Morgunblaðið - 14.05.1997, Blaðsíða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1997
ALDARMINNING
MORGUNBLAÐIÐ
+
Ástkaer móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HELGA RAFNSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 15. maí kl. 13.30.
Erla Guðrún isleifsdóttir,
Högni ísleifsson, Sveina Helgadóttir,
Gísli Rafn ísleifsson, Sigríður Eyjólfsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
JÓN GEIR LÚTHERSSON
bóndi,
Sólvangi,
sem andaðist á heimili sínu miðvikudaginn
7. maí, verður jarðsunginn frá Hálsi, Fnjóska-
dal, föstudaginn 16. maí kl. 14.00.
Ásdís Stefánsdóttir,
börn, tengdasynir
og barnabörn.
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
HREFNA GUÐNADÓTTIR,
síðast til heimilis
í Lækjarkinn 26, Hafnarfirði,
áður húsfreyja á Þórustöðum,
Vatnsleysuströnd,
verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 16. maí kl. 13.30.
Páll Vídalín Jónsson,
Gretar Pálsson,
Sigurjón Pálsson, Anita Örtengren,
Guðni Pálsson, Herdís Hallgrímsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MÁLFRÍÐUR BENEDIKTSDÓTTIR,
Stóru-Sandvík,
Sandvíkurhreppi,
andaðist á Sjúkrahúsi Suðurlands mánudaginn
12. maí sl.
Benedikt Jóhannsson, Lára Hjördís Halldórsdóttir,
Hannes Jóhannsson, íris Sigrid Guðmundsdóttir,
Sigríður Kristín Jóhannsdóttir, Samúel Smári Hreggviðsson,
Magnús Jóhannsson, Margrét Ófeigsdóttir
og barnabörn.
+
Ástkær dóttir mín, unnusta og móðir okkar,
KRISTRÚN SKÆRINGSDÓTTIR,
Suðurhólum 26,
er látin.
Jarðsett hefur verið í kyrrþey.
Sigríður V. Magnúsdóttir,
Kristján Hauksson,
Bjarni Fannar, Lilja Dögg,
Magnús Freyr, Sólveig Rún.
+
Bróðir okkar,
JÓNAS EGGERT TÓMASSON
bóndi,
Sólheimatungu,
er látinn.
Guðrún M. Tómasdóttir,
Sigurður Tómasson,
Guðrfður Tómasdóttir.
STEFÁNÁGÚST
KRISTJÁNSSON
+ Stefán Ágúst
Kristjánsson
fæddist í Glæsibæ
við Eyjafjörð hinn
14. maí árið 1897.
Hann lést 1. maí
1988. Foreldrar
hans voru Kristján
Jónsson bóndi og
smiður í Glæsibæ og
kona hans Guðrún
Oddsdóttir frá Dag-
verðareyri. Var
Stefán yngstur sjö
barna þeirra hjóna,
er upp komust.
Stefán Ágúst
kvæntist hinn 22. febrúar árið
1930 Sigríði Friðriksdóttur, f.
10. febrúar 1912, d. 6. ágúst
1980. Hún var dóttir Friðriks
Daníels Guðmundssonar bónda
á Arnarnesi yið Eyjafjörð og
konu hans Onnu Guðmunds-
dóttur. Börn Stefáns Ágústs og
Sigríðar eru Anna Gabríella
(Annella), f. 13. ágúst 1930, og
Friðrik Daníel, f. 7. nóvember
1932. Annella var gift Magnúsi
Ólafssyni lækni, sem lést árið
1990. Synir þeirra eru tveir og
barnabörn fimm. Friðrik er
kvæntur Ólafíu Sveinsdóttur og
eiga þau tvær dætur. Auk þess
á Friðrik tvo syni og tvö barna-
börn.
Að loknu námi við Bænda-
skólann á Hólum í Hjaltadal hóf
Stefán hálfrar ald-
ar starfsferil sinn á
Akureyri, fyrst
kennslustörf en
síðan skrifstofu- og
verslunarstörf.
Stefán Ágúst var
forstjóri Sjúkra-
samlags Akur-
eyrar 1936-1970 og
jafnframt forstjóri
Borgarbíós 1946-
1970. Hann var
lengi í forystusveit
bindindishreyfing-
arinnar á Akureyri
og helsti hvata-
maður að rekstri Hótel Norður-
lands og síðar Hótel Varðborg-
ar á hennar vegum.
Stefán Ágúst kom víða við í
félagsmálum. Hann var einn
stofnenda Félags verslunar- og
skrifstofufólks á Akureyri árið
1930, karlakórsins Geysis árið
1922 og Tónlistarfélags Akur-
eyrar árið 1943. Hann var for-
maður Tónlistarfélagsins
fyrsta aldarfjórðunginn og
vann sem slíkur þrekvirki í
menningarmálum Akureyrar-
bæjar. Hann gaf út þrjár
ljóðabækur og á aldarafmæli
hans koma út sönglög eftir
hann á geisladiski. Stefán Ág-
úst flutti til Reykjavíkur árið
1970, en hann lést þann 1. maí
árið 1988.
Glæsibær stendur við vestan-
verðan Eyjafjörð skammt norðan
Akureyrar. Þar er kirkjustaður og
prestsetur var þar fram til_ ársins
1880. Foreldrar Stefáns Ágústs,
þau Kristján Jónsson og Guðrún
Oddsdóttir, hófu búskap í Glæsibæ
árið 1888 og bjuggu þar uns Krist-
ján andaðist árið 1928. í grein sem
Jóhann Ó. Haraldsson, tónskáld,
ritaði í Eininguna um Kristján á
aldarafmæli hans árið 1958 er
honum lýst þannig:
„Fyrir mínum sjónum er hann
einn almesti aðsóps- og atkvæða-
maður, sem ég minnist í alþýðu-
stétt, svo að eigi sé dýpra tekið í
árinni. Hann var fæddur frábær
mælskumaður, skýr í hugsun, og
framsetningin sérstaklega snjöll
og hrífandi. Mjög var hann tilfinn-
ingaríkur, viðkvæmur og blíður í
lund, og um margt með lista-
mannaskap. Ljúfur var hann heim
að sækja, góðlátlega kíminn og
skemmtilegur, frjálslyndur og víð-
sýnn. Sérstakur unnandi var hann
fagurra lista og hvers konar fram-
taks.“
Þessi lýsing á Kristjáni Jónssyni
á um margt einnig við um Stefán
Ágúst, sem tók föður sinn mjög til
fyrirmyndar. Báðir voru þeir í for-
ystusveit bindindishreyfingarinnar
á Norðurlandi á sinni tíð og sinntu
félagsmálum af einstökum áhuga
og ósérhlífni. Kristján var „gæddur
næsta fágætri söngrödd" og var
hljómmikill bassi. í grein, sem
Steindór Steindórsson, skólameist-
ari frá Hlöðum, sem nú er nýlát-
inn, ritaði um Kristján í Glæsibæ í
Heima er best árið 1985 lýsir hann
sönglífinu þar á staðnum:
„Stefán Ágúst lék á orgel, en
þeir feðgarnir sungu bæði fieir-
raddað og einsöng, en sum lögin
að minnsta kosti hafði Stefán Ag-
úst samið. Og þetta var ekkert
einsdæmi í Glæsibæ, öll fjölskyldan
var hljómelsk og iðkaði þá list eft-
ir föngum.“
Ræktun og garðyrkja var einnig
stunduð af miklum myndarskap í
Glæsibæ og lýsir Steindór frá Hlöð-
um því, að „skrúðgarðurinn í
Glæsibæ ætti verðugan sess í garð-
yrkjusögu landsins“.
Áf framansögðu má vera nokk-
uð ljóst, að Stefán Ágúst fékk
gott veganesti frá æskuheimili
sínu. Öllum sem þekktu Kristján
föður hans ber saman um mann-
kosti hans, en hann var af fátæku
foreldri og ólst upp við kröpp kjör.
Hann naut því lítillar bóklegrar
kennslu í æsku, en varð brátt að
vinna öll algeng störf til sjávar og
sveita. Um tvítugsaldur nam hann
trésmíði. Guðrún Oddsdóttir, móðir
Stefáns Ágústs, var einnig góðum
kostum búin og naut menntunar
úr föðurgarði og var meðal fyrstu
námsmeyja á gamla kvennaskólan-
um á Laugalandi.
Stefán Ágúst var hrifnæmur
náttúruunnandi, eins og upplag
hans og uppeldisstaður gáfu til-
efni til. Þetta kemur skýrt fram
í þeim skrifum, ljóðum og lögum,
sem eftir hann liggja. Sterkasti
vitnisburðurinn um þetta er lík-
lega hátíðarljóð, sem hann samdi
og flutti á aldarafmæli Akureyrar
árið 1962. Ljóðið skiptist í þrjá
þætti, í>em bera heitin „Landn-
ám“, „Óður Akureyrar" og „Ósk-
ir“. Fyrstu tvö erindin í „Óði Akur-
eyrar“ lýsa bæði vel kveðskap
Stefáns Ágústs og þeirri ást, sem
hann bar til Akureyrar og Eyja-
fjarðar:
Skilafrestur
minningargreina
Eigi minningargrein að birtast
á útfarardegi (eða í sunnudags-
blaði ef útför er á mánudegi),
er skilafrestur sem hér segir: I
sunnudags- og þriðjudagsblað
þarf grein að berast fyrir há-
degi á föstudag. í miðviku-
dags-, fimmtudags-, föstudags-
og laugardagsblað þarf greinin
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrir birtingar-
dag. Berist grein eftir að skila-
frestur er útrunninn eða eftir
að útför hefur farið fram, er
ekki unnt að lofa ákveðnum
birtingardegi.
Gakk þú með á brekkur brattar,
beyg þín kné í djúpri lotning,
Fagur, víður fjallahringur
faðmar Norðurlandsins drottning.
Yndisfagra Akureyri!
Ilmi’ af gróðri er nafn þitt bundið.
Betra vígi í volki lífsins
verður eigi á jörðu fundið.
Kaldbakur, sem kólgu hrindir,
konunglega í norðri drottnar,
úthafsbáran yggld og grettin
að hans fótum hnígur, brotnar.
í hans skjóli um Eyjafjörðinn
ölduþreyttur knörrinn flytur
björg, úr sævar dökku djúpi,
að dyrum þess er heima situr.
Stefán Ágúst gegndi yfirleitt for-
ystuhlutverki í félagsmálastörfum,
vegna brennandi áhuga hans á öllu
því, sem hann tók sér fyrir hendur.
Það var í fullu samræmi við þetta,
að hann var kjörinn heiðursfélagi
Stórstúku Islands, stúkunnar
Brynju á Akureyri, Félags verslun-
ar- og skrifstofufólks á Akureyri
og Tónlistarfélags Akureyrar.
Hann var einnig sæmdur riddara-
krossi Fálkaorðunnar árið 1972.
Vert er að geta þess, að Sigríður,
eiginkona Stefáns, lagði dijúgan
skerf til árangursríks hugsjóna-
starfs hans. Einstök hjartahlýja og
gestrisni einkenndi heimili þeirra.
Stefán Ágúst lét af störfum árið
1970 og fluttist til Reykjavíkur.
Um þetta leyti virtist heilsu hans
vera að hraka og elli kerling að ná
tökum á honum. Þetta gerbreyttist
eftir að í ljós kom, að skjaldkirtill
hans var hættur að starfa og brugð-
ist var við þ_ví með nútímaþekk-
ingu. Stefán Ágúst „fann nú hörpu
sína aftur“ og hafði í fyrsta sinn á
ævinni raunverulegan tíma til að
semja ljóð og lög. Þijár ljóðabækur
litu dagsins ljós og nokkur sönglög.
Nálægt áttræðisafmælinu árið
1977 gaf hann út ljóðabókina
„Hörpuklið blárra fjalla". Árið 1981
gaf hann út „Angan bleikra blórna",
minningarbók um eiginkonu sjna,
Sigríði, sem lést árið áður. Árið
1987 gaf hann svo út úrval 30 ljóða.
Stefán Ágúst var ern og andlega
ftjór alveg fram undir nírætt, en
þá veiktist hann af krabbameini og
lést ári síðar, eða 1. maí árið 1988,
tæplega 91 árs að aldri.
Nú á aldarafmæli Stefáns Ág-
ústs gefa afkomendur hans út
geisladisk með sönglögum eftir
hann. Þar er annars vegar um að
ræða upptökur frá ríkisútvarpinu,
með söng Þuríðar Baldursdóttur,
Sigui-veigar Hjaltested og Guð-
mundar Jónssonar við undirleik
þeirra Kristins Arnar Kristinsson-
ar, Guðrúnar Kristinsdóttur og
Ragnars Björnssonar. Hins vegar
er um að ræða lög, sem tekin voru
upp með stafrænuni hætti í Fella-
og Hólakirkju í maí 1996. Þau eru
sungin af ungri söngkonu, Þórunni
Guðmundsdóttur, við undirleik
Jóns Sigurðssonar.
Á áðurnefndum geisladiski eru
m.a. lög frá yngri árum Stefáns
Ágústs og þeim árum, sem hann
bjó á Akureyri. Lagið „Þrösturinn“
við ljóð frænda hans, Jóns Sigurðs-
sonar frá Dagverðareyri og lögin
„Angan bleikra blóma" og „Brúður
söngvarans" við ljóð Davíðs Stef-
ánssonar frá Fagraskógi eru frá
þessu tímabili. A síðari æviárum
sínum í Reykjavík sarndi Stefán
Ágúst einnig falleg lög, m.a. „Við
Ganges“ við ljóð Gunnars Dal og
„Á misturblárri heiði“ við Ijóð Ing-
ólfs Kristjánssonar. Oll hafa þessi
lög heyrst í ríkisútvarpinu. Auk
þessara laga_ verða frumflutt lög
eftir Stefán Ágúst við eigin ljóð á
áðurnefndum geisladiski.
Til _að heiðra aldarminningu Stef-
áns Ágústs Kristjánssonar munu
afkomendur hans færa Tónlistarfé-
lagi Akureyrar að gjöf hluta af
upplagi áðurnefnds geisladisks með
sönglögum hans, en Akureyrarbær
styrkir útgáfu geisladisksins_.
Á aldarafmæli Stefáns Ágústs
er vel við hæfi að láta í ljós þá
ósk, að komandi kynslóðir fái að
njóta þeirrar náttúrufegurðar og
blómlegu byggðar, sem er enn við
lýði í Eyjafirði.
Ólafur F. Magnússon.