Morgunblaðið - 14.05.1997, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 14.05.1997, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MAÍ 1997 23 LISTIR Viðhorfið skiptir mestu máli segja söngkonan Kim Críswell og Wayne Marshall hljómsveitarst]orinn og einleikarinn í viðtali við Hildi Loftsdóttur um ameríska dagskrá Sinfóníuhljómsveitarinnar. Morgunblaðið/Kristinn WAYNE Marshall og Kim Criswell. SINFÓNÍUHUÓMSVEIT ís- lands heldur tónleika í kvöld, miðvikudagskvöld, og annað kvöld kl. 20 í Háskólabíói. Dag- skráin verður helguð amerískum tónsmiðum í þetta sinn og leikin verða verk eftir George Gershwin, Aron Copland, Leonard Bernstein og lög úr þekktum söngleikjum eftir Rodger og Hart. Hljómsveitin hefur fengið til liðs við söngkonuna Kim Criswell, sem er þekkt fyrir söng sinn í söngleikj- um víða um heim. Hún er banda- rísk en hefur verið búsett og starf- að í London í fimm ár. Wayne Marshall mun stjórna hljómsveit- inni auk þess að leika einleik á píanó í verkinu Rhapsody in Blue eftir Gershwin. Wayne er hér í annað sinn, en fyrir tveimur árum stjórnaði hann Sinfóníunni við verk Gerswins. Sinfónían spilaglöð og hlý Blaðamaður hitti þau Kim Cris- well og Wayne Marshall að lokinni æfingu með hljómsveitinni í gær. „Það er mjög ánægjulegt að vera kominn aftur til íslands. Það gerir þetta yndislega veður og hreina loft að ógleymdri hljóm- sveitinni, sem er mjög gaman að stjórna, þar sem meðlimir hennar eru mjög spilaglaðir og einstaklega hlýir í viðmóti, ólíkt mörgum öðr- um hljómsveitum," segir Wayne. Kim tekur undir það að þessi hljómsveit og aðrar á Norðurlönd- unum hafi yfirleitt gaman af því að spila þessa tónlist. „Annars staðar í heiminum eiga hljóðfæra- leikarar það til að líta niður á þessi verk og álíta þau of auðveld fyrir sig, en þegar þeir bytja að æfa kemur annað í ljós,“ segir Kim. Skemmtilegir textar „Ég vona að íslendingar séu góðir í ensku, og muni skilja vel textana sem ég syng, því þeir eru mjög skemmtilegir," segir Kim aðspurð um söngleikjalögin sem hún mun flytja. Flest lögin segir hún vera sung- in af fertugum konum, og ijalli um ástir þeirra og kynlíf, og séu heldur opinská.„Þegar lögin voru notuð í kvikmyndir á árunum 1930-40, var ýmsum þessara texta breytt, en hér verða þeir í upphaflegri mynd.“ Wayne segir það mjög áríðandi í þessari tegund tónlistar að ná rétta andrúmsloftinu, sem ein- kenndi tónlist á þeim árum sem þau voru samin. „Rétta viðhorfið er nauðsyn, og það er verk mitt að skapa það í hijómsveitinni. Klassískir spilarar eru oft óvanir þessari tónlist sem er svolítið djassaðri, og rétt túlkun verður ekki skrifuð á nótnablöðin." Þau sögðust að lokum hlakka til tónleikanna, þar sem æfingar hefðu gengið mjög vel. Þangað til ætluðu þau að slappa af með ferð í Bláa lónið. Brýnt að koma upp hönnun- arsafni NEFND, sem skipuð var af menntamálaráðuneytinu til að gera tiliögur um með hvaða hætti megi standa að stofnun listiðnaðar- og hönnunarsafns, hefur lokið störfum. Nefndin telur brýnt að komið verði á fót safni til varðveislu á góðri hönnun og beri það heitið Hönnunarsafn íslands. Nefndin álítur nauðsynlegt að byggja hönnunarsafnið upp sem sjálfstæða stofnun. í tillög- unum er gert ráð fyrir að fjár- mögnun stofnkostnaðar hvíli á menntamálaráðuneyti, Reykja- víkurborg og öðrum aðilum og stofnkostnaður verði 5 milljónir króna. Lagt er til að mennta- málaráðuneytið hafi frum- kvæði að stofnun safnsins og það beiti sér fyrir formlegum viðræðum við samstarfsaðila. Nefndin gerir að tillögu sinni að opinber stofndagur verði 30. október 1997 sem er fæðing- ardagur Matthíasar Þórðarson- ar þjóðminjavarðar (1877- 1961) sem var einna fyrstur Islendinga til að vekja athygli á nauðsyn þess að safna góðu íslensku listhandverki og nytj- alist. Safn á eigin fótum Björn Bjarnasón mennta- málaráðherra sagði þegar blað- ið sneri sér til hans að skýrsla nefndarinnar sýndi að full þörf væri á að koma upp hönnunar- safni og finna yrði leiðir til þess án þess að ráðast í miklar fjárfestingar. Ljóst væri að rík- ið kæmi ekki til með að reka safnið. Það þyrfti að standa á eigin fótum, en þó með þátt- töku ríkisins og sveitarfélaga. Hann sagðist með óformlegum hætti hafa kynnt málið fyrir forráðamönnum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, en Reykjavíkurborg átti fulltrúa í nefndinni. -kjarni málsins! Þ Ú EDT ATVINNUREKANDINN OG LÝSING HF. VINNUD MEÐ ÞÉD Þegar kemur að fjármögnun er nauösynlegt að geta reitt sig á traust fyrirtæki sem veitir alhliða þjónustu, býr yfir áralangri reynslu og setur viðskiptavininn ávallt í öndvegi. LEGGÐU DÆMIÐ FYDIO LÝSINGU HF. OG LAUSNIN ED SKAMMT UNDAN. FJÁRMÖGNUN ARLEIGA KAUPLEIGA f LÁN # REKSTRARLEIGA ' SUÐUDLANDSBDAUT 22 • SÍMI 533 1500 • FAX 533 1505 Lýsing hf. býður fjérmögnun é öllu sem tengist atvinnurekstri og hefur unnið með íslenskum fyrirteekjum fró érinu 1987. í könnun Viöskiptablaðsins 1995 var Lýsing hf. valiö besta fjármélafyrirtœkið. Lýsing hf. er I eigu eftirtalinna aðila:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.