Morgunblaðið - 12.03.1997, Síða 36

Morgunblaðið - 12.03.1997, Síða 36
£6 MIÐVIKUDAGUR 12. MARZ 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SVAVAR HALLDÓRSSON + Svavar Hall- dórsson var fæddur á Seyðis- firði 27. október 1918. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans 26. . febrúar síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Þorbjörg Ald- ís Björnsdóttir, f. 7.10. 1893 í Litlu- Sandvík í Hraun- gerðishreppi, d. J 24.11. 1957 í Reykjavík og Hall- dór Þórðarson, f. 10.6. 1882 á Kjaransstöðum í Biskupstungum, d. 21.3. 1959 í Reykjavík. Þau slitu samvist- um. Albræður Svavars voru Guðbjörn Sigfús, f. 26.12. 1916, og Egill, f. 26.1. 1928, báðir látnir. Hálfsystir sammæðra er Guðrún sem býr í Reykjavík. Hálfsystkin samfeðra voru Bjarni, Guðrún Magdalena og Halldóra sem eru látin en eftir- lifandi er Snorri Daníel sem dvelur á DAS í Reykjavík. - > Hinn 29.1.1948 kvæntist Sva- var Björgu Jónsdóttur, f. 17.8. 1922. Þau eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1) Kristín Ingi- björg, f. 4. 12. 1946, í sambúð með Birgi Jóhann- essyni. Dóttir Krist- ínar er Bettína Björg Hougaard, f. 10.8. 1980. 2) Sva- var, f. 25.8. 1948, kvæntur Jónínu Guðrúnu Garðars- dóttur, f. 1.10.1949. Börn þeirra eru Helga Jensína, f. 31.10. 1973, unnusti hennar er Hall- grímur Sveinn Sveinsson, f. 12.5. 1972; Svavar Guð- björn, f. 10.3. 1978; og Garðar Agúst, f. 16.7.1983 og dóttir Svavars er Þórunn Hilma, f. 18.12. 1974. 3) Jón Pétur, f. 6.6. 1952, kvæntur Jóhönnu Erlu Eiríksdóttur, f. 20.7.1957. Börn þeirra eru Silja Gayani, f. 28.6. 1986, og Elías Örn, f. 1.9. 1996. 4) Halldór Trausti, f. 6.6. 1952, í sambúð með Steinu Kristínu Kristjóns- dóttur, f. 30.1. 1955. Dóttir Halldórs er Marta, f. 3.12.1975, og dóttir hennar er Rakel Yr, f. 17.6. 1996. Steina á tvær dætur, Láru Kristjönu og Guð- björgu. Útför Svavars hefur farið fram. Elsku afi, ég var ekki nema nokkurra mánaða gömui þegar ég kom heim til þín og ömmu á Dyngjuveginn í fyrsta sinn. Mamma hafði kynnst syni þínum (pabba mínum í dag) og kom hann með okkur mömmu heim til að kynna okkur. Við vorum báðar hluti af fjölskyldunni frá fyrsta degi og mamma hefur sagt mér að alltaf þegar hún kom til ykkar ömmu hafi ég horfið úr höndum hennar og hún ekki vitað af mér fyrr en við vorum að fara. Þú tókst mig að þér og lékst við mig allar stundir sem ég var hjá ykkur og ég hef séð myndir þar sem við ligg- um tvö á stofugólfinu á Dyngju- veginum. Þannig er mér sagt að þú hafir legið með mér klukku- stundunum saman. Þegar ég eltist vildi ég svo helst alltaf vera hjá ykkur ömmu og það voru ófá skiptin sem þurfti að draga mig • tiskrandi út þegar átti að fara heim. Stundum var frekjan látin eftir mér og ég fékk að gista. Með tímanum breyttust leikirnir á gólf- inu, ég fór að hjálpa þér að vinna úti í garði og þú kenndir mér að spila. Ég gleymi aldrei stundunum sem þú sast og spilaðir við okkur Mörtu og við Marta héldum svo gjarnan áfram eftir að komið var upp í rúm og spiluðum langt fram j á nótt spilin sem þú kenndir okk- I ur. Þetta voru skemmtilegir tímar. Þegar ég hóf nám í MS og | stundaði sund í Laugardalnum j kom ég oft til ykkar ömmu og var það mitt annað heimili. Þú varst tilitaf tiibúinn að keyra mig hvert sem var, hvenær sem var. Ekkert var skemmtilegra en bíltúr með þér þar sem maður fékk nákvæm- ar útskýringar á öllu sem fram fór. Þær voru færri samverustund- imar hin seinni ár en það var allt- af sterkur þráður á milli okkar, það fann ég. Það var alltaf stutt í húmorinn og þær eru ófáar gleði- stundirnar sem við barnabörnin höfum átt með þér. Það er sárt til þess að hugsa að Elías Örn og Rakel Ýr fái ekki að njóta sam- "^veru við þig á sama hátt og við, en við munum deila með þeim öll- , um góðu minningunum um þig. Það er erfitt að hugsa til þess að I fara inn á Dyngjó til ömmu og afa en þar er enginn afi. Missir ömmu er mikill, þið vorið svo góð saman og það er einsdæmi hvað jþið voruð samrýnd. Það verður því erfitt fyrir ömmu að vera allt í einu ein. En ég trúi því að þú verðir alltaf hjá henni, minningin um þig og allt það góða sem þið hafíð átt saman lifir með henni og veitir henni styrk til að takast á við lífið framundan. Góði Guð, vertu með ömmu og veittu henni styrk. Elsku pabbi, Kristín, Halldór og Jón, Guð veri með ykkur á þessum erfíðu tímum. Við skulum lifa fyrir góðar minn- ingar og vitneskjuna um að á end- anum hittumst við öll hjá Guði. Margs er að rainnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Elsku afí, ég veit þér iíður vel núna. Þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við höfum átt sam- an. Þín Helga. Margir frægir menn hafa verið ritaðir í sögubækur í gegnum árin. Þar má til dæmis nefna Newton, da Vinci og Reagan. Afi minn fer sjálfsagt aldrei í sögubækurnar, þó svo að hann eigi engu að síður heima þar. Ef menn yrðu einhvern tímann settir í sögubækur fyrir góðmennsku myndi móðir Teresa örugglega fara fremst í flokki eða einhver milljóneri sem gaf mikið af peningum. En mér finnst að afi eigi miklu frekar heima þar. Maður sem allt sitt líf var góður við börn og gamalmenni, var alltaf tilbúinn að hjálpa og var alitaf til staðar fyrir fjölskylduna. Maður kemur í manns stað á ekki við um afa, enginn getur nokkurn tímann fyllt skarð hans. Ég virti afa minn mikils og hafði aldrei ástæðu til annars en að líta upp til hans. Frá því að ég fæddist var hann alltaf til staðar. Fyrst kenndi hann mér að spila og lék við mig. Síðar kenndi hann mér að virða alla menn, fátæka og ríka, hann kenndi mér með sögum af liðinni tíð þegar tímar voru erfiðir fyrir hann. Hann kenndi mér líka að ef þú vilt eitthvað þá verður þú að vinna fyrir því. Hann keyrði bíl í rúm fimmtíu ár og það ég veit lenti hann aldrei í árekstri. Hann var án efa ofvirk- asti „gamli maðurinn með hatt“ í öllu landinu. Hann var alltaf fyrst- ur af stað á ljósum og alltaf sein- astur yfír á gulrauðu. Ég fór oft með honum í bíl. Hann var alltaf til staðar til að keyra mig út og suður, bauðst meira að segja til að keyra vini mína heim þó að það væri talsverður krókur. Ég gleymi aldrei svipnum á vini mínum þegar hann hentist frá hægri til vinstri í aftursætinu og þegar hann kom I skólann daginn eftir: „Afi þinn er bijálaður bílstjóri.“ Ég svaraði stoltur: „Ég veit.“ Það eiga ekki allir 78 ára gamlan afa sem keyr- ir um á blárri Lödu og er þekktur fyrir að vera einsog átján ára ungl- ingur í umferðinni, en þannig var afi minn. Hann var aldrei eldri en tuttugu ára í anda, vinnandi í garðinum eða þeytandi vélina á rauðu ljósi. Það er synd að fólk geti dáið svona ungt. Svo er náttúrulega spurning hvort svona fólk deyr yfirleitt. Er til himnaríki eða deyr fólk bara? Um himnaríki get ég ekki vitað annað en að ef það er til þá er afi þar, með Jesús sveiflandi til og frá í aftursætinu, örugglega segjandi sömu setningu og venju- lega: „Aumingja gamli maðurinn með hattinn, alveg búinn að gefa upp öndina.“ Ef það er ekkert himnaríki þá mun afi samt aldrei deyja, hann mun lifa með okkur í gegnum minningar og þegar við deyjum mun minnig hans lifa með þeim sem minnast okkar. Þannig mun- um við aldrei deyja. Það er líka ástæða þess að ég skrifa þessa minningargrein, til að deila með ykkur þeirri mynd sem ég hafði af afa, sem þeim unga, styrka og lifandi manni sem hann var. Það er gott að trúa á guð. Afa finnst örugglega gott að lifa í himnaríki, þar er sjálfsagt lítið af rauðum ljósum. Það er líka gott að minnast þeirra sem deyja sem þeir væru lifandi, því þá skráum við þeirra nöfn og þeirra minning- ar á spjöld sögunnar, og þau spjöld eru miklu stærri en blaðsíður ein- hverra sögubóka. Bless, afí, og farðu varlega í umferðinni. Svavar Guðbjörn. Elsku afí. Nú þegar þú ert horf- inn úr lífí okkar mun það aldrei verða eins og áður. Þú varst mér svo kær og okkur öllum svo hjálp- samur_ og vildir allt fyrir okkur gera. í hjarta mínu munt þú ætíð vera og ég mun minnast þeirra góðu stunda sem við áttum saman og bera þær með mér um ókomna tíð. Þín Bettína Björg. Kæri Svavar. Það er erfitt að kveðja þig því að ég leit á þig eins og þú værir afi minn. Þú varst alltaf svo hress og kátur og gerðir allt til þess að öðrum liði vel. Það var alltaf nóg að gera hjá þér úti í garði hvort sem það var að slá, raka eða saga tré. Það var mjög gaman að koma með Skottu í heim- sókn til þín vegna þess að þú varst í mestu uppáhaldi hjá henni og öllum öðrum dýrum sem við krakk- amir áttum. Það var alltaf nóg að gera þegar maður kom í heimsókn því alltaf varst þú til staðar, hvort sem það var að spila við okkur krakkana eða bara tala um daginn og veginn. Við krakkarnir gátum alltaf hringt í þig og látið sækja okkur hvort sem var úr skólanum, æfingum eða hveiju sem er, alltaf varst þú mættur innan tíu mínútna á Lödunni. Það er margs að sakna. Takk fyrir allt, Guð varðveiti þig, elsku Svavar minn. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Lára Kristjana. RAGNAR INGÓLFSSON + Ragnar Ingólfs- son skrifstofu- stjóri var fæddur á Ólafsfirði 26. maí 1925. Hann lést á Landspítalanum hinn 27. febrúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík 10. mars. Ragnar Ingólfsson, einn helsti máttar- stólpi Karlakórs Reykjavíkur um ára- bil, er látinn. Karla- kórsfélaga setti hljóða á æfingu hjá kórnum þann 27. febrúar sl. þegar lát hans var tilkynnt. Síðan risu kórfélagar úr sætum og sungu í minningu Ragnars, „ísland, Is- land, ég vil syngja“, einkennislag kórsins, eftir Sigurð Þórðarson, stofnanda og fyrsta söngstjóra kórsins. Ragnar gekk til liðs við Karla- kór Reykjavíkur árið 1951 og starfaði með kórnum samfellt í 41 ár eða til ársins 1992, er hann hætti af heilsufarsástæðum. Hann var mjög músíkalskur, hafði kraftmikla og bjarta tenórrödd og söng 1. tenór. Hann gerði miklar kröfur til sjálfs sín sem og til fé- laga sinna í kórnum. Vei þeim 1. tenór sem söng undir tóni. Þótti sumum á stundum nóg um kapp- semi hans, en hagur kórsins var honum ætíð efst í huga. Ragnar var höfðinglegur í fasi. Það duldist engum að þar fór heimsmaður. Það sópaði að honum hvar sem hann fór. Hann var óvenju stórhuga maður sem lét ekki sitja við orðin tóm heldur kom hugmyndum sínum í framkvæmd. Þess naut Karlakór Reykjavíkur. Ragnar varð fljótlega aðaldrif- fjöðrin í starfí kórsins og formaður hans í 12 ár, 1963-1976. Á þeim árum hrinti Ragnar, ásamt félög- um sínum í stjórn kórsins, mörgum stórvirkjum í framkvæmd. Sem dæmi má nefna kaup á félags- heimili fyrir kórinn á Freyjugötu 14, og leigu á rússnesku skemmti- ferðaskipi, „Baltiku" sem sigldi með kórfélaga og rúmlega 400 farþega í tónleikaferð til Miðjarð- arhafslanda árið 1966. Sú ferð vakti mikla athygli á sínum tíma. Undir forystu Ragnars fór kórinn í margar tónleikaferðir á erlenda grund. M.a. á heimssýningu í Montreal 1967, um Mið-Evrópu 1973 og til Bandaríkjanna og Kanada 1975. Á 40 ára afmæli kórsins árið 1966 tók Ragnar saman veglegt rit um sögu kórsins og á hans herðum hvíldi einnig undirbúning- ur og skipulagning á 50 ára af- mælishátíð kórsins árið 1976, sem var sérstaklega glæsileg. Á hátíð- ina komu þrír erlendi karlakórar til landsins í boði Karlakórs Reykjavíkur. Árið 1965 fékk Ragnar ungan austurrískan tónlistarmann, Pál Pamichler Pálsson, til að taka við stjórn kórsins. Það var gifturík ákvörðun, því Páll stjórnaði kórn- um við góðan orðstír í aldarfjórð- ung. Upp úr 1970 stóð Ragnar fyrir því að kórinn gæfi út sex hljóm- plötur með lögum íslenskra tón- skálda. Af þessari upptalingu má sjá að Ragnar vann gífurlegt starf í þágu Karlakórsins og bar hag kórsins ætíð mjög fyrir brjósti. Þegar ég hóf að syngja með Karlakórnum árið 1981 var Ragn- ar hættur stjórnarstörfum, en það leyndi sér ekki að þar fór maður sem hafði mikil áhrif á allt starf kórsins. Ég kynntist Ragnari fyrst að ráði í söngferð kórsins til Bandaríkjanna og Kanada árið 1981. Seinna áttum við eftir að ferðast víða með Karlakórnum. Mér er enn minnisstætt á hvern hátt heimsmað- urinn Ragnar kynnti fyrir okkur nýliðunum í kórnum leyndar- dóma Parísarborgar eftir söngferðalag um Frakkland árið 1986. Þann tíma sem ég var formaður kórsins reyndist hann mér hollráður og er ég þakklátur fyrir það. Að leiðarlokum þakka ég Ragnari samfylgdina. Við félagarnir í Karlakór Reykjavíkur munum sakna þess að heyra Ragnar ekki lengur syngja á gleðistundum „Þér kæra sendi kveðju" eftir Þórarin Guðmundsson eins og honum ein- um var lagið. Það er næsta víst að það verður mikill búhnykkur fyrir himneskar söngsveitir að lið- styrk Ragnars Ingólfssonar. Minn- inguna um góðan félaga og leið- toga geymum við hjörtum okkar. Björgu Ingólfsdóttur og öðrum aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð. Bjarni Reynarsson. Þér kæra sendir kveðju, með kvöldstjömunni blá, það hjarta sem þú átt, en sem er svo langt þér frá. Þar mætast okkar augu þótt ei oftar sjáumst hér. Ó, Guð minn ávallt gæti þin, ég gleymi aldrei þér. (Gestur.) Yfir fjörutíu ár var líf Ragnars Ingólfssonar samfléttað starfi Karlakórs Reykjavíkur. Hann gekk í raðir kórsins árið 1951 og söng óslitið fram á mitt ár 1992. En þó sjúkdómur hamlaði þá Ragnari að hefja upp sína fallegu tenórrödd, var hugur hans sístarf- andi í þágu félagsins sem átti svo sterk ítök í honum. Hann gegndi margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir kórinn, og var meðal annars formaður hans í 12 ár. Ragnar var einkar fijór í hugsun, fylginn sér og ötull við að kynna kórinn jafnt heima sem erlendis. Óhræddur að takast á við verkefni sem flestum öðrum hefðu fundist óyfirstígan- leg. Hjá Ragnari voru hagsmunir Karlakórs Reykjavíkur ævinlega í öndvegi. Ragnar söng annan tenór á sín- um fyrstu árum í kórnum en gekk síðan í raðir fyrstu tenóra. Hann var raddviss og margir nýliðar fengu hjá honum góða skólun bæði hvað varðaði söng og ekki síður félagsmál. Hann fór þrettán söngferðir til útlanda með kórnum, m.a. fimm Ameríkuferðir, fjórar ferðir um Evrópu og ferð til Kína. Flestar af þessum ferðum voru skipulagðar af Ragnari. Trúlega er ferð kórsins með skemmtiferða- skipinu „Baltica" sú ferð sem Ragnari var hvað hugleiknust, enda var sú ferð brúðkaupsferð hans og Sigurborgar Siguijóns- dóttur. Hjónin, Sigurborg og Ragnar voru sérlega glæsileg og félagslynd. Sigurborg studdi Ragnar dyggilega í starfi hans sem formanns og var ein af stofn- endum Kvenfélags Karlakórs Reykjavíkur. Hún lést árið 1986. Kona Ragnars hin síðari ár var Björg Ingólfsdóttir og reyndist honum traustur vinur, ekki síst í erfiðum veikindum. Fyrir margháttuð störf í þágu kórsins var Ragnar gerður að heið- ursfélaga árið 1975. Að Ragnari gengnum sér Karlakór Reykjavík- ur á bak einum sínum traustasta félaga. Kórinn þakkar hin marg- víslegu störf Ragnars Ingólfssonar á liðnum áratugum. Félagarnir blessa minningu hans og senda ástvinum, ættingjum og vinum dýpstu samúðarkveðjur. Karlakór Reykjavíkur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.