Morgunblaðið - 14.05.1997, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1997 43
FRÉTTIR
B ændaskólanum
á Hvanneyri slitið
Aðalfundur UMF
Selfoss 1996
Ingólfur
Snorrason
íþróttamað-
ur Selfoss
Selfossi - Ingólfur Snorrason,
landsliðsmaður í karate, var
valinn íþróttamaður Selfoss
árið 1996. Úrslitin voru kunn-
gerð á aðalfundi Ungmenna-
félags Selfoss sem fram fór á
dögunum. Ingólfur hefur náð
geysilega góðum árangri á
þessu ári, m.a. hefur hann
staðið sig frábærlega á er-
lendum stórmótum ásamt því
að verða bikarmeistari íslands
í karate. Hann hefur sýnt
mikinn áhuga og dugnað í
íþrótt sinni og hefur hann
þurft að stunda æfingar
einsamall, án þjálfara.
Guðmunda Auðunsdóttir
frá handknattleiksdeild fékk
Björns Blöndal bikarinn, en
hann er veittur þeim einstakl-
ingi sem hefur unnið vel innan
félagsins. Deild ársins var
kjörin Sunddeild Selfoss en
árlega er þeirri deild sem sýn-
ir mesta félagsstarfið veitt
þessi verðlaun.
Grund - Bændaskólanum á
Hvanneyri var slitið við hátíðlega
athöfn í mötuneyti skólans 8. maí
að viðstöddum landbúnaðarráð-
herra, Guðmundi Bjarnassyni,
formanni Bændasamtaka Islands,
Ara Teitssyni og fleiri gestum.
Skólastjórinn, Magnús B. Jóns-
son, flutti skólaslitaræðu og kom
víða við og fjallaði m.a. um nefnd
sem landbúnaðarráðherra skipaði
til að fjalla um málefni skólans í
því skyni að móta honum framtíð-
arhlutverk. Nefndin skilaði áliti í
febrúar byggðu á viðamikilli
skoðanakönnun meðal bænda og
viðtölum við fjölmarga af for-
svarsmönnum íslensks iandbúnað-
ar og fyrirsvarsmönnum landbún-
aðarstofnana.
„Þar er enginn vafi að þetta
nefndarstarf og niðurstöður þess
hafa orðið skólastarfinu mikil
lyftistöng. Skoðanakönnunin
leiddi í ljós að starf skólans er
mikils metið af bændastéttinni.
Það kom einnig skýrt fram að
starfsmenntunin hefur mikið að
segja fyrir þá sem ætla sér fram-
tíð í ísienskum landbúnaði. -
Framtíðarskipulag búnaðar-
fræðslunnar verður ekki slitið frá
skipulagi rannsóknarstarfsem-
innar og treysta verður, sem kost-
ur er, tengsl fræðslu, rannsókna
og leiðbeininga. í niðurstöðum
nefndarinnar kemur þetta glöggt
fram, en hennar megin áherslur
voru eftirfarandi þrjú atriði: að
endurmenntun fyrir bændur og
starfsfólk í landbúnaði verði efld
og komið í fast form, að landbún-
aðarnám á framhalds- og háskóla-
stigi sé betur tengt við annað nám
á viðkomandi skólastigum og að
landbúnaðarnám á háskólastigi
sé betur tengt rannsóknum í þágu
landbúnaðar," sagði Magnús.
únaðarfræðslu.
Skeifukeppnin
Þá vék skólastjórinn að skeifu-
keppninni, sem er hefðbundin á
lokadegi í félagsstarfsins og hald-
in á sumardaginn fyrsta.
Þessi hlutu verðlaun: Morgun-
blaðsskeifan: Camilla Munk Sör-
ensen, Ásetuverðlaun: Camilla
Munk Sörensen og Eiðfaxabikar:
Pétur Halldórsson, Vík.
Á þessu skólaári hafa 97 nem-
endur innritast á Hvanneyri til
náms. Af þeim eru 69 nemnedur
innritaðir í bændadeild skólans
og 28 í búvísindadeild, þar af 25
í reglubundið búvísindanám, 2 í
óreglubundið og 1 nemandi í BS-
120 námi.
Af nemendum bændadeildar
voru 36 innritaðir í 1. bekk, 20 á
haustönn og 16 á vorönn og luku
28 nemendur prófum. 30 nemend-
ur voru innritaðir í 2. bekk og
þar af 1 nemandi á 5. önn. Nem-
endur eru ívið fleiri en undanfar-
in ár en aðsókn að skólanum er
of lítil. Þetta á fyrst og fremst
við bændadeildir, en aðsókn að
búvísindanáminu er í samræmi
við áætlanir.
Bestum árangri á búfræðiprófi
náðu: 1. Sigurður Gylfason, 9,1,
2. Pétur Halldórsson, 8,9, 3. Þórey
Bjarnadóttir, 8,8 og 4. Garðar
Þorfinnsson, 8,7.
Bestum árangri á búfjárræktar-
sviði náðu: 1. Pétur Halldórsson,
8,9, 2. Þórey Bjarnadóttir, 8,8 og
3. Garðar Þorfinnsson, 8,7.
Bestum árangri á rekstrarsviði:
1. Sigurður Gylfason, 9,1, 2-4.
Hannes Adolfsson, 8,6, 2-4. Ste-
fanina Nindel, 8,6 og 2-4. Tjörvi
Bjarnason, 8,6.
Bestum árangri á landnýtingar-
sviði: 1. Sigrún Jónasdóttir, 7,53
og 2. Hinrik Hjartarson, 7,46.
Ánægja með nefndarstörf
Að lokinni útskrift tók landbún-
aðarráðherra, Guðmundur
Bjarnason, til máls, lýsti ánægju
með störf ráðherranefndarinnar,
tók undir og gerði að sínum orð-
um meginniðurstöður hennar og
hét að vinna landbúnaði á Islandi
allt það gagn sem hann gæti á
meðan hann væri í embætti land-
búnaðarráðherra, þótt hann yrði
að sjá af tíma til að svara aula-
fyndni niðri á Alþingi, þegar sum-
ir þingmenn væru í þeim ham.
Oskaði hann síðan skólanum og
nýútskrifuðum nemendum allra
heilla. Ari Teitsson formaður
Bændasamtaka íslands flutti
ávarp og afhenti verðlaun frá
Bændasamtökunum.
Fleiri aðliðar veittu verðlaun,
en síðan tók til máls Sigurður
Jónsson, fulltrúi 60 ára búfræð-
inga, og rakti nokkrar minningar
frá Hvanneyrarárum sínum og
sinna félaga. Að lokum var öllum
boðið til kaffidrykkju og meðlæti
veitt vel, að höfðingja sið.
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
INGÓLFUR Snorrason
karatemaður, íþrótta-
maður Selfoss 1996
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
ÚTSKRIFTARNEMENDUR frá Bændaskólanum á Hvanneyri,
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
TEKIÐ á móti þakkarskjölum; fulltrúar fyrirtækja og félaga
sem gáfu fé til tækjakaupa í sjúkraþjálfun dvalarheimilisins á
Hellu, ásamt sjúkraþjálfara og stjórnarmönnum heimilisins.
BALDUR Rúnarsson sjúkra-
þjálfari við eitt tækjanna í
hinni nýju aðstöðu Dvalar-
heimilisins Lundar á Hellu.
Dvalarheimilið Lundur á Hellu
Samstaða um tækjakaup
Hellu - í febrúar sl. tók sjúkra-
þjálfari til starfa á Dvalarheimilinu
Lundi á Hellu. Sú þjónusta hefur
ekki áður verið í boði á staðnum,
en auk þess að sinna íbúum dvalar-
heimilisins geta aðrir íbúar í hérað-
inu notið aðstöðunnar. Tæki og
búnaður til sjúkraþjálfunarinnar
voru keypt fyrir gjafafé frá fyrir-
tækjum og einstaklingum.
Nýverið voru afhent þakkarskjöl
til aðila sem gerðu tækjakaupin
möguleg, en þau eru Krabbameins-
félag Rangárvallasýslu, Krappi
ehf. á Hvolsvelli, Kvenfélagið Unn-
ur í Rangárvallahreppi, Mosfell sf.
á Hellu, Rauðakrossdeild Rangár-
vallasýslu, Ólafur Guðmundsson
og Lárus Jónasson á Hellu og Jós-
ep Benediktsson í Varmadal. Þá
gaf Steinn Þórðarson, vistmaður á
Lundi, andvirði einbýlishúss sins
og hefur sá sjóður verið notaður
til tækjakaupa.
Gjafir til heilsugæslu-
stöðvarinnar á Hólmavík
Drangsnesi - Lionsklúbburinn á
Hólmavík og Kvenfélagasamband
Strandasýslu afhentu heilsugæslu-
stöðinni á Hólmavík fullkominn
nuddbekk og mjaltavél að gjöf laug-
ardaginn 3. maí sl.
Þetta er fullkominn meðferðar-
bekkur sem nýtast mun bæði fyrir
nudd og sjúkraþjálfun. Ekki hefur
nein aðstaða verið á heilsugæslu-
stöðinni fyrir sjúkranuddara og hef-
ur fólk orðið að sækja þessa þjón-
ustu til Reykjavíkur með ærnum til-
kostnaði. Þetta mun væntanlega
breytast nú með þessari gjöf kvenfé-
lagskvenna og Lionsmanna.
Mjaltavélin, sem er af gerðinni
Medela, er í sérstakri tösku og er
með öllum fylgihlutum. Vélar af
þessari gerð eru í notkun, bæði á
mjaltavélaleigum í Reykjavík og á
vökudeild Landspítalans, og hafa
þær reynst mjög vel.
Víst er það að heilsugæslan á
Hólmavík væri snöggtum fátækari
að tækjum en hún þó er ef velvilja
og gjafmildi íbúa Strandasýslu nyti
ekki við.
JENNÝ Jensdóttir, formaður Kvenfélagasambands Stranda-
sýslu, og Sigurður Vilhjálmsson, Lionsklúbbi Hólmavíkur, af-
henda Jóhanni B. Arngrímssyni, framkvæmdastjóra heilsu-
gæslustöðvarinnar á Hólmavík, fullkominn nudd- og meðferðar-
bekk og mjaltavél.