Morgunblaðið - 14.05.1997, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.05.1997, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Morgunblaðið/Kristján KRISTINN Gylfi Jónsson, formaður Svínaræktarfélags íslands var á meðal þeirra er tóku á móti svínunum á Akureyrarflugvelli í gær, eftir flugið frá Finnlandi. Morgunblaðid/Kristinn Gylfi AUÐBJORN Kristinsson, bóndi á Hraukbæ í Eyjafirði og varafor- maður Svínaræktarfélagsins skoðar svín á kynbótabúi í Finn- landi, þar sem dýrin voru keypt. Finnsku svínin komin til Hríseyjar Bæjarstjóri fær vaxtalaust lán til bifreiðakaupa Þátttaka bæjarins í rekstri bifreiðar AKUREYRARBÆR veitti Jakobi Björnssyni bæjarstjóra vaxtalaust lán til bifreiðakaupa þegar hann tók við störfum í upphafi þessa kjörtímabils. í ráðingarsamningi við bæjarstjóra kemur fram að bærinn veiti bæjar- stjóra lán til bifreiðakaupa, lánsupp- hæð fari eftir samkomulagi, Iánið sé vaxtalaust og skuli endurgreitt á fjór- um árum með jöfnum mánaðarlegum afborgunum. Þetta kom m.a. fram í úttekt sem Útvarp Norðurlands gerði á launakjörum bæjarstjóra í kaup- stöðum á Norðurlandi. Jakob Björnsson bæjarstjóri sagði ekkert óeðlilegt við þetta ákvæði ráðingarsamningsins, en vitanlega hefði mátt haga hlutunum með öðr- um hætti. „Þetta er aðferð Akur- eyrarbæjar til að taka þátt í kostn- aði við rekstur bíls, fyrir utan beinar greiðslur vegna aksturs. Hér hefur sú Ieið ekki verið farin að kaupa sérstakan bíl fyrir bæjarstjórann eins og sums staðar tíðkast," sagði Jakob. Beint upp úr fyrri samningum Hann sagði að þetta ákvæði samningsins hefði verið tekið beint upp úr samningum við fyrri bæjar- stjóra. Vissi hann til þess að síðasti bæjarstjóri hefði einnig nýtt sér vaxtalaust lán til bifreiðakaupa en lengra aftur þekkti hann ekki sög- una._ „Ég hefði ekkert á móti því að ráðningarsamningar við bæjarstjóra væru einfaldari, kveðið á um ákveðna launatölu sem ekki yrði endilega lægri þegar í heildina er litið en núverandi laun. Næst þegar ég geri samning sem bæjarstjóri mun ég beita mér fyrir lagfæringum, gera hlutina einfaldari," sagði Jak- ob. „Aðalatriði þessa máls er að það er ekkert óeðlilegt við þetta, það er ekki verið að skjóta neinu undan.“ Umdeilanleg ákvörðun Sigurður J. Sigurðsson oddviti Sjálfstæðisflokks sagði það umdeil- anlega ákvörðun að veita vaxtalaus bifreiðalán og sér þætti merkilegt að þessu ákvæði hefði ekki verið breytt í tímans rás, við gerð nýrra samninga. Eðlilegast væri að menn greiddu fjármagnskostnað af svona lánum og víða væri hægt að fá lán til bílakaupa, en af þeim væru greiddir vextir. Sigurður sagði það sína skoðun að full ástæða hefði verið að endurskoða samninga sem gerðir voru við framkvæmdastjóra sveitarfélaga sem ráðnir voru til skemmri tíma þegar pólitískur bæj- arfulltrúi væri gerður að bæjarstjóra eins og nú. Þeir hefðu til að mynda ekki fengið bæjarfulitrúalaun. í GÆR komu til Akureyrar á vegum Svínaræktarfélags Is- lands, 25 kynbótasvín frá Finn- landi. Svínin komu með þotu Atlanta að utan og voru þau flutt frá Akureyri í einangrun- arstöð Svínaræktarfélagsins í Hrísey. Alls voru fluttar inn sautján fengnar gyltur og átta geltir og er stefnt að því að fyrstu gyltunar gjóti um næstu mán- aðamót. Verkefnið í Hrísey stendur yfir næstu tvö árin og verða gylturnar látnar gjóta fjórum sinnum á því tímabili og grísirnir fluttir um fjögurra mánaða gamlir í land og inn á íslensk svínabú. Gert er ráð fyrir að á tímabilinu verði framleiddir um fimmhundruð grísir. Markmið Svínaræktarfélags- ins með þessu kynbótaverkefni er að efla og bæta íslenska svínarækt og auka hagkvæmni í svínakjötsframleiðslunni og samkeppnishæfni hennar. Lögreglan glímir viö ölvaðan mann Úða beitt við hand- töku ÖLVAÐUR maður veittist að lögreglu með ofbeldi um helg- ina, en hann hugðist koma í veg fyrir að lögregla sinnti skyldustörfum sínum þegar verið var að handtaka félaga hans. Lögreglumenn þurftu að beita „mace-úða“ við hand- töku mannsins til að yfirbuga hann og komu þeir þannig í veg fyrir átök, sem hætta er á að geti leitt til líkamstjóns, ýmist á þeim handtekna eða lögreglumönnum. Eltir uppi Arvökulir lögreglumenn á eftirlitsferð urðu vitni að því um helgina að tveir menn viku af réttri braut og gerðu tilraun til innbrots í verslun. Þeir höfðu brotið rúðu í versluninni þegar lögregluna bar að. Tóku mennirnir til fótanna er þeir urðu varir áhorfenda að at- hæfi sínu en fótfráir lögreglu- menn hlupu þá uppi og hand- tóku. Morgunblaðið/Kristján Mjólkurframleiðendur á samlagssvæði KEA Viðbótargreiðsla fyrir síðasta ár Dyttað að fleytunni LEIÐINDAVEÐUR hefur verið á Norðurlandi síðustu daga og ekki útlit fyrir miklar breytingar al- veg á næstunni. Örlygur Ingólfs- son skipstjóri á feijunni Sæfara lét það ekki á sig fá og notaði tímann á laugardag til að dytta að fleytu sinni. Hann fór fag- mannlegum höndum um máln- ingarrúlluna og málaði stjórn- borðssíðu Sæfara af miklum móð, þar sem skipið lá við Torfu- nefsbryggju á Akureyri. Sæfari er í siglingum á milli Dalvíkur og Grímseyjar. KAUPFÉLAG Eyfirðinga hefur ákveðið að borga mjólkurframleið- endum á svæði Mjólkursamlags KEA viðbótargreiðslu á framleiðslu síðasta árs. Magnús Gauti Gautason, kaupfélagsstjóri, segir að upphæðin verði samsvarandi þeim arðgreiðsl- um sem greiddar hafa verið á öðrum mjólkurframleiðslusvæðum. Magnús Gauti segir að arðgreiðsl- ur á öðrum svæðum hafi verið um 65 aurar á hvern lítra. Hann segir að viðbótargreiðslan hafi ekki enn verið greidd hjá KEA og að ekki sé búið að útfæra þá framkvæmd. „Við viljum með þessari viðbótar- greiðslu sjá til þess að bændur hér á svæðinu sitji við sama borð og bændur á Suðurlandi, hvað þetta varðar," sagði Magnús Gauti. Sameinaður hverfisskóli Tveir sóttu um stöðu skólastjóra TVÆR umsóknir bárust um stöðu skólastjóra hverfisskóla fyrir 1. til 10. bekk, en um er að ræða skóla sem samein- aður verður úr Barnaskóla Akureyrar og Gagnfræða- skóia Akureyrar. Þau sem sóttu um eru Karl Erlendsson, skólastjóri í Þela- merkurskóla, og Þóra Stein- unn Gísladóttir kennari við Gagnfræðaskólann á Akur- eyri. Ein umsókn barst um stöðu aðstoðarskólastjóra við Gilja- skóla, frá Þorgerði Guðlaugs- dóttur sem síðasta ári liefur gengt stöðu skólastjóra við Síðuskóla. Skólanefnd mun i^alla um umsóknir á næsta fundi sínum sem væntanlega verður síðar í vikunni. Rækjumiðin norður af Grímsey að lokast vegna hafíss Grímsey. Morg-unblaðið. HAFÖRN SK 17, rækjubátur sem gerður er út af Dögun á Sauðárkróki, var á veiðum um 10 mílur norður af Grímsey nýlega. Jón Árni Jónsson skipstjóri sagði að rækjumiðin væru að lokast vegna hafíss og þess vegna væru þeir komnir þetta nálægt landi og var aflinn þar af leiðandi held- ur rýr í túrnum eða 11 tonn. Báturinn kom að landi á Sauðárkróki sl. sunnudags- kvöld. Túrarnir eru alltaf fimm sólarhringa langir og sagði hann þennan þann lélegasta í iangan tíma því þeir hefðu ekki farið niður fyrir 20 til 30 tonn lengi. Fimm eru í áhöfninni, Dög- un verkar rækjuna og að- spurður um verðið sem þeir fá fyrir hana sagði Jón Árni: „Við erum ekki ósáttir við okkar hlut.“ Alþýðu- tónlist TÓNLEIKAR verða í sal Verkmenntaskólans á Akur- eyri í kvöld, miðvikudags- kvöldið 14. maí kl. 20.30. Fram koma nemendur í al- þýðutónlistardeild Tónlistar- skólans á Akureyri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.