Morgunblaðið - 12.03.1997, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.03.1997, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 12. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Besta rekstrarár í 40 ára sögu Síldarvinnslunnar í Neskaupstað Hagnaður nær 500 millj. ífyrra Arðsemi eigin flár 47% samanborið við 25% árið áður REKSTUR Síldarvinnslunnar hf. í Neskaupstað skilaði 494 milljóna króna hagnaði á síðasta ári, sem er tæplega 330 milljónum króna meiri hagnaður en árið á undan þegar hagnaðurinn var 165 milljónir króna. Arðsemi eigin fjár á árinu var 47% samanborið við 25% árið áður. Þetta er verulega betri útkoma en gert var ráð fyrir í rekstraráætlun ársins og besta ár í rekstri fyrirtækisins í fjörutíu ára sögu þess, að sögn Finnboga Jónssonar, framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar. Finnbogi sagði þijár meginskýr- ingar á þessari góðu afkomu. í fyrsta lagi hefði reksturinn gengið mjög vel á árinu og hagnaður fyr- ir afskriftir og vexti aukist úr 434 milljónum króna í 625 milljónir eða um nær 200 milljónir króna milli ára. Skýringin á því væri að loðnu- veiðar og -vinnsla hefðu gengið mjög vel á öllu síðasta ári og mun betur en árið á undan. I öðru lagi hefði gengishagnaður verið 43 milljónum króna hærri á síðasta ári en árið 1995 og í þriðja lagi hefði söluhagnaður hlutabréfa numið 155 milljónum króna á ár- inu, en Síldarvinnslan seldi í fyrra hluta af eignarhlut sínum í Hrað- frystistöð Eskifjarðar sem keyptur var árið áður. Mjög ánægður „Ég er mjög ánægður með þessa útkomu. Þetta er auðvitað sérstaklega gott ár og ekki hægt að gera ráð fyrir að svona ár komi aftur á næstunni," sagði Finnbogi. Síldarvinnslan hefur ráðist í miklar fjárfestingar að undan- förnu. Bæði hefur nýtt frystihús verið byggt og loðnuverksmiðjan verið endurnýjuð að miklu leyti. Finnbogi sagði aðspurður að þeir hefðu verið að byggja fyrirtækið upp á undanförnum árum og búa það undir framtíðina. Hann væri bjartsýnn á að útkoman á þessu ári yrði þokkalega góð, „en það eru miklar sveiflur í loðnuveiðum og vinnslu og það eiga eftir að koma erfið ár þar,“ sagði Finn- bogi. 360 starfsmenn Rekstrartekjur Síldai’vinnslunn- ar námu 3.539 milljónum króna i fyrra og hækkuðu um 35% milli ára. Heildarvelta félagsins nam rúmum 4,2 milljörðum króna að meðtöldum innlögðum eigin afla. Eigið fé í árslok nam 1.656 millj- ónum króna og jókst úr 28% í ársbyrjun í 37% í árslok. Síldarvinnslan h/ Úr reikninaum 1996 f Rekstrarreikningur Miiijónir króna 1996 1995 Breyt. Rekstrartekjur 3.539 2.620 +35,1% Rekstrargjöld 2.913 2.375 +22,7% Hagnaður fyrir afskriftir 626 435 +43,9% Afskrittir 233 190 +22,6% Fjármagnsgjöld 50 96 ■47,9% Hagnaður af reglulegri starfsemi 343 149 +130.2% Hagnaður tímabilsins 494 165 +199.4% Efnahagsreikningur 31. des.: j Eignir: \ Milljánir króna Veltuf jármunir 920 640 +43,8% Fastafjármunir 3.573 2.538 +40,8% Eignir samtals 4.493 3.178 +41,4% I. Skuidir og eigid té: i Skammtímaskuldir 1.009 621 +62,5% Langtímaskuldir 1.828 1.652 +10,7% Eigið fé 1.656 905 +83.0% Skuldir og eigið fé samtals 4493 3.178 +41,4% Kennitölur Eiginfjárhlutfali 37% 28% Arðsemi eigin fjár 47% 25% Veltufé frá rekstri Milljónirkróna 497 285 +74,4% Síldarvinnslan gerir út einn ís- fisktogara, _tvo frystitogara og tvö nótaskip. í landi rekur félagið frystihús, loðnuverksmiðju, salt- fískverkun, _ síldarsöltun og dráttarbraut. Á síðasta ári störf- uðu að meðaltali 360 starfsmenn hjá félaginu og námu heildarlau- nagreiðslur 965 milljónum króna. Aðalfundur félagsins verður haldinn laugardaginn 19. apríl næstkomandi. Morgunblaðið/Golli SIGURÐUR Helgason, forstjóri Flugleiða hf., og Mike Starkings, framkvæmdastjóri CODA, undirrituðu samninga fyrirtækjanna. Flugleiðir kaupa CODA tölvukerfi FLUGLEIÐIR hf. hafa undirritað samning um kaup á fjárhagsupp- lýsinga- og rekstrarstjórnunar- kerfi frá breska fyrirtækinu CODA. Hér er um að ræða upplýs- ingakerfí sem getur tengst ýmsum sérhæfðum tölvukerfum félagsins og skipst á upplýsingum við þau. Þannig getur kerfíð t.d. tengst birgðakerfi í flug-, hótela- og bíla- leigurekstri, upplýsingakerfi tæknisviðs, framleiðslukerfí í flug- eldhúsi, fraktkerfí, tekjuupplýs- ingakerfi og söluuppgjörskerfi. Flugleiðir eru með starfsemi víða um lönd og kerfið tengir fjar- lægar vinnustöðvar og skrifstof- urnar við höfuðstöðvarnar um al- netið, að því er segir í frétt frá félaginu. Fram kemur að einn höfuðkost- ur kerfisins að mati Flugleiða er hversu auðveldlega það getur tengst við önnur töivukerfi. CODA fjárhagsupplýsingakerfið fellur ennfremur vel að nýju skipulagi og vinnubrögðum sem Flugleiðir eru að innleiða í rekstrinum. Fé- lagið hefur ákveðið að byggja starfsemina í vaxandi mæli upp sem keðju afkomueininga sem hver um sig fær skýra rekstrar- og afkomuábyrgð. Þetta krefst afar fullkominna rekstrarupplýs- inga og leysir CODA þetta vel af hendi, að mati félagsins. Það réð ennfremur vali Flug- leiða, að CODA kerfið þótti afar sveigjanlegt, notendaviðmót gott og hægt að vinna samtímis með fjölda gjaldmiðla. Að hluta til íslenskt Um 1.400 fyrirtæki hafa tekið í notkun CODA-fjárhagsupplýs- ingakerfí, en meðal þeirra eru Avon-snyrtifyrirtækið, Caterpill- ar, HMV-samsteypan, Rolls Royce o.fl. CODA-kerfið er að hluta til íslenskt sem rekja má til kaupa breska fyrirtækisins á hluta af fyrirtækinu íslenskri forritaþróun hf. á síðasta ári. Sá hluti kerfisins ber heitið CODA Enterprise og gefur hann m.a. möguleika á al- netstengingu. Þá gerir þessi hluti kleift að stjórna vinnuferlum í fyr- irtækinu og framsetningu á ýmiss konar stjórnunarupplýsingum. Undirbúningur að kaupum Flug- leiða á nýju upplýsingakerfi hefur staðið yfir í u.þ.b. eitt ár, en gert er ráð fyrir að það verði komið í notkun um næstu áramót. Hagnaður Jarðborana óx um tæpan fjórðung JARDBORANIR HF Úr reikningum ársins 1996 Rekstrarreikningur Miiijómr króna 1996 1995 Breyting Rekstrartekjur 317,4 241,6 +31,4% Rekstrargjöld 274.5 206.4 +33.0% Rekstrarhagnaður án fjármagnsliða 42,9 35,0 +22,6% Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (0,3) (1,9) Haqnaður fyrir skatta 42.6 33.1 +28.7% Hagnaður ársíns 37,9 30,8 +23,1% Efnahagsreikningur Miiijónir króna 31/12'96 31/12 '95 Breyting | Eignir: I Veltufjármunlr 264,5 221,7 +19,3% Fastafjármunir 332,6 322,7 +3,1% Eignir samtals 597,1 544,4 +9,7% I Skuldir og eiaið tó: I Skammtímaskuldir 75,7 51,5 +47,0% Langtímaskuldir 10,6 11,0 -3,6% Eigið fé 510,8 48.1,9 +6,0% Þar af hlutafé 236,0 236,0 - Skuldir og eigið fé samtals 597,1 544,4 +9,7% Sjódstreymi 1996 1995 Veltufé frá rekstri Milijónir króna 67,2 57,4 +17,1 HAGNAÐUR Jarðborana hf. árið 1996 var 37,9 milljónir króna, sam- anborið við 30,7 milljónir árið á undan og hefur því vaxið um 23,5% milli ára. Hagnaðurinn nam tæplega 12% af heildartekjum. Þetta var nokkuð betri niðurstaða en gert var ráð fyrir þegar gengið var frá rekstr- aráætlun ársins. Að sögn Bents S. Einarssonar, framkvæmdastjóra Jarðborana nam heildarvelta Jarðborana 317 milljón- um króna á sl. ári ogjókst um 31,4% frá árinu á undan. Jarðboranir hf. hafa því aukið heildarveltuna um lið- lega 65% á undanförnum tveimur árum. Síðastliðin átta ár hefur af- koma félagsins verið jákvæð. Hann segir þennan árangur byggjast á markvissum aðgerðum til að efla og auka starfsemi Jarðborana hf., er- lendis sem innanlands, sterkri sam- keppnisstöðu og ekki síst á sífelldri hagræðingu sem leitt hafí til betri rekstrarárangurs. Hina batnandi af- komu megi einkum rekja til vaxandi verkefna innanlands og stöðugra erlendra verkefna, en starfsemi er- lendis á árinu var um 12% af heild- arveltu félagsins. Leitar verkefna á írlandi Erlend verkefni fólust í borun á 7 holum eftir fersku vatni á Azoreyj- um. Verkkaupar voru sveitarfélög á eyjunum auk bandarískrar herstöðv- ar á eyjunni Terceira. Sem fyrr var unnið í samstarfi við fyrirtæki á Azoreyjum, Intertec Agores Lda. Framkvæmdir á Azoreyjum standa enn yfír, en nú líður að lokum þeirra. Segir Bent að félagið hafi því leitað verkefna á fleiri mörkuðum. Nýlega hafi félagið boðið í borun á 8 vatns- holum i tengslum við námufram- kvæmdir á írlandi. Niðurstöður þess útboðs liggi ekki enn fyrir. Eigið fé félagsins var 510,8 millj- ónir króna í lok ársins 1996. Eigin- fjárhlutfall var 85,6% og veltuijár- hlutfall 3,5. Veltufé frá rekstri var 67,2 milljónir en var 57,4 milljónir árið á undan. Ríkissjóður seldi öll sín hlutabréf í félaginu á síðasta ári og þykir markmiðið með sölu hlutabréfanna um dreifingu á eignaraðild hafa náðst að fullu, þar sem hluthafar í fyrirtækinu eru nú orðnir á ellefta hundraðið. Eftir þessa sölu er félag- ið í hópi tíu fjölmennustu hlutafélaga á íslandi, að verðbréfasjóðunum frá- töldum. Gengi hlutabréfa í Jarðborunum hf. hækkaði um 32% á Verðbréfa- þingi íslands á árinu 1996. Það sem af er árinu 1997 hefur gengi hluta- bréfa í félaginu hækkað um liðlega 17%. Skráð viðskipti með hlutabréf námu 190 milljónum króna hjá Verð- bréfaþingi á árinu 1996. Viðskipti með hlutabréf í félaginu á Verð- bréfaþingi voru samtals 237 á iiðnu ári. Aðalfundur Jarðborana hf. verður haldinn 18. mars. Hlutabréf í Granda lækkuðu GENGI hlutabréfa í Granda hf. lækk- aði í gær í kjölfar upplýsinga um að fyrirtækið hefði skilað 43 milljón króna minni hagnaði en árið áður. Gengi hlutabréfa í félaginu í byij- un dags var 3,85, en hafði lækkað í 3,60 í Iok viðskipta. Lækkunin nem- ur 6,49%, en heildarviðskipti dagsins voru um hálf milljón króna að nafn- virði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.