Morgunblaðið - 12.03.1997, Síða 40
-40 MIÐVIKUDAGUR 12. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MINNIIMGAR
GUÐBJÖRG
BENONÍA
JÓNSDÓTTIR
GUÐFINNUR
KARLSSON
+ Guðbjörg Benonía Jóns-
dóttir fæddist í Vest-
mannaeyjum 21. júlí 1928. Hún
lést á heimili sínu 8. febrúar
síðastliðinn og fór útför henn-
ar fram frá Landakirkju 15.
febrúar.
Þegar okkur barst hin óvænta
1».sorgarfrétt þann 9. febrúar sl. að
hún frænka okkar og vinur, Guð-
björg Benonía Jónsdóttir, hefði
dáið kvöldið áður var lítið sagt en
meira hugsað. Við áttum erfitt að
trúa því að hún Benna væri dáin.
Eflaust eru þetta viðbrögð margra
þegar svona fréttir berast, en við
verðum að vera minnug þess að
mennirnir ráðgera en guð ræður.
Við vissum að Benna hafði orðið
fyrir áfalli um seinustu áramót
og þá misst sjón á öðru auga en
ekki grunaði okkur þá að svo mik-
il alvara væri á ferð. Við hringdum
í þau hjónin þegar Benna kom
+ Gísli Álfgeirsson var fædd-
ur á Bjargi á Seltjarnar-
nesi 29. maí 1931. Hann lést á
Landspítalanum 25. febrúar
siðastliðinn og fór útför hans
fram frá Seljakirkju 4. mars.
Fáein kveðjuorð vegna láts Gísla
vinar okkar. Ótrúleg seigla var í
Gísla gegnum erfið veikindi til
margra ára. Hann var á Land-
spítalanum meira og minna síðustu
árin, en alltaf var hann kominn í
gang strax og hann kom út af
spítalanum, eins og ekkert amaði
heim úr rannsókninni og það var
sama glaðlega röddin sem svar-
aði: „Þetta verður allt í lagi, ég
sé eitthvað smávegis og get svo
fengið gleraugu ef með þarf.“
Þetta tilsvar var lýsandi dæmi um
skapgerð Bennu, alltaf hress og
kát. Á stundum sem þessum verð-
ur ekki hjá því komist að hugurinn
leiti til baka. Við minnumst allra
þeirra góðu stunda þegar Benna
og Lalli komu við hjá okkur þegar
beðið var eftir Herjólfi. Oftast
fannst okkur Herjólfur fara of
fljótt og samverustundirnar vera
of stuttar.
Ein heimsóknin í Þorlákshöfn
varð lengri en hinar og hún hófst
gosnóttina 23. janúar 1973, þá
nótt kom Lalli siglandi á honum
Sæfaxa sínum með fjölskylduna
og ættingja frá Vestmannaeyjum.
Þá vissu þau lítið um það, líkt og
aðrir Vestmannaeyingar, hver
myndi verða framtíð byggðar í
að. Hann sagði stundum að hann
ætti rúm á spítalanum, má eigin-
lega segja það, svo tíðar voru inn-
lagnir hans orðnar. Aldrei heyrðum
við hann segja eitt orð um lélega
heilsu, heldur virtist hann taka
þessu með miklu jafnaðargeði, sem
sjálfsagt hefur hjálpað honum mik-
ið. Gísli var sérlega umtalsfrómur
maður, við minnumst ekki hafa
heyrt hann hallmæla nokkrum
manni, svo prúður og kurteis var
hann.
Gaman var að tala við Gísla um
Reykjavík fyrri ára, það var ótrú-
Eyjum. Vera þeirra hér í Þorláks-
höfn varð okkur skemmtileg og
eftirminnileg því kynni okkar af
þessari góðu konu og hennar sam-
heldnu fjölskyldu urðu nánari en
verið hafði. I vetrarbyijun sama
ár voru Eyjarnar farnar að toga í
þau aftur og ákváðu þau þá að
halda aftur heim og taka þátt í
enduruppbyggingu byggðar í Eyj-
um. Hjá okkur hér í Þorlákshöfn
varð hálf tómlegt fyrst á eftir en
við vissum að Benna var ánægð,
hún var komin aftur í húsið sitt á
Hólagötu 13. Benna var Vest-
mannaeyingur í húð og hár og hér
uppi á fastalandinu var hún aðeins
gestur, frændfólki og vinum góður
gestur. Við kveðjum Bennu með
þökk og virðingu og þakklæti í
huga því hún var vinur vina sinna
og það var hveijum lán að eignast
hana að vini.
Kæri Lalli og fjölskylda, megi
guð gefa ykkur öllum styrk. Minn-
ingin um góða konu mun lifa með
okkur öllum sem kynntumst henni.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Sigurður, Ragna, Linda
Björg og Guðlaug.
legt hve fróður hann var um hús,
íbúa þeirra, hvað fólkið starfaði
og þess háttar, hann var eins og
uppsláttarbók um þessa hluti.
Kynni okkar við Gísla og hans
indælu konu, Kristínu, hófust í
gegnum Styrktarfélag vangefinna,
þar sem við bæði áttum þroska-
hefta dóttur. Þessi kynni hafa leitt
til góðs vinskapar, þau voru dugleg
að kikjaj.il okkar, sem við mátum
mikils. Ásdís dóttir þeirra hefur
misst mikið, en hún býr í sambýlinu
í Grundarlandi. Alltaf var pabbi til-
búinn að keyra hana og á hveiju
sumri fóru þau Kristín með Ásdísi
í sumardvöl, oft í orlofshús í Svigna-
skarði, en þangað heimsóttum við
þau síðastliðið sumar. Hittist þá
þannig á að Ásdís átti afmæli, var
þetta góður og eftirminnilegur dag-
ur með þeim þremur.
Hér verður staðar numið, gott
er að eiga góðar minningar um
einstakan sómamann, samúðar-
kveðjur okkar fær Kristín ásamt
fjölskyldu sinni.
Hallfríður og Magnús.
+ Guðfinnur Karlsson var
fæddur í Reykjavík 22.
nóvember 1969. Hann lést á
Landspítalanum 21. febrúar
síðastliðinn og fór útför hans
fram frá Áskirkju 4. mars.
Elsku Guðfinnur.
Það er okkur afar erfitt að
kveðja þig í hinsta sinn. Þú varst
alltaf léttur í skapi og blíður mjög.
Þær stundir koma að maður fer
að velta fyrir sér réttlæti þessa
heims. Að taka svona ungan mann
frá okkur. En við fáum víst engu
ráðið um það. Þú skilur eftir þig
margar góðar minningar, minning-
ar sem gætu fyllt heilu bækurnar
og þær eru alls staðar.
Þú munt aldrei deyja í huga
okkar, og í hjarta okkar lifir minn-
ing um þig að eilífu.
Hinsta kveðja.
Linda, Siguijón
og Óli Kristinn.
Elsku Guffi minn.
Nú hefur þú svarað kalli Guðs
eftir hetjulega baráttu við sjúkdóm
þinn.
Þú varst ungur, góður og lífs-
glaður. Allt leit út fyrir að framtíð-
in yrði björt hjá þér, Lilju og Haf-
dísi litlu.
Erfitt er að skilja hví þú varst
tekinn svo fljótt frá okkur. Mundu
að þú lifir enn í hjörtum og hug
okkar allra. Þar munt þú aldrei
deyja, heldur öðlast eilíft líf.
„Aðeins sá, sem drekkur af vatni
þagnarinnar, mun þekkja hinn vold-
uga söng.“ (Úr Spámanninum.)
Nú kveð ég þig, Guðfinnur
Karlsson, mágur minn og vinur, í
hinsta sinn.
Guð geymi þig. Styrkur veitist
Lilju, Hafdísi og foreldrum Guð-
finns og aðstandendum.
„Skoðaðu hug þinn vel, þegar
þú ert glaður, og þú munt sjá, að
aðeins það, sem valdið hefur
hryggð þinni, gerir þig glaðan.
Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu
aftur hug þinn, og þú munt sjá,
að þú grætur vegna þess, sem var
gleði þín.“ (Úr Spámanninum.)
Guðný (Sigga).
Elsku Guffi, þrátt fyrir allt er
erfitt að trúa að þú sért farinn. I
þessi ár sem við höfum þekkst
hefur þú alltaf verið til staðar, jafnt
í sorg og gleði.
Ég man þegar við vorum að
kynnast og hve fljótt þú vannst
hug okkar vinanna og hjarta og
ekki leið á löngu uns þú varst dýr-
mætur vinur. Seinna þegar þú og
Lilja fluttuð í Brekkuselið og Anna
Lilja og María Lena fæddust komst
ég að því að ekki var hægt að eiga
betri vini.
Oft komst þú í heimsókn til
okkar mæðgnanna bæði með Lilju
og án og fékkst að sinna Önnu
Lilju, baða hana og hugga og ég
dáðist oft að því hve vel þér fór
það úr hendi, enda ljómaði sú
stutta í hvert sinn er hún sá þig.
Það voru ekki bara börnin sem
þú varst laginn við. Ef eitthvað
kom uppá á heimili mínu og eitt-
hvað þurfti að lagfæra varst þú
þegar kominn og kipptir öllu í lag
og ef mér leið illa kipptir þú mér
líka í lag! Þau voru ófá skiptin sem
ég leitaði huggunar hjá þér og allt-
af tókst þér að stappa í mig stálinu
og fá mig til að líta á hlutina í
bjartara ljósi.
Það lýsir þér best þegar mamma
veiktist og dó, hve mikill styrkur
kom frá þér sem sjálfur varst í
lokaorrustunni við sama sjúkdóm,
og hvað ég fann hve vel þú hugsað-
ir til mín og hafðir áhyggjur þrátt
fyrir þitt eigið stríð. Tveimur dög-
um eftir að ég fylgdi mömmu til
grafar fórst þú líka. Það er mér
huggun að vita af ykkur saman
og eins og Anna Lilja segir á Guffi
gott núna, hann er ekki bara hjá
Guði og Jesú heldur fær hann líka
mat hjá Ömmu!
Elsku Guffi minn, ég veit þér
er batnað og þér líður vel. Ég
þakka þér fyrir allt og er þakklát
fyrir að hafa kynnst þér og átt þig
að. Við sjáumst seinna og þangað
til ylja ég mér við góðar minningar
um góðan vin.
Elsku Lilja, Hafdís, Haddý, Karl
og fjölskylda. Guð gefi ykkur styrk
og huggun og veri með ykkur um
ókomna tíð.
Ólöf.
Frágangur
afmælis-
ogminning-
argreina
MIKIL áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin,
vélrituð eða tölvusett. Sé
handrit tölvusett er æskilegt,
að disklingur fylgi útprentun-
inni. Það eykur öryggi í texta-
meðferð og kemur í veg fyrir
tvíverknað. Þá er enn fremur
unnt að senda greinarnar í
símbréfi (5691115) og í tölvu-
pósti (MBL@CENTRUM.IS).
Auðveldust er móttaka svo-
kallaðra ASCII skráa sem í
daglegu tali eru nefndar DOS-
textaskrár. Þá eru ritvinnslu-
kerfin Word og WordPerfect
einnig nokkuð auðveld úr-
vinnslu.
Um hvern látinn einstakling
birtist ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar
greinar um sama einstakling
takmarkast við eina örk, A-4,
miðað við meðallínubil og
hæfilega línulengd, - eða 2200
slög (um 25 dálksentimetra í
blaðinu). Tilvitnanir í sálma
eða ljóð takmarkast við eitt
til þijú erindi. Greinarhöfund-
ar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni
undir greinunum.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tðlvu-
sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust
er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins
í bréfasíma 5691115, eða á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar
þar um má lesa á heimasiðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki
yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
KRISTÍN RAGNHEIÐUR JÖRGENSEN,
Bugðulæk 9,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtu-
daginn 13. mars kl. 13.30.
Kristín R. Ulfljótsdóttir, Sigurgísli Skúlason,
Björn Úlfljótsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir flytjum við öllum þeim, sem
auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát
og útför föður okkar, tengdaföður, afa og lang-
afa,
JÓNASAR PÉTURSSONAR,
Lagarfelli 8,
Fellabæ.
Hreinn Jónasson, Sigríður Halblaub,
Ería Jónasdóttir, Ármann Magnússon,
Pétur Þór Jónasson, Freyja Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabamaböm.
+
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna
andláts og útfarar
HRÓLFS ÁRNASONAR
frá Þverá,
Reykjahverfi.
Ásdís Káradóttir,
Sæmundur Bjarki Kárason,
Hrólfdís Helga Gunnarsdóttir.
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginkonu minnar, dóttur, dótturdóttur,
systur og frænku,
SÖNDRU KRISTJÁNSDÓTTUR
sjúkraliða,
Lækjasmára 102.
Sérstakar þakkir færum við læknum og
hjúkrunarfólki taugadeildar 32A á Land-
spítalanum fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Magnús H. Steingrímsson,
Kristján Mikkaelsson,
Kristján Þ. Ólafsson,
Elfas Kristjánsson, Ásrún Kristjánsdóttir,
Gunnar S. Kristjánsson, Þorsteinn M. Kristjánsson,
Sigriður Kristjánsdóttir, Kristófer Kristjánsson,
Kristján Þór
og fjölskyldur þeirra.
GÍSLI
ÁLFGEIRSSON