Morgunblaðið - 12.03.1997, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
MIÐVIKUDAGUR 12. MARZ 1997 15
Morgunblaðið/Egill Egilsson
FORSVARSMENN Lionsklúbbsins ásamt sr. Gunnari
Björnssyni og Kristni J. Níelssyni, skólastjóra
Tónlistarskólans á Flateyri.
Tónlistarskólinn
á Flateyri vígður
Flateyri - Nýtt húsnæði undir
starfsemi Tónlistarskólans á Flat-
eyri var formlega tekið í notkun
laugardaginn 1. mars.
Tónlistarskólinn tók til starfa
10. október 1979 og naut löngum
góðs sambýlis við Grunnskólann
á Flateyri varðandi kennsluað-
stöðu. Einnig fékk Tónlistarskól-
inn inni í matsal Kambs ef um
tónleika var að ræða. Tónlistar-
skólinn hefur fram að þessu haft
til afnota eina kennslustofu í
Grunnskólanum, en með tilkomu
nýja húsnæðisins batnar aðstaðan
fyrir nemendur til mikilla muna.
Um leið eignast Lionsklúbbur
Önundarfjarðar prýðilegt athvarf
fyrir starfsemi sína.
Fjármunum varið til að
innrétta húsnæðið
Sr. Gunnar Björnsson flutti
blessunarorð og rakti sögu húss-
ins sem komst í eigu Lionsmanna
árið 1995. í kjölfar voðaatburð-
anna í október 1995 gaf Lions-
hreyfingin á íslandi Önundar-
fjarðarklúbbnum álitlega pen-
ingaupphæð. Mikið var skrafað
og skeggrætt hvernig nota skyldi
peningana og loks varð það ofan
á, í fullu samráði við fjölumdæm-
isstjóra og um leið yfirstjórn Li-
onshreyfingarinnar á íslandi, að
veija dijúgum hluta fjárins til að
innrétta húsnæðið þannig að það
mundi henta starfsemi Tónlistar-
skólans á Flateyri.
Jafnframt styrkti klúbburinn
byggingu svala utan á Sólborg,
öldrunarstofnun Flateyrar, og
Björgunarsveitina Sæbjörgu á
Flateyri til þess að kaupa klæðn-
ingu utan á hús sveitarinnar, sem
nú er verið að reisa um þessar
mundir niðri á Eyrinni.
Innrétting teiknuð
endurgjaldslaust
Arkitekt hússins var Elísabet
Gunnarsdóttir. Hún var ekki við-
stödd en sr. Gunnar Björnsson lét
þess getið að hún hefði sýnt ein-
dæma góðhug og velvild með því
að teikna innréttinguna endur-
gjaldslaust.
Að lokum var flutt bæn og vígði
sr. Gunnar síðan húsið. Kristinn
Jóhann Níelsson skólastjóri Tón-
listarskólans á Flateyri kynnti fyr:
ir viðstöddum starfsemi skólans. í
ræðu Kristins kom fram að hann
væri mjög bjartsýnn á framtíð
tónlistarlífs á Flateyri. Að lokinni
ræðu Kristins var boðið uppá kaffi
við undirleik nemenda á hin ýmsu
hljóðfæri skólans.
Aðalfundur Eflingar
Stykkishólms
NÝKJÖRIN stjórn Eflingar Stykkishólms og framkvæmdasljóri:
Jóhanna Guðmundsdóttir, Svanborg Siggeirsdóttir, Magndís
Alexandersdóttir, Ingibjörg Benediktsdóttir, Gunnlaugur
Árnason og Bergur Hjaltalín.
Stykkishólmi - Efling Stykkis-
hólms hélt _ aðalfund sinn 24.
febrúar sl. Árið 1996 var fyrsta
heila starfsár félagsins. Félagið
var stofnað til að efla menning-
ar- og atvinnulíf í Stykkishólmi.
Á þessum stutta tíma hefur fé-
lagið ráðist í mörg verkefni.
Aðalverkefni á síðasta ári var
að sjá um framkvæmd Danskra
daga þar sem boðið var upp á
fjölbreytta dagskrá eina helgi í
ágúst. Félagið stóð fyrir tón-
leikaröð sl. sumar í Stykkis-
hólmskirkju. Báðir þessir menn-
ingaratburðir tókust vel og er
von félagsmanna að þeir skipi
fastan sess í menningarlífi
Stykkishólms. Fjöldi tónlist-
armanna hafa sýnt áhuga á að
halda tónleika hér næsta sumar
og hafa umsóknir komið víða að
úr heiminum.
Félagið hefur unnið að ýmsum
málum með verslunarmönnum og
staðið fyrir átaki um að efla
verslun í heimabyggð. Ferða-
þjónustumál hafa tekið drjúgan
tíma og er verið að vinna að
kynningarbæklingi um Stykkis-
hólm sem á að koma út fyrir
vorið.
Félagið stóð fyrir fundi með
Jóni Erlendssyni um nýsköpun í
atvinnumálum. Þá hefur félagið
reynt að fá Ríkisútvarpið til að
hafa hér fréttaritara en Ríkisút-
varp „allra landsmanna“ sýnir því
lítinn áhuga en hér hefur ekki
verið starfandi fréttaritari í mörg
ár.
Aðaltekjur félagsins eru fé-
lagsgjöld og styrkir frá Stykkis-
hólmsbæ en bærinn hefur styrkt
mörg þau verkefni sem félagið
hefur tekið að sér.
Að Eflingu Stykkishólms standa
49 einstaklingar, fyrirtæki stór og
smá og Stykkishólmsbær. Hjá fé-
laginu starfar framkvæmdastjóri í
hálfu starfí. Það kom fram á aðal-
fundi félagsins að þörf er á slíkum
samtökum og hefur félagið nú þeg-
ar sannað tilverurétt sinn.
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
MARCO og Andreas frá Þýskalandi búnir að slá
upp tjaldi í snjónum á Selfossi.
Fyrstu tjaldgestir
sumarsins
komnir á stjá
Tjaldferð
um ísland
næstu
þijárvikur
Verðlaun
fyrir loð-
dýrarækt
Hrunamannahreppi - Félagar í
Loðdýrafélagi Suðurlands
héldu kaffikvöld fyrir félags-
menn sína um síðustu helgi að
Hótel Hveragerði. Þar voru
m.a. afhent verðlaun fyrir góð-
an árangur í loðdýrarækt og
verkun skinna. Sumir þeirra
aðila er fengu verðlaun nú
fengu einnig viðurkenningu
fyrir góðan árangur á landssýn-
ingu á Hótel Islandi 15. febrúar
sl.
Loðdýrafélagið var stofnað
árið 1983 en 27 loðdýrabændur
eru nú í landsfjórðungnum, þar
af fjórir í Kjalarnesþingi. Loð-
dýrabú á landinu munu vera um
140 og er mun bjartara yfir
þessari búgrein en var fyrir
nokkrum árum, sem kunnugt
er.
Loðdýrafélagi Suðurlands
voru veitt sérstök verðlaun fyr-
ir góðan árangur frá landbún-
aðar- og umhverfissamtökum í
Mið-Evrópu sem hafa aðsetur i
Mílanó.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
ÞEIR sem lilutu verðlaun hjá Loðdýrasamtökum Suðurlands
f.v.: Ragnar Böðvarsson, Þorbjörn Sigurðsson, Sævar Jóelsson,
Sturla Þorkelsson, Kristinn Gamalielsson, Veronika Narfadótt-
ir, Björgvin Sveinsson, Hrönn Bergþórsdóttir og Bjarni Stefáns-
son.
RAGNAR Böðvarsson, gjaldkeri og Steinn Logi
Guðmundsson, ritari Loðdýrafélagsins með við-
urkenningu fyrir góðan árangur félagsins. Á
myndina vantar Guðmund Baldursson, formann.
Selfossi. - Fyrstu Ijaldgest-
irnir eru farnir að láta sjá sig,
þrátt fyrir veðurhörkuna sem
hefur ráðið ríkjum síðustu
daga. Fréttaritari Morgun-
blaðsins rakst á þessa fyrstu
„farfugla“ sumarsins á tjald-
stæðinu á Selfossi. Þar voru
þeir nýbúnir að slá upp Ijaldi
sínu, í skjóli tijáa sem þeir
voru mjög ánægðir með að
finna.
Ferðalangarnir eru frá
Þýskalandi og hyggjast þeir
ferðast um landið næstu þrjár
vikurnar. Ferðinni er heitið
austur að Höfn í Hornafirði og
þaðan til Akureyrar. „Við ætl-
um að ferðast fótgangandi og
með rútum,“ sögðu þeir Marco
og Andreas. Aðspurðir hvers
vegna þeir hefðu valið þennan
tíma til þess að ferðast, svöruðu
þeir því til að þeir væru í leit
að ævintýrum og öðruvísi upp-
lifun, en bættu svo við að þeir
hefðu aldrei átt von á því að
veðrið væri svona margbreyti-
leg dag frá degi.
„ísland er fallegt land og við
hlökkum til ferðalagsins, von-
andi verða veðurguðirnir örlít-
ið blíðari en hingað til, við átt-
um von á kulda en ekki svona
miklum vindi,“ sögðu Þjóðver-
jarnir og brostu breitt. Tilbúnir
í þriggja vikna tjaldferðalag,
vopnaðir kjarki og ævintýra-
þrá.