Morgunblaðið - 14.05.1997, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Áformað er að leggja Miklubraut
að hluta í jarðgöngum
Kostnaður við
jarðgöng* 7-800
milljónir króna
NANARI útfærsla á lagningu
hluta Miklubrautar í jarðgöngum
var kynnt borgarráði í gær. For-
maður umferðar- og skipulags-
nefndar Reykjavíkur segir að
göngin myndu breyta miklu til
batnaðar fyrir íbúa í Hlíðahverfi.
Samkvæmt nýju aðalskipulagi
borgarinnar, sem nú er verið að
kynna, er gert ráð fyrir að leggja
Miklubraut í göngum frá Reykja-
hlíð að Hringbraut.
Nánari útfærsla á þessari tillögu
var kynnt í umferðar- og skipulags-
nefnd Reykjavíkur á mánudag og
samkvæmt upplýsingum Guðrúnar
Agústsdóttur, formanns nefndar-
innar, myndu göngin kosta 7-800
milljónir króna.
Gjörbreytir tengslum
við Miklatún
„Þessi göng myndu gjörbreyta
tengslum Hlíðahverfisbúa við
Miklatúnið og bæta mjög úr loft-
og hljóðmengunarvandamálum
þeirra sem mest hafa kvartað yfir
þeim,“ sagði Guðrún.
Samkvæmt tillögunni byijar
Miklabraut að hallast niður á við
þegar við Lönguhlíð til að draga
úr umferðarhávaða, eins og sést
á efri myndinni.
Jarðgöngin hefjast síðan á móts
við Reykjahlíð og enda skömmu
áður en kemur að núverandi
gatnamótum Miklubrautar, Bú-
staðavegar og Snorrabrautar. Of-
anjarðar verða húsagötur fyrir
íbúa Miklubrautar.
Vestast á Miklubraut verða
tveir gangamunnar, eins og sést
á neðri myndinni og er áætlað að
Miklabraut sveigi til suðurs undir
Bústaðaveginn.
Fljótlegt því lítið
þarf að sprengja
Guðrún Ágústsdóttir sagði að
þessi framkvæmd þyrfti ekki að
taka langan tíma því þegar Mikla-
braut hefði verið iögð á sínum tíma
hefði þurft að grafa djúpt niður á
fast og því væri fyrirsjáanlegt að
lítið þyrfti að sprengja fyrir
göngum.
Flugfélög mega innrita farþega og afgreiða vélar skv. EES-reglum
Stangast á við einkaleyfi
Fiug’leiða í Keflavík
Akvæði tilskipunarinnar eiga að taka
gildi um næstu áramót
Úttekt á
rekstri
RÚV
UMFANGSMIKIL rekstrarút-
tekt hefur staðið yfir um nokk-
urn tíma á rekstri Ríkisút-
varpsins og er niðurstöðu að
vænta innan fárra vikna, að
sögn Péturs Guðfinnssonar
útvarpsstjóra.
Stofnunin fékk Verkfræði-
stofu Stefáns Ólafssonar til
að fara í saumana á rekstri
RÚV í samvinnu við sérstaka
vinnuhópa innan RÚV sem
skipaðir voru sl. haust. „Mark-
miðið er að taka á öllum þátt-
um rekstrarins og huga að
öllum hugsanlegum leiðum til
sparnaðar eða betri nýtingar
á mannskap og tækjurn,"
sagði Pétur.
Hann sagði að sérstök stýri-
nefnd hefði yfirumsjón með
verkefninu og hún myndi
væntanlega taka málið til af-
greiðslu þegar niðurstöður
lægju fyrir.
TILSKIPUN Evrópusambandsins
um aðgang fyrirtækja að flugaf-
greiðslumarkaði mun taka gildi hér
á landi á næstu misserum sam-
kvæmt samningnum um Evrópskt
efnahagssvæði. Ákvæði tilskipun-
arinnar stangast samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins á við nú-
verandi fyrirkomulag flug-
afgreiðslumála á Keflavíkurflug-
velli.
Flugleiðir hf. hafa nú einkaleyfi
á innritun farþega og afgreiðslu
allra farþegaflugvéla á Keflavík-
urflugvelli samkvæmt samningi við
utanríkisráðuneytið en tilskipunin
kveður á um að á flugvöllum þar
sem farþegar eru fleiri en ein millj-
ón á ári og frakt meiri en 25.000
tonn skuli fiugfélögum vera heimilt
að afgreiða sjálf eigin flugvélar.
Fullt frelsi í veitingu þjónustu við
flugvélar miðast hins vegar við enn
stærri flugvelli þar sem mun fleiri
farþegar fara um.
Að sögn Halldórs S. Kristjáns-
sonar, skrifstofustjóra í samgöngu-
ráðuneytinu, er tilskipunin hluti af
reglusafni því um flugmál, sem
gert er ráð fyrir að verði hluti af
EES-samningnum og taki gildi á
íslandi. Miðað sé við að ákvæði til-
skipunarinnar taki gildi um næstu
áramót.
Sameiginlega EES-nefndin hefur
hins vegar enn ekki tekið formlega
ákvörðun um að tilskipunin skuli
bætast við EES-samninginn.
Núverandi samningur við Flug-
ieiðir var gerður árið 1987. Flug-
leiðir höfðu í fyrstu einkarétt á inn-
ritun farþega og þjónustu við jafnt
farþega- og fraktflugvélar, en 1991
var samningurinn endurnýjaður og
var afgreiðsla fraktflugvéla þá gef-
in fijáls. Fraktflugfélög hafa hins
vegar áfram skipt við Flugleiðir.
Um 80% af farþegaflugi og 75%
af fraktflugi um völlinn eru á veg-
um Flugleiða.
Einkaleyfissamningurinn end-
urnýjaðist aftur á síðasta ári, en
samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins greinir samningsaðilana á
um til hversu langs tíma hann hafi
endurnýjazt. Verði talið að samn-
ingurinn stangist á við skuldbind-
ingar Íslands samkvæmt EES-
samningnum má búast við aðgerð-
um af hálfu Eftirlitsstofnunar
EFTA, nema samningnum verði rift
eða samið upp á nýtt við Flugleiðir.
Einkaleyfið gagnrýnt
Einkaleyfl Flugleiða á flugaf-
greiðsiunni hefur sætt gagnrýni
keppinauta félagsins, til dæmis flug-
félagsins Atlanta, sem telja það
skaða samkeppnisstöðu sína. í drög-
um að skýrslu Samkeppnisstofnunar
um flugmarkaðinn, sem Morgun-
blaðið greindi frá í marz síðastliðn-
um, kemur fram að gjaldskrá fynr
flugvélaafgreiðslu á Keflavíkurflug-
velli sé með þeim hæstu sem fyrir-
finnist í nágrannalöndunum. Sam-
kvæmt ársskýrslu Flugleiða námu
tekjur félagsins af afgreiðslu flug-
véla, innanlands og utan, um 242
milljónum króna á síðasta ári.
i
|
I BVKO
MEÐ blaðinu í dag fylgir fjög-
urra síðna auglýsingablað frá
BYKO.
Viö klæðum
húsiö fjitt
Þrír slösuðust í hörðum átökum á veitingahusinu Vegas í fyrrinótt
HÖRÐ átök brutust út á veitinga-
í lífshættu
húsinu Vegas skömmu fyrir klukkan
eitt í fyrrinótt með þeim afleiðingum'
að þrír slösuðust, þar af einn alvar-
lega. Sá er 26 ára gamall. Varð
hann fyrir þung.um höfuðhöggum
með þeim áfleiðingum að blæddi inn
á heila og liggur hann nú þungt
haldinn á gjörgæsludeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur, í lífshættu að því talið
er. Síðdegis í gær var maður hand-
tekinn vegna rannsóknar málsins.
Þegar lögreglan kom á staðinn lá
maður hreyfingarlaus í sófa á staðn-
um og hafði verið sleginn í höfuðið.
Við athugun kom í ljós að púls hans
var veikur og var sjúkrabíll kallaður
til. Maðurinn var mjög illa haldinn
samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu en skömmu síðar hófust lífgun-
artilraunir sem báru árangur. Hann
var síðan fluttur á slysadeild Sjúkra-
húss Reykjavíkur.
Spörk dundu á höfði mannsins
Átökin voru á milli þriggja manna
og konu annars vegar og þriggja
ungra sjómanna hins vegar. Vitni á
staðnum bar það fyrir lögreglu að
fjórir einstaklingar sem komið höfðu
skömmu áður, þrír karlar og kona,
hafi setið saman við borð inni á
skemmtistaðnum og gefið sig á tal
við mjög drukkinn mann sem sat
skammt frá þeim.
Ekki er vitað um upptökin en
skyndilega brutust út slagsmál
þeirra á milli og var maðurinn sleg-
inn og tuskaður til að sögn vitnjs,
auk þess sem sparkað var í höfuð
hans nokkrum sinnum. Félagar hans
hugðust þá koma honum til aðstoð-
ar, en máttu sín ekki mikils gagn-
vart árásarmönnunum. Sá sem
fyrstur varð fyrir barðinu á fólkinu
lagðist upp í sófa og eltu þremenn-
ingarnir hann þangað og spörkuðu
aftur í höfuð hans nokkrum sinnum.
Einn handtekinn í gær
Gerendur voru farnir af vettvangi ’
þegar lögreglan kom á vettvang og
ekki lá fyrir lýsing á þeim. Síðar um
kvöldið kvaðst hins vegar starfsmað- I
ur á staðnum vita um hveija væri |
að ræða og var einn handtekinn í
gær, eins og áður sagði. Rannsókn-
arlögregla ríkisins hefur málið til j
meðferðar.
Tveir sjómannanna fengu áverka
í andliti en sá þriðji reyndist mikið i j
slasaður á höfði og gekkst hann , f
umsvifalaust undir aðgerð á Sjúkra- | '
húsi Reykjavík eftir komuna þangað.