Morgunblaðið - 14.05.1997, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 14.05.1997, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ1997 57 MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP „SPORFARI er uppáhaldsmyndin mín.“ * Eg mæli með Myndbönd til upprifjunar Kristófer Dignus Pétursson - kvik- myndagerðarmaður og bíófíkill „EG REYNI alltaf að sjá myndir í bíó og lít á myndbönd sem áhald til upprifjunar og endurskoðunar. Stemmningin og gæðin eru að sjálf- sögðu miklu meiri í kvikmyndasaln- um, en vissulega kemur pásu takk- inn sér vel heima í stofu, sérstak- lega þegar maður er að pæla í upp- byggingu og útfærslu atriða í uppá- haldsmyndunum. Markaðurinn á Islandi er góður og mikið úrval á leigunum. Hinsvegar mættu út- gáfufyrirtækin hér á landi vanda meira til við fjölföldun kvikmynd- anna yfir á myndband því oft eru gæðin í lakara lagi. Leigurnar sem ég stunda mest eru annarsvegar Nýmynd í Skipholti (verðsins vegna) og hinsvegar Aðalvídeóleig- an við Klapparstíg (úrvalsins j vegna)“. ( ( Guðföðurþrenningin The Godfather Trílogy Leikstjóri: Francis Ford Coppola. A1 Pacino, Marlon Brando, Robert DeNiro, James Caan, Andy Garcia. „Þessa heilögu þrenningu mafíu- fnynda get ég horft aftur og aftur á, það er að segja þegar tími gefst til enda myndirnar þijár samanlagt i 536 mínútur (eða um 9 klst!). Leik- j ararnir Pacino, DeNiro og Brando I eiga allir leiksigra undir öruggri leið- ( sögn meistara Coppola". (1-1972, H-1974, 111-1990) Maður bítur hund Man Bites Dog Leikstjóri: Rémy Belvaux. Benoit Poelvoorde og Rémy Belvaux. „Otrúleg belgísk ádeilumynd með grínívafi um kolbijálaðan, en óvenju heillandi, fjöldamorðingja. Myndin er í svart hvítu og tekin upp í heim- ildarmyndastíl. Þetta stílbragð gæðir hana ógnvekjandi raunsæjisblæ sem virkar sérstaklega vel í mótsögn við hið lygilega innihald". Myndin er frá árinu 1992. Las Vegas yfirgefin LeavingLas Vegas Leikstjóri: Mike Figgis. Nicholas Cage, Elizabeth Shue og Julian Sands. „Sumir misskilja eflaust boð- skap myndarinnar og telja hana vera áróðursmynd gegn áfengisneyslu og vændi. í rauninni fjallar hún um tvær ólíkar manneskjur sem reyna að halda dauðahaldi í ástina og vin- skapinn, sem myndast hefur milli þeirra mitt í öllum ljótleikanum, og í örstutta stund ná fullkomnun áður en örlögin skilja þau sundur. Leik- stjórinn, Mike Figgis (Breti!) semur einnig hina frábæru djasstónlist sem svífur um í þessari ljúfsáru og gríp- andi mynd. Skál fyrir ástinni". Frá árinu 1995. Sporfari Blade Runner Leikstjóri: Ridley Scott. Harrison Ford, Rutger Hauer, Sean Young og Daryl Hannah. „Blade Runner er uppáhaldsmyndin mín og það mætti í rauninni kenna henni um að ég ákvað að gerast kvikmynda- gerðarmaður. í myndinni koma sam- an, á nær fullkominn hátt, eftirfar- andi þættir: handrit, leikstjórn, kvik- myndataka, listræn útfærsla og leik- ur. Fullt hús, í alla staði“. Myndin er frá 1982. Katherine Hepburn níræð KATHERINE Hepburn deilir afmælisdegi með annarri kjarnakonu, Florence Nightin- gale, en báðar fæddust 12. maí. I tilefni af afmæli Hepburn var skemmtigarður fyrir framan byggingu Sameinuðu þjóðannna í New York tileinkaður henni en leikkonan hefur átt íbúð í nágrenninu í áraraðir. Hepburn býr í Connecticut í húsinu þar sem hún ólst upp. Hún er enn við góða heilsu þó að minnið sé aðeins farið að gefa sig. Ferill Hepburn í kvikmyndum spannar áratugi. Hún byrjaði sem hálfgerð strákastelpa í myndum eins og „Spitfire“, hélt sínu striki í rómantískum gam- anmyndum eins og „Bringing Up Baby“ og „Philadelphia Story“, lék á móti ástmanni sín- um, Spencer Tracy, í gaman- myndum eins og „Woman of the Year“ og „Adam’s Rib“, og þeg- ar aldurinn færðist yfir lék hún m.a. í „Guess Who's Coming To Dinner" og „On Golden Pond“. Nýlega var gefin út bók Chri- stophers Andersens „An Affair To Remember: The Remarkable Love Story of Katherine Hep- burn and Spencer Tracy“. Sam- band þeirra varaði í 26 ár en þau giftust aldrei vegna þess að Tracy var kaþólskur og neitaði að skilja við konu sína. Andersen segir um Hepburn að hún sé mesta stjarna og besta leikkona sem Hollywood hafi nokkurn tíma átt. Hún hefur líka verið heiðruð af félögum sínum í iðn- aðinum en hún hefur hlotið þrjá Oskara síðan hún varð sextug. Ferill Hepburn hefur þó ekki alltaf verið sléttur og felldur. Hún keypti sig eitt sinn út úr samningi við RKO kvikmynda- fyrirtækið vegna þess að hún sætti sig ekki við hvernig komið var fram við hana sem leikkonu. Hún var líka, ásamt Betty Davi- es, um tíma talin eitur í beinum áhorfenda og ásökuð um að fæla fólk frá því að fara í bíó. Hver er að gera hvað? ELLEN DeGeneres, Patricia Arquette, og Don Johnson ætla að leika ástar- þríhyrning í nýjustu kvik- mynd Rolands Joffes „Go- odbye, Lover“. Rob Lowe, Ice-T, og Burt Reynolds eru nú í Tékklandi við upptökur á hasarmynd- inni „Crazy Six“. Albert Py- uns leikstýrir. Tom Hanks, Edward Burns, Vin Diesel og Adam Goldberg leika í væntanlegri stríðsmynd Stevens Spiel- bergs „Saving Private Ryan“. Seinni heimsstytjöld- in virðist aftur vera orðin vinsælt kvikmyndaefni. Jean-Claude Van Damme fær Rob Schneider, Paul Sorvino og Lelu Rochon til samstarfs í nýjustu mynd sinni „Knock Off“. Tsui Hark leikstýrir. Antonio Banderas og Anthony Hopkins eru að ljúka tökum á „The Mask of Zorro“ sem Martin Camp- ell leikstýrir. ÞESSI uppstilling var tekin af Katherine Hepburn í kring- um 1942 af ljósmyndaranum Clarence Sinclair. í dag er Hepburn lofuð af öllum. David Thomson segir m.a. í sinni yfirgripsmiklu bók, „Biographical Dictionary of Film“, að bestu kvikmyndir hennar frá árunum 1932-1945 hafi ekki elst neitt, og Hepburn sé athyglisverðasta leikkona bandarískra kvikmynda. Jakkafata- dag ar Jakkaföt, skyrta og bindi kr. 19.900 Jakkaföt frá kr. 12.900 jy VOU Laugavegi 51, sími 551 8840, Kringlunni, sími 533 1720.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.