarfells, sem hefja mun siglingar fyrir Samskip 8. apríl næstkom- andi, og að sögn Ólafs Ólafssonar, forstjóra Samskipa, verður í kjölfar þess að Dísarfellið sökk metið á vegum fyrirtækisins hvort hafa eigi slíka báta í öllum skipum félagsins þó ekki sé krafa um það. í samtali sem birtist í Morgun- blaðinu í gær við Gunnar Braga Kjartansson háseta á Dísarfelli sag- ist hann telja miklar líkur á því að allir 12 í áhöfn skipsins væru á lífi í dag ef á því hefði verið lokaður björgunarbátur. „Við munum fara yfír það hvort þessir bátar eigi að vera á öllum skipum félagsins, en við höfum hagað björgunarbúnaði og öðrum búnaði í skipunum eins og við teljum best vera,“ sagði Ólafur. Notagildi fer eftir kringumstæðum Að sögn Einars Hermannssonar, starfsmanns Félags íslenskra kaup- skipaútgerða, fer það eftir aldri skipa hvort þau eru með lokaða björgunarbáta, svokallaða frífalls- báta, og sagði hann að flest skipa Eimskips væru með slíka báta vegna þess hve floti félagsins væri nýlegur. Frífallsbátar eru hafðir aftan á skipum í rennu og sagði Einar að á eldri skipum þyrfti oft að nánast að endurbyggja yfirbygg- ingu skipsins ef koma ætti slíkum búnaði fyrir. Hann sagði að allur öryggisbún- aður kaupskipa væri samkvæmt alþjóðlegum reglum, sem settar eru af Alþjóðasiglingamálastofnuninni. Þessar reglur væru í sífelldri mótun og endurskoðun og stöðugt væru að taka gildi breytingar sem gerðar hafa verið á þeim. Hins vegar væri misjafnt hvort slíkar breytingar væru afturvirkar eða ekki og það væru þær ekki hvað varðar lokaða björgunarbáta aftan á skipum. „Eins og gefur að skilja er ávinn- ingur af öllum þessum búnaði, en hversu framkvæmanlegt þetta er, það er kannski annar handleggur. Svo er það líka alveg ljóst að það fer afskaplega mikið eftir kringum- stæðum hvort ákveðinn búnaður kemur að notum eða ekki,“ sagði HEGRANES SK fékk veiðifæri sín í skrúfuna tæpar 100 mflur suðaust- ur af Stokksnesi um klukkan 2.30 í fyrrinótt og var á reki til hádegis í gær, þegar Hólmatindur kom skipinu til aðstoðar, eða tæpar tíu stundir. Gísli Svan Einarsson, útgerðar- stjóri Fiskiðjunnar Skagfirðings hf., segir að hægt hafí verið að beita stýri skipsins og skipið því ekki í mikilli hættu, þrátt fyrir suðvestan 6-7 vindstig og nokkra ölduhæð. Ekki hætta á ferðum „í góðu veðri reyna menn að kafa niður með skipinu og losa úr skrúfunni en það var ekki viðlit i því veðri sem þarna var. Við teljum hins vegar ekki að hætta hafi verið á ferðum,“ segir Gísli. Skipið var á veiðum þegar þetta gerðist og virðist sem belglínan hafi vafíst utan um skrúfuna og dregið til sín belginn og pokann. Skipveijar reyndu í um þrjá klukku- tíma að losa úr skrúfunni en gáfust þá upp og föluðust eftir aðstoð Hólmatinds. Kom hann á staðinn á hádegi í gær og hóf að draga Hegra- nes áleiðis til Eskifjarðar. Að sögn Gísla er þess að vænta að skipin komi til Eskifjarðar fyrir hádegi í dag. Tafir frá veiðum hafí í för með sér fjárhagstjón fyrir út- gerðina en óvíst sé hvort einhveijar skemmdir hafí orðið á skipinu. Hegranes bjargaði um borð líki annars sjómannsins er fórst þegar Dísarfell sökk miðja vegu milli ís- lands og Færeyja að morgni sunnu- dags en síðar sama dag var lík mannsins flutt um borð í varðskip. Gámar færðust til í leiguskipi Eimskips Sex frysti- gámar eru ónýtir SEX frystigámar úr þýsku leiguskipi Eimskips, St. Pauli, eyðilögðust algerlega og átta til tíu aðrir löskuðust mismik- ið í miklum veitingi skipsins á svipuðum slóðum og tíma og Dísarfellið fórst aðfara- nótt sunnudags milli íslands og Færeyja. Inniliald gámanna jafnvel ónýtt Að sögn Hjörleifs Jakobs- sonar, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Eimskips, er innihald fímm þeirra sex gáma sem eyðilögðust mjög illa farið og jafnvel ónýtt. I gámunum voru frystar fisk- afurðir af ýmsum gerðum. St. Pauli kom til Þórshafn- ar í Færeyjum snemma á sunnudagsmorgun og hélt áfram þaðan til Hamborgar í Þýskalandi í gærmorgun eftir að skemmdu gámarnir höfðu verið teknir úr lest skipsins. Eitthvað af fiskinum var látið í nýja gáma og sent áfram en annað var sett í frystigeymslu í Þórshöfn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.